Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.2011, Qupperneq 3
Fréttir | 3Mánudagur 18. apríl 2011
Fjölgar hratt í Black Pistons
MC ICeland/Hells angels
stofnaður: 2009
Foringi: Einar „Boom“ Marteinsson
Meðlimir: Vel á annað hundrað með
áhangendaklúbbum.
Facebook-vinir: Ekki með Facebook-síðu
Höfuðstöðvar: Gjáhellu í Hafnarfirði
seMper FI
stofnaður: 2010-2011
Foringi: Jón stóri
Meðlimir: Óvíst en fjölgar hratt
Facebook-vinir: 504 (mars 2011)
Höfuðstöðvar: Leitar að húsnæði
Þessa hópa óttast
íslenska lögreglan
M
y
n
d
s
Ig
tr
y
g
g
u
r
a
r
I J
ó
H
a
n
n
ss
o
n
MC BlaCk pIstons/outlaws
stofnaður: Líklega 2010
Foringi: Ríkharður Ríkharðsson
Meðlimir: 16
Facebook-vinir: 1036
Höfuðstöðvar: Engar
M
y
n
d
B
Jö
r
n
B
lö
n
d
a
l
glæpaHópur lItHáa og
pólverJa
stofnaður: Ekki vitað
Foringi: Ekki vitað
Meðlimir: Ekki vitað
Facebook-vinir: Ekki með Facebook-síðu
Höfuðstöðvar: Ekki vitað
sv
Ið
se
t
t
M
y
n
d
Forsprakki Black Pistons á Íslandi var með leiðtoga samtakanna í Noregi á Dillon um helgina.
„Fólk verður bara að kynnast okkur“
„Ég get ekkert tjáð mig um það, fólk
verður bara að koma og kynnast
okkur,“ segir Jón Trausti Lúthers-
son, stofnandi MC Black Pistons
á Íslandi, stuðningssamtaka vél-
hjólaklúbbsins Outlaws MC, spurð-
ur hvaða skilyrði hópar þurfi að
uppfylla til þess að verða fullgild-
ir meðlimir í Black Pistons, í sam-
tali við DV. Þegar hann var spurður
um ástæðu þess að starfrækja sam-
tök eins og Black Pistons á Íslandi
sagði hann: „Ég get ekkert tjáð mig
neitt um svoleiðis mál, því miður.“
Blaðamaður DV ræddi við
Jón Trausta sem var ásamt Viggo
Bjørnsson, leiðtoga Black Pistons
í Noregi, á fögnuði Black Pistons-
manna á skemmtistaðnum Dillon
síðastliðið laugardagskvöld. Fögn-
uðurinn var haldinn í tilefni af því
að mótorhjólaklúbburinn Berserk-
ir séu orðnir fullgildir meðlimir í
Black Pistons, og tilheyrir hópurinn
nú svokallaðri Hafnarfjarðardeild
Black Pistons á Íslandi. Þetta stað-
festi Jón Trausti í samtali við DV.
Hann vildi ekki gefa upp hversu
margir meðlimir væru í Black Pi-
stons á Íslandi eftir sameininguna,
en staðfesti að þeim hefði vissulega
fjölgað. Þá sagðist hann ekkert geta
tjáð sig um hvað fælist í inngöngu
Berserkjanna í Black Pistons.
saman á dillon
Þegar hann var spurður að því
hvort hann hefði komið hingað til
lands samferða leiðtoga samtak-
anna í Noregi, sagði hann það ekki
vera rétt, hann hafi komið einn til
landsins. Þá sagðist hann ekki geta
tjáð sig um það hvort Viggo hefði
verið með honum á samkomunni
á Dillon.
Á myndum sem DV hefur undir
höndum má þó sjá hvar þeir ræddu
málin við barinn á Dillon, síðastlið-
ið laugardagskvöld. Með þeim í för
var Tómas Þórarinsson, forsprakki
Berserkjanna, sem nú eru orðnir
fullgildir meðlimir í Black Pistons.
