Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.2011, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.2011, Blaðsíða 6
6 | Fréttir 2. maí 2011 Mánudagur Hrafnhildur Einarsdóttir fer fyrir hollvinafélagi Sundhallarinnar í Hafnarfirði: „Þessi laug hefur sérstöðu“ „Ég hef synt í þessari laug frá því ég var fimm ára gömul. Ég er eiginlega alin upp í lauginni,“ segir Hrafnhildur Einarsdóttir, íbúi í Hafnarfirði. Hún er ein þeirra liðlega fimm hundruð sem hafa látið óánægju sína í ljós á Facebook með fyrirhugaða lokun Sundhallarinnar í Hafnarfirði. Upp- haflega átti að loka lauginni fyrir al- menningi 1. maí en því var frestað til 16. júní. Núna er laugin aðeins opin virka daga en lokuð um helgar. Hrafnhildur, sem er á 61. ári, seg- ist hafa notað laugina alla tíð og að hún geti vart hugsað sér að synda í útilaug á veturna. „Þessi laug hef- ur sérstöðu. Þar er boðið upp á sér- staka kvennatíma. Þeir hafa verið frá því ég man eftir mér, á milli klukkan 8 og 10 á þriðjudags- og fimmtudags- morgnum.“ Hún segist eiga eftir að sakna þeirra ef af lokuninni verður. Hrafnhildur segir að ekkert sé gert til að efla aðsóknina í laugina, jafn- vel þú hún sé „þrifalegasta laugin á svæðinu“. Undirskriftum gegn lokun laugar- innar var safnað í vor og voru þær af- hentar bæjarstjórn fyrir skemmstu. Í kjölfarið var ákveðið að fresta lokun- inni fram í miðjan júní, en skerða af- greiðslutímann. Viðskiptavinir laugarinnar hafa haft frumkvæði að stofnun hollvina- félags Sundhallarinnar. Hrafnhild- ur er í forsvari fyrir félagið en segir að henni hafi eiginlega verið ýtt út í það. „Við viljum einfaldlega að laug- in verði opnuð aftur fyrir almenning eftir sumarfrí,“ segir hún um mark- mið félagsins en til standi að nota laugina aðeins undir skólasund næsta vetur. „Ég skil ekki þá stærð- fræði, þá fá þeir alls enga peninga inn, ekki krónu í kassann. Við ætl- um að láta þetta ganga,“ segir Hrafn- hildur að lokum, spurð hvort hún sé bjartsýn á að laugin verði opin áfram. Endurnærir og hreinsar ristilinn allir dásama OXYTARM Í boði eru 60-150 töflu skammtar 30+ Betr i apotekin og Maður l i fandi www.sologhei lsa. is OXYTARM Sól og heilsa ehf = Losnið við hættulega kviðfitu og komið maganum í lag með því að nota náttúrulyfin Oxytarm og 30 days saman120 töflu skammtur days detox Fór í mál vegna 10.000 króna: Fékk launin að endingu Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt fyrirtækið Flutningalausnir ehf. til að greiða manni 9.827 krónur í vangoldin laun. Málið á rætur sínar að rekja til 28. maí í fyrra en þá var maðurinn boð- aður í atvinnuviðtal hjá fyrirtækinu. Honum var boðið að fara með starfs- manni fyrirtækisins til vinnu og sjá þannig með eigin augum hvernig vinnan færi fram. Hann féllst á það og fór hann til vinnu með starfsmanni fyrirtæksins í sjö og hálfa klukku- stund. Maðurinn bjóst við að fá greitt fyrir vinnuna en svo fór að hann var ekki ráðinn í starfið. Ekki var samið sérstaklega um laun vegna starfans og taldi maðurinn að þá ættu lágmarks- laun samkvæmt kjarasamningi VR og SA að gilda. Þrátt fyrir áskoran- ir frá VR um að fyrirtækinu bæri að greiða upphæðina, tæplega tíu þús- und krónur, barst greiðslan aldrei. Lögmaður Flutningalausna sagði fyrir dómi að fyrirtækið hefði metið það svo að maðurinn hefði ekki verið í vinnu í umrætt sinn og verið sagt að hann fengi ekki greidd laun fyrir. Héraðsdómur Reykjavíkur komst að þeirri niðurstöðu að maðurinn hefði sannarlega mætt til vinnu hjá fyrirtækinu í einn dag. Þótti því rétt að fallast á kröfur hans um að fá greiðslu. Auk þess að þurfa að greiða mann- inum tæplega tíu þúsund krónur var fyrirtækið einnig dæmt til að greiða honum hundrað þúsund krónur í málskostnað. Hefur sérstöðu Hrafnhildur segir að Sundhöllin í Hafnarfirði hafi sérstöðu og vonast til að lauginni verði ekki lokað. Börnin mega nú vera lengur úti Útivistartími barna og unglinga tók breytingum á sunnudag, þann 1. maí. Héðan í frá mega 12 ára börn og yngri vera úti til klukkan 22.00 á kvöldin. 