Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.2011, Side 16
16 | Neytendur Umsjón: Gunnhildur Steinarsdóttir gunnhildur@dv.is 18. apríl 2011 Mánudagur
Innköllun á
fiskifingrum
Aðföng hafa ákveðið að innkalla
Euro Shopper fiskifingur (e. fish fin-
gers) í 900 gramma pappaöskjum en
sú ákvörðun var tekin eftir að ICA í
Svíþjóð staðfesti að varan inniheld-
ur afurðir úr eggjum. Þetta er ekki
tekið fram í innihaldslýsingu en egg
og afurðir úr þeim eru á lista yfir
ofnæmis- og óþolsvalda. Varan var í
dreifingu í verslunum Bónus og 10-
11 en hefur nú verið tekin úr sölu á
meðan merkingar eru endurbættar.
Neytendur sem kunna að vera með
vöruna undir höndum og hafa of-
næmi fyrir eggjum eða eggjaafurð-
um eru beðnir um að henda henni
eða skila við fyrsta tækifæri til næstu
verslunar Bónus eða 10-11 gegn
fullri endurgreiðslu.
Húsaleigumálum fjölgar Fyrirspurnum til Neytendasamtakanna vegna húsa-
leigumála hefur fjölgað en það sem af er árinu hafa samtökin borist um 200 fyrirspurnir og erindi
vegna þessa. Á heimasíðu samtakanna segir að svari til um 800 erinda á ári en til samanburðar
er nefnt að erindi vegna húsaleigumála voru 414 árið 2010 en árið 2009 voru erindi af þessum
toga aðeins 218. Fyrirspurninar eru eins fjölbreyttar og þær eru margar en talsvert er um að spurt
sé um hvað beri að varast við samningsgerð, hvernig ástand leiguhúsnæðis skuli vera, hvenær
samningur renni út, hvernig viðhaldi og skiptingu kostnaðar skuli háttað, hvernig riftun fari fram,
hvernig uppgjöri tryggingarfjár skuli hagað. Þar segir einnig að ljóst sé að þörf leigjenda fyrir
aðstoð og ráðgjöf af þessum toga sé afar rík en engin leigjendasamtök eru starfandi.
E
ld
sn
ey
ti Verð á lítra 238,4 kr. Verð á lítra 242,3 kr.
Bensín Dísilolía
Verð á lítra 238,1 kr. Verð á lítra 242,1 kr.
Verð á lítra 239,8 kr. Verð á lítra 242,3 kr.
Verð á lítra 238,0 kr. Verð á lítra 242,0 kr.
Verð á lítra 238,1 kr. Verð á lítra 242,1 kr.
Verð á lítra 238,4 kr. Verð á lítra 242,3 kr.
Algengt verð
Almennt verð
Algengt verð
Höfuðb. svæðið
Melabraut
Algengt verð
Frábær þjónusta
n Lofið að þessu sinni fær Elko en
ánægður viðskiptavinur segist hafa
fengið þar frábæra þjónustu í síð-
ustu viku. „Ég sendi til þeirra tæki
sem hafði brotnað vegna galla. Þeir
brugðust skjótt við og bættu
mér tækið með sambærilegri
vöru sem var þó talsvert dýr-
ari en það sem ég hafði sent til
þeirra. Ég þurfti ekkert
að borga á milli og fékk
það sent heim að dyr-
um. Frábær þjónusta í
alla staði.“
Verri þjónusta
n Lastið fær nýja World Class stöðin
í Kringlunni. „Mér fannst mjög gott
að fara þangað þar sem þar var lítið af
fólki til að byrja með en nú eru greini-
lega fleiri búnir að uppgötva stöðina.
Mér finnst aukin aðsókn bitna fljótt
á aðstöðunni og þrifum. Eins er þar
hringstigi sem fara þarf niður í bún-
ingsklefa. Hann er mjög
brattur og þröngur og
varla hægt að mæta
manni þar. Þetta er
slæm hönnun og sér-
staklega fyrir eldra
fólk,“ segir óánægður við-
skiptavinur.
SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS
Lof&Last
Kaldi páskabjór fékk hæstu ein-
kunn dómnefndar í árlegri páska-
bjórsmökkun DV, annað árið í röð.
Að þessu sinni voru fjórar tegundir
af páskabjór smakkaðar en einungis
þessar fjórar tegundir eru í boði í Vín-
búðum ÁTVR í ár. Allar tegundinar
eru íslenskar; Kaldi páskabjór, Lilja
páskabjór, Víking páskabjór og Vík-
ing páska Bock. Einkunnagjöfin var
frá einum upp í tíu og fékk Kaldi 8,2 í
einkunn en Lilja og Víking páska Bock
voru saman í öðru sæti með 7,2. Lilja
var valin sem fallegasta flaskan.
Kostir og gallar ræddir
Dómnefndina skipuðu Dominique
Plédel Jónsson, vínsmakkari á Gest-
gjafanum, Henry Birgir Gunnarsson,
íþróttafréttamaður og rithöfundur,
Kjartan Ólafsson, lausapenni og veit-
ingahúsarýnir hjá Gestgjafanum,
Alba E.H. Hough, yfirvínþjónn á Hil-
ton Reykjavík Nordica, og Sólmundur
Hólm Sólmundsson, skemmtikraftur
og rithöfundur. DV fékk góðfúslegt
leyfi til að halda könnunina á Rauða
ljóninu á Eiðistorgi líkt og síðustu
árin. Könnunin fór fram með þeim
hætti að borinn var fram einn bjór í
einu og vissi dómnefnd ekki hvaða
bjór var borinn
fram í hvert skipti.
Hún gaf einkunn-
ir og ræddi svo
um kosti og galla
hverrar tegundar
fyrir sig.
Má ekki vera hefðbundinn
Áður en smökkunin fór fram spurði
blaðamaður hvað þeim fyndist ein-
kenna góðan páskabjór og sögðu
þau að hann þyrfti að vera lifandi
og vorlegur. Hann þyrfti að skera
sig frá öðrum bjór og mega því ekki
vera hefðbundinn. Einnig sögðu
þau að liturinn skipti máli og helst
ætti hann að vera út í gult, ef það
væri mögulegt. Þau sögðu að það
væri viss stemning yfir páskabjórn-
um þótt hann næði ekki enn alveg
á sama stað og jólabjórinn. „Út frá
veitingastöðunum þá er
hann jafn vinsæll og
jólabjórinn. Það sést
á sölunni því hann fór
ótrúlega hratt,“ sagði
Alba.
Góður bjór
Dómnefndin var sammála um að ís-
lensk framleiðsla á bjór væri til fyr-
irmyndar. „Það er stemning fyrir
íslenskum bjór í dag og íslenskir fram-
leiðendur standa sig vel eftir hið svo-
kallaða hrun,“ sagði Kjartan og bætti
við að ánægjulegt væri að sjá hve
mikill metnaður er lagður í fram-
leiðsluna. Þótt bjórtegundirnar
væru ekki allar páskalegar væri
þetta góður bjór. Þau sögðu að
á heildina litið væri íslensk fram-
n DV stóð fyrir sinni árlegu páskabjórsmökkun í síðustu viku - Kaldi var valinn besti
bjórinn n Einungis íslenskar tegundir í boði þetta árið n Dómnefnd segir að páskabjór megi
ekki vera hefðbundinn n Dómarar sammála um að mikill metnaður sé í íslenskri bjórframleiðslu
Gunnhildur Steinarsdóttir
blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is
Kaldi er besti páskabjórinn
LiLja
páskabjór
5,7%
Verð: 367 krónur.
Rafrauður, skýjaður. Meðalfylling,
þurrt, fersk sýra. Karamella, malt,
þurrkaðir ávextir, blóm.
Alba: Þefur af karamellu, hunangi
og ristuðum baunum. Bragð:
svolítið beiskur, karamella,
ristaðar kaffibaunir, þéttur
humall. Stórkostleg vara en
ekki endilega páskaleg.
