Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.2011, Blaðsíða 2
Outlaws-meðlimurinn og forsprakki
Black Pistons á Íslandi Jón Trausti
Lúthersson var staddur hér á landi
um helgina þegar íslenski mótor-
hjólaklúbburinn Berserkir í Hafnar-
firði var tekinn formlega inn í áhang-
endasamtök Black Pistons. Klúbbinn
er að finna víðsvegar um heiminn en
hann er talinn einn af hættulegustu
klúbbunum í undirheimum Íslands
ef marka má skýrslu lögreglunn-
ar sem DV gerði grein fyrir í byrjun
mars. Black Pistons hefur sambæri-
lega stöðu og MC Iceland, áður Fáfn-
ir, hafði áður en þeir fengu nýverið
formlega inngöngu í alþjóðlegu sam-
tökin Hells Angels. Með Jóni Trausta í
för var leiðtogi Black Pistons í Noregi.
Helstu óvinir Hells Angels
Black Pistons eru stuðningssam-
tök Outlaws-samtakanna, eða The
McCook Outlaws Motorcycle Club,
sem stofnuð voru í Bandaríkjunum,
nærri Chicago, árið 1935. Vélhjóla-
klúbburinn hefur fært verulega út kví-
arnar undanfarin ár og áratugi og er
með starfsemi víða um heim, meðal
annars í Asíu og víða um Evrópu.
Lögreglan óttast, samkvæmt gögn-
um sem DV birti í byrjun mars, að inn-
an hópsins sé að finna einstaklinga
sem hiki ekki við að beita lögreglu of-
beldi ef þörf krefur. Lögreglu kunni
beinlínis að standa ógn af hópnum,
sem og raunar öðrum glæpahópum.
Um 10 meðlimir séu í Black Pistons
sem gagngert hafi verið stofnuð til
höfuðs Hells Angels MC Iceland. Það
mun þó líklega hafa fjölgað mikið í
hópi Black Pistons hér á landi með
inngöngu mótorhjólaklúbbsins Ber-
serkja um helgina. Jón Trausti vildi í
samtali við DV ekki gefa upp hversu
margir meðlimir væru í samtökunum.
Slá síðasta höggið
„Okkar regla er sú að við sláum
aldrei fyrsta höggið,“ sagði Rík-
harð Júlíus Ríkharðsson, foringi MC
Black Pistons á Íslandi, í samtali við
DV fyrir skömmu. „En við sláum
pottþétt það síðasta.“ Hann fór held-
ur ekki í launkofa með það að grip-
ið yrði til ofbeldis ef þörf þætti á. „Er
nokkuð hægt að mótmæla því? Ef
það er ráðist á okkur, þá svörum við
fyrir okkur,“ sagði hann.
Outlaws er vinasamtök mótor-
hjólasamtakanna Banditos sem
hafa löngum staðið í blóðugum
átökum við meðlimi Hells Ang-
els á götum skandínavískra borga.
Saman tilheyra þessi tvö samtök
neti mótorhjólaklúbba sem kalla
sig „Eitt prósentið“ eða „1%-er“ á
ensku. Nafnið er rakið til yfirlýsing-
ar Landssamtaka bandarískra mót-
orhjólasamtaka, eða American Mot-
orcyclist Association, þess efnis að
99 prósent mótorhjólamanna séu
löghlýðnir borgarar. Eru samtökin
því beinlínis að segja að meðlimir
þeirra séu ekki löghlýðnir borgarar.
Jón stóri og Black Pistons
DV birti um miðjan síðasta mán-
uð myndir af Ríkharð Júlíusi í sam-
kvæmi með Jóni Hilmar Hallgríms-
syni, eða Jóni stóra eins og hann
kallar sig, og Ásgeiri Þór Davíðs-
syni, sem oftast er kenndur við
karlaklúbbinn Goldfinger. Ríkharð
er tengdasonur þess síðarnefnda.
Jón stóri er leiðtogi í samtökunum
Semper Fi, stytting á Semper Fidel-
is sem stendur fyrir „ávallt trúr“, en
samkvæmt skýrslu lögreglunnar er
hópurinn tilraun íslenskra brota-
manna til að standa saman gegn
gengi erlendra glæpamanna. Sam-
kvæmt skýrslunni er hópurinn vel
skipulagður og hefur burði til að
framleiða og flytja út sterk fíkniefni.
Af veru þeirra tveggja í sama
gleðskap má ráða að gott sé á milli
Semper Fi og Black Pistons og gæti
það þýtt að fyrrnefndu samtökin
myndu styðja Outlaws-áhangend-
urna ef til átaka kæmi á milli þeirra
og Hells Angels. Ef til slíkra átaka
kæmi óttast lögreglan um bæði ör-
yggi sitt og almennra borgara.
2 | Fréttir 18. apríl 2011 Mánudagur
Fjölgar hratt í Black Pistons
n Hafnfirski mótorhjólaklúbburinn Berserkir
gengnir til liðs við Black Pistons n Tvenn
alþjóðleg glæpasamtök skjóta rótum hér á
landi á stuttum tíma n Lögreglan óttast að
til átaka kunni að koma á milli samtakanna
DV sagði frá því 9. mars að lögreglu-
yfirvöld og almenningur í Hauga-
sundi í Noregi væru uggandi yfir
útibúi Outlaws í bænum. Jón Trausti
Lúthersson er leiðtogi Outlaws í
Haugasundi. Líkt og hér á landi hef-
ur Hells Angels skotið rótum í bæn-
um auk Outlaws, en á Íslandi hafa
verið stofnuð áhangendasamtök
Outlaws, Black Pistons.
