Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.2011, Page 26
T
ökur á myndinni Svartur á
leik hófust í liðinni viku en í
aðalhlutverkum eru þeir Jó-
hannes Haukur Jóhannes-
son og Þorvaldur Davíð Kristjánsson
ásamt Maríu Birtu Bjarnadóttur og
Agli Einarssyni, betur þekktum sem
Gillz. Eftir því sem nær hefur dregið
tökum hefur bæst í leikarahópinn, í
þarsíðustu viku var atvinnulausum
boðin vinna við myndina og í síðustu
viku bættist glamúrpían Lilja Ingi-
bjargardóttir í hóp leikara.
Leikur vinkonu Maríu Birtu
Lilja er áhugaleikkona og fyrirsæta.
Ferill hennar sem fyrirsæta er líka á
uppleið eftir því sem heimildir DV
herma en hún skrifaði undir samning
við fyrirsætuskrifstofu í Los Angeles
fyrir skömmu og fer þangað til starfa
eftir að tökum á Svartur á leik er lokið.
Lilja mun leika vinkonu persónu
Maríu Birtu í myndinni og verður
með í stóru og umtöluðu kynlífsatriði
hennar.
María Birta hefur áður lýst því yfir
í fjölmiðlum að í kvikmyndinni verði
djörf kynlífssena. Hún, Lilja og Gillz
verða í miðju þeirrar senu sem er
hópkynlífssena sem gerist í partíi.
Ætlar að mæta í ræktina
„Þetta er vissulega djarft og krefjandi
fyrir leikarana,“ sagði María Birta í
samtali við DV. Hún segir taugarnar
ekki þandar vegna þessarar senu en
ætlar nú samt að mæta aðeins í rækt-
ina áður. „Strákarnir eru komnir í
svo gott form að mér finnst ég verði
að mæta aðeins í ræktina. Tökurnar
eru á næstunni og ég ætti því að geta
mætt nokkrum sinnum áður,“ segir
hún og skellir upp úr.
Fyrsta sena Maríu Birtu í mynd-
inni var tekin upp í síðustu viku.
„Þetta var stutt sena með Þorvaldi
Davíð og gekk mjög vel. Hópurinn
sem kemur að þessari mynd er mjög
samstilltur og góður.“
Opnaði nýja og stærri búð
María Birta hefur í nógu að snúast.
Hún var að sameina verslanir sínar,
Altari og Maníu, og verður með opn-
unarpartí í næstu viku. Hún segist á
þönum milli tökustaðar og búðar-
innar og segir það vera mikið kapp-
hlaup. „Þetta verður líklega alger bil-
un. Ég er hlaupandi af einum stað
yfir á þann næsta. Mesta stressið er
að ná að opna búðina á réttum tíma
þegar ég er í tökum, þær verða marg-
ar hverjar langt fram á nótt. En þetta
er svo skemmtilegt að mér þykir nú
ekkert tiltökumál að leggja þessi
hlaup til og frá á mig,“ segir hún.
26 | Fólk 2. maí 2011 Mánudagur
Björk Eiðsdóttir í sjónvarpsþættinum Dyngjunni:
Getur ekki horft aftur á
fyrsta þáttinn
Á þriðjudagskvöld er lokaþáttur
Dyngjunnar á dagskrá og í honum
verður meðal annars fjallað um pík-
una og fullnægingu kvenna. „Þar
sem þetta er kvennaþáttur fannst
mér að við yrðum að fjalla um það
allra heilagasta þó ég viðurkenni að
það hafi verið við lítinn fögnuð með-
stjórnanda míns,“ segir Björk Eiðs-
dóttir, blaðamaður á Vikunni og
annar þáttarstjórnenda. „Nadia er
kannski penari þannig að hún hlakk-
ar ekki beint til,“ segir hún stríðn-
islega. „Í þessum þætti fáum við
Ragnheiði Eiríksdóttur hjúkrunar-
fræðing sem hefur eiginlega sérhæft
sig í píkunni og hana Siggu Lund til
að opna umræðuna.“
En er Björk sum sé engin tepra?
