Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.2010, Síða 52
52 | Tækni 17.–19. desember 2010 Helgarblað
Vasinn karl-
mannlegri
Hversu skringilegt sem það kann að virðast
þá veigra margir karlmenn sér við að ferðast
með iPad-snertitölvur sökum þess að þeim
finnst útlit hlífðartaska fyrir tölvuna vera
heldur kvenlegt og minna helst til mikið á
kvenveski. Það er stærðin sem er að valda
karlmönnum vandræðum, ekki er hægt
að stinga tölvunni í vasann… eða hvað?
Bandaríski fataframleiðandinn Scottevest,
sem sérhæfir sig í ferða- og útivistarfatnaði,
var eldsnöggur að koma hér auga á einstakt
viðskiptatækifæri og aðeins nokkrum
klukkustundum eftir að Steve Jobs kynnti
iPad-tölvuna í janúar fór fyrirtækið að aug-
lýsa þetta sniðuga vesti sem sérstaklega
samhæft við iPad. Scottevest framleiðir
í dag fjölmargar tegundir úlpna og jakka
sem hafa sérsniðin hólf innan klæða fyrir
iPad-tölvur og MacBook Air-ferðatölvur.
http://www.scottevest.com/
Þriðji tæknimað-
urinn hjá Time
Mark Zuckerberg, hinn 26 ára stofnandi
Facebook, var valinn maður ársins 2010
hjá Time-tímaritinu í vikunni. Þrátt fyrir að
vinsældir og áhrif þessarar árlegu kosningar
tímaritsins hafi dalað síðustu ár vakti
kosningin nú sérstaka athygli en fjölmargir
tilnefndu hinn umdeilda Julian Assange,
forsvarsmann Wikileaks, sem hlaut á
endanum flest atkvæði þeirra sem kusu í
gegnum netsíðu tímaritsins. Zuckerberg
er aðeins einn af þremur einstaklingum úr
tækniheiminum sem hlotið hafa þennan
heiður. Andy Grove, þá stjórnarformaður
og framkvæmdastjóri Intel, hlaut titilinn
árið 1997 og síðan Jeffrey Bezos, stofnandi
og aðalframkvæmdastjóri Amazon, árið
1999, þegar uppsveifla og hálfgert æði í
stofnun netfyrirtækja var í hámarki. Hvorki
Steve Jobs, Bill Gates eða þeir félagar Larry
Page og Sergei Brin frá Google hafa hlotið
þennan titil.
Hönnun, viðmót, virkni – þrjú orð sem allir fram-leiðendur flóknari raf-
eindatækja þurfa að hafa í huga
áður en ný vara er sett á markað.
Verðið leikur síðan stórt hlutverk,
kaupandinn þarf að gera upp við
sig hvort hann telji sig fá eitthvað
ásættanlegt fyrir peninginn.
Framleiðendur standa nú
frammi fyrir breyttum tímum,
nokkrum klukkustundum eft-
ir að ný vara er komin í verslanir
er einhver nördinn búinn að skila
áliti sínu inn á vefinn eða jafnvel
hlaða upp myndbandi á YouTube
þar sem hann leiðir áhorfand-
ann, lið fyrir lið, í gegnum kosti
og galla vörunnar.
Fjölmargar vefsíður hreinlega
sérhæfa sig í slíkum úttektum og
birta viðamiklar úttektir og prófan-
ir á tölvum og öðrum tæknivörum.
Þetta er hin ágætasta neytendavörn
fyrir almenning.
Við tókum saman nokkrar
tæknivörur sem komu á mark-
að á árinu en hlutu enga
náð fyrir augum gagn-
rýnenda eða flopp-
uðu vegna annarra
ástæðna.
Snertitölvur, lestölvur, snjallsímar, netsjónvörp og forrit – á árinu sem er að líða kepptust hinir ýmsu fram-
leiðendur við að koma vörum sínum sem fyrst á markað, með misjöfnum árangri eða viðtökum almennings.
