Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.2011, Qupperneq 4
4 | Fréttir 2. maí 2011 Mánudagur
Björn Mikkaelsson reif hús sitt 17. júní árið 2009:
Ekki enn verið ákært
Enn hefur ekki verið gefin út ákæra í
máli Björns Mikkaelssonar, fyrrver-
andi íbúa í Hólmatúni 44 á Álftanesi. Í
júní verða liðin tvö ár frá því Björn reif
hús sitt í mótmælaskyni eftir að Frjálsi
fjárfestingarbankinn hafði krafist út-
burðar. Hann var kærður fyrir eigna-
spjöll á húsinu og gæti átt yfir höfði
sér allt að sex ára fangelsi verði hann
ákærður.
Það var á þjóðhátíðardaginn 17.
júní 2009 sem Björn lét til skarar srkíða.
Hann reif hús sitt með beltagröfu. Þeg-
ar hann hafði rifið það að stórum hluta
gróf hann holu fyrir bifreið sína og
færði bílinn með gröfunni ofan í hol-
una. Þær upplýsingar fengust hjá lög-
reglunni á höfuðborgarsvæðinu að
ákæra hefði enn ekki verið gefin út en
að rannsókn málsins væri lokið. Svip-
uð svör fengust fyrir ári. Ekki liggur fyr-
ir hvað veldur þeirri töf sem orðið hef-
ur á ákvörðun í málinu. Friðrik Smári
Björgvinsson sagði í samtali við DV í
fyrra að rannsókn málsins hefði meðal
annars beinst að því hvort Björn hefði
fjarlægt innbú hússins áður en það var
jafnað við jörðu, að hluta. Sjálfur hefur
Björn hafnað því alfarið að hafa komið
undan verðmætum úr húsinu áður en
hann reif það með gröfunni en stað-
festir að lögreglan hafi yfirheyrt sig um
þetta.
„Þeir vilja meina að búið sé að
strípa húsið og lögreglan rannsak-
aði það. Kæra lögfræðingsins segir
að hurðar og allt hafi verið farið. Ég
tók að sjálfsögðu búslóðina mína og
þarna er bara verið að búa til eitthvað
svart á mig. Eftir að þetta gerðist hef-
ur hins vegar fólk sem ég þekki séð
til fólks bera dót úr húsinu, baðkar
og hurðir og annað dót af veggjum.“
baldur@dv.is
Húsið ónýtt „Ég tók að sjálfsögðu bú-
slóðina mína,“ sagði Björn.
Viðurkenndar
stuðningshlífar
í úrvali
Stórhöfða 25 • Sími 569 3100 • eirberg.is
Í sumar er opið virka daga frá kl. 9 -18
Sextán ára öku-
maður endaði
utan vegar
Sextán ára ökumaður missti stjórn
á bifreið aðfaranótt sunnudags með
þeim afleiðingum að hún endaði
utan vegar. Atvikið átti sér stað á
Grindarvíkurvegi og voru þrjú ung-
menni með í bílnum. Þau voru öll
undir áhrifum áfengis. Öll sluppu
þau án teljandi meiðsla en tveir voru
fluttir á slysadeild, annars vegna
höfuðhöggs og hinn vegna háls-
meiðsla. Bifreiðin var óökufær og
var hún dregin burt með kranabíl.
Aðfaranótt sunnudags var til-
tölulega róleg í flestum lögregluum-
dæmum landsins. Þrjár líkamsárásir
voru tilkynntar til lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu.