Tómas staðfestir í samtali við DV að
Viggo hafi verið með þeim á Dillon.
kannast ekki við átök
Eins og fram hefur komið í fjöl-
miðlum hefur lögreglan áhyggjur af
því að framundan sé einhvers kon-
ar uppgjör á milli glæpahópa hér á
landi, en Jón Trausti gefur lítið fyrir
það: „Þú verður að tala við glæpa-
hópana um það, við erum bara
mótorhjólaklúbbur. Við erum ekki
glæpahópur og höfum aldrei verið,
og enginn af okkar klúbbum hefur
verið dæmdur sem glæpaklúbbur.“
Þegar Jón Trausti var spurður út í
þau átök sem Outlaws og Hells Ang-
els hafa átt í undanfarin ár úti um all-
an heim segir hann: „Hvar þá? Ekki
hef ég orðið var við það. Það hlýtur
að vera svolítið síðan það var.“
Hagsmunir rekast ekki á
Hann segir ekkert í gangi á milli
þessara hópa í dag, og ekkert benda
til þess að svo verði: „Nei. Ég sé
enga ástæðu til þess. Þetta er mót-
orhjólaklúbbur sem við erum með.
Það snýst um að keyra mótorhjól og
að hafa gaman af lífinu, þannig að
hagsmunir okkar rekast ekki á við
neina.“
Jón Trausti tjáir sig ekkert um það
hvort að framundan sé stofnun Out-
laws á Íslandi. Þegar hann er spurð-
ur út í það hvort að hann ætli að vera
áfram hér á landi, eða halda aftur til
Noregs, segist hann ekkert ætla að
segja um það að svo stöddu: „Þess-
ir hlutir eiga ekki að snúast um mig.“
jonbjarki@dv.is
Frændur og leiðtogar Jón Trausti
Lúthersson ásamt frænda sínum Ríkharð
Júlíus Ríkharðssyni, leiðtoga Black Pistons
á Íslandi. „Ef það er ráðist á okkur, þá
svörum við fyrir okkur,“ sagði Ríkharð í
samtali við DV í mars.
Mynd BJörn Blöndal
Tómas Þórarinsson, eða Tommi, leið-
togi Berserkjanna sem teknir voru inn
í Black Pistons um helgina, og eru nú
Hafnarfjarðardeild samtakanna, segir
lítið breytast við inngönguna. „Þetta
eru sem sagt tveir „chapterar“ núna
og við erum Hafnarfjarðardeildin.
Það breytist nú ekki mikið. Við erum
bara mótorhjólaklúbbur áfram, en
erum orðinn hluti af stærra bræðra-
lagi.“ Aðspurður hvort þeir hefðu
þurft að uppfylla einhver skilyrði til
þess að komast í hóp Black Pistons-
manna segir hann svo vera, en hann
tjái sig ekki um hver þau skilyrði séu.
skiptu um merki á föstudag
Tómas segir að deildin hafi skipt um
merki félagsins síðastliðinn föstu-
dag og því hafi menn verið að fagna
á laugardag. Hann mótmælir því ekki
að meðlimir Hells Angels og meðlim-
ir Outlaws, þar á meðal Black Pistons,
hafi átt í átökum víða um heim en seg-
ist engar áhyggjur hafa af slíku hér á
landi.
Þegar hann er spurður um það
hvort gott sé á milli hópanna tveggja
hér á landi segir hann: „Nei, ég er ekki
að segja það. Það eru bara engin sam-
skipti okkar á milli, og það eiga ekki að
geta orðið neinir hagsmunaárekstr-
ar þar sem við erum náttúrulega bara
mótorhjólaklúbbur.“
tengdir við ýmsilegt misjafnt
Í Hafnarfjarðardeildinni eru nú sex
fullgildir meðlimir, en Tómas segir
að nú sé verið að taka nýja meðlimi
inn á fullu. Þegar hann er spurður út
í áhyggjur lögreglunnar þess efnis að
möguleg átök glæpahópa séu fram-
undan segist hann ekki geta séð hvar
hagsmunir Black Pistons eigi að skar-
ast við hagsmuni glæpahópa. Að lok-
um segir Tómas að honum hafi fundist
umræðan um samtökin vera afbökuð:
„Það er búið að vera að tengja okkur
við allt nema við það sem við erum.“
jonbjarki@dv.is
Leiðtogi nýrrar Hafnarfjarðardeildar Black Pistons:
„Hluti af stærra
bræðralagi“„Við erum náttúru-
lega bara mótor-
hjólaklúbbur.
