Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.2012, Blaðsíða 6
6 Fréttir 5. mars 2012 Mánudagur
Grunaður um brot á þagnarskyldu
n Ingi Freyr Vilhjálmsson með réttarstöðu sakbornings
L
ögreglan á höfuðborgarsvæð-
inu rannsakar nú hvort Ingi
Freyr Vilhjálmsson, fréttastjóri
DV, hafi gerst brotlegur við lög
um fjármálafyrirtæki með umfjöll-
un sinni um fjármál Guðlaugs Þórs
Þórðarsonar alþingismanns og 33
milljóna króna greiðslu sem hann
fékk frá Landsbankanum árið 2003.
Í grein sem birtist í DV í síðustu
viku sagði Guðlaugur Þór að hann
hefði fengið greiðsluna í gegnum
einkahlutafélagið Bogamanninn
vegna sölu hans á umboði fyrir trygg-
ingamiðlun svissneska trygginga-
félagsins Swiss Life sem hann seldi
til Landsbankans á þessum tíma.
Ingi Freyr var yfirheyrður af lög-
reglunni á föstudaginn og hefur rétt-
arstöðu sakbornings í rannsókn-
inni. Hann er grunaður um að hafa
brotið gegn 58. grein laga um fjár-
málafyrirtæki þar sem kveðið er á
um þagnarskyldu. Í greininni segir
að stjórnarmenn fjármálafyrirtæk-
is, framkvæmdastjórar, endurskoð-
endur, starfsmenn og hverjir þeir
sem taka að sér verk í þágu fyrirtæk-
isins séu bundnir þagnarskyldu um
allt það sem þeir fá vitneskju um við
framkvæmd starfa síns og varðar við-
skipta- eða einkamálefni viðskipta-
manna þess, nema skylt sé að veita
upplýsingar samkvæmt lögum.
Þá er kveðið á um að sá sem veiti
slíkum upplýsingum viðtöku sé einn-
ig bundinn þagnarskyldu með sama
hætti. Þetta er sá liður lagagreinar-
innar sem fréttastjóri DV er grunað-
ur um að hafa brotið með umfjöllun
sinni um Guðlaug Þór.
Rannsókn lögreglu beinist einn-
ig að því að Gunnar Andersen, fyrr-
verandi forstjóri Fjármálaeftirlitsins,
hafi látið starfsmann Landsbankans
sækja fyrir sig upplýsingar um fjár-
hagsmálefni Guðlaugs Þórs og að
þessar upplýsingar hafi verið notað-
ar sem heimild í frétt DV. Gunnar, og
umræddur starfsmaður Landsbank-
ans, eru einnig með réttarstöðu sak-
borninga í rannsókninni. Rannsókn-
in gegn þeim beinist að því hvort þeir
hafi nálgast umrædd gögn með ólög-
legum hætti.
valgeir@dv.is
„Búin að gefa
þetta frá mér“
O
kkur langar að biðja þig að
hugleiða í fullri alvöru að
bjóða þig fram til embætt-
is forseta Íslands enda telj-
um við þig líklega til að geta
orðið góður forseti,“ segir í bréfi sem
hópur fólks sendi Rögnu Árnadóttur,
fyrrverandi dómsmálaráðherra. Eng-
inn hefur enn tekið af skarið og boð-
ið sig fram til embættisins en Ólafur
Ragnar Grímsson hefur nú loks tekið
af öll tvímæli um hvort hann hyggist
halda áfram.
Í bréfi sem Ragna sendir hópnum
viðurkennir hún að hafa íhugað for-
setaframboð og að hvatningarbréf-
ið frá stuðningsmönnunum komið
auðvitað „róti á hugann“, eins og hún
kemst sjálf að orði.
„Þú hefur gott orðspor“
Í bréfinu, sem er undirritað af ell-
efu stuðningsmönnum Rögnu, segir:
„Undanfarnar vikur og mánuði hef-
ur reglulega komið upp umræða um
hver sé líklegur til að verða næsti for-
seti íslenska lýðveldisins. Eðlilegt er
að fólk velti þeirri spurningu fyrir sér
enda skiptir það landsmenn miklu
hver verður kosinn forseti lýðveldis-
ins á komandi sumri. Í það embætti
þarf að veljast einstaklingur sem getur
áunnið sér almenna virðingu lands-
manna og komið fram fyrir hönd
þjóðarinnar af þeirri virðingu og
sóma sem hæfir embættinu. Á þeim
tíma sem þú starfaðir sem ráðherra
naust þú almennrar virðingar lands-
manna, þvert á stjórnmálaflokka.
Það kom m.a. fram í þeim skoðana-
könnunum sem þá voru gerðar og
mældu vinsældir ráðherra. Í þeim
varst þú jafnan í efsta sæti. Þú hefur
gott orðspor og er þér lýst sem vand-
aðri manneskju sem nýtur hvarvetna
trausts og virðingar. Við sem leggjum
nöfn okkar við þetta bréf eigum fjöl-
breyttan bakgrunn og skoðanir okkar
á þjóðmálum eru ólíkar. Það sem við
eigum þó sammerkt er að við erum
öll Austfirðingar.“
„Lífið heldur áfram“
Ragna hefur nú svarað bréfi stuðn-
ingsmanna sinna. Í bréfinu skrifar
Ragna til stuðningsmanna sinna: „Ég
þakka kærlega fyrir þá trú sem þið
hafið á mér. Það snertir streng að fá
kveðju frá Austfirðingum, ég á ræt-
ur að rekja til Austfjarða eins og þið
kannski vitið og á þar ættingja.
