Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2011, Page 4
4 | Fréttir 7. mars 2011 Mánudagur
Voru ósammála Baldri um sölu hlutabréfa:
Töldu ekki hægt að selja
Tryggvi Pálsson, framkvæmdastjóri
fjármálasviðs Seðlabanka Íslands,
taldi sig ekki geta átt viðskipti með þau
hlutabréf sem hann átti í öllum bönk-
unum á þeim tíma sem hann sat í sam-
ráðshópi stjórnvalda um fjármálastöð-
ugleika. Þrátt fyrir það ákvað Baldur
Guðlaugsson, fyrrverandi ráðuneytis-
stjóri í fjármálaráðuneytinu, að selja
sín bréf í Landsbankanum skömmu
fyrir hrun. Baldur átti einnig sæti í
samráðshópnum sem skipaður var af
ríkisstjórn Geirs H. Haarde árið 2008 til
þess að takast á við vaxandi efnahags-
vanda. „Ég lít svo á að mér væru mjög
miklar takmarkanir settar í viðskipt-
um með hlutabréfaeignir mínar,“ sagði
Tryggvi.
Vitnaleiðslur í máli ákæruvaldsins
gegn Baldri fyrir innherjasvik og brot
í opinberu starfi fóru fram fyrir helgi.
Baldur er ákærður fyrir að hafa selt
hlutabréf sín í Landsbankanum fyrir
rúmlega 190 milljónir króna á grund-
velli upplýsinga sem markaðurinn
hafði ekki fyrir hrun bankans. Er Bald-
ur sagður hafa nýtt upplýsingar sem
hann hafði vegna stöðu sinnar.
Bolli Þór Bollason, sem átti einnig
sæti í samráðshópnum um fjármála-
stöðugleika, var sammála Tryggva þeg-
ar hann bar vitni í Héraðsdómi Reykja-
víkur í síðustu viku. Bolli sagðist hvorki
hafa getað lagalega né siðferðislega átt
viðskipti með bréfin. Hann sagðist hafa
verið mótfallinn fyrirætlunum Baldurs
um að selja bréfin. Sjálfur sagði Bald-
ur að sér hefði liðið „extra vel,“ þegar
hann seldi bréfin sín í bankanum.
NoseBuddy
nefskolunarkannan
Nefskolun er gott ráð gegn
• Áhrifum loftmengunar
• Ryki og frjókornum
• Bakteríum og veirum
Mælt er með nefskolun til að draga úr líkum á kvefi
og ofnæmi – og til að auka skýrleika í hugsun!
Opið virka daga kl. 9 -18
og á laugardögum kl. 11 - 16 Verð: 3.975 kr.
Stórhöfða 25 • Sími 569 3100 • eirberg.is
FÉLAG BRÆÐRANNA
EKKI RANNSAKAÐ
n Félagið TH Investments var ekki til rannsóknar hjá efnahags-
brotadeild n Greiddi sér 300 milljónir í arð fyrir 2008 og 2009
n Í eigu bræðranna Friðjóns og Haraldar Þórðarsona
Félagið TH Investments sem er í
eigu Friðjóns og Haraldar Þórðar-
sona var ekki til rannóknar hjá efna-
hagsbrotadeild ríkislögreglustjóra.
DV greindi frá því í lok janúar að fé-
lagið hefði greitt sér nærri 300 millj-
ónir króna í arð fyrir árin 2008 og
2009. Þeir Friðjón og Haraldur voru
grunaðir um meint auðgunarbrot er
snéru að gjaldeyrisviðskiptum ásamt
Matthíasi Ólafssyni. Þann 13. febrúar
síðastliðinn barst þremenningunum
bréf frá efnahagsbrotadeildinni þess
efnis að rannsókninni væri lokið og
embættið hefði sent málið áfram til
Fjármálaeftirlitsins.
Að undanförnu hafa bræðurnir
reynt að hreinsa mannorð sitt í fjöl-
miðlum. Hafa bæði Viðskiptablaðið
og Fréttablaðið fjallað um málið. Páll
Arnór Pálsson, lögmaður Friðjóns,
sagði í samtali við Viðskiptablaðið að
líklega yrði farið fram á skaðabætur
vegna málsins.
„DV gekk mjög langt í ósmekk-
legum fullyrðingum í þessu máli,“
sagði Haraldur Þórðarson í samtali
við Fréttablaðið í síðustu viku. Þess
hefur þó hvergi verið getið að félag
þeirra TH Investments sem DV hefur
nokkrum sinnum fjallað um hafi ekki
verið til rannsóknar.
Ekki er vitað hvers vegna félagið
var ekki rannsakað en það hagnað-
ist um 250 milljónir króna árið 2008
þrátt fyrir að hafa einungis starfað
tvo síðustu mánuði ársins. Mánuði
eftir að TH Investments var stofn-
að var Friðjón Þórðarson handtek-
inn grunaður um meint gjaldeyris-
brot. Hlýtur það því að skjóta skökku
við að efnahagsbrotadeild ríkislög-
reglustjóra hafi ekki á sama tíma séð
ástæðu til þess að rannsaka þetta fé-
lag bræðranna.
Sent til FME
„Efnahagsbrotadeild ríkislögreglu-
stjóra vann að rannsókn máls er
varðar ætluð auðgunarbrot og
peningaþvætti vegna gjaldeyrisvið-
skipta. Það varðaði þó ekki félagið
TH Investments heldur tiltekna ein-
staklinga,“ segir Guðmundur Guð-
jónsson, yfirlögregluþjónn hjá emb-
ætti ríkislögreglustjóra, sem svar við
fyrirspurn DV um málið. Virðist mál-
inu því enn ekki lokið þrátt fyrir að
meira en tvö ár séu liðin frá því að
það kom upp.
