Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.2011, Page 14
reiknað var með að það tæki um tvö
og hálft ár að fá samþykkt deiliskipulag
og byggingarleyfi fyrir svæðið. Ef þetta
hefði gengið upp hefðu tilskilin leyfi
verið tilbúin í fyrsta lagi í lok árs 2007
eða byrjun árs 2008. Ekki gekk hins
vegar að fá umrædd leyfi.
Í fréttum Stöðvar 2 í lok júli 2008
var greint frá því að byggingarfram-
kvæmdum á La Primavera-svæð-
inu hefði verið frestað þar sem ekki
hefði fengist byggingarleyfi á landinu
vegna spillingarmála sem komu upp í
Murcia-héraði. Í fréttinni var haft eft-
ir Árna Harðarsyni, forstjóra Salt In-
vestments, fjárfestingarfélags Róberts
Wessmann, að ekki hefðu verið gefin
út byggingarleyfi í Murcia-héraði í heil
þrjú ár vegna spillingarmálanna sem
gengu út á það að þarlendir embættis-
menn áttu að hafa „þegið mútur fyrir
að veita byggingarleyfi“ í Murcia-hér-
aði og upphófust málaferli yfir þeim
í kjölfarið. Í yfirlýsingu sem Björgólf-
ur Thor sendi frá sér í fyrra þar sem
hann fjallaði um uppgjör skulda sinna
greindi hann frá því að verkefnið í
Murcia-héraði hefði mistekist þar sem
ekki hefði tekist að fá byggingarleyfi.
„Verkefnið hefur mistekist hrapallega
þar sem ekki var unnt að fá byggingar-
leyfi í tæka tíð og fasteignamarkaður á
Spáni er nú í mikilli lægð.“
Íslendingarnir voru því óheppnir
í þeim skilningi að um það leyti sem
þeir keyptu landsvæðið í Murcia var
hætt að veita byggingarleyfi í héraðinu
vegna þessara spillingarmála. Þeir
keyptu landið því á afar óheppileg-
um tíma, um það leyti sem komst upp
um nokkra af þeim embættismönn-
um í Murcia sem séð höfðu um að
veita byggingarleyfi til fjárfesta eins og
þeirra.
Fréttir úr spænskum fjölmiðlum
sýna fram á að einn þeirra embættis-
manna sem var kærður í tengslum við
þessi spillingarmál í Murcia-héraði var
umræddur embættismaður frá Carta-
gena, Augustin Guillén. Guillén var
kærður fyrir það síðla árs 2009 að hafa
veitt byggingarleyfi á friðlandi þegar
hann starfaði sem embættismaður hjá
Cartagena-borg. Málinu gegn Guillén
var vísað frá dómi í Cartagena í febrúar
síðastliðinn þar sem ekki þótti sannað
að hann hefði gerst sekur um lögbrot
þegar hann veitti byggingarleyfið.
Ætlaði í mál við Logos
Tæpu ári eftir íslenska bankahrunið,
um haustið 2009, greindi Stöð 2 svo
frá því að AB Capital skuldaði Straumi
rúmlega níu milljarða króna vegna
landakaupanna í Murcia. Í kjölfar-
ið voru sagðar fréttir af því að Róbert
Wessmann íhugaði að fara í skaða-
bótamál við lögmannsstofuna Logos
og krefja hana um 100 milljóna króna
skaðabætur vegna áreiðanleikakönn-
unarinnar sem Erlendur hafði unn-
ið meira en fjórum árum áður þegar
landsvæðið var keypt. Haft var eftir
Árna Harðarsyni hjá Salt Investments
að það væri mat þeirra að áreiðan-
leikakönnunin hefði verið „illa unnin
af hálfu Logos“.
Ekkert varð hins vegar úr mála-
ferlum Róberts gegn Logos enda virð-
ist vandamálið í viðskiptunum með
landsvæðið í Murcia ekki hafa snúist
að neinu leyti um áreiðanleikakönn-
un Erlends heldur um þá staðreynd
að hætt var að veita byggingarleyfi í
Murcia vegna spillingarmála. Logos
verður því varla kennt um ófarir AB
Capital á Spáni. Íslensku fjárfestarnir
voru auk þess greinilega, samkvæmt
þeim gögnum sem DV hefur undir
höndum, meðvitaðir um þær vafa-
sömu aðferðir sem tíðkuðust í fast-
eigna- og jarðaviðskiptum í þessum
hluta Spánar og ætluðu sér að beita
þeim til að ná árangri. Þess vegna var
hluti kaupverðsins á landinu ætlaður í
umræddar mútugreiðslur.
