Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.2011, Side 14
14 | Fréttir 23. maí 2011 Mánudagur
„Ég sakna hennar stöðugt svo óheyri
lega mikið og er alltaf skelfingu lostin.
Staðreyndin er sú að ég ræð engan veg
inn við þetta. Oft og iðulega er ég dauð
hrædd um að missa algjörlega stjórn á
heila mínum og enda sem grænmeti,“
segir Gerður Berndsen, móðir ungrar
stúlku sem kastað var fram af svölum
í Engihjalla 9 í Kópavogi árið 2000, en
í DV um helgina var ítarleg umfjöllun
um morð á íslenskum konum. Móðir
stúlkunnar hefur ekki enn komist yfir
sorgina sem fylgdi því að missa dótt
urina á jafn voveiflegan hátt.
Myrt af ókunnugum manni
Dóttir Gerðar, Áslaug Perla Kristjóns
dóttir, var myrt af manni sem hún fór
heim með af skemmtistað í miðbæn
um. Maðurinn viðurkenndi að hafa
stundað kynlíf með henni en margt
bendir til þess að hann hafi nauðgað
Áslaugu. Þegar hún vildi ekki stunda
kynlíf með honum kastaði hann henni
fram af svölunum. Maðurinn, Ásgeir
Ingi Ásgeirsson, hlaut 16 ára dóm fyr
ir verknaðinn en neitaði að hafa hrint
stúlkunni fram af svölunum. Í fyrstu
hélt hann því fram að stúlkan hefði sjálf
dottið yfir 119 sentímetra hátt hand
riðið en viðurkenndi síðar að hafa ýtt
henni fram af svölunum.
Vill að morðinginn verði ákærður
fyrir nauðgun
Gerður hefur staðið í baráttu við ís
lenska réttarkerfið frá því að morðingi
dóttur hennar var fyrst ákærður fyrir
verknaðinn þar sem hann var aðeins
ákærður fyrir morðið en ekki fyrir að
hafa nauðgað Áslaugu, líkt og lögreglu
skýrslur benda sterklega til.
Í lögregluskýrslum sem unnar voru
í tengslum við morðið á Áslaugu Perlu
kemur fram að Ásgeir Ingi hafi verið
með nærbuxur hennar í vasanum þeg
ar hann var handtekinn af lögreglunni.
Þá kemur líka fram í skýrslunum að
tölurnar á buxum Áslaugar hafi verið
brotnar, líkt og buxurnar hafi verið rifn
ar af henni. „Það er svo mikil lítilsvirð
ing að hún hafi verið svívirt af þessum
manni og síðan svívirt af þessu réttar
kerfi,“ segir Gerður. „Ég hef aldrei les
ið eins mikinn viðbjóð,“ segir hún um
lögregluskýrslurnar í máli dóttur sinn
ar. „Ég hélt ég myndi aldrei lifa það af.“
Í dómi héraðsdóms kom fram að
Áslaug Perla hafi verið „klædd í flís
peysu að ofanverðu en að neðan í
smekkbuxur úr gallaefni, sem voru
girtar niður fyrir hné og lágu þær um
ökkla“ þegar lögregla og sjúkraflutn
ingamenn komu að henni þar sem hún
lá látin á gangstétt við húsið.
Gat ekki útskýrt eigin áverka
Nýjar satínnærbuxur Áslaugar fund
ust rifnar í buxnavasa Ásgeirs Inga
þegar hann var handtekinn auk þess
sem áverkar fundust á ytri kynfærum
hennar. Þegar Ásgeir Ingi var spurður
af hverju hann hefði verið með nær
buxurnar á sér og hvernig hann gæti
útskýrt áverkana sem fórnarlamb hans
hafði á kynfærum sagði hann einfald
lega: „Það er bara eitt orð yfir það,
harkalegt kynlíf.“ Sagði hann að þau
hefðu verið að stunda kynlíf en að Ás
laug hafi viljað hætta til að fara að
sprauta sig með eiturlyfjum. Hafi hann
þá ekki viljað eiga frekara samræði við
hana og ýtt henni fram af svölunum.
Þegar Ásgeir Ingi var í yfirheyrslum
hjá lögreglunni spurður að því hvern
ig áverkar hans hefðu komið til, en
þeir voru talsverðir, sagðist hann ekki
muna það. Þó sagði hann að hugsan
lega hefði hann orðið fyrir áverkunum
þegar hann stundaði kynlíf með fórn
arlambi sínu nokkrum mínútum áður
en hann myrti hana.
Finnur fyrir fordómum
Það er alltaf reynt að gera
fórnarlömb í morðmálum að ein
hverjum óþverrum, það er alltaf
reynt að klína einhverju á þau,“
segir Gerður sem segist finna fyrir
miklum fordómum í sinn garð,
fordómum sem beinast gegn
fórnarlömbum morðingja og að
standendum þeirra.
Hún á ekki von á því að komast
„Ég hefði frekar viljað
vera tekin af lífi sjálf“
n Tekst enn á við sorgina eftir að dóttir hennar var myrt árið
2000 n Er alltaf skelfingu lostin n Rétt kemst í vinnu og heim
n Berst við réttarkerfið n Vill að morðinginn verði ákærður
fyrir nauðgun n „Harkalegt kynlíf,“ sagði hann
Aðalsteinn Kjartansson
blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is
„Ég hélt ég myndi
aldrei lifa það af.
