Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.2011, Page 24
24 | Sport Umsjón: Tómas Þór Þórðarson tomas@dv.is 18. apríl 2011 Mánudagur
Svakalegar lokamínútur í jafntefli Arsenal og Liverpool:
Liverpool færði United nær eigin meti
Manchester United fékk smására-
bót á sunnudaginn fyrir tapið í
undanúrslitum bikarsins gegn ná-
grönnum sínum úr Manchester
City. Erkifjendur þeirra í Liverpool
gerðu Manchester United góð-
an greiða með því að ná í magn-
að jafntefli á Emirates-vellinum
gegn Arsenal, 1–1. Robin van Per-
sie skoraði það sem margir héldu
að yrði sigurmark Arsenal þegar
átta mínútur voru komnar fram yfir
venjulegan leiktíma.
Markið skoraði Persie úr víta-
spyrnu en viðbótartíminn var svo
mikill þar sem Jamie Carragher
hafði verið borinn af velli vegna
höfuðáverka. Arsenal-menn tryllt-
ust af fögnuði enda sigur gríðar-
lega mikilvægur. Liverpool fór aft-
ur á móti í sókn, vann aukaspyrnu
og svo hornspyrnu og upp úr henni
braut Emmanuel Eboue klaufalega
af sér og fékk Liverpool dæmt víti.
Úr spyrnunni skoraði Dirk Kuyt af
öryggi eins og vanalega en hann
skrifaði undir nýjan samning um
daginn, 1–1 jafntefli niðurstaðan.
Stigin tvö voru Arsenal ótrúlega
dýrmæt því liðið er í mikilli baráttu
við Manchester United um enska
meistaratitilinn. Með sigri hefði
Arsenal minnkað forskotið niður í
fjögur stig á toppnum en það er nú
sex stig þegar sex leikir eru eftir í
deildinni og bæði lið búin að leika
jafnmarga leiki. Þá er markatala
Manchester United hagstæðari.
Arsene Wenger brást illur við
vítaspyrnunni og tók tapinu illa.
Fór hann að argast út í Kenny
Dalglish þegar flautað var til leiks-
loka en Kenny gaf honum einfald-
lega merki um að það væri lítið sem
hann gæti gert í þessu. Sagði Kenny
Wenger einfaldlega að eiga sig og
tókust þeir ekki í hendur eftir leik-
inn.
Stigin tvö sem Liverpool hirti af
Arsenal færa Manchester United
skrefi nær Englandsmeistaratitl-
inum en standi United uppi sem
sigurvegari verður það í nítjánda
skiptið sem liðið vinnur titilinn.
Þar með færi United yfir Liverpool
í titlasöfnun því bæði lið hafa nú
unnið átján titla hvort.
tomas@dv.is
Úrslit
Sár og svekktur
Wenger veit hvað þetta
voru mikilvæg stig sem
fóru í súginn.
Mynd ReuTeRS
Lewis Hamilton á McLaren batt
enda á sigurgöngu Þjóðverjans Se-
bastians Vettel á Red Bull í hreint
mögnuðum kappakstri í Kína að-
faranótt sunnudags. Vettel hafði
unnið fyrstu tvö mót ársins með yf-
irburðum og var ekki fyrirséð hve-
nær hann myndi tapa keppni. Vettel
var á ráspól í Sjanghaí á sunnudag-
inn og leiddi keppnina allt fram á
52. hring af 56. Þá kom það í bakið
á honum að hafa ekki skipt fyrr um
dekk og tók Lewis Hamilton fram
úr honum. Hamilton hélt foryst-
unni allt til enda og vann sitt fyrsta
mót á árinu. Mark Webber, liðsfélagi
Vettels hjá Red Bull, var þó klárlega
maður dagsins en hann hóf keppn-
ina átjándi á ráslínu en vann sig
alla leið upp í þriðja sætið og þar af
leiðandi á verðlaunapall. Gjörsam-
lega magnað. Heilt yfir var keppn-
in sú besta sem sést hefur í langan
tíma því mikið var um framúrakstur
og baráttan í algleymingi á þessari
skemmtilegu braut.
einn besti sigurinn á ferlinum
Lewis Hamilton var eitt sólskinsbros
á blaðamannafundi eftir keppnina
enda McLaren búið að vinna krafta-
verk með bílinn sinn á skömmum
tíma. „Þetta er einn besti sigur sem
ég hef upplifað,“ sagði Hamilton.
