Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.2011, Side 16
16 | Erlent 2. maí 2011 Mánudagur
Slóð eyðileggingar
n Stormurinn sem reið yfir suðurríki
Bandaríkjanna á fimmtudag skildi
eftir sig slóð eyðileggingar n Alls fór-
ust um 320 sem gerir storminn þann
mannskæðasta í Bandaríkjunum frá
1932 en þá létust 330 í skýstrókabelti
sem skók suðurríkin – rétt eins og nú
Þakkar Guði fyrir giftingarhringinn Brenda Roberts
var ein þeirra sem misstu heimili sitt en hún býr í smábænum
Phil Campbell í Alabama. Í kjölfar hamfaranna á fimmtudag
taldi hún sig hafa týnt giftingarhring sínum en eins og sjá má á
myndinni tókst henni að endurheimta hringinn. Hann var graf-
inn undir rústum hússins og var Roberts einstaklega þakklát
þegar hún gat dregið hringinn aftur á fingur sér. Myndir reuterS
Hús til sölu, eins og nýtt
Kaldhæðnin fer ekki fram hjá neinum
þegar þessi auglýsing er skoðuð – en
á bak við hana stóð reisulegt hús fyrir
aðeins nokkrum dögum. Nú eru aðeins
rústir þar sem húsið stóð og ljóst að
eigendum lóðarinnar mun reynast erfitt
að selja hana, húsið er alltént horfið.
Allt í rúst Þessi loftmynd sýnir götu í bænum Tuscaloosa í Alabama, en hann varð mjög
illa úti í veðurofsanum í síðustu viku. Eins og sjá má eru hús við heilu göturnar svo gott
sem horfin, eftir að hafa orðið skýstrókum að bráð.
reynir að hughreysta þjóð sína Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, ferðaðist um hamfarasvæðin og
skoðaði eyðilegginguna. Bandarísk stjórnvöld hafa lofað fórnarlömbum skýstrókabeltisins fjárhagsaðstoð.
Þjóðvarðliðar hafa verið sendir á svæðin sem urðu illa úti og eru þeir þegar byrjaðir að hjálpa til við að hreinsa til.
Obama reynir hér að hughreysta íbúa í Tuscaloosa, en forsetinn var duglegur við að heilsa upp á fólk og hugga það.
Verksmiðjurústir Heimamaðurinn Debbie Harrison gengur fram
hjá verksmiðjuhúsnæði sem er ekki svipur hjá sjón. Þessi verksmiðja
er í bænum Cullman í Alabama en hann varð illa úti í veðurofsanum
eins og svo margir bæir í nágrenninu.
eftirlíkingar
á leiðinni
Kínverskir klæðskerar eru nú þegar
farnir að gera eftirlíkingar af brúð-
arkjól Kate Middleton, en hún gekk
eins og kunnugt er að eiga Vilhjálm
Bretaprins á föstudaginn. Í borg-
inni Suzhou er að finna rúmlega
700 verslanir sem helga sig brúðar-
kjólum. Xiu Xiang rekur eina þeirra:
„Við höfum oft áður náð að líkja eftir
frægum brúðarkjólum með góðum
árangri. Þegar Díana prinsessa giftist
náðum við að endurskapa kjólinn
hennar með allt að 90 prósenta ná-
kvæmni.“ Búist er við því að fyrstu
eftirlíkingar kjólsins, sem hannaður
var af Söruh Burton fyrir tískuhús
Alexander McQueen, verði tilbúnir
innan nokkurra vikna.
Obama gerir
grín að trump
Á árlegum galakvöldverði Hvíta húss-
ins um helgina náði Barack Obama,
forseti Bandaríkjanna, fram hefndum
á Donald Trump, auðkýfingnum sem
mun hugsanlega sækjast eftir útnefn-
ingu repúblikana sem forsetaefni.
Trump hafði farið mikinn í síðustu
viku við að efast um bæði ríkisborg-
ararétt forsetans sem og námshæfi-
leika hans. Í ræðu sem Obama hélt
fyrir fullum sal, þar sem Trump var
einnig meðal gesta, ræddi Obama
um „hina óumdeildu hæfni Trumps“
og benti einnig á nokkur atriði úr
þættinum Celebrity Apprentice, þar
sem Trump þurfti að reka Gary Bu-
sey úr þættinum. „Þetta eru einmitt
dæmi um ákvarðanir sem halda fyrir
mér vöku,“ sagði Obama og vakti um
leið kátínu gesta.
reykinga-
bann í Kína
Kínverjar hafa loksins ákveðið að
banna reykingar í opinberum bygg-
ingum. Talið er að bannið megi
rekja til þrýstings frá Alþjóðaheil-
brigðisstofnunni, WHO, sem hefur
lagt hart að Kínverjum að bregðast
við heilbrigðisvanda í landinu sem
tengist reykingum. Í Kína eru rúm-
lega 300 milljónir reykingamanna og
þar deyja árlega um milljón manns
af sjúkdómum sem má rekja með
beinum hætti til reykinga. Þrátt fyrir
bannið er ekki búist við að margir
taki upp á því að hætta að reykja, en
þess má geta að gerist reykingamað-
ur brotlegur gegn banninu er refs-
ingin engin.