Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.2011, Blaðsíða 10
10 | Fréttir 2. maí 2011 Mánudagur
St. 41-46
Grensásvegur 8 &
Nýbýlavegur 12
Sími 517 2040
Opið
mánud-föstud. 11-18
laugard. 11-16
SKÓMARKAÐUR
St. 40-46
St. 41-50
St. 40-46
Segir Vincent Tchenguiz ljúga:
„Ekki fór ég
á strippstaði“
„Miðað við myndir sem til eru af
honum get ég ekki séð að það sé
honum til bóta að bæta við konum í
umræðuna um hann,“ segir Ármann
Þorvaldsson, fyrrverandi banka
stjóri Kaupþings
í Lundúnum, um
Vincent Tchengu
iz. Norska blaðið
Dagens Nær
ingsliv birti um
helgina viðtal við
Tchenguiz en þar
fullyrðir hann að
Kaupþingsmenn
hafi stundað vafasama viðskiptahætti
í Lundúnum, meðal annars með því
að bjóða mögulegum viðskiptavinum
sínum á nektardansstaðinn String
fellows. Sagði Tchenguiz að String
fellows væri þekktur nektardansstað
ur í Lundúnum meðal bankamanna.
Sagði Tchenguiz að Kaupþingsmenn
hefðu stundað að bjóða viðskipta
vinum sínum á dýra veitingastaði
og farið síðan með allt föruneytið á
Stringfellows.
DV hafði samband við Ármann
sem sagði að málið væri uppspuni
frá a til ö. „Ég bara get ekki skilið
hvað honum gengur til með þessu,“
segir Ármann. „Ekki fór ég á stripp
staði. Ég get auðvitað bara talað
fyrir sjálfan mig en hvað mig varðar
þá kannast ég ekkert við svona við
skiptahætti. Þá stundaði ég aldrei
og ekki undirmenn mínir heldur, að
mér vitandi að minnsta kosti.“
Ármann sagði að mögulegt
væri að Tchenguiz væri að ráðast
að Kaupþingi vegna málaferla
sem hann og bróðir hans eigi í við
þrotabú Kaupþings. Þar krefjast þeir
bræður milljarða úr þrotabúinu,
þrátt fyrir að hafa skuldað bankan
um milljónir punda þegar hann féll.
bjorn@dv.is
„Fyrirspurnir eru farnar að berast ís
lenskum fyrirtækjum í ferðaþjónustu
frá útlöndum vegna yfirvofandi alls
herjarverkfalls síðar í mánuðinum,“
segir Þórir Garðarsson hjá Iceland
Excursions Allrahanda, en hann
situr í stjórn Samtaka ferðaþjónust
unnar. „Hér stefnir í stórfellt tjón því
fyrirspurnirnar merkja að erlendar
ferðaskrifstofur og erlendir ferða
menn íhuga nú þegar aðra kosti ef
til verkfalla kemur hér. Samkeppn
in er mikil og valkostir ferðamanna
margir. Óvissa vegna yfirvofandi
verkfalla getur því snarlega leitt til af
bókana. Harkan á vinnumarkaðnum
er því mjög bagaleg því við höfum
getað kynnt Ísland sem hagkvæman
og áhugaverðan kost fyrir erlendum
ferðamönnum.“
Þórir segir að fjölmörg fyrirtæki í
ferðaþjónustu haldi að sér höndum
við að ráða sumarstarfsmenn vegna
yfirvofandi verkfalla. Þannig hafi
spennan á vinnumarkaðnum haft
mjög áþreifanlegar afleiðingar nú
þegar.
Hörð viðbrögð komu á óvart
Margrét Kristmannsdóttir, formað
ur Samtaka verslunar og þjónustu,
undrast hörð viðbrögð forystu
manna samtaka launafólks við yfir
lýsingu Samtaka atvinnulífsins fyrir
helgina. Samtök launamanna telja
að upp sé komin ný staða og samn
ingsdrög, sem voru á borðinu fyrir
15. apríl, séu ekki lengur samnings
grundvöllur.
„ASÍ hafði fengið öll sín mál í
höfn föstudaginn 15. apríl en Sam
tök atvinnulífsins ekki. Við fengum
svo sambærileg svör frá ríkisstjórn
inni síðastliðið fimmtudagskvöld og
lýstum því daginn eftir að við vild
um á þeim grundvelli setjast aftur
að samningaborðinu með það fyrir
augum að semja til þriggja ára,“ segir
Margrét.
„Viðbrögð ASÍ og forystumanna
samtaka launafólks komu okkur því
verulega á óvart, en þau segja að allt
sé nú breytt. Það hefur að vísu verið
samið um kaup og kjör í Járnblendi
verksmiðjunni í millitíðinni. Við
sitjum hér tilbúin með pennann og
teljum ekkert í vegi fyrir því að ljúka
samningum. Mér finnst þetta bera
keim af einhverjum innri vanda
málum og spennu innan samtaka
launafólks. Það stendur ekkert upp á
okkur enda hefur ekkert annað gerst
en það að atvinnurekendur hafa nú
sambærileg loforð frá ríkisstjórninni
og launamenn höfðu fengið fyrir sitt
leyti. Það er óábyrgt að stefna í verk
föll þegar atvinnurekendur eru til
búnir að skrifa undir samninga. Við
berum mikla ábyrgð og viðbrögðin
eru furðuleg. Við eigum að setjast
niður og ljúka þessu,“ segir Margrét.