Friðjón Þórðarson er fyrrver-
andi starfsmaður Landsbankans en
starfaði síðar hjá fyrirtækinu Virð-
ingu þaðan sem hann var rekinn
haustið 2008. Vék Virðing honum
úr starfi þar sem hann var grunað-
ur um markaðsmisnotkun auk pen-
ingaþvættis og auðgunarbrota. Áttu
hann og Matthías Ólafsson, æsku-
vinur Friðjóns og ljósatæknir hjá
Orkuveitu Reykjavíkur, meðal annars
að hafa millifært 250 milljónir króna
á milli reikninga sinna. Matthías var
skráður einn eigenda TH Invest-
ments árið 2009 en er ekki lengur á
meðal hluthafa samkvæmt ársreikn-
ingi félagsins.
Haraldur Þórðarson var forstöðu-
maður fjárstýringar Exista sem ann-
aðist gjaldeyrisjöfnuð. Því má ætla
að reynsla Haraldar frá Exista hafi
nýst félaginu TH Investments vel.
Bræðurnir voru báðir handteknir og
yfirheyrðir síðla árs 2008 vegna rann-
sóknar efnahagsbrotadeildar ríkis-
lögreglustjóra á Virðingarmálinu.
Einnig var farið fram á gæsluvarð-
hald yfir Friðjóni en því var hafnað.
Ævintýralegur hagnaður
Félagið TH Investments hagnað-
ist um 250 milljónir króna á einung-
is tveimur mánuðum árið 2008 en
talið er að félagið hafi staðið í gjald-
eyrisviðskiptum. Árið 2009 var hagn-
aður félagsins töluvert lægri, eða 45
milljónir króna. Félagið greiddi sér 92
milljónir króna í arð árið 2009 og 190
milljónir króna árið 2010, eða sam-
tals nærri 300 milljónir króna. Virð-
ast þeir bræður því hafa grætt á tá
og fingri eftir bankahrunið. DV hef-
ur auk þess áður fjallað um bílaflota
Friðjóns Þórðarsonar en hann á bæði
nýlegan Land Cruiser 200-jeppa og
Mercedes Benz glæsikerru.
Annas Sigmundsson
blaðamaður skrifar as@dv.is
„Efnahagsbrotadeild
ríkislögreglustjóra
vann að rannsókn máls er
varðar ætluð auðgunarbrot
og peningaþvætti vegna
gjaldeyrisviðskipta.
Lifir hátt Hér má sjá heimili Friðjóns
Þórðarsonar að Holtsbúð í Garðabæ. Á
hann bæði nýlega Land Cruiser-jeppa-
bifreið og glæsilegan Mercedes Benz.
MYND RÓBERT REYNISSON
Hagnaðist vel Friðjón Þórðarson
hagnaðist vel á árunum 2008 og 2009
en félag hans TH Investments greiddi
sér nærri 300 milljónir króna í arð fyrir
þessi rekstrarár. Efnahagsbrotadeild
ríkislögreglustjóra rannskaði ekki félagið.
MYND PJETUR SIGURÐSSON
Leiðrétting
Í úttekt helgarblaðs DV á Fáfni /
MC Iceland og Hells Angels birt-
ist sú villa að Fjölnir „tattú“ var
sagður hafa yfirgefið samtök-
in fyrir nokkru. Hið rétta er að
Sverrir Þór Einarsson, eða Sverrir
„tattú“ sagði skilið við Fáfni fyrir
tveimur árum. Fjölnir er beðinn
afsökunar á þessum mismælum
en hann hefur enga tengingu við
Fáfni eða MC Iceland.
Baldur Guðlaugsson Ákærður fyrir að
nýta sér innherjaupplýsingar og selja bréfin
sín í Landsbankanum skömmu fyrir hrun.
Brutu
verklagsreglur
Eigendur og starfsfólk World Class
harma að maður hafi fundist látinn
í líkamsræktarstöð fyrirtækisins í
Laugum, Laugardal. Segir í frétta-
tilkynningu frá fyrirtækinu að mis-
brestur hafi orðið á verklagsreglum
fyrirtækisins sem kveða á um að
starfsfólk gangi úr skugga um að allir
viðskiptavinir séu farnir út úr stöð-
inni við lok dags.
Í tilkynningunni segir að World
Class hafi alla tíð lagt höfuðáherslu
á að tryggja öryggi gesta sinna og
starfsmanna og að á öllum starfs-
stöðvum fyrirtækisins séu hjarta-
stuðtæki til taks ef á þarf að halda.
Þá hefur starfsfólk fyrirtækisins
fengið þjálfun í skyndihjálp. Rann-
sókn í kjölfar atviksins leiddi í ljós
að öryggisþættir hefðu verið í lagi í
stöðinni, samkvæmt tilkynningunni.
„Ávallt má þó gera betur og
munu stjórnendur og starfsfólk
World Class yfirfara verklagsreglur
til að tryggja að atburður sem þessi
hendi ekki aftur,“ segir svo í tilkynn-
ingunni.
Fimm ára
drengur lést
Fimm ára drengur lést um helgina á
sveitabæ í Borgarbyggð eftir að hafa
lent í drifskafti dráttarvélar. Greindi
fréttastofa RÚV frá þessu í hádeginu
á sunnudag. Var drengurinn gest-
komandi á bænum þar sem bana-
slysið varð. Það er lögreglan á Akra-
nesi sem fer með rannsókn málsins
en ekki er hægt að greina frá nafni
drengsins að svo stöddu.