Staðan í þessum tiltölulega litla
30 þúsund manna bæ í Noregi er því
sú sama og á Íslandi – tvenn alræmd
mótorhjólasamtök, sem tengd hafa
verið skipulagðri glæpastarfsemi í
gegnum tíðina, hafa skotið rótum í
samfélaginu. Lögreglan þar, og ekki
síður íbúar, hefur skiljanlega áhyggj-
ur. Magnus Karlsson, talsmaður
Outlaws, segir í samtali við blaðið
Haugesund Avis að þótt þessir menn
séu í mótorhjólaklúbbi þýði það ekki
að þeir séu glæpamenn.
Líkt og íslensk lögregluyfirvöld
óttast norskir starfsbræður þeirra
að til átaka eða einhvers konar upp-
gjörs komi á milli samtakanna sem
gæti birst í blóðugum átökum á göt-
um borgarinnar.
Kim Kliver, sérfræðingur hjá rík-
islögreglustjóraembættinu í Dan-
mörku, segir vitað mál að glæpa-
starfsemi fylgi oftar en ekki þessum
samtökum og því sé ástæða til að
hafa áhyggjur en átök mótorhjóla-
gengjanna Banditos og Hells Ang-
els hafa verið langvarandi mein
í dönsku samfélagi. Samfélagið í
heild verði þó að standa saman
gegn skipulagðri glæpastarfsemi,
ef svo ber undir, og láta vita að slíkt
verði ekki liðið.
Norska lögreglan óttast Outlaws
7. mars 2011
„ Jón Trausti vildi í
samtali við DV ekki
gefa upp hversu margir
meðlimir væru í samtök-
unum.
Tengdasonur Geira á Goldfinger
Ríkharður Júlíus Ríkharðsson er tengda-
sonur Ásgeirs Þórs Davíðssonar, eiganda
nektarstaðarins Goldfinger. Myndin er tekin
í partíi sem þeir mættu báðir í.
Mynd BJörn BLöndAL
„1%-er“ Merkið er að finna á vesti Jóns
Trausta Lútherssonar en það er merki nets
mótorhjólaklúbba sem telja sig vera útlaga
og fara ekki leynt með að þeir brjóti lög.
Mynd BJörn BLöndAL
„Ef það er ráðist á
okkur, þá svörum
við fyrir okkur.
Aðalsteinn Kjartansson
blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is
Baldur Guðmundsson
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
Útlagarnir Hér sjást fyrir miðju Jón Trausti Lúth-
ersson, leiðtogi Outlaws-samtaka í Noregi, auk
leiðtoga Black Pistons í Noregi, Viggos Bjørnsson.
Þeir komu til landsins til að fagna inngöngu
Berserkja í Hafnarfirði í Black Pistons á Íslandi.
Mynd BJörn BLöndAL
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Ís-
lands, segist ekki vera í neinni vin-
sældarkeppni og að ákvörðun hans
um synja Icesave-lögunum staðfest-
ingar hafi ekki verið tekin til að auka
á vinsældir sínar, sem fóru minnk-
andi eftir efnahagshrunið. Vinsældir
hans hafa þó mælst mjög miklar að
undanförnu, eftir að hann synjaði
lögunum undirskriftar öðru sinni.
Ólafur Ragnar var í viðtali í útvarps-
þættinum Sprengisandi á Bylgunni á
sunnudagsmorgun.
Hann sagðist þar hafa verið knú-
inn til að taka umdeildar ákvarð-
anir: „...ekki vegna þess að ég vildi
það sjálfur, heldur vegna þess að at-
burðarásin skilaði þeim á mitt borð,“
sagði hann við Sigurjón M. Egilsson.
Ólafur sagði líka: „Fórnarkostnaður
forsetans er ansi mikill eins og sést í
fjölmiðlum og á ýmsum vefmiðlum,
til dæmis hvernig gamlir stuðnings-
menn mínir og jafnvel vinir hafa
snúist gegn forsetanum.“ Forsetinn
sagði það vera fáránlega kenningu
að hann væri í einhverri vinsældar-
keppni þar sem hann væri kominn
með nóg eftir að hafa lifað opin-
beru lífi í marga áratugi. „Á þessum
fimmtíu árum sem ég hef verið í
sviðsljósinu þá er ég fyrir löngu bú-
inn að fá nóg af því.“
Ólafur hefur markað sér nokkra
sérstöðu en hann er eini forsetinn
sem synjað hefur lögum staðfesting-
ar, en það hefur hann þrívegis gert.
Búinn að fá nóg af sviðsljósinu:
EKKi í
vinsældAr-
KEppni
Tapaði sparifénu
í hruninu
Þráinn Bertelsson, alþingismaður
VG, telur alls ekki tímabært að boða
til kosninga, þrátt fyrir það ástand
sem nú ríki á Alþingi. „Kosningar
og pólitísk upplausn akkúrat núna
væru álíka þarflegar og eldgos eða
aflabrestur. Nú þarf vinnufrið. Nú
þarf kjarasamninga. Nú þarf þjóðin
sitt sumarfrí í friði og spekt ótrufluð
af lýðskrumi og pólitískum heims-
endaspámönnum,“ sagði hann í við-
tali á Eyjunni á laugardag. Að sögn
Þráins töpuðu hann og Sólveig, eig-
inkona hans, því sem þau höfðu lagt
til elliáranna vegna hrunsins. Hann
segir að margir hafi þó farið verr út
úr hruninu en þau.