Neita þrýstingi frá LÍÚ
Vilmundur Jósefsson, formaður
SA, og Helgi Magnússon, formaður
Samtaka iðnaðarins, þvertóku fyrir
það á blaðamannafundi fyrir helgi
að LÍÚ hefði haft atvinnurekendur
og samningamálin í gíslingu vegna
pólitískrar óvissu um rekstrarskil
yrði í sjávarútvegi. „Þetta er alrangt...
Við erum ekki á móti breytingum í
sjávarútvegskerfinu. Við höfum lagt
til ákveðnar breytingar á því. Og þar
hefur LÍÚ staðið fyllilega að baki okk
ur. Þetta hefur alltaf verið lagt út á
þann veg að við séum að berjast fyr
ir óbreyttu kerfi. Það er síður en svo.
Það sem við viljum númer eitt, tvö
og þrjú er að þessi grein fái að starfa
eins og aðrar greinar í landinu með
góð rekstrarskilyrði.“
Undir þetta tók Helgi. „Þetta er
ein stærsta atvinnu og útflutnings
grein landsins og hún verður að hafa
viðunandi starfsskilyrði alveg sama
hvaða skoðanir menn hafa á sjávar
útvegi eða þessari atvinnugrein. En
við höfum ekki verið beitt neinum
þrýstingi og það er hreinn og klár
áróður leyfi ég mér að segja.“
Ljóst er þó að hagsmunir mis
munandi atvinnugreina eru ólík
ir. Sérstaklega er bent á viðkvæma
stöðu fyrirtækja í ferðaþjónustu og
verslun. Brigslyrðin hafa gengið á víxl
í kjölfar yfirlýsingar framkvæmda
stjórnar SA fyrir helgi og harðra við
bragða forystumanna launafólks við
þeirri yfirlýsingu.
Ný staða
Rafiðnaðarsamband Íslands lauk
þingi sínu á laugardag. Innan þess er
litið svo á að upp sé komin algjörlega
ný staða í kjarasamningum. Þau lýsa
því meðal annars hvernig SA hafi
fyrir miðjan nýliðinn mánuð stað
ið upp frá samningaborðinu en gert
samning engu að síður við Elkem
án fyrirvara um sjávarútvegsmálin.
Sá samningur kveður á um 8,5 pró
senta hækkun launa á þessu ári, 3,3
prósenta á því næsta og 3 prósenta
hækkun árið 2013, eða samtals 15,7
prósenta launahækkun á samnings
tímanum.
„Samtök launamanna á almenn
um vinnumarkaði hafa sýnt mikil
heilindi og mikla þolinmæði gagn
vart vandræðagangi SA og LÍÚ. Þess
vegna hafa samtök launamanna
sett fram kröfu um eins árs samn
ing með sömu afturvirkni og var
í Elkemsamningnum og 4,5 pró
senta launahækkun. SA og LÍÚ geti
þá athugasemdalaust af hálfu launa
manna haft svigrúm til þess að ljúka
sínum málum og síðan megi í haust
hefja vinnu við gerð 3 ára samnings
sem taki við í janúar á næsta ári. Ef
SA fellst ekki á þessa leið hefst alls
herjarverkfall 25. maí næstkomandi,“
segir á vef Rafiðnaðarsambandsins.
Fara þau sömu leið og Elkem?
Haldi fjandskapur áfram næstu
daga milli forystu atvinnurekenda
og launafólks er búist við því að ein
stök fyrirtæki segi skilið við megin
stefnu SA og semji upp á eigin spýt
ur við starfsmenn sína. Þetta gæti átt
við um fyrirtæki eins og Landsvirkj
un, Rarik, Landsnet, Ísal og Fjarðaál,
Isavia og fleiri fyrirtæki. Þar með yrði
að minnsta kosti komist hjá verk
föllum í áliðnaði, við virkjunarfram
kvæmdir og í fleiri greinum. Augljós
lega eru Samtök ferðaþjónustunnar
einnig undir miklum þrýstingi þar
sem nú fer í hönd hábjargræðis
tími fyrirtækja innan samtakanna.
Jafnframt er ljóst að fari fyrirtæki
og heilar starfsgreinar þessa leið á
næstu tveimur vikum yrðu fyrirvarar
SA um sjávarútveginn látnir lönd og
leið líkt og gert var í kjarasamningn
um við Elkem á Grundartanga.
Hefur neikvæð
áHrif nú þegar
n Fyrirtæki í ferðaþjónustu halda að sér höndum við að ráða fólk í
sumar n Fyrirspurnir berast að utan vegna hættu á verkföllum
n Verkföll einnig yfirvofandi í álverum og við virkjunarframkvæmdir
Jóhann Hauksson
blaðamaður skrifar johann@dv.is
„Haldi fjandskapur
áfram næstu daga
milli forystu atvinnurek-
enda og launafólks er
búist við því að einstök
fyrirtæki segi skilið við
meginstefnu SA og semji
upp á eigin spýtur við
starfsmenn sína.
Aukin spenna Margrét Kristmannsdóttir undrast hörð viðbrögð verkalýðsfélaganna við
útspili SA fyrir helgi. Vilmundur Jósefsson neitar því að LÍÚ haldi SA í herkví hagsmuna sinna.
Nær einnig til stóriðju og virkjunar-
framkvæmda Rafiðnaðarmenn í stóriðju
og hjá orkufyrirtækjunum boða einnig
verkfall, segir Guðmundur Gunnarsson,
fráfarandi formaður sambandsins.
MyNd RóbERT REyNiSSoN
Viðkvæmt fyrir ferðaþjónustuna
Fyrirspurnir vegna yfirvofandi verkfalla
berast fyrirtækjum í ferðaþjónustu og þau
halda að sér höndum við að ráða sumar-
starfsfólk, segir Þórir Garðarsson.