Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.2011, Síða 21
Umræða | 21Mánudagur 18. apríl 2011
Stefnir
að mark -
miðum
sínum
1 Fær ekki að greiða upp gengis-tryggt lán Þórir Brynjúlfsson ætlar
að stefna Íslandsbanka fyrir að tefja
uppgjör á láni eftir að Hæstiréttur
dæmdi gengistryggð lán bankanna
ólögleg í fyrra.
2 Eiður: Teiknari Moggans setti nýtt met í sóðaskap Molaskrifari
taldi skopmynd Moggans af Siv Frið-
leifsdóttur vera sóðaskap.
3 Lögfræðingar telja grundvöll fyrir málsókn gegn Björgólfi
Thor Þrír lögfræðingar telja að skil-
greining Landsbankans á Björgólfi
Thor Björgólfssyni sem ótengdum
aðila á árunum fyrir hrun hafi farið
þvert gegn lögum um fjármálafyrir-
tæki.
4 „Geta ekki hreyft sig“ Þetta segir Sif Traustadóttir, dýralæknir og
meðlimur í Velbú, um aðbúnað svína í
svínabúum.
5 Jordan vill trúlofast „leik-félaga“ Glamúrgellan vill giftast
argentínskum leikfélaga sínum.
6 Þýskur greinandi hjá Moody ś ræður framtíð Íslands og Spánar
Aðstoðarritstjóri Guardian segir
Kathrin Mühlbrunner ráða framtíð
þjóðanna.
Elva Katrín Bergþórsdóttir var á
laugardagskvöldið valin Ungfrú
Norðurland, en keppnin fór fram í
Sjallanum á Akureyri
Hver er konan? „Elva Katrín Bergþórs-
dóttir, nítján ára og er í Menntaskólanum á
Akureyri, á þriðja ári á félagsfræðibraut.“
Bjóstu við því að vinna keppnina? „Nei,
alls ekki. Ég vonaði samt það besta. Mér
finnst að maður eigi alltaf að stefna að
markmiðum sínum. Ég geri það alltaf sjálf.“
Hvað er svo framundan? „Ég er að fara að
keppa í Módel Fitness í næstu viku. Svo er
bara spurning hvenær æfingar fyrir ungfrú
Ísland hefjast. Þá fer ég suður.“
Hvað æfirðu oft í viku „Venjulegast 6
sinnum í viku. En fyrir mót þá æfi ég 11–12
sinnum í viku. Meðan ég var að æfa fyrir
Ungfrú Norðurland bættust svo auðvitað
gönguæfingarnar við.“
Eru gönguæfingarnar erfiðar? „Nei, alls
ekki. Maður þarf náttúrulega aðeins að
mýkja sig, vera ekki stífur og með rétta
fólkinu er þetta ekkert mál.“
Hvernig var upplifunin af því að taka
þátt í þessari keppni? „Hún var bara
mjög góð, þetta var mjög góður hópur
og skemmtilegar stelpur. Reyndar svo
skemmtilegar að við vorum allar frekar
leiðar þegar keppnin var á enda.“
Ætlar þú að fagna sigri? „Jú, ég neyðist
til að gera það. Það var ákveðið að sigur-
vegarinn héldi partí. Ég boða stelpurnar því
til mín eftir fitness-keppnina.“
Truflar þetta námið? „Nei, það gerir það
ekki. Ég hef verið að keppa í fitness líka og
það er svipað álag. Ég hef gaman af þessu
og því er þetta ekkert að trufla mig. Ungfrú
Ísland er snemma í maí, ég næ að keppa og
koma svo aftur heim til að lesa undir prófin
í menntaskólanum sem eru haldin seint í
maí.“
„Nei, ég ætla að vera í bænum.“
Ásdís P. Kristinsdóttir
48 ára starfsmaður á ÍNN
„Já, ég ætla til Danmerkur.“
Gunnar Ingi Kristjánsson
23 ára tölvugaur á Landspítalanum
„Nei, ég verð bara hér á landinu, því miður.“
Þorbergur Atli Þorbergsson
26 ára og atvinnulaus
„Nei, ég verð í bænum,“
Jónas Ásgeir Ásgeirsson
17 ára nemi í MR
„Nei, ég ætla ekki að ferðast.“
Hlynur Freyr Jónsson
17 ára bakari
Mest lesið á dv.is Maður dagsins
Ætlar þú að ferðast um páskana?
Týr merktur ESB Glöggir vegfarandur við höfnina í Reykjavík hafa líklega tekið eftir því að síðustu daga
hafa menn á pramma unnið að því að mála stórt og mikið merki Evrópusambandsins á Tý, varðskip Landhelgis-
gæslunnar. Þær upplýsingar fengust hjá gæslunni að skipið muni á næstunni hafa það hlutverk að hafa eftirlit með fiskveiðum
innan Evrópusambandsins. Mynd: Róbert Reynisson
Myndin
Dómstóll götunnar
Þ
á eru Vinstri-grænir endan-
lega klofnir og kemur líklega
engum á óvart, enda varla um
stjórnmálaflokk að ræða held-
ur miklu frekar kosningabandalag ein-
staklingshyggjufólks. Sá flokkur sem
helst kennir sig við einstaklingshyggju,
Sjálfstæðisflokkurinn, býr hins veg-
ar yfir svo ríkum flokksaga að þaðan
heyrist aldrei nein rödd nema ein.