„Ég veit það nú en ég er kannski ekki
jafndönnuð og Nadia. Ég var að hlæja
að því um daginn hvað við værum
nú misdannaðar, ég og hún. Þá sagði
samstarfskona mín: Bíddu, ert þú eitt-
hvað dönnuð? Það vantar kannski
eitthvað upp á það hjá mér, dömu-
genið.“
Þáttargerðin er frumraun Bjark-
ar á skjánum og hún segist vel geta
hugsað sér að halda áfram að vinna
í sjónvarpi. Í fyrsta þættinum segist
hún hafa verið bæði stíf og stressuð.
„Ég get ekki horft aftur á fyrsta þátt-
inn,“ segir Björk og skellir upp úr. „Ég
var náttúrulega stressuð og þess vegna
var langt í brosið. Þetta er fljótt að lær-
ast og hefur verið verulega skemmti-
legt. Við höfum fengið að stýra þátt-
unum og efni þeirra mikið eftir eigin
höfði ásamt Ellu Sveins, framleiðand-
anum okkar, og það er bæði krefjandi
og gaman.“
En man hún eftir einhverju sem
fór miður í þáttunum? „Jú, við höfum
alveg lent í smá hnökrum hér og þar.
Helst þá ef viðmælandinn segir ekki
jafnmikið og búist var við en fólk er
auðvitað misafslappað þegar það er
fyrir framan sjónvarpsvélarnar, rétt
eins og ég lærði sjálf. Þá fer maður að
tala svolítið sjálfur og þá jafnvel um
sjálfan sig. Ég hef talað um sjálfa
mig í hálftíma og langað svolít-
ið í nauðgunarsturtuna á eftir,“
segir hún og hlær. „Svo eru allt-
af einhverjar vandræðalegar en
skemmtilegar uppákomur, eins
og þegar við fengum spákonu
í þáttinn. Hún spáði fyrir brúð-
kaupi hjá mér í september og
mér fannst það mjög vandræða-
legt svona í sjónvarpinu, ég var
allavega mjög fljót að skipta í
auglýsingar.“ kristjana@dv.is
Nadia er meiri tepra Björk Eiðsdóttir segir samstarfs-
konu sína dannaðri og meiri tepru. Þær ætla að ræða um
píkuna í lokaþættinum af Dyngjunni. MyNd Bragi þór jósEfssON
drepa tímann
í golfi
Íslenski Eurovision-hópurinn hélt út til
Þýskalands í gær en Vinir Sjonna taka þátt í
undankeppninni þann 10. maí næstkomandi.
Hópinn skipa þeir Matthías Matthíasson,
Hreimur Örn Heimisson, Pálmi Sigurhjartar-
son, Benedikt Brynleifsson, Gunnar Ólason
og Vignir Snær Vigfússon en allir voru þeir
vinir Sigurjóns heitins Brink sem er höfundur
lagsins. Það verður strembinn undirbúningur
fram að keppni en Vinir Sjonna ætla þó að
gefa sér tíma til þess að leika einn golfhring
saman fyrir keppnina. Það var Hreimur sem
kom því í kring.
Stuðningur
frá Blaz roca
Rapparinn Erpur Eyvindarson, einnig þekktur
sem Blaz Roca, var sérstakur gestur Arons
Pálmarssonar á leik Kiel og Barcelona sem
fram fór í Meistaradeildinni í handbolta í
gær. Aron, eða Ronni Pjé eins og Erpur kallar
hann, er einn af lykilmönnunum í sterkasta
handboltaliði heims sem fyrrverandi lands-
liðsþjálfarinn Alferð Gíslason stýrir. Erpur var
staðráðinn í að skemmta sér vel á leiknum og
sagði á Facebook-síðu sinni að hann ætti að
sitja á milli Ninu Hagen og Horst Tappert. Þá
stefndi hann á að fá sér á bilinu einn til nítján
tvöfalda á meðan á leik stæði.
Lilja ingibjargardóttir og María Birta leika saman í Svartur á leik:
glamúrpía í hópi leikara Lilja
Ingibjargardóttir mun leika vinkonu Maríu
Birtu í myndinni Svartur á Leik og taka þátt í
umtalaðri hópkynlífssenu með Gillz.
Í nógu að snúast María Birta opnaði nýja og
stærri búð undir merkjum Maníu í síðustu viku.
Leika í orgíu