Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.2011, Qupperneq 29
Fólk | 29Mánudagur 2. maí 2011
Verkstæði - Varahlutir - Smurþjónusta - Metan ísetningar
www.birkiaska.is
Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á bæði
vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar
starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar
efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum,
dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox).
Birkilaufstöflur
www.birkiaska.is
Minnistöflur
Bætir skammtímaminnið. Nýtist
fólki sem er undir álagi og fæst
við flókin verkefni. Hentar vel
fyrir eldri borgara, lesblinda og
nemendur í prófum. Dregur úr
streitu, eykur ró og bætir skap.
GlæsileG oG
Geislandi
David og Victoria Beckham voru sérlega glæsilegir gestir
í brúðkaupi aldarinnar í liðinni viku. Victoria klæddist
miðnæturbláum kjól úr eigin haustlínu sem hún sýndi á
tískuvikunni í New York í febrúar. Hárið hafði hún í tagli
og hatturinn var einfaldur. Hælarnir vöktu hins vegar
mesta athygli en þeir voru svo himinháir að eflaust er
mikil list að ganga á þeim. Þeir eru úr smiðju Christians
Louboutin og voru sérstaklega smíðaðir fyrir Victoriu.
Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian fylgd-ist spennt með konunglegu brúðkaupi Vil-hjálms Bretaprins og Kate Middleton á föstu-
dag. „Ég elska falleg brúðkaup þannig að ég mun
án efa fylgjast með,“ sagði Kim fyrir helgi.
„Allar konur eiga sér draum um hið fullkomna
brúðkaup og það hvernig brúðarkjóllinn þeirra á
að líta út. Það verður gaman að fylgjast með út frá
því sjónarhorni.“ Þrátt fyrir að Kim sé ekki trúlofuð
hefur hún þegar fundið brúðarkjólinn. Reyndar
eru uppi sögusagnir um að hún og kærasti hennar,
Kris Humphries, íhugi að ganga í það heilaga.
Hárið, augabrúnirnar, augnaráðið og brosið. Lily Collins, dóttir Phil Collins, situr fyrir í nýjasta tímariti Tatler Magazine og fólk
er agndofa yfir líkindinum sem stílistinn leikur
sér að í myndatökunum. Lily Collins er rísandi
stjarna sem vert er að fylgjast með en hún hefur
hlotið hlutverk Mjallhvítar í væntanlegri endur-
gerð á ævintýrinu.
Hefðin kennir að engin önnur en brúðurin
skuli klæðast hvítu í brúðkaupi. En brúðkaup
Kate Middleton og Vilhjálms Bretaprins á föstu-
daginn var ekkert venjulegt brúðkaup og brutu
brúðhjónin ýmsar hefðir. Philippa Middleton,
sem er dagsdaglega kölluð Pippa, klæddist
hvítum kjól og vakti mikla aðdáun vegna út-
geislunar sinnar. Hún ljómaði af þokka, fegurð
og gæsku í hlutverki brúðarmeyjar og virtist
afslöppuð þar sem hún leiddi barnaskarann.
Pippa er 28 ára og verður hirðmey Kate. Hún
fær því að deila glæsilífinu með systur sinni.
Prinsessusystir
sló í gegn
DV1104295645
Í kjól úr eigin línu
Victoria bar af í klæðaburði, hún klæddist kjól úr eigin
línu sem hún sýndi á tískuvikunni í New York í febrúar.
DV1104296281
Hælarnir!
Victoria setti heimsmet í hælatipli í brúðkaupi
aldarinnar og mætti ólétt á himinháum hælum.
FylGdist spennt
með brúðkaupinu
Barnshafandi á
sentímetra hælum
15
Pippa:
Victoria Beckham:
kim kardashian
Kim Kardashian Er þegar búin að velja
brúðarkjólinn þótt hún sé ekki trúlofuð.
Dóttir Phil Collins, Lily:
Ótrúlega
lík audrey
Heburn
Phil og Lily Phil má vera stoltur
af dóttur sinni sem er rísandi stjarna.