Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.2011, Side 24
24 | Sport Umsjón: Tómas Þór Þórðarson tomas@dv.is 23. maí 2011 Mánudagur
Fimmta formúlumót ársins í Barcelona:
Vettel aftur fyrstur
Heimsmeistarinn í Formúlu 1, Þjóð-
verjinn Sebastian Vettel, kom fyrst-
ur í mark í Spánarkappakstrinum í
Barcelona á sunnudaginn. Var þetta
fjórði sigur Vettels í fyrstu fimm mót-
um ársins og hefur hann góða for-
ystu í stigakeppninni. Lewis Hamil-
ton á McLaren barðist við Vettel um
sigurinn en á endanum hafði Vettel
betur á Red Bull-bílnum. Liðsfélagi
Hamiltons á McLaren, Jenson But-
ton, endaði í þriðja sæti.
„Þetta var virkilega erfið keppni.
Ég átti mjög gott start en ég skil ekki
hvaðan í ósköpunum Fernando
Alonso kom,“ sagði Vettel á blaða-
mannafundi eftir keppnina. Ferr-
ari-maðurinn Fernando Alonso átti
frábært start og var kominn í foryst-
una í byrjun keppninnar. „Hann var
bara kominn við hlið mér þegar við
vorum hálfnaðir niður beina kaflann
og svo var hann kominn í forystuna,“
sagði Vettel.
„En svo náðum við Alonso með
góðu þjónustuhléi en eftir það var
hálf keppnin eftir og við á hörðu
dekkjunum. Undir lokin var mér far-
ið að líða eins og í Kína því dekkin
voru að eyðast hratt undan mér og
Hamilton var alveg upp við mig. En
það var gott að enda þetta með sigri,“
sagði Sebastian Vettel.
tomas@dv.is
Úrslit
GRÆNN LITUR Í LÓGÓI:
CMYK 100 cyan - 0 magenta - 85 yellow - 50 black
PANTONE 7484
APPELSÍNUGULUR LITUR Í LÓGÓI:
CMYK 0 cyan - 64 magenta - 100 yellow - 0 black
PANTONE 166
Mörkinni 3, 108 Reykjavík sími 578 0120 www.golfskalinn.is
Footjoy Street
golfskórnir komnirher
ra
Fjórir sigrar af fimm Vettel er að rúlla yfir Formúluna. H&N-MyNd ReuTeRs
„Þessi dagur var geggjaður frá upp-
hafi til enda,“ segir nýkrýndur
danskur meistari í handbolta, Arnór
Atlason. Arnór og Snorri Steinn Guð-
jónsson urðu um helgina danskir
meistarar eftir sigur á Bjerringbo-
Silkeborg, 30–21, fyrir framan heims-
metsfjölda af áhorfendum á hand-
boltaleik, 36.561. Samanlagt unnu
þeir úrslitaeinvígið 2–0 eftir góð-
an útisigur í Silkeborg, 29–27, í fyrri
leiknum. Ótrúlega mikið hafði verið
lagt í leikinn í gær en eigandi liðs-
ins og þess helsta vítamínsprauta,
skartgripasalinn Jesper Nielsen, sá
til þess að viðburðurinn var einstak-
ur í handboltasögunni. AGK átti full-
komið tímabil og hirti alla titlana
sem í boði voru og töpuðu aðeins
einum leik allt tímabilið.
Heiður að vera svona klúbbi
„Þessi maður er bara guðsgjöf fyrir
handboltann,“ segir Arnór um Kasi-
Jesper eins og hann er kallaður.
„Hann er búinn að gera þetta svo vel.
Klúbburinn hefur stækkað og stækk-
að nánast með hverjum deginum.
Það er bara mikill heiður að vera í
svona klúbbi og ég er þakkláttur fyrir
það. Það eru í raun forréttindi að fá að
taka þátt í þessu. Hann gerir ekki bara
vel við okkur heldur líka áhorfendur
og styrktaraðila. Það eru ekki margir
klúbbar í handboltaheiminum í dag
sem eru stærri en við,“ segir Arnór.
AGK átti aldrei í vandræðum með
leikinn um helgina en liðið leiddi
í hálfleik, 14–7. „Við spiluðum al-
veg rosalega vel, hvort sem það var
í sókn, vörn eða markvörslu. Það var
vissulega pressa á okkur en í okkar
liði eru leikmenn sem hafa spilað í
úrslitaleik Meistaradeildarinnar og
úrslitaleik Ólympíuleikanna svo fá
dæmi séu tekin. Við réðum því vel við
þetta. Þetta auðvitað hjálpaði okkur.
Heilt yfir var samt pressa á okkur allt
tímabilið, alveg frá fyrsta leik. En við
stóðumst hana,“ segir Arnór.