13 til 16 ára ung- lingar mega vera úti til klukkan 24.00. Börn mega ekki vera á al- mannafæri utan fyrrgreinds tíma nema í fylgd með fullorðnum. Bregða má út af reglunum fyrir síðartalda hópinn þegar unglingar eru á heimleið frá viðurkenndri skóla-, íþrótta- eða æskulýðssam- komu. Aldur miðast við fæðing- arár. Útivistarreglurnar eru sam- kvæmt barnaverndarlögum. Þeim er meðal annars ætlað að tryggja nægan svefn en hann er börn- um og unglingum nauðsynlegur. Svefnþörfin er einstaklingsbundin en þó má ætla að börn og ungling- ar á grunnskólaaldri þurfi 10 tíma svefn á nóttu. „Segir ekki í kvæðinu að það sé vit- laust gefið?“ segir Sigurður Þ. Ragn- arsson, veðurfræðingur og jarðvís- indamaður, um óvænta snjókomu sem gerði á höfuðborgarsvæðinu á laugardag. Svo mikil var ofankoman að jörð varð alhvít og snjóaði langt fram á aðfaranótt sunnudags þegar loksins stytti upp. Snjókoman gerði það meðal annars að verkum að hætta þurfti við árlegan akstur Snigl- anna sem jafnan er farinn á baráttu- degi verkalýðsins, 1.maí. Þá átti Ís- landsmótið í knattspyrnu að hefjast á sunnudag en leik Breiðabliks og KR var frestað vegna snjóþyngsla á Kópavogsvelli. Kortin til fyrirmyndar „Í öðrum landshlutum hefur notið mikillar blíðu, landsbyggðin fékk betur gefið í þetta sinn,“ segir Sig- urður en mikill munur var á veðri milli landshluta um helgina. Þann- ig var hitinn 1,6 stig í Reykjavík á laugardag á sama tíma og hann fór í átján gráður á Seyðisfirði. Sigurð- ur blæs þó von í brjóst höfuðborg- arbúa og segir hlýtt loft munu ylja þeim næstu dagana. „Kortin eru al- veg til fyrirmyndar. Við þurfum að gefa hverri árstíð sinn sjens. Nú er vorið búið og sumarið að brjótast fram og góðir hlutir gerast hægt. Nú er bara staðan þannig að við fáum yl í hjartaræturnar eftir það sem und- an hefur gengið því það er býsna hlýtt loft að berast hingað. 14–15 stig á höfuðborgarsvæðinu ef við erum heppin og það góða er að hlý- indin haldast áfram á landsbyggð- inni svo það verður enginn meting- ur um þetta.“ Næstum því met Að morgni sunnudags var rúmlega 16 sentímetra djúpur snjór í Reykja- vík en ekki hefur mælst jafn djúpur snjór í maímánuði frá því árið 1987. Einar Sveinbjörnsson veðurfræð- ingur segir á veðurbloggi sínu, Veð- urvaktinni, að ekki hafi verið hvít jörð á höfuðborgarsvæðinu á 1. maí síðan árið 1993 en þá var snjódýpt- in ekki jafn mikil. „Þá gerði líka of- ankomu um svipað leyti við áþekk- ar aðstæður og nú þegar hægfara og skörp skil lágu yfir landinu vestan- verðu.  1. maí 1993 var snjódýptin 13 sm.  Jörð hafði verið alhvít einn- ig daginn áður,“ segir Einar og bætir við að snjórinn í borginni árið 1987 hafi verið sautján sentímetrar. Því hafi afar litlu munað að metið væri jafnað. Kristjana Guðbrandsdóttir blaðamaður skrifar kristjana@dv.is „Nú er bara stað- an þannig að við fáum yl í hjartaræturnar eftir það sem undan hef- ur gengið því að það er býsna hlýtt loft að berast hingað. Betra veður í vændum n Snjóþungt á höfuðborgarsvæðinu á baráttudegi verkalýðsins n Siggi stormur spáir snjónum burt og yl og hlýviðri í byrjun vik- unnar n Ekki mælst jafn djúpur snjór í Reykjavík frá því árið 1987 Hvað finnst þér um veðurfarið? „Þetta veðurfar dregur úr von fólks í samfélaginu. Ef það væri sól þá væri bjartara í hjörtum fólks í dag.“ Edda Kristín Hauksdóttir 46 ára kennari „Ég er svo sátt við að búa á norðurhveli jarðar og þá má búast við þessu að öllu jöfnu. Svo ég er bara ánægð með veðrið. Esjan er líka falleg svona hvít.“ María Jónsdóttir 47 ára leikskólakennari „Ég er ekki sáttur, en þetta er Ísland og það er hægt að búast við öllu.“ Elías Guðmundsson 36 vinnur hjá ríkinu „Mér finnst of mikill snjór, þetta er frekar ömurlegt.“ Þórunn Guðnadóttir 23 ára í námi Talsverður snjór Að morgni sunnudagsins var rúmlega 16 sentímetra djúpur snjór í Reykjavík. MyNd RóbERT REyNiSSoN

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.