Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.2012, Blaðsíða 25
Rodgers elskar að vinna með Gylfa
n Landsliðsmaðurinn mærður fyrir mörkin tvö
Í
slenski landsliðsmaðurinn Gylfi
Þór Sigurðsson var ekki á þeim
buxunum að láta sína menn í
Swansea tapa þriðja leiknum í
röð í ensku úrvalsdeildinni þegar
liðið heimsótti Wigan á DW-völlinn
í ensku úrvalsdeildinni um helgina.
Gylfi skoraði bæði mörkin í 2–0 sigri
Swansea, það fyrra með glæsilegu
skoti úr opnum leik og það síðara
beint úr aukaspyrnu í markmanns-
hornið.
Gylfi var valinn maður leiksins
á Sky Sports og fékk mikið lof fyrir
frammistöðu sína. Í fótboltaþætt-
inum Match of the Day á laugar-
dagskvöldið sagði svo Alan Shearer,
markahæsti leikmaður úrvalsdeild-
arinnar frá upphafi, að Gylfi væri
ekki Sigurðsson lengur heldur „So
good son“.
Í viðtali við Sky Sports eftir leik-
inn játti hann því að hann nyti lífs-
ins í Swansea. „Það er langt síðan
ég hef spilað reglulega þannig að
þetta er gott. Við erum gott lið sem
spilum góðan fótbolta þannig að,
já, þetta eru góðir tímar,“ sagði Gylfi
sem var spurður út í langskotin
sín. „Maður skorar ekki án þess að
skjóta. Ef ég sé markið, þá skýt ég,“
sagði hann.
Swansea missti mann af velli í
seinni hálfleik en varðist eftir það
fimlega. „Um síðustu helgi voru
við teknir illa í föstum leikatriðum
þannig að við unnum í því í vikunni.
Við löguðum það og vörðumst alveg
frábærlega,“ sagði Gylfi Þór Sigurðs-
son sem er búinn að skora þrjú og
gefa tvær stoðsendingar síðan hann
kom til Swansea.
Knattspyrnustjóri Swansea,
Brendan Rodgers, mærði Gylfa að-
spurður á Sky Sports um frammi-
stöðu Hafnfirðingsins í leiknum.
„Hann er frábær strákur og mjög
gáfaður fótboltamaður sem ég elska
að vinna með. Hann er alltaf að æfa
sig og reyna að bæta sig. Líf hans
snýst um fótbolta. Mér fannst eft-
ir þessa fyrstu sex mánuði í úrvals-
deildinni að okkur vantaði sókn-
djarfan miðjumann, sem Gylfi er.
Ég veit samt að hann viðurkennir
það sjálfur að hann er að koma inn
í mjög gott lið,“ sagði Brendan Rod-
gers í viðtali við Sky Sports.
Sport 25Mánudagur 5. mars 2012
Þ
að varð endanlega ljóst eft-
ir sigur Manchester United
á Tottenham, 1–3, að það
verða Manchester-liðin tvö
sem berjast um enska meist-
aratitilinn. Manchester City er efst í
deildinni eftir leiki helgarinnar með
66 stig en United gefur ekkert eftir
í baráttunni og er með 64 stig. Með
tapinu gegn Arsenal um síðustu
helgi og nú gegn Manchester Uni-
ted á sunnudaginn geta drengirnir
hans Harry Redknapp gleymt topp-
baráttunni enda nú ellefu stigum á
eftir United í þriðja sætinu. Þeir ell-
efu leikir sem eftir eru verða tveggja
hesta kappreiðar að Englandsmeist-
aratitlinum.
Spiluðu betur en skoruðu ekki
Tottenham verður seint sakað um
að hafa spilað vondan fótbolta gegn
United. Þvert á móti yfirspilaði liðið
gestina frá Manchester en tókst ekki
að skora fyrr en allt of seint. Wayne
Rooney skoraði í uppbótartíma í fyrri
hálfleik eftir hornspyrnu og Ashley
Young bætti tveimur mörkum við í
seinni hálfleik. Jermain Defoe klór-
aði í bakkann fyrir heimamenn á 86.
mínútu. Of lítið, of seint.