14 | Fréttir
4.–6. mars 2011 Helgarblað
UPPGJÖRIÐ ER Í NÁND
n Lögreglan óttast fjóra hópa á Íslandi og spáir
uppgjöri innan tíðar n Almennir borgarar gætu
lent á milli n Lögreglan telur að Jón Trausti Lúth-
ersson ætli að hefna sín n Íslenskir glæpamenn
sameinast af ótta við erlendan glæpahóp
Lögreglan óttast um eigið öryggi
ekki síður en öryggi almennings ef
til uppgjörs kemur á milli glæpa-
hópa sem skotið hafa rótum á Ís-
landi undanfarin ár. Samkvæmt
leyniskjölum sem DV hefur und-
ir höndum metur lögreglan hættu
á því að átökin gætu brotist út á
stöðum þar sem almennir borgar-
ar gætu lent á milli. Nýr hópur ís-
lenskra glæpamanna hafi verið
stofnaður til þess að bregðast við
breyttri stöðu í undirheimum.
Lögreglan óttast enn fremur að
Jón Trausti Lúthersson, sem rek-
inn var úr vélhjólasamtökunum
MC Iceland, áhanganda Hells Ang-
els, hyggi á hefndir vegna brott-
vikningarinnar. Hann hafi stuðlað
að stofnun hóps, bæði á Íslandi og
í Haugasundi í Noregi, sem styðji
helstu óvini Hells Angels á heims-
vísu; Outlaws. Uppgjör sé í vænd-
um.
Stjórnvöld bregðast við
„Við munum beita öllum mögu-
legum ráðum til að losa Ísland við
glæpahópa og sporna af alefli gegn
því að slíkum hópum, sem reyni
að brjótast inn í íslenskt samfé-
lag, takist það ætlunarverk. Í und-
irbúningi er lagafrumvarp sem
auðveldar lögreglunni að glíma
við glæpamenn en ég tek fram að
við munum gæta þess rækilega að
rýmkaðar rannsóknarheimildir
verði háðar dómsúrskurði og eft-
irliti,“ segir Ögmundur Jónasson
innanríkisráðherra í samtali við
DV en á föstudaginn var lagafrum-
varpið kynnt á blaðamannafundi.
Lögregla óttast að í hörð átök
stefni í undirheimum Reykjavíkur,
sér í lagi á milli klúbba sem tengj-
ast tveimur af stærstu vélhjóla-
gengjum í heimi; Hells Angels og
Outlaws, eða Vítisengla og Útlaga.
Fréttablaðið greindi frá þessu fyrir
helgi en þetta er sögð megin ástæða
þess að lögregla fái nú auknar
rannsóknarheimildir.
Hverjir eru Útlagarnir?
Klúbburinn MC Iceland, áður
Fáfnir, hefur í nokkur ár verið í inn-
gönguferli til þess að gerast full-
gildur meðlimur Hells Angels. Um
MC Iceland og Hells Angels hefur
mikið verið skrifað í íslenskum fjöl-
miðlum.
Hinn klúbburinn, MC Black
Pistons, er lítt þekktur á Íslandi.
Um er að ræða stuðningssamtök
Outlaws, eða The McCook Outlaws
Motorcycle Club, sem stofnuð voru
í Bandaríkjunum, nærri Chicago,
árið 1935. Vélhjólaklúbburinn hef-
ur fært verulega út kvíarnar undan-
farin ár og áratugi og er með starf-
semi víða um heim, meðal annars í
Asíu og víða um Evrópu.
Samkvæmt skjölum sem DV
hefur undir höndum telur lög-
reglan að stofnun Black Pistons-
hópsins sé bein ögrun við MC Ice-
land sem stefnir að inngöngu í
Hells Angels og hafi raunar kom-
ið klúbbn um í opna skjöldu. Lík-
ur séu á því að MC Iceland fái skýr
fyrirmæli að utan um að mæta beri
þessari ógn af hörku.
Þegar DV spurði formann MC
Iceland hvort von væri á uppgjöri
á milli hópanna sagði hann það af
og frá. „Við erum ekki í stríði við
neinn,“ sagði hann en vildi að öðru
leyti ekkert láta hafa eftir sér, hvorki
um MC Iceland né Black Pistons.