Búið að byggja góða liðsheild
AGK varð fyrir tveimur skakkaföllum
snemma í leiknum. Markvörðurinn
Kasper Hvidt var rekinn af velli eft-
ir þrjár mínútur og eftir um fimm-
tán mínútna leik fór Joacim Bold-
sen meiddur af velli. „Það er áfall að
lenda í svona í úrslitaleik. Það sýnir
líka bara hörkuna í liðinu að ná að
yfirstíga þetta. Það er mikil samstaða
í hópnum þrátt fyrir að það sé mik-
ið af stjörnum í liðinu. Það er ekkert
sjálfsagt að byggja upp svona góða
liðsheild þegar það koma tólf nýir
leikmenn inn í liðið,“ segir Arnór en
á næsta ári er markmiðið að koma
liðinu alla leið í fjögurra liða úrslit
Meistaradeildarinnar. Er það hægt?
„Það voru náttúrulega ágætis inn-
kaup kynnt þarna í hálfleik,“ segir
Arnór og vitnar til nýju mannanna
sem spila með AGK á næsta tímabili.
Landsliðsmannanna Guðjóns Vals
Sigurðssonar og Ólafs Stefánsson-
ar. „Ég er náttúrulega himinlifandi
með þetta enda eru Gaui og Óli tveir
af bestu handboltamönnum í heimi
sem gerir þetta bara meira spenn-
andi. Það er auðvitað margt sem spil-
ar inn í árangur í Meistaradeildinni.
Maður þarf að vera heppinn með
drátt og fleira. En auðvitað setjum
við okkur háleit markmið. Þetta lið er
búið að fara upp um fimm deildir á
fimm árum og í ár töpum við aðeins
einum þýðingarlausum leik. Þá sem
langar að læra eitthvað um mark-
aðssetningu og markmiðasetningu í
handbolta þurfa ekki að horfa lengra
en til okkar,“ segir Arnór Atlason.
n Arnór Atlason og snorri steinn Guðjónsson danskir meistarar með AGK n Fyrirliðinn Arnór lyfti bikarn-
um fyrir framan ríflega 36 þúsund áhorfendur n Kasi-Jesper er guðsgjöf fyrir handboltann, segir Arnór
„Forréttindi að fá
að taka þátt í þessu“
Hampaði bikarnum Arnór er fyrirliði AGK.
Tómas Þór Þórðarson
blaðamaður skrifar tomas@dv.is
enska úrvalsdeildin
Aston Villa - Liverpool 1-0
1-0 Stewart Downing (33.).
Bolton - Man. City 0-2
0-1 Joleon Lescott (43.), 0-2 Edin Dzeko (61.).
everton - Chelsea 1-0
1-0 Jermaine Beckford (73.).
Fulham - Arsenal 2-2
1-0 Steve Sidwell (26.), 1-1 Robin van Persie
(28.), 2-1 Bobby Zamora (55.), 2-2 Theo
Walcott (88.).
Man. united - Blackpool 4-2
1-0 Ji-Sung Park (21.), 1-1 Charlie Adam (39.),
1-2 Gary Taylor-Fletcher (57.), 2-2 Anderson
(63.), 3-2 Ian Evatt (74. sm), 4-2 Michael
Owen (81.).
Newcastle - WBA 3-3
1-0 Steven Taylor (16.), 2-0 Peter Lovenkr-
ands (39.), 3-0 Jonas Olson (46. sm), 3-1
Somen Tchoyi (62.), 3-2 Somen Tchoyi (70.),
3-3 Somen Tchoyi (90.).
stoke - Wigan 0-1
0-1 Hugo Rodallega (77.).
Tottenham - Birmingham 2-1
1-0 Roman Pavlyuchenko (48.), 1-1 Craig Gar-
dner (79.), 2-1 Roman Pavlyuchenko (90.+3).
West Ham - sunderland 0-3
0-1 Boudewijn Zenden (17.), 0-2 Stephane
Sessegnon (50.), 0-3 Christan Rivers (90.+3.)
Úlfarnir - Blackburn 2-3
0-1 Jason Roberts (21.), 0-2 Brett Emerton
(38.), 0-3 David Hoilett (45.+1), 1-3 Jamie
O'Hara (73.) 2-3 Stephen Hunt (87.).
sTAðAN
1. Man. Utd 38 23 11 4 78:37 80
2. Chelsea 38 21 8 9 69:33 71
3. Man. City 38 21 8 9 60:33 71
4. Arsenal 38 19 11 8 72:43 68
5. Tottenham 38 16 14 8 55:46 62
6. Liverpool 38 17 7 14 59:44 58
7. Everton 38 13 15 10 51:45 54
8. Fulham 38 11 16 11 49:43 49
9. Aston Villa 38 12 12 14 48:59 48
10. Sunderland 38 12 11 15 45:56 47
11. WBA 38 12 11 15 56:71 47
12. Newcastle 38 11 13 14 56:57 46
13. Stoke City 38 13 7 18 46:48 46
14. Bolton 38 12 10 16 52:56 46
15. Blackburn 38 11 10 17 46:59 43
16. Wigan 38 9 15 14 40:61 42
17. Wolves 38 11 7 20 46:66 40
18. Birmingham 38 8 15 15 37:58 39
19. Blackpool 38 10 9 19 55:78 39
20. West Ham 38 7 12 19 43:70 33
FARÐU
AFTUR
Í BÍÓ
Í FYRSTA
SINN
www.bioparadis.is
hverfisgötu 54 / 101 reykjavík