Vilja svör um
Landspítala
Leitað verður svara hjá fjármála-
ráðherra við því hvað verði um
þær byggingar og lóðir sem losna
þegar Landspítalinn verður að
fullu byggður. Uppbygging Land-
spítala háskólasjúkrahúss við
Hringbraut gengur samkvæmt
áætlun og þegar framkvæmdum
lýkur mun starfsemi spítalans í
Fossvogi flytjast þangað. Skipu-
lagsráð Reykjavíkur samþykkti
tillögu fulltrúa Sjálfstæðisflokks-
ins um að fjármálaráðherra yrði
krafinn svara um hvað verður
gert þegar byggingarnar í Foss-
vogi losna. Í tilkynningu sem
Júlíus Vífill Ingvarsson, borgar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, sendi
frá sér kemur fram að mikilvægt
sé að örlög gamla Borgarspítal-
ans verði ekki þau sömu og Vífils-
staðaspítala sem hann segir vera
orðið „draugahverfi“.
Eldur í bifreið
Eldur kom upp í mannlausri bifreið
við Fáksheimilið í Víðidal aðfaranótt
sunnudags. Eldsupptök eru ókunn
en talsverður eldur var í bifreiðinni
þegar slökkvilið bar að garði. Sam-
kvæmt upplýsingum frá slökkvilið-
inu tók skamma stund að ná tökum
á eldinum. Bifreiðin er þó talin ónýt.
Steingrímur Njálsson og Ágúst Magn-
ússon, báðir margdæmdir barnaníð-
ingar, búa í félagslegslegum íbúðum á
vegum borgarinnar á Skúlagötu. Íbúð-
irnar eru í blokkarlengju og aðskilur
eitt húsnúmer þá. Nafn hvorugs þeirra
er við dyrabjöllu.
Ósáttir nágrannar
Nágranni, sem býr í íbúð andspænis
Ágústi Magnússyni, sagði blaðamanni
að Ágúst léti lítið fyrir sér fara og svo
virtist sem hann væri aðallega heima
hjá sér að nóttu til. Hann sagðist að-
spurður ekki verða var við gestagang
eða mannaferðir. Öðrum nágranna
sem býr í sama stigagangi stendur ekki
á sama, að vita af Ágústi í húsinu, og
segist fyrst hafa heyrt af því að hann
byggi þar í gegnum kunningja. „Það
er ekkert gaman að búa í sama stiga-
gangi og svona menn. Svo eru nöfn
þeirra ekki einu sinni á dyrabjöllunni,
það er eins og þeir séu í felum. Það er
ótrúlegt tilitsleysi að fólk af þessu tagi
sé sett inn á stigaganginn án þess að
þeir sem leigja á sama stað séu látnir
vita,“ sagði nágranninn ósáttur.
Mikið af barnafólki í kring
Kona, sem býr ásamt tveggja ára
gömlu barni sínu í næsta nágrenni,
segir það óþægilega tilfinningu að vita
af mönnunum tveimur. Hún segist
ekki hafa vitað að Ágúst byggi einnig
á Skúlagötunni áður en blaðamaður
upplýsti hana um það, en hafði heyrt
af búsetu Steingríms í gegnum annan
nágranna. „Allt í kringum mig býr fólk
sem er af erlendu bergi brotið og veit
kannski ekki að það býr í nágrenni við
margdæmda kynferðisbrotamenn.