Útlagar á Íslandi
Eins og áður sagði má rekja stofn-
un Black Pistons á Íslandi til þess
að Jón Trausti Lúthersson, sem
rekinn var nokkuð óvænt úr Fáfni
vegna deilna um fjármál, fluttist
til Noregs og stofnaði MC Black
Pistons í Haugasundi, að því er
heimildir blaðsins herma. Því til
stuðnings má geta þess að á Face-
book-síðu norska klúbbsins er Jón
Trausti á meðal vina auk þess sem
honum líkar við, samkvæmt sam-
skiptasíðunni, ótal klúbba sem
kenna sig við Outlaws, þar á með-
al íslenska klúbbinn. Samkvæmt
skjölum sem DV hefur undir hönd-
um fundust merki íslenska Black
Pistons-klúbbsins við tollskoðun á
Keflavíkurflugvelli fyrir um þremur
vikum.
Samkvæmt sömu skjölum eru
meðlimir í hópnum aðeins um
einn tugur, enn sem komið er. Lög-
reglan óttast að innan hópsins sé
að finna einstaklinga sem hiki ekki
við að beita lögreglu ofbeldi ef þörf
krefji.
Jón Trausti er eins og fram hef-
ur komið búsettur í Noregi og fer
því ekki fyrir MC Black Pistons á
Íslandi. Heimildir DV herma að
það geri hins vegar frændi hans
og vinur, Ríkharður Ríkharðsson
eða Rikki Rikhards Sylo, eins og
hann kallar sig á Facebook. SYLO
er skammstöfun fyrir Support Your
Local Outlaws, sem er stuðningsyf-
irlýsing við Outlaws-samtökin.
Verða brátt meðlimir
Heimildir DV herma að um þrír
mánuðir séu þar til MC Black Pist-
ons verði fullgildur meðlimur í
Outlaws en til samanburðar má
nefna að inngönguferli MC Iceland
í Hells Angels hefur staðið yfir í það
minnsta frá árinu 2002. Einn við-
mælandi DV orðaði það þannig að
í Outlaws gengju menn sem hafa
ekki getað haldið sig við þær reglur
sem Hells Angels setur sér. Þeir séu
því sýnu verri en félagsmenn MC
Iceland en samkvæmt heimildum
innan lögreglunnar eru í báðum
hópum menn sem eru þekktir fyrir
ofbeldisverk.
DV er ekki kunnugt um umfang
og starfsemi Black Pistons að öðru
leyti en að í samtökunum eru um
tíu manns. Samkvæmt heimildum
hafa þeir ekki húsnæði undir starf-
semi sína. DV tókst ekki að ná tali
af Ríkharði, sem sagður er formað-
ur klúbbsins.
Brenndu merki Hells Angels
Eins og að framan segir óttast lög-
regla mjög að slá kunni í brýnu með
hópunum. Samkvæmt heimildum
DV innan MC Iceland munu félags-
menn ekki vera spenntir fyrir því að
hafa frumkvæði að slíku uppgjöri
með tilheyrandi fjölmiðlafári sem
kunni að skapast. MC Iceland líti ekki
á Black Pistons sem mikinn keppi-
naut. Það stangast raunar á við heim-
ildir DV innan lögreglunnar sem tel-
ur að persónuleg óvild, metingur og
fjárhagslegir hagsmunir séu nægar
forsendur til átaka á milli hópanna.
Til viðbótar þessu ber að nefna at-
vik sem gerðist um áramótin. Þá var
tekið upp myndband þar sem með-
limir Black Pistons brenndu merki
Hells Angels. Það þykir hinn mesta
vanvirðing enda líta félagsmenn vél-
hjólaklúbba á merki klúbbsins sem
afar merkan, jafnvel heilagan hlut.
Myndbandið komst í umferð og olli
úlfúð en atvikið þykir þó eitt og sér
ekki næg ástæða til uppgjörs eða
átaka, í það minnsta ekki að sinni.
Fleiri glæpahópar
Enn fleiri glæpahópar hafa skot-
ið rótum á Íslandi samkvæmt
þeim gögnum sem DV hefur und-
ir höndum. Hópur afbrotamanna
frá Póllandi og Litháen hafi mynd-
Baldur Guðmundsson
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
„Við munum beita
öllum mögulegum
ráðum til að losa Ísland
við glæpahópa.
Vélhjólagengi Lögreglan
óttast að til átaka komi á milli
tveggja vélhjólaklúbba á Íslandi.
að hóp sem hefur sterk tengsl í út-
löndum. Hópurinn standi að fram-
leiðslu og sölu sterkra fíkniefna,
einkum amfetamíns, hér á landi og
til marks um mátt hópsins er talið
að hann búi yfir styrk til að fram-
leiða fíkniefni og flytja þau úr landi
til sölu annars staðar í heiminum.
