Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.2011, Qupperneq 4
4 | Fréttir 18. apríl 2011 Mánudagur
Rúnar Árnasson, bóndi í Breiðafirðinum, bjargaði mannslífi með skyndihjálp:
Hljóp strax til og hnoðaði
„Ég sá bara manninn skyndilega
hníga niður,“ segir Rúnar Árnason,
bóndi í Neðritungu, sem með snar-
ræði tókst að bjarga lífi karlmanns
sem fékk hjartastopp í Brjánslæk
á fimmtudag. Rúnar var staddur í
miðasölunni í Brjánslæk, þar sem
Breiðafjarðarferjan Baldur leggst við
bryggju, um sexleytið þegar hann sá
manninn hníga niður. „Ég stóð rétt
hjá honum og hljóp að sjálfsögðu
strax til og byrjaði að hnoða,“ segir
Rúnar en maðurinn sem er á sextugs-
aldri var hættur að anda. Eftir að hafa
hnoðað hann í einhvern tíma, rankaði
maðurinn við sér og byrjaði að anda
af sjálfsdáðum. „Hann bara náði sér
og fór að anda. Það var kallað í lækni
og læknirinn var ekki kominn þegar
ég fór af stað yfir Breiðafjörð. En mað-
urinn var staðinn upp og farinn að ná
sér.“ Læknirinn sem kom á staðinn
kallaði á þyrlu Landhelgisgæslunnar
sem flutti manninn á Landspítalann
til frekari rannsókna.
Rúnar segir tilfinninguna hafa
verið góða þegar maðurinn komst
til meðvitundar, en vill annars ekki
gera mikið úr afreki sínu. Hann seg-
ist ekki áður hafa þurft að beita
skyndihjálpar kunnáttu sinni.
hanna@dv.is
Sigurður Örn Leósson, sem var einn
helsti forsvarsmaður Finanzas Forex
hér á landi sem margir Íslendingar
lögðu stórfé í, fékk samþykkta beiðni
sína um greiðsluaðlögun hjá um-
boðsmanni skuldara þann 1. apríl síð-
astliðinn. Þetta kemur fram í Lögbirt-
ingablaðinu. Ekki liggur ljóst fyrir á
hvaða forsendum sú beiðni var sam-
þykkt.
Hefur umboðsmaður skuldara
skipað umsjónarmann með greiðslu-
aðlögun Sigurðar Arnar. Geta þeir
sem telja sig eiga kröfur á hendur
honum lýst þeim fyrir 13. maí næst-
komandi. Það kemur því ekki í ljós
fyrr en þá hvort einhverjir þeirra um
þúsund Íslendinga sem lögðu pen-
inga í Finanzas Forex leggi fram kröf-
ur á hendur Sigurði Erni.
Eftir 13. maí verður farið yfir kröf-
urnar og gæti þetta ferli tekið nokkra
mánuði. Á meðan á greiðsluaðlög-
unarferli stendur er lánardrottnum
óheimilt að ganga að Sigurði Erni
vegna krafna sinna eða að gjaldfella
skuldir á hendur honum. Er þetta í
samræmi við lög um greiðsluaðlögun.
Fjármálaeftirlitið varaði í
þrígang við Finanzas
DV hefur líkt og aðrir fjölmiðlar á Ís-
landi fjallað nokkuð um málefni Fin-
anzas Forex. Forex var alþjóðlegt
fyrirtæki og var Sigurður Örn í farar-
broddi þess hér á landi. Fyrirtækið
náði að sannfæra um þúsund Íslend-
inga fram til ársins 2008 um að leggja
samanlagt um einn milljarð króna
inn í fyrirtækið í von um skjótfenginn
risagróða. Fjölmargir hafa ekki fengið
peninga sína til baka en Sigurður full-
yrti reyndar sjálfur við DV að allir sem
lögðu peninga inn í fyrirtækið hér á
landi muni fá endurgreitt. Finanzas
Forex hefur verið sakað um að vera
svikamylla og Fjármálaeftirlitið hefur
í þrígang varað við félaginu.
Hótaði DV málsókn
Sigurður Örn var síðast í fréttum í
október í fyrra. Þá sagði DV frá því að
hann væri búinn að hefja rekstur á fyr-
irtækinu Havila Limited, sem býður
fólki skjótfenginn gróða með óhefð-
bundnum fjárfestingum. Hótaði hann
DV málsókn vegna skrifa blaðsins um
félög tengd honum. Havila hélt úti
tveimur vefsíðum havila-ltd.com og
nordicfunds.com en ekki virðist leng-
ur hægt að komast inn á fyrri vefsíð-
una. Á vefsíðu nordicfunds.com er
fólki boðið að taka þátt í óhefðbundn-
um fjárfestingum og lofað allt upp í
fimm prósenta gróða á viku.
Boðar risagróða
Finanzas Forex var skráð í Panama.
Havila Limited býður fólki að stofna
reikninga og fá margvíslega aflands-
bankaþjónustu í Panama gegn 1.300
þúsund króna þóknun. Þeir reikn-
ingar eru stofnaðir til þess að „fela
hver er raunverulegur eigandi pen-
inganna“, eins og segir á vef fyrir-
tækisins. „Þessi reikningur er mjög
gagnlegur ef þú vilt fjárfesta á Filipps-
eyjum í gegnum lán til filippseysku
góðgerðastofnunarinnar þinnar,“
segir á vefnum. Þá segir að fyrirtæki
Sigurðar sé fulltrúi kaupanda á fil-
ippseyskum gjaldmiðli og óútskorn-
um dollaraseðlum. Þá segist hann
vera fulltrúi samtaka og alþjóðlegs
banka sem kaupi gull. Líklegt má
telja að fréttir um greiðsluaðlögun
Sigurðar Arnar séu síst til þess fallnar
að auka trú fólks á starfsemi Havila.
