Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.2011, Síða 17
Neytendur | 17Mánudagur 18. apríl 2011
Búið til eigið páskaegg Það er einfalt og gaman að búa
til sitt eigið súkkulaði páskaegg en á matarkarfan.is eru leiðbeiningar
um hvernig farið er að því. Byrja skal á því að fylla litla blöðru af vatni
og hún sett í frysti. Þegar vatnið er frosið er hún tekin út og henni
dýft í ilmandi bráðið súkkulaði en það er fljótt að harðna á frosinni
blöðrunni. Því næst er vatnið látið bráðna og leka í skál undir egg-
inu. Þá er maður kominn með þetta fína heimagerða páskaegg
og hægt er að setja persónulegan málshátt í eggið. Með þessu
móti er auðvelt að stilla af stærð eggsins.
Hjólað í vinnuna Heilsuátakið „Hjólað í vinnuna“
fer fram daganna 4. til 24. maí næstkomandi. Frá árinu 2003
hefur Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands staðið að því að efla
hreyfingu og starfsanda á vinnustöðum með átakinu en aðal
markmið er að vekja athygli á hjólreiðum sem heilsusamlegum,
umhverfisvænum og hagkvæmum samgöngumáta. Á tímabilinu
eru 15 virkir dagar og getur því hver og einn þátttakandi skráð
hámark 15 daga. Vinnustaðir, sem og einstaklingar, eru hvattir til
að taka þátt í átakinu og nota hjólið þessa daga.
Hvað má taka
úr sambandi?
Hver kannast ekki við snúruflækj-
una sem fylgir því þegar mörg raf-
tæki eru saman komin? Síðan þegar
kemur að því að þegar maður ætlar
að taka eitt tæki úr sambandi, er
erfitt að finna hvaða snúra tilheyrir
hvaða tæki. Heilsubankinn er með
einfalt og gott ráð við því en nýta
má þá hvítu plaststykkin sem notuð
eru til að loka brauðpokunum geta
komið sér vel hér. Smeygið einu,
uppá hvern snúruenda við fjöltengið
eða þar sem þeim er stungið í sam-
band. Merkið svo á plaststykkið með
tússpenna eða notið límmiða sem
þið límið á. Þá er auðvelt að sjá hvað
tæki á hvaða snúru og rétta tækið er
tekið úr sambandi.
Svona skal þrífa gasgrillið:
Varist að nota
sápur
Gasgrillin geta verið ansi skítug eftir
veturinn og því gott að þrífa þau vel
áður en aðal grilltímabilið geng-
ur í garð. Á heilsubankinn.is segir
að gott sé að láta grindur og aðra
lausa hluti liggja góða stund í heitu
vatni og síðan skrúbba hlutina með
bursta eða svampi. Hægt sé að setja
matarolíu á burstann eða svamp-
inn en það geti auðveldað verkið.
Varast skuli að nota sterkar sápur en
ef grillurum finnist nauðsynlegt að
nota sápu ætti þá helst að nota upp-
þvottalög.
Mikilvægt er að hreinsa stálpíp-
urnar undir brennurunum með
tannstöngli eða öðru fínlegu áhaldi.
Grillsteinunum ætti að skipta út
reglulega en einnig er hægt að
sjóða þá í vatni til að endurnýja líf-
daga þeirra. Eins er gott að fara vel
yfir slönguna sem tengir gaskútinn
við grillið og sé hún sprungin eða
skemmd á einhvern hátt skal skipta
henni út. Spúla skal grillið að utan
sem innan og láta svo þorna vel áður
en að öllu er raðað saman aftur og
passa þarf að líma yfir gasleiðslunar
áður en að það er gert. Að lokum er
gott ráð að bera matarolíu á grillið
að innan eftir að það hefur þornað.
Útigasgrillið þarf að þrífa reglu-
lega eins og hvert annað heimilis-
tæki. Gott er að slökkva ekki strax á
grillinu eftir notkun, heldur hækka
hitann og leyfa mestu fitunni að
brenna af grillgrindinni. Nudda
svo með vírbursta yfir grindurnar á
meðan þær eru enn heitar. Svo þarf
að taka það vel í gegn reglulega.
Kaldi vann
árið 2010
DV hefur staðið fyrir sams konar páska-
bjórsmökkun síðastliðin ár en í fyrra var
það páskabjórinn frá Kalda sem hafði vinn-
inginn. Hann fékk 4,4 stjörnur að meðal-
tali af 5 mögulegum en þremur af fjórum
meðlimum dómnefndar þótti
hann bestur. Þá voru 5
tegundir af páskabjór í boði
en það voru Kaldi páskabjór,
Ölvisholt páskabjór,
Víking páskabjór, Tuborg
páskabjór Kylle Kylle og
Egils Páskabjór.