Veðið í landi án deiliskipulags
Eitt af vandamálunum sem Íslending-
arnir stóðu frammi fyrir varðandi fjár-
mögnun á fasteignaverkefninu var að
spænskir bankar vildu ekki veita þeim
lán með veði í landsvæði sem var án
deiliskipulags og þar með ekki bygg-
ingarhæft. Deiliskupulagið var því
forsenda þess að hægt væri að fjár-
magna jarðakaupin jafnvel þó svo að
íslensku fjárfestarnir hafi velt fyrir sér
þeim möguleika að fá 50 prósent lán á
móti 50 prósent eiginfjárframlagi. Slíkt
lán var hins óhagstætt fyrir íslensku
fjárfestanna vegna þeirrar óvissu sem
fylgdi því að vera ekki með samþykkt
deiliskipulag fyrir landið, samkvæmt
skýrslunni.
Í áreiðanleikakönnun Erlends er
vísað í viðræður við Gerardo Cuar-
tero, bankastjóra útibús La Caixa-
bankans í strandbænum La Manga
del Mar Menor, um möguleikann á
því að fá lán til að fjármagna kaup á
landi án deiliskipulags sem ekki er
skilgreint sem íbúðarsvæði. Í máli Er-
lends í áreiðanleikakönnunni kem-
ur fram að banki Cuarteros hafi ekki
viljað lána fyrir kaupum á landsvæði
án deiliskipulags með veði í viðkom-
andi svæði: „Forstjórinn í útibúi La
Caixa-bankans hefur staðfest að sum-
ir bankar fjármagni kaup á landi sem
ekki hefur verið skilgreint sem bygg-
ingarsvæði en að þetta sé ekki tilfellið
með La Caixa.“ Í skýrslu Aquila Vent-
ure Partners segir enn frekar: „Sumir
bankar fjármagna kaup á landi sem er
óskipulagt en flestir þeirra, til dæmis
La Caixa, lána eingöngu ef búið er að
samþykkja deiliskipulag fyrir landið.“
Íslensku fjárfestarnir voru því í
nokkrum vanda staddir með fjár-
mögnun þar sem spænskir bank-
ar fjármagna almennt séð ekki slík
jarðakaup. Á endanum fór það líka
svo, líkt og komið hefur fram, að
Landsbankinn – þar sem Björgólfur
Thor var aðaleigandinn, Íslandsbanki
og Straumur – sem Björgólfur Thor
var hluthafi í – og Íslandsbanki lán-
uðu AB Capital þá þær 115 milljónir
evra sem til þurfti og tóku veð í land-
inu sem keypt var, líkt og Björgólfur
Thor nefndi í yfirlýsingu í fyrra. „Veð
vegna lánsins er í umræddri landar-
eign á Spáni.“ Í tilfelli Róberts Wess-
mann var veðið fyrir láninu í hlutafé
hans í AB Capital, félagi sem stofnað
var gagngert utan um fjárfestinguna í
landsvæðinu í Murcia.
Íslensku bankarnir lánuðu því ís-
lensku fjárfestunum fyrir þess konar
landi á Spáni sem spænskir bankar
fjármögnuðu almennt séð ekki vegna
þess að það var án deiliskipulags og
þess vegna þótti áhættusamt að lána
til slíkra fjárfestinga.
Reikna ekki með miklum
endurheimtum
Lán íslensku bankanna til AB Capital
voru endurfjármögnuð nokkrum
sinnum eftir að þau voru veitt árið
2005. Upphaflega voru lánin á gjald-
daga árið 2007 en voru framlengd
ítrekað á árunum 2007 og 2008, sam-
kvæmt skýrslu rannsóknarnefndar Al-
þingis og yfirlýsingu Björgólfs Thors
í fyrra. Umrædd lán eru því enn úti-
standandi þó greiddir hafi verið vext-
ir af þeim í einhverjum tilfellum, líkt
og komið hefur fram í máli Björgólfs
Thors.
Samkvæmt heimildum DV hefur
lítið gerst í málefnum AB Capital frá
íslenska efnahagshruninu. Kröfuhaf-
ar félagsins hafa ekki leyst félagið og
landsvæðið í Murcia til sín enn sem
komið er og ekki hefur verið gengið
á persónulegar ábyrgðir eigendanna
vegna lánanna.
Árni Harðarson, forstjóri fjárfest-
ingafélags Róberts Wessmann, Salt
Investments, segir að unnið sé að
uppgjöri lána AB Capital við lána-
stofnanir og að gera megi ráð fyrir
því að eignir sem eru til tryggingar
auk viðbótargreiðslna gangi til lána-
stofnanna við frágang málsins. Meðal
þess sem er til tryggingar fyrir lánun-
um til Róberts er hlutafé Salt Invest-
ments í AB Capital auk landareigna
sem félag Róberts á í Brasilíu. Ef þess-
ar eignir duga ekki fyrir skuldum Ró-
berts í gegnum AB Capital eru einnig
fyrir hendi umræddar persónulegar
ábyrgðir líkt og áður segir.