Barnið mitt er enn það ungt að ég fer
út með því þegar við förum á leikvöll-
inn hérna fyrir aftan, en þó að það
væri eldra myndi ég ekki hleypa því
einu út vitandi af þessum mönnum í
næsta nágrenni. En það býr mjög mik-
ið af barnafólki hérna og ekki allir vita
af Ágústi og Steingrími eða hvernig
þeir líta út.“
Hún segist gera sér grein fyrir að
einhvers staðar verði þessir menn að
búa en finnst rétt að barnafólk í næsta
nágrenni við þá væri látið vita. „Þetta
er mjög viðkvæmt og einhvers stað-
ar verða þessir menn að vera og það
eru jú börn alls staðar. En mér finnst
að í gegnum grunnskóla, leikskóla eða
þess háttar ætti að láta fólk vita að það
búi í sama hverfi og dæmdur barna-
níðingur, án þess að það þurfi endi-
lega að nafngreina hann.“
Eins finnst henni skrýtið að tveir
alræmdustu barnaníðingar landsins
leigi báðir félagslegar íbúðir af borg-
inni í sömu blokk. „Mér finnst það
frekar skrýtið og óhugnanlegt að þeir
skuli vera hérna báðir. Þessir menn
ættu að vera á stofnun þar sem þeir
fá hjálp og saklaus börn eiga ekki á
hættu að verða fyrir barðinu á þeim.“
Stutt frá meintu broti
Ágúst var árið 2004 dæmdur í fimm
ára fangelsi fyrir að níðast á sex
drengjum. Árið 2007 gekk hann svo í
gildru Kompáss þegar hann var enn
í afplánun vegna brotanna árið 2004
en þá hélt hann að hann væri að fara
að hitta 13 ára stúlku. Í dag á hann
yfir höfði sér ákæru fyrir meint kyn-
ferðislegt ofbeldi gegn ungum mis-
þroska manni fyrr á þessu ári. Ágúst
á að hafa ekið með unga manninn á
afvikinn stað og beitt hann kynferðis-
legu ofbeldi. Hann var handtekinn á
heimili sínu í mars og lagði lögregl-
an meðal annars hald á tölvur í hans
eigu til rannsóknar. Í janúar í fyrra
ákvað Fangelsismálastofnun að fram-
lengja reynslulausn Ágústs um eitt ár
vegna þess að hann var talinn vera
hættulegur. Því er ljóst að Ágúst var á
reynslulausn þegar meint brot gegn
unga manninum áttu sér stað.
Segist saklaus
Steingrímur Njálsson er einn þekkt-
asti barnaníðingurinn sem geng-
ur laus í dag. Hann hefur hlotið að
minnsta kosti 24 refsidóma og verið
dæmdur í samtals um 10 ára fangelsi
fyrir margs konar afbrot, þar á meðal
fjölmörg kynferðisafbrot gegn börn-
um. Steingrímur hefur verið látinn
gangast undir geðmat og samkvæmt
því er hann talinn sakhæfur. Það er
því er ekki grundvöllur fyrir því að
vista hann á stofnun fyrir ósakhæfa af-
brotamenn.
Blaðamaður DV náði tali af Stein-
grími á heimili hans á Skúlagötu þar
sem hann býr á fjórðu hæð með útsýni
yfir stóran leikvöll í garðinum fyrir aft-
an blokkina. Hann býður blaðamanni
og ljósmyndara inn í íbúðina.
Aðspurður hvort hann sjái eftir
brotum sínum segist Steingrímur ekki
kannast við að hafa brotið gegn börn-
um þrátt fyrir að hafa margoft fengið
dóm fyrir það.
Barnaníðingar
í sömu Blokk
n Ágúst Magnússon og Steingrímur Njálsson búa báðir á Skúlagötu n Nágrann-
ar ósáttir við að vera ekki tilkynnt um búsetu þeirra n Með útsýni yfir leikvöll
„Það er ekkert
gaman að búa
í sama stigagangi og
svona menn. Svo eru
nöfn þeirra ekki einu sinni
á dyrabjöllunni, það er
eins og þeir séu í felum.
Hanna Ólafsdóttir
blaðamaður skrifar hanna@dv.is
Síbrotamaður Steingrímur Njálsson á heimili sínu á Skúlagötu.
Hann hefur hlotið að minnsta kosti 24 refsidóma og verið dæmdur
í samtals um 10 ára fangelsi fyrir margs konar afbrot, þar á meðal
fjölmörg kynferðisbrot gegn börnum. MyNd RÓBERt REyNiSSoN
Ágúst Magnússon Í janúar í fyrra ákvað Fangelsismálastofnun
að framlengja reynslulausn Ágústs um eitt ár vegna þess að hann
var talinn hættulegur. Hann var handtekinn í mars síðastliðnum
grunaður um kynferðisbrot gegn ungum misþroska manni.