Í dómnefnd sátu
Dominique Plédel Jónsson,
vínsmakkari á Gest-
gjafanum, Henry
Birgir Gunnarsson,
íþróttafréttamaður og
rithöfundur, Ingibjörg
Egilsdóttir fyrirsæta
og Sverrir Bergmann,
tónlistar- og sjón-
varpsmaður. Könnunin
fór þannig fram að
þær fimm tegundir af
páskabjór, sem voru til
sölu í Vínbúðum lands-
ins, voru númeraðir og
bornir fram, einn í einu,
í glerglösum.
Bestir í
bjórbókinni
Lilja frá Ölvisholti og Páska Bock frá
Víking eru bestu bjórtegundirnar að mati
aðstandenda Bjórbókarinnar. Þar segir
að báðar tegundirnar séu bragðmiklar og
skemmtilegar en þeir sem vija mildari bjór
ættu að kaupa páskabjórinn frá Kalda eða
Víking páskabjórinn.
Bjórbókin er vefsíða sem er tileinkuð
þessu elsta áfengi veraldar. Þar er að finna
bjórrýni, fróðleik og fréttir af bjór. Síðan
var stofnuð til að vega upp á móti hinni
miklu athygli sem léttvín fær og þar segir
jafnframt að bjór sé talinn mun merkari
drykkur, hann hafi komið fram löngu áður en
menn uppgötvuðu víngerð en vísbendingar
séu um að menn brugguðu bjór fyrir 7.000
árum í Mesópótamíu til forna. Enn fremur
sé talið að bjórinn hafi
stuðlað að myndun
fyrstu menningar-
samfélaganna þegar
menn settust að til
að rækta hráefnin í
bjórinn. Ef borin er
saman víngerð og
bjórgerð má sjá að
bjórgerð er talsvert
flóknari iðja. Bjór-
bókarmenn segja
því mun meiri
fjölbreytileika í
heimi bjórsins sem
geri til dæmis pörun
bjórs og matar mjög
skemmtilega iðju.
Einkunnagjöf
Besti páskabjórinn
A: Alba HB: Henry Birgir D: Dominique
K: Kjartan S: Sólmundur
A HB D K S
Lilja 7 8 8 8 6 7,4
Víking páskabjór 5 5 5 5 6 7,2
Kaldi páskabjór 8 9 8 7 8 8,0
Víking páska Bock 7 7 8 7 7 7,2
Besti bjórinn
A: Alba HB: Henry Birgir D: Dominique
K: Kjartan S: Sólmundur
Dómnefndinni fannst að skilja þyrfti á
milli þess hvað var góður bjór og góður
páskabjór við einkunnagjöfina. Því var
ákveðið að dæma einnig besta bjórinn.
Hér var það einnig Kaldi sem hafði vinn-
inginn en Lilja kom fast á hæla honum.
A HB D K S
Lilja 9 7,5 9 8 6 7,9
Víking páskabjór 5 5 5 5 5 5,0
Kaldi páskabjór 8 9 8 7 8 8,0
Víking páska Bock 8 8 7 7 8 7,6
Kaldi er besti páskabjórinn
víking
páskabjór
6,7%
Verð: 419 krónur
Rafbrúnn. Mjúk fylling, sætuvottur,
ferskur, miðlungs beiskja. Mjúkristað korn,
rjómakaramella, hey.
Alba: Ávaxtarík lykt með hunangi.
Kolsýra mjög áberandi. Beiskur og
lítill ávöxtur í munni. Stoppar stutt.
Lyktin bauð upp á meira.
Henry Birgir: Létt lykt og ekki of
þung. Ágætis bjór en fullflatur.
Fallegur litur og lyktin er góð
en þetta er eins og að fá flott
páskaegg með engu nammi inni í.
Dominique: Mildari, sætari og
léttari en númer 1 (Lilja páska-
bjór). Beiskur en vantar ávöxt og
krydd – ekki bragðmikill bjór. Ekki
mikill matarbjór, frekar einfaldur
og það vantar karakter.
Kjartan: Frekar flatur, rammur,
hlutlaus, karakterlaus og ekki
bragðmikill. Freyðir ekki mikið.
Stóð ekki undir væntingum.
Sólmundur: Þessi er miklu meiri
ég heldur en sá fyrsti. Kannski því
hann er frekar karakterlaus. Gæti
slátrað nokkrum ísköldum svona.
Freyðir leiðinlega lítið. Kannski
enginn afabjór en hentugur fyrir
unga drykkjumenn.
Einkunn 7,2
leiðsla í góðum málum. „Ég geng
svo langt að segja að íslenskur bjór
sé í heimsklassa,“ sagði Henry Birgir.
Einnig var nefnt að það hlytu að vera
meiri tækifæri fyrir íslenskan bjór
í útlöndum en nýtt væru í dag. Að-
spurð hvort þau söknuðu þá ekki Kylle
kylle, danska páskabjórsins frá Tu-
borg, sögðu þau svo ekki vera. „Kylle
kylle má bara vera í Danmörku,“ sagði
Dominique.
Dómnefndin í ár Þau voru ánægð með ís-
lenska bjórinn en Kaldi hafði vinninginn.
Einbeittir smakkarar Dominique Plédel
Jónsson og Sólmundur Hólm að störfum.