Mér finnst þið eiga það inni hjá
mér að fá hreinskilið svar. Ég hef
ekki tjáð mig opinberlega um fram-
boð, enda virðist staðan mjög óljós
(þótt ég hafi verið ein af þeim sem
skildu forsetann þannig að hann ætl-
aði ekki að gefa kost á sér áfram). Ég
ákvað því að taka þann pól í hæðina
að halda áfram að lifa mínu lífi og
sækja fram á þeim vettvangi sem ég
starfa nú.
Lífið heldur áfram og ég hef yfrið
að gera, bæði á vettvangi atvinnu-
lífisins og í sjálfboðastarfi, og ég var
satt að segja búin að gefa þetta frá
mér. En mér þykir vænt um kveðj-
una, og auðvitað kemur hún róti á
hugann, enn á ný, þótt ég eigi von á
því að niðurstaða mín verði á endan-
um sú sama.“
Forseti bæjarstjórnar
skorar á Rögnu
Sem fyrr segir eru það stuðnings-
menn Rögnu á Austfjörðum sem
standa að hvatningarbréfinu. Með-
al þeirra sem skrifa undir er Stefán
Bogi Sveinsson, bæjarfulltrúi Fram-
sóknarflokksins í Fljótsdalshéraði og
forseti bæjarstjórnar.
Ragna hefur oft verið orðuð við
forsetaembættið undanfarið og var
í öðru sæti í kjöri DV.is um hver ætti
að verða forseti, á eftir Ólafi Ragnari.
Hún hefur fram að þessu ekki viljað
gefa afgerandi svar um hvort hún
hyggi á framboð eða ekki.
Valgeir Örn Ragnarsson
blaðamaður skrifar valgeir@dv.is
n Ragna Árnadóttir segir stuðningsmönnum að hún fari ekki í framboð„En mér þykir vænt
um kveðjuna, og
auðvitað kemur hún róti
á hugann, enn á ný, þótt
ég eigi von á því að niður-
staða mín verði á endan-
um sú sama.
Ragna Árnadóttir „Þú hefur gott
orðspor og er þér lýst sem vandaðri
manneskju sem nýtur hvarvetna
trausts og virðingar,“ segir í bréfi sem
stuðningsmenn Rögnu sendu henni.
Ingi Freyr Vilhjálmsson Fréttastjóri
DV hefur réttarstöðu grunaðs manns.
Lögreglan rannsakar hvort hann hafi brotið
gegn 58. grein laga um fjármálafyrirtæki,
þar sem kveðið er á um þagnarskyldu.
Ólafur Ragnar aftur í framboð:
Blandar sér
í pólitík
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti
Íslands, ætlar að bjóða sig aftur
fram til forseta. Hann tilkynnti það
með yfirlýsingu sem hann sendi
á fjölmiðla á sunnudag. Meðal
ástæðna sem hann gefur upp fyrir
framboði sínu er að vaxandi óvissa
sé um stjórnskipan landsins og
stöðu forseta í stjórnarskrá. Þá sé
umrót á vettvangi þjóðmála og
flokkakerfis sem og átök um full-
veldi Íslands. Á þar forsetinn við
aðildarviðræður Íslands að Evr-
ópusambandinu. Því má skilja for-
setann svo að hann muni í aukn-
um mæli beita sér í umræðunni
um þessi málefni.
Gunnar Helgi Kristinsson, pró-
fessor í stjórnmálafræði, sagði við
vefmiðilinn Pressuna á sunnudag
að yfirlýsing Ólafs Ragnars væri
pólitískari en áður hefði sést frá
forsetanum. Hann vísaði bæði til
stjórnarskrárinnar og aðildarvið-
ræðna um inngöngu í Evrópu-
sambandið. Yfirlýsingin væri því
ávísun á að hann ætlaði sér póli-
tískt forystuhlutverk. Í yfirlýsingu
sem Ólafur Ragnar sendi frá sér á
sunnudag segir að að undanförnu
hafi birst í áskorunum, könnun-
um, viðræðum og erindum ríkur
vilji til þess að hann breyti þeirri
ákvörðun sem hann tilkynnti í ný-
ársávarpinu.
Í yfirlýsingu Ólafs segir enn
fremur: „Þá er einnig áréttað
mikilvægi þess að standa vörð um
málstað þjóðarinnar á alþjóða-
vettvangi. Í ljósi alls þessa og í
kjölfar samráðs okkar hjóna og
fjölskyldunnar hef ég ákveðið að
verða við þessum óskum og gefa
kost á því að gegna áfram embætti
forseta Íslands sé það vilji kjós-
enda í landinu.
Það er þó einlæg ósk mín að
þjóðin muni sýna því skilning
þegar stöðugleiki hefur skapast í
stjórnskipan landsins og stjórn-
arfari og staða okkar í samfélagi
þjóðanna hefur skýrst ákveði ég að
hverfa til annarra verkefna áður
en kjörtímabilið er á enda og for-
setakjör fari þá fram fyrr en ella.“
valgeir@dv.is
Hannes vildi
rannsókn
Hannes Hólmsteinn Gissurarson,
prófessor í stjórnmálafræði, segist
hafa beðið Landsbankann um að
rannsaka hvernig upplýsingar um
greiðslur frá Landsbankanum til
kynningar- og ráðgjafarfyrirtækis
sem hann rekur, hafi ratað í DV í
mars á síðasta ári.
Hann segir að þetta hafi rifjast
upp fyrir sér þegar Gunnar Ander-
sen var kærður til lögreglu fyrir að
hafa látið starfsmann Landsbank-
ans afla gagna um Guðlaug Þór
Þórðarson alþingismann.
Hannes segist telja að upplýsing-
arnar séu illa fengnar en ekkert hafi
komið út úr rannsókn Landsbank-
ans. Hann spyr sig hver hafi skoðað
gögn Landsbankans um einka-
hlutafélag sitt og laumað þeim í DV.