Ragnhildur Sverrisdóttir, talskona
Björgólfs Thors, segir að Björgólfur
Thor hafi gert upp skuldbindingar sín-
ar vegna eignarhaldsfélagsins og komi
ekki nálægt því í dag. „Björgólfur Thor
kemur hvergi nærri AB Capital lengur.
Hann hefur gert upp skuldbindingar
sínar við lánardrottna vegna málsins.
Lánardrottnar eiga og fara með for-
ræði þess eignarhluta sem Björgólfur
Thor átti áður,“ segir Ragnhildur.
Heimildir DV herma að kröfuhafar
AB Capital séu alls ekki vongóðir um
að fá mikið upp í kröfur sínar vegna
fjármögnunarinnar á landsvæðinu og
að þeir reikni með að þurfa að afskrifa
kröfurnar að mestu leyti. Þó má vera
ljóst að kröfuhafar AB Capital munu
væntanlega eignast landið formlega á
endanum. Hvað svo verður um þetta
landsvæði á Spáni á svo eftir að koma
í ljós.
14 | Fréttir 18. apríl 2011 Mánudagur
Óskipulagt landsvæði Yfirlitsmyndin sýnir hvar
landsvæðið er í Murcia. Landið var óskipulagt og þurftu
Íslendingarnir að fá samþykkt deiliskipulag fyrir það til
að geta byggt á því. Við hliðina á svæðinu er þekktur
golfvöllur og stutt er á La Manga-ströndina.
SpuRningaR DV tiL bjöRgÓLfS
Svör Ragnhildar Sverrisdóttir, talskonu Björgólfs Thors, við spurningum DV fyrir hönd
Björgólfs Thors.
1. Hver er staðan á eignarhaldi ab Capital á þessu 2 ferkílómetra landsvæði í
Murcia? Hefur eitthvað nýtt gerst frá hruni? Á ab Capital svæðið ennþá eða hafa
kröfuhafar félagsins – Straumur, Landsbankinn og glitnir – leyst svæðið til sín?
Svar: „Björgólfur Thor kemur hvergi nærri AB Capital lengur. Hann hefur gert upp
skuldbindingar sínar við lánardrottna vegna málsins. Lánardrottnar eiga og fara með
forræði þess eignarhluta sem Björgólfur Thor átti áður.“
2. Var björgólfur thor í persónulegum ábyrgðum fyrir þessum lánum til ab
Capital?
Svar: Já. Björgólfur Thor var í persónulegum ábyrgðum. Uppgjör vegna AB Capital var
hluti af skuldauppgjöri Björgólfs Thors, sem kynnt var í júlí í fyrra.
3. Á hverju strönduðu framkvæmdirnar á svæðinu? talað var um það í fréttum
Stöðvar 2 á sínum tíma að spillingarmál sem komu upp í Murcia hefðu gert það að
verkum að ekki voru veitt byggingarleyfi til slíkra verkefna. Er þetta rétt?
Svar: „Áreiðanleikakönnun, sem unnin var áður en gengið var frá kaupunum, sýndi að
auðsótt yrði að fá byggingarleyfi. Síðar kom í ljós að forsendur þeirrar áreiðanleikakönn-
unar voru rangar.“
4.Hversu mikið vissi björgólfur thor um einstök atriði þessara viðskipta? tók
hann mikinn þátt í þeim persónulega eða var hann með menn í þessu fyrir sig sem
sáu um þetta fyrir hann?
Svar: „Björgólfur Thor byggði á upplýsingum frá Róbert Wessman, sem kvaðst hafa
reynslu af landakaupum á þessu svæði, sem og upplýsingum úr áreiðanleikakönnun.“
5. annað um málið?
Svar: „Fjárfesting AB Capital í landi á Spáni reyndist vera mikil mistök. Þegar Róbert
Wessman kynnti hugmyndina fyrir Björgólfi Thor virtist vera um ágætt viðskipta-
tækifæri að ræða. Forsendur reyndust hins vegar ekki standast og fjárfestingin kostaði
Björgólf Thor háar fjárhæðir. Hann glataði öllu því fé sem hann lagði til fjárfestingar-
innar. Hann hefur höfðað mál á hendur Róbert Wessman til reyna að endurheimta það fé
sem hann lánaði Róbert vegna kaupanna.“
Kærður Guillén, sem varð aðstoðarborgarstjóri í Cartagena í Murcia-héraði, sést hér á blaðamannafundi í nóvember 2009 þar sem hann
greindi frá því að hann hefði verið kærður fyrir að veita byggingarleyfi sem ekki var heimild fyrir þegar hann starfaði sem embættismaður hjá
borginni. Guillén var einn þeirra sem íslensku fjárfestarnir töldu líklegt að þyrfti að múta. Málinu gegn Guillén var vísað frá dómi fyrir skömmu.