Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.2011, Qupperneq 19
Finnar gengu til kosninga í gær,
sunnudag, en þegar þetta er skrifað
höfðu skoðanakannanir gefið vís-
bendingar um að margt kunni að
breytast í finnskum stjórnmálum.
Mikið hefur verið rætt um Evrópu-
málin í aðdraganda kosninganna í
Finnlandi, en Finnum gremst það
mjög að þurfa að taka þátt í neyðar-
aðgerðum Evrópusambandsins til að
bjarga efnahag ríkja eins og Grikk-
lands, Írlands og, nú síðast, Portú-
gal. Stærstu stjórnmálaflokkar Finn-
lands eru Sósíaldemókratar annars
vegar og Miðjuflokkurinn hins vegar.
Nú er aftur á móti líklegt að flokkur-
inn Sannir Finnar muni hljóta tals-
vert brautargengi, en hann þótti ekki
áður líklegur til afreka.
Vilja ganga úr ESB
Timo Soini er formaður og stofnandi
Sannra Finna en hann situr nú á Evr-
ópuþinginu. Þar hefur hann skipað
sér í hóp ESB-andstæðinga, sem er
lítið en áberandi flokksbrot Evrópu-
þingmanna. Soini er mótfallinn sam-
einingarferlinu í Evrópu og vill að
Finnland segi sig úr ESB. Hann áttar
sig þó á því að það muni líklega ekki
gerast, en hann vill í það minnsta að
Finnar hætti að greiða undir aðrar
þjóðir. „Veislunni er lokið. Af hverju á
Finnland að borga undir aðrar þjóð-
ir þegar við leyfum ekki einu sinni
öðrum en Finnum að mjólka kýrnar
okkar?“
Sífellt fleiri Finnar deila þess-
ari skoðun með Soini, en talið er að
beinn kostnaður Finna við neyðarlán
ESB og AGS til Portúgal gæti numið
allt að milljarði evra.
Gætu breytt öllu
Í síðustu þingkosningum, sem fóru
fram árið 2007, fengu Sannir Finnar
aðeins fjögur prósent af greiddum
atkvæðum. Skoðanakannanir hafa
sýnt að um 20 prósent höfðu í hyggju
að kjósa Sanna Finna í gær. Ef það
reynist niðurstaðan verður erfitt fyrir
Sósíaldemókrata eða Miðjuflokkinn
að horfa framhjá Sönnum Finnum,
og verður því að teljast líklegt að þeir
verði hluti af nýrri ríkisstjórn.
Í Finnlandi fara allar stórar
ákvarðanir ESB fyrir finnska þing-
ið, þar með talin undanfarin neyð-
arlán sambandsins til Grikklands og
Írlands. Fari neyðarlánið til Portú-
gals fyrir finnska þingið, með Sanna
Finna í ríkisstjórn, er líklegt að Finn-
ar muni hafna frumvarpinu. Geta
þeir því notað neitunarvald sitt í ráð-
herraráði ESB og þannig komið í veg
fyrir að neyðarlánið verði að veru-
leika.
Erlent | 19Mánudagur 18. apríl 2011
Allt á einum stað!
Bílaverkstæði | Dekkjaverkstæði | Smurstöð | Varahlutir
Þú færð fría olíusíu ef þú lætur
smyrja bílinn hjá okkur
Komdu með bílinn til okkar og
þú færð fría ástandsskoðun
Armenar óðir
í skák
Armenar ætla sér að verða næsta
stórveldið í skákheiminum en for-
seti landsins, Serzh Sarkisian, hefur
sett af stað áætlun sem gerir skák
að skyldufagi í grunnskólum lands-
ins. Munu nú öll börn frá sex ára
aldri þurfa að stunda skák í tvo tíma
á dag, nema um helgar. Talið er að
skákátakið muni kosta armenska
ríkið sem samsvarar um 200 millj-
ónum íslenskra króna. Sarkisian
er þess fullviss að Armenar muni
brátt verða stórveldi í skák, en hann
er sjálfur talinn ágætis skákmaður.
Sarkisian vonast einnig til þess að
skáklistin hjálpi börnum við rök-
hugsun, og kann hann að hafa nokk-
uð til síns máls.
Castro vill
takmarka valdatíð
Raúl Castro, yngri bróðir Fidels og
forseti Kúbu, sagði í ræðu á laugar-
dag að takmarka ætti valdatíma
stjórnmálamanna, að enginn geti
setið í sama embættinu lengur en
tvö fimm ára kjörtímabil. Castro,
sem er 79 ára, kom talsvert á óvart
með því uppljóstra þessari skoðun
en bróðir hans var sem kunnugt er
einræðisherra allt frá árinu 1959
þangað til hann neyddist til að draga
sig út úr stjórnmálum vegna heilsu-
vandamála árið 2006. Raúl Castro
sagði að Kúba hefði gert mistök í for-
tíðinni en nú væri kominn tími til að
læra af þeim. Kúbumenn fögnuðu á
laugardag því að 50 ár eru liðin frá
Svínaflóainnrásinni, þegar Banda-
ríkjamenn gerðu tilraun til að koma
Fidel Castro frá völdum – en án ár-
angurs.
„Veislunni er lokið“
n Finnar gengu til þingkosninga í gær n Einn sigurstranglegasti flokkurinn vill að Finnland
segi sig úr ESB n Finnland gæti komið í veg fyrir neyðarlán ESB og AGS til Portúgal„Af hverju á Finn-
land að borga
undir aðrar þjóðir þegar
við leyfum ekki einu sinni
öðrum en Finnum að
mjólka kýrnar okkar?
Björn Teitsson
blaðamaður skrifar bjorn@dv.is
Vill Finnland úr ESB Spyr hvers vegna Finnar eigi að borga undir aðrar þjóðir.
Glaður Soini
Hann fagnar hér
fyrstu tölum í
kosningunum um
helgina.