„Það er alltaf erfitt að koma
hingað. Það var mikilvægt að skora
í fyrri hálfleik og það gerðum við,“
sagði markaskorarinn Ashley Yo-
ung við Sky Sports eftir leikinn.
Hann hefur verið að koma sterk-
ur inn eftir meiðsli og lagði með-
al annars upp sigurmarkið gegn
Norwich um síðustu helgi. Þá átti
hann hornspyrnuna gegn Totten-
ham sem Rooney skoraði úr. „Ann-
að markið var skemmtilegra fyrir
mig en mikilvægast var að ná í stig-
in þrjú og halda baráttunni áfram,“
sagði hann.
Arsenal nálgast
Manchester United er á miklu skriði
í úrvalsdeildinni eftir tapið slæma
gegn Newcastle á heimavelli, 0–3,
á fjórða degi janúarmánaðar. Síð-
an þá hefur United unnið sex af síð-
ustu sjö leikjum og gert eitt jafntefli
gegn Chelsea. United er nú búið að
spila tvívegis gegn öllum liðunum í
kringum sig, að City undanskildu, en
Manchester-slagurinn verður ekki
fyrr en 30. apríl. Aftur á móti á City
eftir að spila gegn Chelsea og Arse-
nal.
Leikurinn á sunnudaginn var
allra síðasta von Tottenham um að
ná í það minnsta öðru sæti og jafn-
vel titlinum. Liðið hefur þó verið
á niðurleið í síðustu leikjum. Það
gerði jafntefli gegn Stevenage í bik-
arnum, tapaði illa gegn Arsenal um
síðustu helgi og nú aftur gegn Uni-
ted á heimavelli. Í stað þess að horfa
fram á við verður Tottenham nú að
verja þriðja sætið því Arsenal nálgast
og er nú aðeins fjórum stigum á eft-
ir nágrönnum sínum. Þriðja sætið er
mjög mikilvægt því það hleypir lið-
unum beint í riðlakeppni Meistara-
deildarinnar. Fjórða sætið gefur að-
eins sæti í umspilsleikjum sem geta
alltaf verið hættulegir.
Gengur vel í Lundúnum
Gengi Tottenham gegn stóru liðun-
um hefur verið afleitt í ár og hefur
það aðeins unnið Arsenal einu sinni.
Það er búið að tapa tvívegis gegn
Manchester United, tvisvar á móti
City, gera eitt jafntefli gegn Chelsea
og tapa svo hressilega gegn Arsenal.
United hefur ekki tapað gegn Tot-
tenham núna í ellefu ár. Það sem
meira er, Sir Alex Ferguson og strák-
arnir hans áttu miklu láni að fagna
í Lundúnum á þessu tímabili. Lið-
ið hefur spilað við öll Lundúnalið-
in fimm, vinna fjóra leiki gegn QPR,
Fulham, Tottenham og Arsenal og
gera eitt jafntefli gegn Chelsea. Þrett-
án stig af fimmtán mögulegum í hús
í Lundúnum.
n Manchester United vann Tottenham 3–1 n Einvígi United og City
Manchester-
liðin stinga af
Tómas Þór Þórðarson
tomas@dv.is
Fótbolti
Baráttan heldur áfram
Manchester-liðin keppa um
titilinn. Mynd ReuteRS
Á skotskónum
Gylfi var magnaður
gegn Wigan. Mynd ReuteRS
Úrslit
Enska úrvalsdeildin
Liverpool - Arsenal 1-2
1-0 Laurent Koscielny (22.), 1-1 Robin van Persie
(31.), 1-2 Robin van Persie (90.+2).
Man. City - Bolton 2-0
1-0 Grétar Rafn Steinsson (22. sm), 2-0 Mario
Balotelli (68.).
Wigan - Swansea 0-2
1-0 Gylfi Þór Sigurðsson (45.), 2-0 Gylfi Þór
Sigurðsson (53.). n Nathan Dyer, Swansea (53.).
WBA - Chelsea 1-0
1-0 Gareth McAuley (81.).