Í þeim 17 málum þar sem íslensk
ar konur voru myrtar á síðustu 28
árum tengdust tvö mál kynferðis
ofbeldi með beinum hætti en grunur
lék á kynferðisofbeldi í öðru þó engin
ákæra hafi verið gefin út.
Eitt óhugnanlegasta morðmálið á
Íslandi átti sér stað í Keflavík. Þá myrti
nauðgari konu sem vitnaði gegn hon
um fyrir dómi þegar hann var sakfelld
ur fyrir hrottalega nauðgun. Konan
var vinkona nauðgunarfórnarlambs
ins en þurfti að gjalda fyrir vitnisburð
inn með lífi sínu.
Í tveimur málum er talið að karlar
hafi verið að nauðga konum eða reyna
það þegar þeir gáfust upp við átök sín
við fórnarlambið. Annar þeirra kast
aði fórnarlambi sínu ofan af 10. hæð í
fjölbýlishúsi í Kópavogi en var hvorki
ákærður né sakfelldur fyrir nauðgun
þótt flest benti til þess að sú hefði ver
ið raunin. Hinn barði fórnarlamb sitt,
hreyfihamlaða konu, svo illa á meðan
kynferðisofbeldið átti sér stað að hún
hafði það ekki af þegar hann skildi
hana eftir. Hún lést af völdum áverka
sinna.
Langflestar konur sem banað hef
ur verið hér á landi síðustu 28 ár voru
fórnarlömb þáverandi eða fyrrverandi
ástmanna sinna. Í helgarblaði DV var
farið yfir sögu síðustu þrjátíu ára og
þar kom fram að sjö konur voru myrt
ar af þáverandi eða fyrrverandi ást
mönnum, fjórar konur voru myrtar í
kjölfar kynferðisofbeldis, þrjár konur
voru myrtar af ókunnugum mönnum
sem tengdust þeim ekki náið og tvö
stúlkubörn voru myrt af mæðrum sín
um. Síðan þá hefur ein kona látist af
völdum árásar eiginmanns síns.
Tölur Hagstofunnar um manndráp
ná aftur til ársins 1981. Blaðamað
ur lagðist hins vegar yfir dagblöð frá
árinu 1947 til 1980. Skrifað var um átta
morð á íslenskum konum á því tíma
bili. Fimm menn myrtu ástkonur sínar
vegna óstjórnlegrar öfundsýki út í aðra
karlmenn. Einn myrti konu sem ekki
vildi þýðast hann í heimahúsi í Safa
mýri í Reykjavík árið 1979. Í einu tilfelli
réð maður ungu barni bana og í öðru
máli réð sonur móður sinni bana.
Nauðgarar og elskhugar myrða n 27. janúar 1979
Ungur maður réðst á 21 árs gamla stúlku í
heimahúsi í Safamýri í Reykjavík. Stúlkan
lést af völdum áverkanna sem hún hlaut.
Maðurinn var ákærður fyrir manndráp af
gáleysi. Við krufningu kom í ljós að höfuð-
kúpubotn stúlkunnar var sprunginn og
hálsliðir hennar illa skaddaðir. Maðurinn var
dæmdur í 1 árs fangelsi.
n 3. desember 1979
Sonur réð 66 ára gamalli móður sinni bana
með þungu höfuðhöggi. Maðurinn, sem var
25 ára, var í annarlegu ástandi. Morðið átti
sér stað í Æsufelli í Reykjavík. Nágranni kon-
unnar hleypti manninum inn í blokkina en
konan hafði sjálf neitað að hleypa honum
inn. Maðurinn barði móður sína í höfuðið
með stól. Upplýsingar vantar um dóm.
n Apríl 1978
Ungur maður stakk vinkonu sína til bana
með hnífi í verbúð á Flateyri. Upplýsingar
vantar um dóm.
n 7. janúar 1967
39 ára karlmaður braust inn í hús fyrr-
verandi eiginkonu sinnar á Kvisthaga 25. Í
húsinu var konan ásamt börnum og annarri
konu. Eftir langt rifrildi við fyrrverandi
eiginkonu sína réðst maðurinn á hana.
Þegar sonur hennar fór úr íbúðinni stakk
maðurinn hana til bana með kjöthníf. Mað-
urinn var dæmdur í 16 ára fangelsi.
n 1. október 1961
Hjón á Laugarnesvegi 118 í Reykjavík ákváðu
að stunda ástarleik í stofu íbúðar sinnar
til að vekja ekki krakkana sína. Eiginkonan
var drukkin og hrópaði í sífellu nafn annars
manns en eiginmannsins. Æði rann á
eiginmanninn sem barði konuna með þeim
afleiðingum að hún lést. Maðurinn var
dæmdur í 6 ára fangelsi.
Morð á íslenskum konum frá 1947-1979
Var myrt árið 2000 Áslaug Kristjóns-
dóttir ásamt systursyni sínum.
MyNd úR EiNkAsAFNi
Gerður Berndsen „Ég hélt ég myndi aldrei
lifað það af,“ segir móðir Áslaugar um að lesa
lögregluskýrslur í máli dóttur sinnar.
MyNd siGTRyGGuR ARi JóHANNssoN
20. maí 2011