Henry Birgir: Fallegur litur, góð
lykt. Matarbjór. Sælkerabjór.
Hátíðarstemning. Ég mundi
drekka hann um páska.
Dominique: Dökkt öl, ilmmik-
ið, sætt, kryddað (kóríander),
beiskja, mjög góður, ákveðinn
stíll en það er spurning hvort
þetta sé páskabjór. Er góður
en ekki sérlega páskalegur.
Besti bjórinn. Gæti gengið með
roastbeef.
Kjartan: Kryddaður. Ekki
páskalegur en góður bjór.
Frekar beiskur í bragði. Mikill
karakter og lyktin er góð.
Sólmundur: Campari-angan
með „dash“ af vori og hækk-
andi sól. Bragðmikill og kröft-
ugur. Eiginlega of kröftugur
fyrir „mainstream“ bjórdrykkju-
mann eins og mig. Flottur litur.
páska
kaLdi
5,2%
Verð: 355 krónur
Rafbrúnn. Meðalfylling, þurr,
ferskur, lítil beiskja. Létt malt,
karamella, léttkryddaðir humlar.
Alba: Rauðbrúnn. Hunang, bló-
ðappelsínur og apríkósur. Mjúkt
niður, karamellu- og hnetutónar,
blóm og perur. Matarbjór – fallegir
humaltónar. Malt og kirsuber.
Ofboðslega fallega unnin vara.
Henry Birgir: Sæt lykt, létt.
Skemmtilegur litur. Sterkt
og mikið humlabragð. Besti
páskabjórinn. Skemmtilega
vínrauður og sætur. Það mætti
borða páskaungann með þessum.
Dominique: „Lokaðri á nefi“,
aðeins sæta, minni beiskja,
karamella. Elegant, fíngerður,
bragðgóður en engar ýkjur. Góður,
maltaður, humlar líka. Páska-
legastur af þeim.
Kjartan: Rauðleitur – fallegur
litur. Sætur í bragði. Páskalegur í
alla staði – fínt bragð.
Sólmundur: Þessi er aðeins
meiri bjór en sá á undan (Víking
páskabjór). Fallegur á litinn. Gæti
keypt mér kippu af þessum og
fundist ég nokkuð merkilegur.
Fínn með páskaegginu. Sá eini
sem er bruggaður út frá páska-
hugmyndafræði, virðist vera.
víking
páska bock
4,8%
Verð: 329 krónur.
Rafbrúnn. Meðalfylling, þurr, ferskur,
miðlungsbeiskja. Ristað malt, létt krydd,
grösugir tónar.
Alba: Brúnrauður, afgerandi malt og
rúgbrauð, ristaðar hnetur. Beiskur,
þéttur og mjúkur niður. Brennd
karamella og ristaðar kakóbaunir.
Vandaður, þéttur bjór en ekki
páskatengdur.
Henry Birgir: Dökkur, þungur
og vandaður. Góður matarbjór.
Mikið maltbragð. Frábær með
steik en ekki með páskaeggjum.
Njóta yfir Temptation of Christ.
Dominique: „Red ale“, dekkri
– malt, léttir humlar, sæta –
beiskja er mild, mikill karakter,
aðeins reyktur. Jafnvægi. Hann
lifir lengi – stóri bróðir þess
númer 3 (Kaldi páskabjór).
Kjartan: Frekar dökkur á lit.
Maltkenndur. Öðruvísi en hinir.
Jafnvægi í bragði. Smá beiskja en
sætur líka – allt sem þú þarft.
Sólmundur: Þessi er maltaður
samkvæmt mínum fræðum.
Mér finnst hann góður vegna
maltkeimsins. Malt og rúgbrauð
– góð blanda. Ríkt og gott eftir-
bragð. Ekki páskalegur en góður.
Gerólíkur hinum.
Einkunn 8,0
Einkunn 7,2 Einkunn 7,4
„Ég geng svo
langt að segja
að íslenskur bjór sé í
heimsklassa.