Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.2011, Qupperneq 8
8 | Fréttir 2. maí 2011 Mánudagur
Mál Hauks Þórs Haraldssonar tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur:
Aftur á byrjunarreit
Fyrirtaka í máli ríkislögreglustjóra
gegn Hauki Þór Haraldssyni, fyrr-
verandi framkvæmdastjóra rekstrar-
sviðs Landsbanka Íslands, fór fram í
Héraðsdómi Reykjavíkur á föstudag.
Haukur var ákærður í byrjun des-
ember árið 2009 fyrir að draga sér
118 milljónir króna árið 2008, tveim-
ur dögum eftir fall Landsbankans.
Upphæðina lét hann millifæra af
innlendum gjaldeyrisreikningi í eigu
félags á vegum Landsbankans, NBI
Holding Ltd. Haukur var prókúru-
hafi og stjórnarmaður félagsins en
samkvæmt ákæru millifærði hann
féð yfir á eigin bankareikning. Hauk-
ur sagðist fyrir dómi hafa verið að
reyna að bjarga innlánum erlendra
aðila, enda hefði mikil óvissa ríkt um
tryggingar þeirra haustið 2008. Hann
hefði reynt að tryggja þá hagsmuni
sem honum var trúað fyrir, gæta þess
að féð brynni ekki upp.
Héraðsdómur kvað upp dóm í
málinu í apríl í fyrra þar sem Haukur
var sýknaður. Byggði dómari niður-
stöðu sína á því að Haukur hefði ekki
reynt að millifæra féð laumulega og
það yrði að meta það skiljanlegt að
Haukur hefði áhyggjur af stöðu NBI
Holding. Dómnum var hins vegar
áfrýjað til Hæstaréttar sem ómerkti
niðurstöðu héraðsdóms í febrúar
síðastliðnum. Var það meðal annars
niðurstaða Hæstaréttar að héraðs-
dómur hefði ekki getað dregið ein-
hlítar ályktanir um sakleysi Hauks af
þeirri staðreynd að hann hefði ekki
reynt að millifæra féð með leynd.
Málinu var því vísað heim í hérað að
nýju og má því segja að málið sé aftur
komið á byrjunarreit, tæpum þremur
árum eftir að það kom upp.
einar@dv.is
Millifærði eftir hrun Haukur var ákærður fyrir að
millifæra 118 milljónir króna yfir á eigin reikning. Þetta gerði
hann til að tryggja hagsmuni sem honum var trúað fyrir.
Starfsfólki á leikskólum fækkar:
Aldrei fleiri börn
í leikskólum
Í desember síðastliðnum sótti 18.961
barn leikskóla á Íslandi og hafa þau
aldrei verið fleiri. í nýjum tölum frá
Hagstofunni kemur fram að leik-
skólabörnum hafi fjölgað um 245 frá
desember 2009, eða um 1,3 prósent.
Þrátt fyrir þessa fjölgun hefur hlut-
fall barna á aldrinum eins árs til
fimm ára sem sækja leikskóla lækk-
að lítillega, úr 83 prósentum fyrir
ári í 82 prósent í desember 2010. Þá
má greina breytingar á viðverutíma
barnanna. Milli áranna 2009 og 2010
fækkaði þeim börnum sem dvelja í
leikskólanum í 9 klukkustundir eða
lengur á dag um tæplega 1.100 en
á sama tíma fjölgaði börnum sem
dvelja í leikskóla 8 klukkustundir á
dag um tæplega 1.400.
Í desember 2010 nutu 1.232 börn
sérstaks stuðnings vegna fötlunar,
félagslegra eða tilfinningalegra erf-
iðleika, 6,5 prósent leikskólabarna.
Þetta er fækkun um 130 frá fyrra ári,
eða um 9,5 prósent. Eins og undan-
farin ár eru fleiri drengir í þessum
hópi. Í fyrra nutu 834 drengir stuðn-
ings og 398 stúlkur. Hlutfall barna
sem njóta stuðnings er mishátt eftir
landsvæðum. Þannig njóta 3,9 pró-
sent leikskólabarna á Norðurlandi
eystra stuðnings, meðan 11,2 pró-
sent austfirskra barna fá stuðning.
Á sama tíma og börnum í leik-
skólum landsins fjölgar fækkar
starfsfólki í leikskólum samkvæmt
tölum Hagstofunnar. Í desember
2010 störfuðu 5.488 manns í 4.770
stöðugildum við leikskóla á Íslandi.
Það er fækkun um 151 starfsmann
frá fyrra ári og stöðugildum fækkaði
um 77.
Jón Snorri krefst
5 milljóna frá DV
Jón Snorri Snorrason, lektor í við-
skiptafræði við Háskóla Íslands og fyrr-
verandi umsjónarmaður með MBA-
námi í skólanum, hefur höfðað mál á
hendur Inga Frey Vilhjálmssyni, frétta-
stjóra DV, Lilju Skaftadóttur, stjórnar-
formanni DV, og ritstjórum DV, þeim
Jóni Trausta Reynissyni og Reyni
Traustasyni. Verður málið þingfest í
Héraðsdómi Reykjavíkur á morgun,
þriðjudaginn 3. maí, klukkan 10.00.
Meiðandi myndbirtingar
Jón Snorri fer fram á fimm milljóna
króna miskabætur frá fréttastjóra
og ritstjórum DV vegna umfjöllunar
blaðsins um tengsl hans við iðnfyrir-
tækið Sigurplast í Mosfellsbæ sem nú
sætir rannsókn hjá efnahagsbrota-
deild ríkislögreglustjóra. Einnig fer
hann fram á að fréttastjóri og ritstjór-
ar DV greiði honum 400 þúsund krón-
ur til þess að kosta birtingu dómsins í
fjölmiðlum.