Þess skal auk þess getið að Sigurður
Örn var á lista Lýðræðishreyfingar-
innar sem bauð sig fram í alþingis-
kosningunum árið 2009. Hlaut flokk-
urinn, sem Ástþór Magnússon hefur
verið í forsvari fyrir, 0,6 prósent at-
kvæða.
n Sigurður Örn Leósson bauð Íslendingum ofsagróða n FME varaði
ítrekað við Finanzas Forex n Um þúsund Íslendingar létu blekkjast
Meintur svindlari
í greiðsluaðlögun
„Finanzas Forex
hefur verið sakað
um að vera svikamylla og
Fjármálaeftirlitið hefur í
þrígang varað við félaginu.
Annas Sigmundsson
blaðamaður skrifar annas@dv.is
Valgeir Örn Ragnarsson
blaðamaður skrifar valgeir@dv.is
Fluttur með þyrlu Þyrla Land-
helgisgæslunnar flutti manninn á
Landspítalann til frekari rannsókna.
Slakaðu á heima
• Stillanlegt Shiatsu herða- og baknudd
• Djúpslökun með infrarauðum hita
• Sjálfvirkt og stillanlegt nudd
Verið velkomin í verslun okkar
prófið og sannfærist!
Úrval nuddsæta
Verð frá 29.750 kr.
Opið virka daga kl. 9 -18
og á laugardögum kl. 11 - 16
Stórhöfða 25 • Sími 569 3100 • eirberg.is
Dæmdur til að
greiða 14 milljónir
Þann 15. apríl dæmdi Héraðsdómur Reykja-
ness Sigurð Örn og Kristján Ingólfsson til
þess að greiða Friðriki Þorbergssyni málara-
meistara
14,1 milljón
króna. Í
dómsúrskurði
héraðsdóms
kemur fram
að tvær fasteignir Kristjáns hafi verið kyrr-
settar en engar eigur frá Sigurði Erni. Ekki
er vitað hvort sú ákvörðun byggist á því
að Sigurður Örn hafði fengið samþykkta
greiðsluaðlögun hjá umboðsmanni skuldara
tveimur vikum áður eða hvort ekki finnist
eignir hjá honum til þess að kyrrsetja.
Málsatvik voru þau að í lok ágúst árið
2009 tóku þeir Sigurður Örn og Kristján við
tíu milljónum króna frá Friðriki og lofuðu
honum tíu prósenta ávöxtun á mánuði og
tryggðan höfuðstól. Þrátt fyrir að hafa
þegar greitt honum til baka 7,7 milljónir
króna dæmdi héraðsdómur þá til þess að
greiða Friðriki 14,1 milljón króna. Byggðist
það meðal annars á því að þeir höfðu lofað
Friðriki tíu prósenta ávöxtun á mánuði.
Heppinn
Siglfirðingur
„Ég vona að þetta hafi farið á
góðan stað,“ sagði Guðný Sölva-
dóttir, rekstrarstjóri Olís-stöðvar-
innar á Siglu-
firði, en þar
var miðinn
keyptur sem
færði heppn-
um lottóspil-
ara 61,3 millj-
ónir króna á
laugardags-
kvöld. Aðeins
einn var með allar tölur réttar
í lottói helgarinnar en Guðný
segist ekki vita hver sá heppni
er. „Við búum nú fleiri en tvö eða
þrjú hér á Siglufirði,“ segir Guðný
aðspurð hvort hún hafi heyrt af
því hver hafi verið sá heppni, og
ómögulegt að vita hvort það hafi
verið Siglfirðingur sem keypti
miðann eða aðkomumaður.
Brutust inn í
þvottahús
Brotist var inn í þvottahús í íbúð í
Ljósheimum í Reykjavík á laugar-
dagsmorgun. Þegar lögreglu bar að
garði var þar par í annarlegu ástandi.
Parið var handtekið og vistað í fanga-
geymslu lögreglunnar. Skötuhjúin
voru grunuð um að hafa brotist inn
en ekki reyndist unnt að taka af þeim
skrýrslu, sökum þess að þau voru
undir áhrifum. Þau eru nú laus úr
haldi lögreglu og telst málið upp-
lýst. Þá var brotist inn í rakarastofu á
Suðurlandsbraut aðfaranótt laugar-
dags og skiptimynt og rakspíra stolið
þaðan. Þá var jeppa stolið úr bílskúr
í Garðabæ sömu nótt ásamt öðrum
verðmætum.
Skrýtið ef láns-
hæfismat lækkar
Steingrímur J. Sigfússon fjármála-
ráðherra segir að erfitt sé fyrir er-
lend lánshæfismatsfyrirtæki að éta
ofan í sig yfirlýsingar um að lækka
þurfi lánshæfi íslenska ríkisins.
Steingrímur var um helgina staddur
á vorfundi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins
í Washington í Bandaríkjunum. „Það
væri mjög skrýtið ef að Ísland verður
fellt í lánshæfismati,“ sagði Steingrím-
ur í samtali við Ríkisútvarpið en hann
sagði að horfur á Íslandi væru betri en
spáð var og að hér á landi væri meiri
hagvöxtur en menn bjuggust við.
„Við óttumst pínulítið að þau horfi í
baksýnisspegilinn,“ sagði Steingrímur
um lánshæfismatsfyrirtækin. Hann
átti fund með fulltrúum Standard og
Poor´s og Moody´s um helgina.
Dæmdur Sigurður var á föstudaginn dæmdur til að
greiða manni 14,1 milljón króna, sem hann hafði lofað
10 prósent ávxötun á á fé sitt á mánuði.