Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.2011, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.2011, Blaðsíða 19
Umræða | 19Mánudagur 2. maí 2011 Mættu í úrslitin til að vinna 1 Listamaður sá ljósið í gæslu-varðhaldi Snorri Ásmundsson sá ljósið í gæsluvarðhaldi árið 1994 eftir að hann var handtekinn vegna gruns um fíkniefnamisferli. 2 „Skemmtileg blanda“ Tobba Marinós um turtildúfurnar Kristrúnu Ösp Barkardóttur og Svein Andra Sveinsson. 3 Ráða aðeins kvenkyns bíl-stjóra Aðeins konur fá vinnu sem strætóbílstjórar í argentínskum smábæ. 4 „Ég verð að vinna áfram“ Guð-mundur Gunnarsson sest ekki í helgan stein þó hann sé hættur sem formaður Rafiðnarsambandsins. 5 Styrkirnir ekki gleymdir Guð-laugur Þór Þórðarson hótar að höfða mál gegn Birni Vali Gíslasyni. 6 Fyrst á röngunni svo rakað á réttunni Best er að þrífa fínar flíkur á röngunni. Ef peysan er farin að hnökra er hægt að nota venjulega rakvél sem safnar þeim saman. 7 Landið ekki að rísa þvert á áætl-anir AGS Haraldur L. Haraldsson hagfræðingur segir að áætlanir AGS á Íslandi hafi mistekist. Birkir Freyr Birkisson er einn af liðsmönnum Holtaskóla sem gerðu sér lítið fyrir og unnu Skólahreysti í stappfullri Laugardalshöll á dögunum. Skólahreysti er gífurlega vinsæl í Holtaskóla en þar er greinin valfag og æfa krakkarnir stíft allan veturinn. Hver er maðurinn? „Birkir Freyr Birkisson.“ Hvar ertu uppalinn? „Ég er uppalinn í Keflavík.“ Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana? „Klæði mig og tannbursta.“ Hver er uppáhaldsmaturinn þinn? „Jólamaturinn, hamborgarahryggur.“ Með hverjum heldurðu í enska bolt- anum? „Manchester United.“ Hver er uppáhaldsbíómyndin þín? „The Shawshank Redemption.“ Hvernig var að vinna Skólahreysti? „Alveg ótrúlega gaman. Þetta var bara mesta afrek sem ég hef unnið. Það var svo mikil spenna þarna, við unnum þetta náttúrlega bara með einu stigi. Púlsinn var orðinn ansi hraður undir restina.“ Höfðuð þið trú á að þið gætuð tekið þetta? „Við bjuggumst nú ekki einu sinni við að vinna undanriðilinn okkar. En svo gekk okkur svo vel þar að við mættum í úrslitin til að vinna þau.“ Æfið þið mikið fyrir svona keppni? „Ég æfði mjög mikið enda var bætingin hjá mér mikil. Við vorum líka með æfingar og já, saman æfðum við mikið. Í íþróttahúsinu stilltum við upp húllahringjum til að líkja eftir dekkjum og svona. Svo erum við með upphífingastöng og dýfingastöng sem hjálpar okkur mikið.“ Æfirðu aðrar íþróttir? „Ég æfi fótbolta með Keflavík og svo fer ég alltaf á snjóbretti á veturna.“ Er mikil stemning í skólanum fyrir Skóla- hreysti? „Já, mjög mikil. Það er valfag sem nem- endur í 9. og 10. bekk geta valið sér sem er Skólahreysti. Þá er farið í íþróttahúsið alla föstudaga klukkan tvö og tekið á þá. Ég held við séum um tuttugu krakkar í þessu fagi. Þetta er mjög gaman og gerir krakkana í níunda bekk klára í átökin á næsta ári.“ „Ég myndi ekki beint segja það, nei.“ Hallgrímur Stefánsson 40 ára atvinnulaus „Nei, ekki mjög.“ Sigurður Kristjánsson 67 ára skrifstofumaður „Já, ég er það.“ Ólafur Kristjánsson 60 ára fyrrverandi sjómaður „Nei, ég er ekki bjartsýn.“ Ólöf Guðmundsdóttir 54 ára vinnur á skrifstofu „Já. Þetta er eins og annað í þjóðfélaginu, þarf smá tíma í viðbót.“ Benedikt Guðbjartsson 69 ára eftirlaunaþegi Mest lesið á dv.is Maður dagsins Eru bjartsýn/n fyrir hönd verkalýðsins? (Spurt 1. maí) Einmanalegt Þessi snjókarl var heldur einmana í Laugardalnum á sunnudag þegar ljósmyndari DV átti leið hjá. Það er harla óvenjulegt að sjá snjókarla á þessum árstíma enda sumarið löngu gengið í garð. Tíðarfar hefur hins vegar verið rysjótt og byrjun maímánaðar sönnun þess að á Íslandi er allra veðra von. Mynd RÓBERt REyniSSon Myndin Dómstóll götunnar í þjóðaratkvæðagreiðslunni um Icesave-samninginn kaus þjóðin eðlilega gegn því að borga skuldir bankamanna, enda engum sem hugnast að gera slíkt. En var það raunverulega svo að bankarnir voru einungis einkafyrirtæki sem komu engum við nema eigendum