„Ég ætlaði ekki að trúa því að ég
væri að ná Vettel. Mér datt ekki til
hugar í eina sekúndu að ég væri að
fara klára þetta. Þetta kom ótrúlega
á óvart og tilfinningin er einstök,“
sagði Hamilton.
Bretinn magnaði sem varð
heimsmeistari árið 2008 er nú að-
eins 21 stigi frá Vettel í heimsmeist-
arakeppninni en það leit út fyrir
það eftir síðustu keppni að Vettel
myndi stinga af. „Þetta er mikil-
vægt fyrir okkur. Þessi keppni á eftir
að gera okkur mun auðveldara fyrir
og hvetja menn til dáða. Við vissum
að Red Bull-menn væru svakalega
hraðir en við unnum þetta á frá-
bærri taktík. Við gátum einfaldlega
ekki beðið um þetta betra,“ sagði
Lewis Hamilton.
Læri af þessu
Heimsmeistarinn Sebastian Vettel
átti erfitt með að taka tapinu enda
leiddi hann keppnina í 52 hringi af
56. „Það er mikilvæg lexía sem við
þurfum að læra af þessu. Hamilton
og McLaren-menn voru of sterkir í
dag og með mun betri taktík. Ég átti
rosalega erfitt á dekkjunum undir
lokin, það sáu allir. Ég þurfti alltaf að
bíða of lengi með það að stýra bíln-
um inn í beygjurnar og hafði engan
kraft þegar ég kom út úr þeim,“ sagði
Vettel svekktur en dekkjaskipting-
ar Red Bull komu í bakið á liðinu.
Einnig hjálpaði það Vettel lítið að
vera með bilaða talstöð meirihluta
keppninnar.
Nú færir Formúlan sig um set og
eru þrjár keppnir í Evrópu á dag-
skránni. Fjörið byrjar í Tyrklandi
eftir tvær vikur. „Við lærum af þessu
og reynum að vera skynsamari. Við
erum með frábæran bíl og frábært
fólk en taktíkin á keppnisdegi skipt-
ir alltaf miklu máli,“ sagði Sebastian
Vettel.
n Hamilton batt enda á sigurgöngu Vettels n Gjörsamlega frábær
keppni í Sjanghaí n Webber komst úr 18. sæti á verðlaunapall
KliKKað í Kína
Stigakeppni ökumanna
Ökuþór Lið Stig
1. Sebastian Vettel Red Bull 68
2. Lewis Hamilton McLaren 47
3. Jenson Button McLaren 38
4. Mark Webber Red Bull 37
5. Fernando Alonso Ferrari 26
Stigakeppni bílasmiða
Lið Stig
1. Red Bull 105
2. McLaren 85
3. Ferrari 50
4. Renault 32
5. Mercedes 16
Staðan
efstu menn
Ökuþór Lið
1. Lewis Hamilton McLaren
2. Sebastian Vettel Red Bull
3. Mark Webber Red Bull
4. Jenson Button McLaren
5. Nico Rosberg Mercedes
6. Felipe Massa Ferrari
7. Fernando Alonso Ferrari
8. Michael Schumacher Mercedes
9. Vitaly Petrov Renault
10. Kamui Kobayashi Saubers
Úrslitin í KínaTómas Þór Þórðarson
blaðamaður skrifar tomas@dv.is
enski bikarinn
Man. City - Man. united 1-0
1-0 YaYa Toure (52.).
n Paul Scholes, Man. United (72.)
Bolton - Stoke 0-5
0-1 Matthew Etherington (11.), 0-2 Robert
Huth (17.), 0-3 Kenwyne Jones (39.), 0-4 Jon
Walters (68.), 0-5 Jon Walters (81.).
enska úrvalsdeildin
Birmingham - Sunderland 2-0
1-0 Sebastian Larsson (41.), 2-0 Craig Gar-
dner (65.).
everton - Blackburn 2-0
1-0 Leon Osman (54.), 2-0 Leighton Baines
(75. víti).
