Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.2011, Side 22
B jörgvin Snæbjörnsson og eig-inkona hans, Áshildur Braga-dóttir, hófu sambúð í þriggja
herbergja íbúð sem Björgvin hafði
fest kaup á áður en þau kynntust. Þau
eignuðust dóttur, síðan kom önnur í
heiminn og hjónin vildu stækka við
sig. Þau höfðu jafnvel hæð í huga. Úr
varð að ákveðið var að byggja um 300
fermetra einbýlishús á fjórum pöllum.
Húsið stendur í brekku og segir
Björgvin að það hafi haft áhrif á hönn-
unina hvað það varðar að hanna hús á
pöllum. Þá var ákveðið að helstu íveru-
herbergi fjölskyldunnar yrðu á sama
pallinum. Útsýni er mikið til vesturs og
eru þeir stórir, stofugluggarnir, en stof-
an er á annarri hæð og snúa gluggarn-
ir einmitt í þá átt. Þá var gert ráð fyrir
að fjölskyldan myndi stækka en síðan
hjónin fluttu í húsið fyrir um 10 árum
hafa tvær dætur bæst í hópinn þannig
að í dag eru þær fjórar.
Björgvin segir að það þurfi að hafa
samspil margra þátta í huga þegar
byrjað er á hönnun húss. „Í fyrsta lagi
eru það óskir fjölskyldunnar, lóðin og
útsýni. Ég hef þetta yfirleitt fyrst í huga
og fer síðan að hugsa um útlit húss-
ins.“
Björgvin vann sjálfur mikið í hús-
inu og segir hann að framkvæmdir
hafi farið hægt af stað. „Við gerðum
þetta í rólegheitum eftir því sem við
höfðum efni á. Húsið var hálfkarað
þegar við fluttum inn haustið 2001.“
Athygli vekja nokkrar ljósmynd-
ir í húsinu sem skreyta rýmin. Í ljós
kemur að um er að ræða myndir
sem Björgvin tók af húsinu á bygg-
ingarstigi. Sannkölluð listaverk; bæði
myndirnar og húsið.
Form og efni njóti sín
Húsið er bjart, hlýlegt og stílhreint.
Opið og bjart er í rýmunum sem
mynda stofu, borðstofu og eldhús.
„Hugmyndafræði mín er að mað-
ur þurfi þessi litlu rými þar sem
maður getur lokað sig af og verið
út af fyrir sig og þar sem er kannski
minni birta – en að maður þurfi líka
þessi stóru, björtu rými.“
Utanhúss er húsið málað hvítt
og grátt auk þess sem það er að
hluta klætt mahóní og stálklæðn-
ingu. Hvað varðar viðarklæðn-
inguna segir Björgvin: „Aðalástæð-
an var að fá hlýlegt efni til að spila
með steininum.“
Allir gluggar eru úr mahóní og
því fannst Björgvini tilvalið að inn-
réttingar yrðu einnig úr mahóní.
„Húsið yrði þá heilsteypt konsept;
það yrðu ekki eins mikil skil.“
Húsið er látlaust. Innanstokks-
munir eru látlausir. Látleysi er eitt-
hvað sem Björgvin leggur áherslu
á í allri sinni hönnun – hvort sem
hann er að hanna hús eða innrétt-
ingar.
„Ég reyni að forðast það sem
maður sér í hendi sér að séu tísku-
fyrirbrigði. Ég vil leyfa formum og
efnum að njóta sín.“
Svava Jónsdóttir
22 | Innlit 2. maí 2011 Mánudagur
Óskir
fjölskyldunnar
efstar í huga
Heimilið er bjart, hlýlegt og stílhreint. Húsbóndinn,
Björgvin Snæbjörnsson arkitekt, á heiðurinn af
hönnuninni, hvort sem um er að ræða húsið sjálft,
innanhússhönnunina eða garðinn.
Í eldhúsinu þar sem mahóní ræður
ríkjum „Ég reyni að forðast það sem maður
sér í hendi sér að séu tískufyrirbrigði. Ég vil leyfa
formum og efnum að njóta sín.“
Gott flæði
Horft frá svefn-
herbergisgangin-
um inn í eldhúsið
og borðstofuna.
Hönnun Björgvins Einfalt.
Stílhreint. Látlaust.