Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.2011, Page 29
ÞStrandhúsið sem pe
rsónurnar Kelly Taylor og Donna
Martin í sjónvarpsþáttunum Beverly Hills 90210 bjuggu
í er nú til sölu. Þeir sem hafa áhuga á að eignast húsið –
sem Donna Martin missti meydóminn í – þurfa þó að geta reitt
fram einn milljarð króna, eða 9 milljónir dala, til að láta draum-
inn rætast.
Húsið er staðsett á Hermosa Beach í Kaliforníu í Banda-
ríkjunum en það hefur verið auglýst hjá fasteignasölum sem
„90210-húsið“ þrátt fyrir að húsið sé í raun rúmlega 30 kíló-
metra frá hinu eiginlega Beverly Hills-póstnúmeri. Fyrir áhuga-
sama er gott að vita að húsið er 270 fermetrar, í því eru
sex svefnherbergi og þrennar svalir.
90210
til sölu
Fólk | 29Mánudagur 18. apríl 2011
L
eikkonan Jodie Sweetin, sem
er best þekkt fyrir hlutverk sitt í
sjónvarpsþáttunum Full House,
hefur háð áralanga baráttu við
áfengis- og vímuefnafíkn en hefur
náð nokkuð góðum bata að undan-
förnu og segist sjálf vilja horfa fram
á veginn og eyða tíma með dætr-
um sínum tveimur, Zoie, 3 ára, og
Beatriz, 8 mánaða, svo að þær kynn-
ist henni sem manneskjunni sem hún
er í dag. „Vandamálin tilheyra fortíðinni,“
sagði Sweetin í samtali við bandaríska tíma-
ritið People á afmælisdag dóttur sinnar í síðustu
viku. „Vonandi þurfa börnin mín aldrei að kynnast
þessari hlið á mér. Ég vildi að ég hefði ekki þurft þess
sjálf en þannig er það bara.“
Sweetin segist ekki ætla að setjast niður með krökkunum
sínum á einhverjum tímapunkti og segja þeim hvað móðir þeirra
hafi gert í fortíðinni en hún segist þó ekki ætla að leyna þau því ef þau
vilja sjálf fá að vita eitthvað. „Ég hef verið frekar opinská varðandi
vandamálin mín þannig að ef þau spyrja mig einhvers verð ég það líka
við þau eins og aðra,“ segir hún. „Ég held að það sé engin ástæða til að
reyna að fela þetta. Ég skammast mín ekki.“
Aðspurð hverju hún vilji þakka þann bata sem hún hefur náð að
undanförnu segist hún hafi lært að kunna að meta lífið. „Líf mitt er
svo gott og ég ætla ekki að missa af neinu,“ útskýrði hún. „Ég held að
það sé ekkert betra en líf mitt eins og það er núna.“ Undanfarið hefur
hún reynt fyrir sér í áheyrnarprufum en hún segist tilbúin að fara aftur
að leika.
Jodie Sweetin „Vonandi þurfa börnin
mín aldrei að kynnast þessari hlið á
mér,“ sagði Sweetin.
„Ég er svo
stolt af
henni“
Jodie Sweetin úr Full House:
Demi Lovato ánægð með
Catherine Zeta-Jones:
É
g þekki Catherine Zeta-Jones ekki persónu-
lega en þvílík hetja sem hún er að stíga svona
fram,“ skrifaði Disney-leikkonan Demi Lo-
vato á Twitter-síðuna sína í síðustu viku. Zeta-
Jones sagði frá því á miðvikudag að hún væri með geð-
hvarfasýki. „Þetta er svo erfitt… Ég er svo stolt af henni,“
sagði Lovato sem nýlega opnaði sig í viðtali við tímaritið
Seventeen um átröskunarsjúkdóm sinn en hún var lögð
inn á meðferðarheimili eftir að hafa fengið taugaáfall
aðeins 17 ára.
„Ég var virkilega illa stödd,“ sagði Lovato í viðtali
við blaðið. „Foreldrar mínir og umboðsmaðurinn minn
tóku mig á tal og sögðu við mig að ég þyrfti að leita mér hjálp-
ar. Þetta var inngrip. Ég vildi frelsi frá öllum átökunum innra
með mér. Ég vildi byrja lífið upp á nýtt.“
Styður Zetu-Jones
„Þetta er svo erfitt…“ sagði
Lovato á Twitter-síðu sinni
um leikkonuna Zetu-Jones.
MynD Jeff KravitZ / fiLMMagiC
Berst við geðhvarfasýki
Catherine Zeta-Jones greindi frá því
í síðustu viku að hún væri með geð-
hvarfasýki. MynD faMe PiCtureS
Strandhúsið fræga Margir muna eflaust eftir húsinu
sem persónurnar Kelly Taylor og Donna Martin bjuggu í.
www.birkiaska.is
Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á bæði
vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar
starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar
efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum,
dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox).
Birkilaufstöflur
www.birkiaska.is
Minnistöflur
Bætir skammtímaminnið. Nýtist
fólki sem er undir álagi og fæst
við flókin verkefni. Hentar vel
fyrir eldri borgara, lesblinda og
nemendur í prófum. Dregur úr
streitu, eykur ró og bætir skap.
Verkstæði - Varahlutir - Smurþjónusta - Metan ísetningar
Vandamálin
tilheyra
fortíðinni