QPR - Everton 1-1
0-1 Royston Drenthe (30.), 1-1 Bobby Zamora (35.).
Blackburn - Aston Villa 1-1
0-1 Charles N’Zogbia (23.), 1-1 David Dunn (84.).
Stoke - Norwich 1-0
1-0 Matthew Ethrington (71.).
Newcastle - Sunderland 1-1
0-1 Nicklas Bendtner (23. víti), 1-1 Shola Ameobi
(90.+1). n Stephan Sessegnon, Sunderland (58.).
Lee Cattermole, Sunderland (90.+6).
Fulham - Úlfarnir 5-0
1-0 Pavel Pogrebnyak (35.), 2-0 Pavel Pogrebnyak
(44.), 3-0 Clint Dempsey (56.), 4-0 Pavel
Pogrebnyak (61.), 5-0 Clint Dempsey (83.).
Tottenham - Man. United 1-3
0-1 Wayne Rooney (45.), 0-2 Ashley Young (59.),
0-3 Ashley Young (69.), 1-3 Jermain Defoe (86.).
Staðan
1 Man. City 27 21 3 3 69:19 66
2 Man. Utd 27 20 4 3 66:27 64
3 Tottenham 27 16 5 6 52:33 53
4 Arsenal 27 15 4 8 55:38 49
5 Chelsea 27 13 7 7 47:32 46
6 Newcastle 27 12 8 7 39:39 44
7 Liverpool 26 10 9 7 30:25 39
8 Fulham 27 9 9 9 37:36 36
9 Stoke 27 10 6 11 27:38 36
10 WBA 27 10 5 12 34:35 35
11 Norwich 27 9 8 10 38:44 35
12 Sunderland 27 9 7 11 35:31 34
13 Everton 26 9 7 10 27:28 34
14 Swansea 27 8 9 10 30:34 33
15 Aston Villa 27 6 12 9 30:35 30
16 QPR 27 5 7 15 28:46 22
17 Blackburn 27 5 7 15 38:60 22
18 Wolves 27 5 7 15 30:56 22
19 Bolton 27 6 2 19 29:56 20
20 Wigan 27 4 8 15 23:52 20
Championship-deildin
Barnsley - Nott. Forest 1-1
Birmingham - Derby 2-2
Crystal Palace - Peterborough 1-0
Doncaster - Brighton 1-1
Ipswich - Bristol City 3-0
Leicester - Coventry 2-0
Millwall - Reading 1-2
Portsmouth - Middlesbrough 1-3
Watford - Burnley 3-2
Leeds - Southampton 0-1
Cardiff - West Ham 0-2
n Aron einar Gunnarsson spilaði allan leikinn
fyrir Cardiff.
Staðan
1 Southampton 34 19 8 7 62:32 65
2 West Ham 33 19 7 7 53:32 64
3 Reading 33 18 6 9 43:28 60
4 Blackpool 34 15 11 8 57:44 56
5 Middlesbrough 33 15 11 7 41:35 56
6 Birmingham 33 15 10 8 53:32 55
7 Brighton 34 15 9 10 40:34 54
8 Cardiff 33 14 11 8 50:41 53
9 Hull 32 15 7 10 32:26 52
10 Leeds 34 14 7 13 52:49 49
11 Leicester 33 13 9 11 45:37 48
12 Burnley 34 14 5 15 47:43 47
13 Cr.Palace 33 12 11 10 34:30 47
14 Ipswich 33 13 4 16 53:60 43
15 Barnsley 34 12 7 15 46:53 43
16 Derby 33 12 7 14 35:44 43
17 Watford 34 11 10 13 39:52 43
18 Peterborough 33 10 8 15 51:53 38
19 Millwall 34 8 10 16 35:47 34
20 Nottingham F. 33 9 5 19 29:51 32
21 Bristol City 34 8 7 19 28:55 31
22 Coventry 34 7 7 20 29:48 28
23 Portsmouth 33 9 9 15 34:37 26
24 Doncaster 32 6 8 18 28:53 26
www.bioparadis.is
hverfisgötu 54 / 101 reykjavík
FARÐU
AFTUR
Í BÍÓ
Í FYRSTA
SINN