þess? Ef aðeins að það væri svo. Málið er nefnilega að enginn banki getur starfað nema hann fái ríkisábyrgð á innistæður sínar ef í harðbakkann slær, enda myndi eng- in leggja inn pening í banka sem ekki hefur slíka ábyrgð. Þannig eru allir bankar á ábyrgð ríkisins þegar allt kemur til alls. Hagur banka og hagur almenn- ings Hagur bankaeigenda fer alls ekki alltaf saman við hag ríkisins. Von um skammtímagróða getur leitt til þess að menn tefli á tæpasta vað, eða jafn- vel að bankinn reynist hrein svika- mylla eins og dæmin sýna. Hver svo sem upphafleg ætlun var, þá hljóta það að vera hagsmunir eigenda banka í vanda að taka eins mikið fé út úr honum og hægt er áður en hann fer á hausinn, vitandi það að ríkið mun á endanum taka yfir. Þetta virðist einmitt vera það sem gerðist hér, og einnig það sem breska ríkið reyndi að forðast með hryðjuverka- lögunum svonefndu. Sterkt fjár- málaeftirlit á að koma í veg fyrir slíka gjörninga. En er það nóg? Í banka koma eðlilega miklir fjár- munir saman, og (skammtíma)hag- ur eigenda felst í að hafa sem frjáls- astar hendur við meðferð þeirra. Þeir eru oftast í aðstöðu til þess að eyða mun meira fé í lögfræðinga en fjár- málaeftirlitið við eftirlit sitt. Einnig geta þeir boðið há laun, og eiga það til að hreint og beint kaupa starfs- kraftinn af fjármálaeftirlitinu. Því hlýtur fjármálaeftirlitið alltaf að vera vanbúið til þess að sinna hlutverki sínu, jafnvel þó að það sé betur starf- rækt en það var hér. Því hljótum við að reyna að finna aðra lausn. norska leiðin Eina leiðin til þess að halda úti banka- kerfi er að það njóti ríkisábyrgðar. Eina leiðin til þess að sú ábyrgð sé ekki misnotuð er að ríkið sjálft eigi bankana, því ríkið er eini aðilinn sem hefur ekki hag af að taka alla peninga út um leið og illa horfir. Þetta var það kerfi sem var við lýði á Íslandi fram til 1999, enda voru engin sambæri- leg bankahrun fyrir þann tíma. Í það minnsta ætti ríkið að eiga hlut í bönk- unum til þess að vera viss um að geta gætt hagsmuna sinna og hafa aðgang að öllum reikningum. Slíkt hefur ver- ið uppi á teningnum í Noregi síðan í bankakreppunni í upphafi 10. ára- tugarins. Nú á ríkið um 30% hlut í öll- um helstu bönkum, enda voru engin bankahrun í Noregi árið 2008. Ekki síst verður að tryggja að venjulegir bankar, þar sem fólk geym- ir innistæður sínar og fjárfestinga- bankar, sem lána út peninga til alls konar fjárfestinga, megi aldrei aftur verða ein og sama stofnun. Fólk sem leggur peninga sína inn á reikning gerir það í þeirri trú að peningarnir séu það öruggir. Fjárfestingarbankar eiga að geta farið á hausinn án þess að það komi almenningi við, enda stunda þeir áhættufjárfestingar og fjárfestar geta átt von að því að græða eða tapa eftir því hvernig spilið geng- ur. Það sama gildir ekki um innistæð- ur í venjulegum bönkum. Íslensku bankarnir voru hvort tveggja og því fór sem fór. Það sem lærðist af síðustu kreppu Eftir bankahrunið 1929 voru sett hin svonefndu Glass-Steagall lög í Banda- ríkjunum sem bönnuðu einmitt að sömu stofnanir væru bæði með inn- lánsreikninga og fjárfestingarlán. Allt þar til lögin voru afnumin árið 1999 fór ekki einn einasti banki á hausinn í Bandaríkjunum. Ljóst er frá upphafi að skuldir banka sem þeim tekst ekki sjálfum að borga munu óhjákvæmilega lenda á almenningi. Því ætti það að vera ský- laus krafa almennings um að ríkið gæti hagsmuna þeirra og sjái til þess að bankarnir fari ekki á hausinn. Eina leiðin til þess virðist vera að ríkið eigi bankana að öllu leyti eða að hluta. Á meðan slíkt er ekki er líklegt að al- menningur eigi eftir að fá fleiri Ice- save-reikninga í framtíðinni. Og í framtíðinni væri betra að fá að kjósa um slíka reikninga fyrir fram, frekar en eftir á. Ef þetta lærist má segja að bankahrunið 2008 hafi verið til ein- hvers góðs, ef ekki er ekkert að gera nema bíða þess að allt endurtaki sig á ný. Þjóðaratkvæði um bankana Kjallari Valur Gunnarsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.