Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.2011, Síða 26
Fyrir helgi hófst herferðin Smokk-
ur á Facebook og víðar. Herferðin er
kynningarátak forvarnafélags lækna-
nema, Ástráðs, en markmiðið er að
vekja athygli á smokknum sem er ein
besta vörnin gegn kynsjúkdómum og
ótímabærum þungunum.
Fjöldinn allur af frægum Íslend-
ingum leggur málstaðnum lið með því
að sitja fyrir en átakið sækir innblást-
urinn til gömlu smokkaauglýsinganna
sem voru vinsælar á níunda áratugn-
um. Þá var það sama upp á teningn-
um og þjóðþekktir einstaklingar sátu
fyrir og slagorð eins og Ekki deyja úr
fáfræði urðu til. Þá var það landlækn-
isembættið sem stóð fyrir herferðinni.
Um 100 einstaklingar taka þátt
í átakinu að þessu sinni og má þar
nefna Hemma Gunn, Jóa Fel, Jón
Gnarr, Friðrik Dór, Dag B. Eggertsson,
Gísla Örn Garðarsson og ótal fleiri.
Hægt er að sjá allar myndirnar inni
á Facebook-síðu átaksins sem heitir
Smokkur.
26 | Fólk 18. apríl 2011 Mánudagur
Borgarstjórinn með smokk í nefinu
Jón Gnarr Á eina frumlegustu myndina. Friðrik Dór Er hræddur og hissa. Gísli Örn Minnir helst á persónuna sem
hann lék í Brimi.
Augljóst en skemmtilegt Ásdís
Hjálmsdóttir spjótkastari.
Klassískur smokkahattur Saga
Garðarsdóttir grínisti.
innrétting
kristjáns til sölu
Tenórinn Kristján Jóhannsson hefur
sett eldhúsinnréttinguna sína á sölu
hjá Umboðssölunni. Kristján flutti inn-
réttinguna sjálfur inn frá Ítalíu þar sem
hann bjó til margra ára. Samkvæmt
vefsíðunni Menn er innréttingin verðlögð
á bilinu 700 til 800 þúsund krónur og er
líklega um að ræða innréttingu sem var
í villu söngvarans við Gardavatn sem
er stærsta vatn og óumdeilanlega eitt
fallegasta svæði Ítalíu.
Þjóðþekktir kynna smokkinn:
Þ
etta var algjör gleði,“ seg-
ir stórsöngvarinn Björgvin
Halldórsson sem fagnaði
sextugsafmæli sínu eftir af-
mælistónleika í Háskólabíói
á laugardagskvöldið. Björgvin söng
á tveimur tónleikum á laugardaginn
eftir þá síðari var móttaka í andyri
Háskólabíós þar sem kveðjum, koss-
um og gjöfum rigndi yfir Björgvin.
Að sjálfsögðu var fullt á báðum tón-
leikunum á laugardaginn og einnig
á aukatónleikana á sunnudaginn og
komust færri að en vildu.
„Þarna var mikið af góðum gest-
um, bæði gömlum vinum og sam-
starfsfélögum,“ segir Björgvin sem
var myndaður ásamt sonardóttur
sinni, Þórunni Leu, en hún er dóttir
Sigurðar Þórs, elsta sonar Björgvins.
„Hún skemmti sér mjög vel. Þórunn
er sjálf byrjuð að leika og syngja og
er virkilega efnileg. Siggi sonur minn
var þarna líka og konan hans, svo var
Krummi auðvitað mættur en Svala er
í Los Angeles. Þetta var alveg virki-
lega gaman,“ segir Björgvin sem fékk
meðal annars flugubox í afmælisgjöf
frá vini sínum Óttari Felix Haukssyni.
„Ég fékk mikið af veiðigræjum
enda er ég alveg forfallinn stang-
veiðimaður. Við Óttar veiðum mik-
ið saman og erum í veiðiklúbbi. Ég
reyni að fara svona þrjá til fjóra túra á
ári,“ segir Björgvin en hvað fékk hann
fleira fallegt? „Ég sit nú með eina
gjöfina í fanginu núna. Útgefandinn
minn, Sena, gaf mér 60 ára módel-
ið af Fender Telecaster sem er gítar
sem kom út einmitt árið 1951. Það er
búið að smíða afmælisútgáfuna. Svo
fékk ég annan dobro-gítar frá hljóm-
sveitinni. Aðalgjöfin var samt auð-
vitað að vera heill heilsu og fá alla
vinina í heimsókn. Það skiptir lang-
mestu máli,“ segir Björgvin, en þurfti
ekki flutningabíl til að koma gjöfun-
um heim? „Við komum nú öllu fyrir í
Volvo-num,“ svarar hann og hlær.
Björgvin er fyrir löngu orðinn
einn ástsælasti söngvari þjóðarinn-
ar enda ekki margir sem fylla Laug-
ardalshöll margsinnis um hver jól
og svo Háskólabíó þrisvar sinnum
sömu helgina nokkrum mánuðum
síðar. „Ég er lukkunar pamfíll,“ segir
Björgvin um velgengni sína. „Það er
samt fólkinu sem ég hef unnið með
í gegnum tíðina sem ber að þakka.
Það er alveg frábært fólk sem ég hef
fengið tækifæri til að starfa með og
það eru ekkert nema forrréttindi,“
segir Björgvin, en hvað nú?
„Núna er ég búinn að vera svo-
lítið plássfrekur. Því ætla ég að draga
mig aðeins inn í híðið og fara í stúd-
íó. Ég kem svo með einhverja útgáfu
seinna í sumar eða um jólin,“ segir
hinn sextugi Björgvin Halldórsson.
tomas@dv.is
„Ég er lukkunnar
pamfíll“
n Björgvin Halldórsson fagnaði
sextugs afmælinu með fjölskyldu
og vinum í Háskólabíói n Fékk mikið af
veiðigræjum í afmælisgjöf
Bó sextuGur:
Glæsilegur afi Björgvin
ásamt sonardóttur sinni,
Þórunni Leu.
Flottur Björgvin var flottur í
tauinu að vanda.
MynDir BJÖrn BlÖnDAl
Forfallinn stangveiðimaður
Óttar Felix Hauksson gaf Björgvini
þetta myndarlega flugubox.
Einar Bárðar
þyngsti mótherjinn
Nýjasti þáttur karlaklefans í sjónvarpi
mbl.is þar sem handknattleikshetjan
Logi Geirsson reynir að rífa aukakílóin
af Einari Bárðarsyni verður frumsýndur
í dag, mánudag. Í þætti dagsins fer
Einar í hringinn gegn bardagaíþrótta-
kappanum Árna „úr járni“ Ísakssyni. Á
Facebook-síðu sinni í gær sagðist Einar
vera með glóðarauga og tvær lausar
tennur sem kom Árna á óvart þegar DV
hafði samband við hann. „Þetta var
nú bara mjög léttur bardagi og mest
leikið. Ég fór ekkert illa með hann. Ég er
vanur bardagamaður og hann aldrei æft
þannig það var erfitt fyrir hann að hitta
mig. Einar virkar samt mjög sterkur,“
segir Árni, en var Einar þyngsti mótherji
sem hann hefur mætt? „Já, ég held það
nú,“ segir Árni og hlær.