Málavextir eru þeir að frá 11. til 24.
mars fjallaði DV um málefni Sigur-
plasts í Mosfellsbæ. Telur Jón Snorri
að DV hafi vísvitandi og ítrekað reynt
að tengja nafn hans og stöðu við Há-
skóla Íslands inn í umfjöllunina um
Sigurplast. Með því hafi blaðið vegið
að einkalífi hans, æru og starfsheiðri.
Þá hafi 14 myndbirtingar af honum í
DV og á DV.is verið sérlega meiðandi.
Áður en Jón Snorri lagði fram kæru á
hendur DV hafði hann óskað eftir því
að blaðið leiðrétti umfjöllun um hann
en á það var ekki fallist.
Var stjórnarformaður
hjá Sigurplasti
Jón Snorri var stjórnarformaður og
einn af eigendum iðnfyrirtækisins Sig-
urplasts í Mosfellsbæ sem kært var til
lögreglunnar vegna gruns um að stór-
felld lögbrot hafi verið framin í starf-
semi þess. Leikur grunur á að skatta-
lagabrot, skilasvik, umboðssvik og
fjárdráttur séu meðal þeirra brota sem
hafi átt sér stað í rekstrinum sem Jón
Snorri bar ábyrgð á.
Skýrsla frá endurskoðendafyrirtæk-
inu Ernst og Young um starfsemi Sig-
urplasts, sem unnin var fyrir þrotabú
félagsins, bendir til þess að Jón Snorri
og framkvæmdastjóri félagsins, Sig-
urður L. Sævarsson, hafi vitað að fyrir-
tækið væri orðið tæknilega gjaldþrota
löngu áður en það var tekið formlega
til gjaldþrotaskipta síðastliðið haust.
Fyrirtækið skuldaði Arion banka þá
um 1.100 milljónir króna.
Lét Sigurplast borga
gistingu í London
Í yfirliti í skýrslu Ernst og Young
um greiðslur frá Sigurplasti vegna
Jóns Snorra kemur fram að félagið
greiddi fjölmarga reikninga fyrir
hann sem endurskoðendurnir telja
ólíklegt að hafi tengst rekstri fyrir-
tækisins. „Við skoðun bókhalds Sig-
urplasts ehf. kom í ljós ýmis kostn-
aður sem gæti talist persónulegur
kostnaður Jóns Snorra Snorrasonar,
sem var greiddur og gjaldfærður af
Sigurplasti ehf.“
Ernst og Young gagnrýnir fjölmarg-
ar færslur í bókhaldi Sigurplasts þar
sem fyrirtækið virðist greiða persónu-
legan kostnað Jóns Snorra. Meðal ann-
ars er um að ræða tæplega 74 þúsund
króna reikning frá St. Giles-hótelinu í
London frá því í ársbyrjun 2010 en Jón
Snorri gisti þar í fjórar nætur ásamt
eiginkonu sinni. Endurskoðendurnir
gagnrýna að í bókhaldi Sigurplasts sé
ekki að finna frekari skýringu á því af
hverju Sigurplast greiddi umræddan
reikning fyrir Jón: „Engin frekari skýr-
ing er á þessum kostnaði.“
Jón Snorri segir í stefnu sinni rangt
að hann sé eða verði til rannsóknar hjá
lögreglu. Sú yfirlýsing gengur þvert á
það að málið hefur verið kært til lög-
reglu.
n Telur að DV hafi vegið að einkalífi, æru og starfsheiðri n Var stjórnarformaður Sigurplasts
sem nú sætir lögreglurannsókn n DV féllst ekki á beiðni hans um leiðréttingu á umfjöllun
Annas Sigmundsson
blaðamaður skrifar as@dv.is
„Ernst og Young
gagnrýnir fjöl
margar færslur í bókhaldi
Sigurplasts þar sem fyrir
tækið virðist greiða per
sónulegan kostnað Jóns
Snorra.
Vill fimm milljónir Jón Snorri vill fimm
milljónir króna frá DV, auk þess fer hann
fram á að blaðið greiði honum 400 þúsund
krónur til að kosta birtingu dómsins í fjöl-
miðlum.
Höfuðstöðvarnar í Mosfellsbæ Jón Snorri
var einn af eigendum Sigurplasts sem er til rann-
sóknar hjá lögreglu. MynD SigTryggur Ari
Voru utan lögsögu:
Löglegar veiðar
Landhelgisgæslan hefur nú kannað
veiðar skipa frá Spáni og Rússlandi
sem sáust í gæsluflugi á Reykjanes-
hrygg á föstudag.
Við skoðun varðskipsmanna um
borð í skipum frá Spáni á sunnu-
dag kom í ljós að þau voru að veiða
langhala og var enginn úthafskarfi
í afla eða um borð í skipunum. Í til-
kynningu frá Landhelgisgæslunni
segir að þar sem veiðum á langhala
sé ekki stjórnað með beinum hætti
séu skipin í fullum rétti til að stunda
þessar veiðar hafi viðkomandi þjóð
veiðireynslu á þeirri tegund sem
veidd er og að því gefnu að afli
fari ekki yfir 65 prósent af meðal-
afla undanfarinna ára. Rússnesku
skipin voru á karfaveiðum en aðilar
að Norðaustur-Atlantshafsfiskveiði-
nefndinni (NEAFC) settu sér þær
reglur að karfaveiðar skyldu ekki
hefjast fyrir 10. maí. Rússar mót-
mæltu hins vegar þessari samþykkt
og eru þar af leiðandi ekki bundnir
af henni.
Tekið er fram í tilkynningunni að
öll skipin séu að veiðum á samn-
ingssvæði NEAFC, utan íslenskrar
fiskveiðilögsögu.