Vörur sem enginn
vildi kaupa á árinu
Microsoft Kin One
Söluherferð Microsoft í þessu
tilfelli beindist að unglingum en
kolféll. Enginn vildi kaupa síma
sem hafði engin forrit, lítinn
skjá og ömurlegt viðmót fyrir
vefráp. Tekinn af markaði eftir
aðeins 48 daga.
Literati eReader
7 tomma lestölva. Tækið fékk
einstaklega slæma útreið í
prófunum vegna hægrar virkni,
lélegs lyklaborðs auk þess
sem hnappar til að fletta
síðum virkuðu bara annað
slagið. Í ofanálag virtust
stillingar fyrir Wi-Fi-
tengingu þurrkast
reglulega út þannig að
notandinn var sífellt að
skrá þær inn aftur til að
geta tengst netinu.
Augen Gentouch78
Snertitölva á aðeins 150 Bandaríkjadali. Keyrði á
Android-stýrikerfinu en ekki var hægt að tengjast Android
Market því framleiðandanum hafði láðst að fá tilskilin
leyfi hjá Google. Í sumum prófunum þurfti nánast að berja
í snertiskjáinn til að fá einhverja svörun.
Motorola
Backflip
Android-sími sem Motorola
framleiddi fyrir AT&T í
Bandaríkjunum. Síminn
keyrði á gamalli útgáfu af
Android (1.5), skjárinn hafði
lélega upplausn og fjölsnertiviðmótið
ömurlegt. Ytri hönnun símans þótti illa
útfærð og síminn erfiður í notkun.
Google TV
Þrátt fyrir hina ágætustu vöru floppaði Google TV gjörsamlega eftir að
ýmsir stærstu framleiðendur myndefnis lokuðu á aðgang tækisins að
efni sínu. Almenningur varð efins og sala á tækjum og sjónvörpum með
innbyggðu Google TV einfaldlega hrapaði.
Archos 9
PCTablet
9 tomma tafla sem keyrði á Windows 7. Ending
rafhlöðu með eindæmum stutt og hitastig á jöðrum tækisins
mældist allt að 50 °C, einmitt þar sem notandinn hélt um gripinn.
JooJoo
Tablet
12 tomma tafla með aðeins tvær og
hálfa klukkustund í rafhlöðuendingu,
nánast engin forrit og afspilun á Flash
reyndist ömurlegt. Tekin af markaði í
síðasta mánuði.
Netbook
Navigator Nav
9 Slate
Framleiðendur þessarar snertitölvu líktu henni
við iPad en viðbrögð almennings voru ekki eftir því.
Tölvan þótti allt of dýr, var seld án stýrikerfis, ending
rafhlöðu aðeins tvær og hálf klukkustund og skjárinn
gaf frá sér pirrandi hljóð þegar þrýst var á hann.
Fyrsti tvíkjarna
snjallsíminn
LG kynnti í vikunni Optimus 2X-snjallsímann
sem kemur á markað fljótlega eftir áramót.
Síminn er fyrstur snjallsíma til að skarta
tvíkjarna örgjörva (NVIDIA 1GHz dual-core
Tegra 2) og í samræmi við afl örgjörvans
getur síminn með auðveldum hætti bæði
spilað og tekið upp háskerpumyndskeið
(1080p MPEG-4/H.264). Af öðru sem prýðir
símann má nefna 8GB geymslurými/minni,
stækkanlegt í 32GB með microSD-korti,
8 megapixla myndavél og 1.3 megapixla
myndavél fyrir myndspjall. Optimus 2X
keyrir á Android 2.2 eins og er, en símann
verður síðan auðveldlega hægt að uppfæra
í Android 2.3 sem vænst er snemma næsta
árs. Optimus 2X kemur fyrst á markað í
Suður-Kóreu í janúar og síðan í Evrópu í
kjölfarið.