Í skjölunum segir einnig að
meðlimir hópsins beri vopn og
hiki hvergi við að beita grófu of-
beldi, jafnt gagnvart öðrum hóp-
um og einstaklingum. Fram kemur
að hópurinn sé mjög vel skipu-
lagður og að aðrir glæpahópar á
Íslandi óttist hann mjög.
Íslenskir hópar sameinast
Eins og fram kom í DV fyrr á árinu
stofnaði Jón Hilmar Hallgrímsson,
eða Jón stóri eins og hann kallar
sig, hóp sem ber nafnið Semper Fi.
Hans er getið í gögnunum sem DV
hefur undir höndum. Þar segir að
nafn hópsins sé eins konar kjörorð
bandarískra landgönguliða og sé
stytting á orðasambandinu „Semp-
er fidelis“ sem merki Ávallt trúr.
Meðlimir hópsins hafa ítrekað
komist í kast við lögin, aðallega í
tengslum við fíkniefni en einn-
ig eru tengingar við margvíslega
brotastarfsemi á borð við rekstur
á spilavítum, peningaþvætti, of-
beldi og hótanir. Opinber tilgangur
hópsins er að æfa saman lyftingar
og bardagaíþróttir en lögregla hef-
ur grun um að tilurð hópsins megi
rekja til ótta íslenskra brotamanna
við aukin umsvif þess glæpahóps
sem Pólverjar og Litháar myndi í
undirheimum. Með öðrum orðum
hafi íslenskir glæpamenn samein-
ast til að geta mætt ógnunum og
ofbeldisverkum erlendu mann-
anna.
Fram kemur einnig að til standi
að byggja Semper Fi upp eins
og MC Iceland og Black Pistons.
Innan hópsins munu menn bera
stöðuheiti og félagsmenn greiða
gjöld til að njóta verndar inn-
an hópsins. Raunar sé starfsem-
in komin á það stig að hópurinn
leiti nú að hentugu húsnæði undir
starfsemina.
Ef marka má greiningu lögreglu
á ástandinu í undirheimum virðist
hún hafa nokkuð til síns máls þeg-
ar hún spáir því að von sé á upp-
gjöri enda metur lögreglan það
svo að almenningi, sem og starfs-
mönnum lögreglu og tollþjónustu,
stafi ógn af þeirri þróun sem orðið
hefur.
Fréttir | 15
Helgarblað 4.–6. mars 2011
MC ICELAND/HELLS ANGELS
Stofnaður: 2009
Foringi: Einar „Boom“ Marteinsson
Meðlimir: Vel á annað hundrað með
áhangendaklúbbum.
Facebook-vinir: Ekki með Facebook-síðu
Höfuðstöðvar: Gjáhellu í Hafnarfirði
MC BLACK PISTONS/OUTLAWS
Stofnaður: Líklega 2010
Foringi: Ríkharður Ríkharðsson
Meðlimir: 10
Facebook-vinir: 643
Höfuðstöðvar: Engar
GLÆPAHÓPUR LITHÁA OG
PÓLVERJA
Stofnaður: Ekki vitað
Foringi: Ekki vitað
Meðlimir: Ekki vitað
Facebook-vinir: Ekki með Facebook-síðu
Höfuðstöðvar: Ekki vitað
SEMPER FI
Stofnaður: 2010-2011
Foringi: Jón stóri
Meðlimir: Óvíst en fjölgar hratt
Facebook-vinir: 504
Höfuðstöðvar: Leitar að húsnæði
Hóparnir sem lögreglan óttast:
M
Y
N
D
S
IG
TR
Y
G
G
U
R
A
R
I J
Ó
H
A
N
N
SS
O
N
M
Y
N
D
B
JÖ
R
N
B
LÖ
N
D
A
L
SV
IÐ
SE
T
T
M
Y
N
D
FRAMHALD Á
NÆSTU SÍÐU
Uppgjör Í leyniskjölum kemur fram að lögreglan hafi
áhyggjur af fjórum hópum og til uppgjörs gæti komið.
4. mars 2011
Berserkir orðnir áhangendur
Hafnfirski mótorhjólaklúbburinn
Berserkir er genginn til liðs við Black
Pistons á Íslandi. Meðlimir hans teljast
þar með til áhangenda Outlaws.
Mynd BJörn Blöndal