WBA - Chelsea 1-3
1-0 Peter Odemwingie (16.), 1-1 Didier
Drogba (22.), 1-2 Salomon Kalou (26.), 1-3
Frank Lampard (45.).
West Ham - Aston Villa 1-2
1-0 Robbie Keane (2.), 1-1 Darren Bent (37.),
1-2 Gabriel Agbonlahor (90.+1).
Blackpool - Wigan 1-3
0-1 Hugo Rodallega (3.), 0-2 Charles
N´Zogbia (45.), 0-3 Mohamed Diame (66.),
1-3 DJ Campbell (83.).
STAðAn
Lið L u J T M St
1. Man. Utd 32 20 9 3 70:32 69
2. Arsenal 32 18 9 5 63:31 63
3. Chelsea 32 18 7 7 58:26 61
4. Man. City 32 16 8 8 50:30 56
5. Tottenham 31 14 11 6 44:36 53
6. Liverpool 33 14 7 12 46:39 49
7. Everton 33 11 14 8 47:41 47
8. Bolton 32 11 10 11 46:43 43
9. Aston Villa 33 10 10 13 42:54 40
10. Newcastle 32 10 9 13 48:47 39
11. WBA 33 10 9 14 47:62 39
12. Fulham 32 8 14 10 36:35 38
13. Stoke City 32 11 5 16 39:42 38
14. Birmingham 32 8 14 10 33:43 38
15. Sunderland 33 9 11 13 35:47 38
16. Blackburn 33 9 8 16 40:54 35
17. Wigan 33 7 13 13 32:53 34
18. Blackpool 33 9 6 18 47:69 33
19. West Ham 33 7 11 15 39:58 32
20. Wolves 32 9 5 18 36:56 32
enska Championship-deildin
Bristol City - Ipswich 0-1
Burnley - Swansea 2-1
Cardiff - Portsmouth 3-0
n Hermann Hreiðarsson lék fyrri hálfleikinn í
vörninni hjá Portsmouth.
Coventry - Millwall 2-1
n Aron Gunnarsson lék fyrstu 52 mínúturnar
fyrir Coventry.
Crystal Palace - Scunthorpe 1-2
Hull - doncaster 3-1
Leeds - Watford 2-2
Middlesbrough - Barnsley 1-1
Preston - Sheff. united 3-1
Reading - Leicester 3-1
n Hvorki Ívar Ingimarsson né Brynjar Björn
Gunnarsson voru í leikmannahópi Reading.
STAðAn
Lið L u J T M St
1. QPR 41 23 13 5 65:27 82
2. Cardiff 42 22 9 11 72:48 75
3. Norwich 42 20 14 8 72:53 74
4. Reading 42 19 15 8 73:47 72
5. Swansea 42 21 7 14 59:41 70
6. Leeds 42 17 14 11 78:68 65
7. Nottingham F. 42 16 15 11 55:45 63
8. Hull 42 16 15 11 48:42 63
9. Millwall 42 16 13 13 56:44 61
10. Leicester 42 17 9 16 65:63 60
11. Burnley 41 16 12 13 56:55 60
12. Ipswich 42 17 8 17 56:54 59
13. Watford 42 15 13 14 73:62 58
14. Portsmouth 42 15 10 17 51:57 55
15. Bristol City 42 15 9 18 53:59 54
16. Coventry 42 14 10 18 50:53 52
17. Barnsley 42 13 12 17 50:61 51
18. Middlesbro 41 13 11 17 55:62 50
19. Derby 41 13 9 19 53:60 48
20. Doncaster 42 11 12 19 52:75 45
21. Cr. Palace 42 11 10 21 42:65 43
22. Scunthorpe 42 12 4 26 39:78 40
23. Preston 42 9 12 21 50:71 39
24. Sheffield Utd 42 9 8 25 36:69 35