En jafnvel sá flokkur virðist nú klof-
inn þegar kemur að stórum málefn-
um. Það sama gildir um Framsóknar-
flokkinn. Það er helst Samfylkingunni
sem virðist takast að hanga saman og
virka sem heild. Varla er það þó vegna
flokksaga, sem aldrei hefur verið að-
all Samfó, heldur frekar hitt að menn
virðast sammála um helstu málefni.
Því virðist sem Samfylkingin sé eini
flokkur landsins sem meikar eitthvert
sens þessa dagana.
Vinstrimenn haga sér gjarnan
eins og ömbur sem stöðugt skipta
sér upp í smærri og smærri eining-
ar, í sósíal-demókrata og sósíalista og
þaðan í kommúnista sem síðan aftur
skipta sér upp í maóista, trotskíista og
Albaníu-Valda. Þessi lýsing á reyndar
frekar við um 8. áratuginn en daginn
í dag. Þessa dagana er því nefnilega
svo farið að ágreiningurinn er hug-
myndafræðilegur í raun, en ekki bara
persónulegur undir öðru yfirskini.
Tekist er á um ESB, Icesave, virkjan-
ir og fleira, og eru þær deilur ekki að-
eins vinstra megin. Þetta eru í raun
góðar fréttir, því stjórnmál eiga jú öðr-
um þræði að snúast um hugmynda-
fræði og framtíðarsýn. frekar en hvað
sem það annars er sem íslensk stjórn-
mál snúast um.
Sameinað vinstri: Taka 2
Svo virðist sem Steingrímshluti
Vinstri-grænna eigi þrátt fyrir allt
mun meiri samleið með Samfylk-
ingunni en með eigin órólegu deild,
eins og nú virðist deginum ljósara.
Þrír vinstriflokkar munu gera vinstri-
mönnum lítið gagn, auk Hreyfingar-
innar sem er að mestu leyti vinstra-
megin þótt í stjórnarandstöðu sé. Því
er líklega mál til komið að nýta þessa
sundrungu til sameiningar.
Slík tilraun var síðast gerð í lok
10. áratugarins, þegar ákveðið var
að sameina vinstriflokkana. Jóhanna
með sinn Þjóðvaka rann inn í þann
flokk, en Steingrímur stóð utan. Nú er
hans tími ef til vill kominn.
Varanleg stjórnarandstaða
Ljóst er að ríkisstjórnin mun ekki
vinna fleiri kosningar óstudd, þrátt
fyrir mikinn árangur í efnahagsmál-
um. En nýr vinstri-miðjuflokkur ætti
möguleika, auk þess að vera hug-
myndafræðilega samstæðari en flest-
ir flokkar eru þessa dagana. Nýr flokk-
ur enn lengra til vinstri myndi veita
nauðsynlegt aðhald þeim megin frá,
en væri líklega dæmdur til varan-
legrar stjórnarandstöðu þar sem
hann gæti ekki starfað með neinum.
Hreyfingarmeðlimir gætu svo runn-
ið inn í annan hvorn flokkinn eftir
hentisemi, en þeir hafa reynst öflug-
ir þingmenn þótt þeir hafi nú engan
stjórnmálaflokk á bak við sig. Hver
myndi leiða hinn nýja vinstri-miðju-
flokk skal ósagt látið, en ólíklegt er að
Jóhanna bjóði sig aftur fram á meðan
nóg púður virðist eftir í Steingrími.
Ný Samfylking
Hinn nýi miðju-vinstriflokkur (við
getum allt eins kallað hann Sam-
fylkinguna til hagræðingar) gæti
hugsanlega einnig fengið til sín fleiri
þingmenn, svo sem Guðmund Stein-
grímsson eða Siv Friðleifsdóttur, sem
virðast um margt vera á skjön við
Framsóknarflokkinn. Síðast en ekki
síst gæti hann hugsanlega náð eitt-
hvað ofan í atkvæðapott Sjálfstæðis-
flokksins. Sjálfstæðismenn munu í
næstu kosningum líklega annars fá
flest atkvæði eins og vanalega, en
kjósendur hans hafa þó enga hug-
mynd um hvað þeir eru að kjósa. Eru
þeir með eða á móti ESB, eru þeir að
fá nýjan Bjarna Ben eða sama gamla
Davíð aftur?
Nýr miðju-vinstriflokkur myndi
bjóða upp á skýran valkost, og einn-
ig fá flokka bæði til vinstri og hægri
til að skýra afstöðu sína svo fólk viti í
raun um hvað skal kjósa þegar til þess
kemur. Slíkt hlýtur að vera hollt fyrir
lýðræðið.
Nýr stjórnmálaflokkur?
Kjallari
Valur
Gunnarsson
„Svo virðist sem
Steingrímshluti
Vinstri-grænna eigi þrátt
fyrir allt mun meiri sam-
leið með Samfylking-
unni en með eigin órólegu
deild, eins og nú virðist
deginum ljósara.