Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.2012, Blaðsíða 12
12 Fréttir 5. mars 2012 Mánudagur
Ljósmyndari DV verðlaunaður
n Blaðamanna- og ljósmyndaraverðlaun veitt um helgina
H
in árlegu blaðamannaverðlun
Blaðamannafélags Íslands og
verðlaun Blaðaljósmyndara-
félags Íslands voru afhent við
hátíðlega athöfn í Gerðarsafni á laug-
ardag.
Eyþór Árnason, ljósmyndari á DV,
var verðlaunaður fyrir myndir sín-
ar í flokkunum Umhverfismyndir og
Daglegt líf, en verðlaunamyndir hans
voru af heldur drungalegu landslagi
eftir eldgosið í Grímsvötnum í fyrra og
ungum dreng með spökum hrafni.
Blaðamenn DV voru einnig til-
nefndir til blaðamannaverðlaunanna.
Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, sem
hlaut verðlaun í fyrra, var tilnefnd í
flokknum Blaðamannaverðlaun árs-
ins og Ingi Freyr Vilhjálmsson, frétta-
stjóri DV, var tilnefndur í flokknum
Rannsóknarblaðamennska ársins
2011. Ingi Freyr var einnig tilnefndur
árið 2009.
Blaðamannaverðlaun ársins 2011
hlaut stríðsfréttaritarinn Jón Björg-
vinsson hjá Ríkisútvarpinu fyrir það
sem dómnefndin taldi vera einstakan
fréttaflutning af vettvangi „arabíska
vorsins“, uppreisnum gegn einræðis-
stjórnum í Norður-Afríku.
Verðlaun fyrir umfjöllun ársins
2011 hlaut Helga Arnardóttir, Stöð
2, fyrir umfjöllun um endurupp-
töku Geirfinnsmálsins meðal ann-
ars á grundvelli nýrra gagna sem hún
kynnti til sögunnar.
Verðlaun fyrir rannsóknarblaða-
mennsku ársins 2011 hlaut Svavar Há-
varðsson, Fréttablaðinu, fyrir frétta-
flutning af mengun vegna díoxíns frá
sorpbrennslum í Skutulsfirði, á Kirkju-
bæjarklaustri og í Vestmannaeyjum.
R
eykjavíkurborg hefur sent
öllum þjónustukjörnum fyr-
ir aldraða bréf þess efnis að
ekki þurfi lengur að borga
150 krónur fyrir mjólkurglas
með hádegisverði. Þetta gerist í kjölfar
fréttar DV um að aðstandanda aldr-
aðrar konu blöskraði verðið sem kon-
an þurfti að borga fyrir mjólkurglasið
í mötuneyti þar sem hún býr í þjón-
ustuíbúð á vegum borgarinnar.
Misræmi í gjaldtöku
Bjarni Brynjólfsson, upplýsinga-
fulltrúi Reykjavíkurborgar, segir að
misræmis hafi gætt milli þjónustu-
kjarna varðandi gjaldtöku fyrir
mjólkina. „Þetta eru margar starfs-
stöðvar og sums staðar hefur þetta
verið þannig að fólk hefur bara get-
að fengið sér mjólk með matnum
og ekki verið neitt mál. Svo kem-
ur upp þetta mál þar sem konan
kvartar yfir þessu og þá er bara farið
og skoðað innan borgarinnar hvort
eigi ekki að samræma þetta. Því var
send út tilkynning að mjólk með
hádegisverði ætti að verða gjaldfrí
á öllum stöðum.“
Aðeins hluti hefur það skítt
Bjarni segir að sér finnist þó
ósanngjarnt að talað sé um okur
Reykjavíkurborgar á öldruðum.
„Það er alltaf spurning um hvað er
okur og hvað er ekki okur. Þarna
ertu með þjónustu, starfsfólk, að-
stöðu og annað. Auðvitað má
kannski segja að verðið á mjólk-
urglasinu sé nokkuð hátt en til
dæmis ef fólk kemur í kaffi og vill fá
mjólk, kaffi eða te og kökusneið með,
þá kostar það 350 krónur. Það myndi
ekki teljast hátt verð ef þú berð það
saman við almennan markað.“
Aðspurður hvort eðlilegt sé að
bera saman verð í mötuneyti í þjón-
ustukjarna fyrir aldraða við almenn-
an markað segir Bjarni að það finnist
sér. „Í rauninni er það ekki undarlegt,
vegna þess að það er ekki nema hluti
aldraðra, jafnt við aðra þjóðfélags-
hópa, sem hefur það reglulega skítt.
Það er fullt af fólki sem hefur góðan líf-
eyri.“
Ódýrari þjónusta en hjá
nágrannasveitarfélögum
Bjarni bendir á að Reykjavíkurborg
greiði niður þessa þjónustu við aldr-
aða um 115 milljónir á ári. „Gjaldskrár
borgarinnar í þessari þjónustu jafnt
sem annarri eru með þeim lægstu
á landinu. Ég held að málið beri að
skoðast í því ljósi og í samræmi við
gjaldskrár annarra sveitarfélaga. Það
er nokkuð svekkjandi að Reykjavík-
urborg skuli vera tekin út fyrir sviga í
þessu samhengi þegar hún stendur
sig best allra sveitarfélaga hvað þetta
snertir. Ef einungis matarþjónusta
við aldraða er skoðuð er hún umtals-
vert lægri í Reykjavík en hjá nágranna-
sveitarfélögunum.“
Ekki veitingahúsaþjónusta
„Mér finnst þetta óeðlilegt verð, ég get
ekki sagt annað,“ segir Þuríður Hjart-
ardóttir, framkvæmdarstjóri Neyt-
endasamtakanna. „Ég held að þetta
sé langt fyrir ofan raunkostnað og
það er kannski ekki þannig sem á að
koma fram við aldraða. Auðvitað er
frjálst verðlag og það er Reykjavíkur-
borg sem tekur ákvörðun um þessa
verðskrá, en mín skoðun er sú að þetta
sé langt fyrir ofan raunkostnað og það
eigi ekki að reka þetta eins og veit-
ingahús. Það er svo sem ekkert sem
bannar Reykjavíkurborg að setja upp
sína verðskrá, en ég er alveg sammála
þessu, þetta er mjög dýrt mjólkurglas.“
Varðandi það að bera saman gjald-
skrá Reykjavíkurborgar við verð á al-
mennum markaði segir Þuríður:
„Þetta er ekki veitingahúsaþjónusta.
Það þarf að vera einhvers konar raun-
kostnaður í gangi á þjónustu við aldr-
aða þar sem þeir búa, og fá sinn eina
mat, en ekki veitingahúsaálag.“
Hætta að okra á
eldri borgurum
n Upplýsingafulltrúi segir misræmi hafa verið í gjaldskrá
„Það þarf að vera
einhvers konar
raunkostnaður í gangi á
þjónustu við aldraðra þar
sem þeir búa, og fá sinn
eina mat, en ekki veit-
ingahúsaálag.
Frestað vegna veikinda
n Þrotabú vill fá til sín heimili Stefáns og Rikku
Munnlegum málflutningi í máli þrotabús Stefáns H. Hilmarssonar, fjármálastjóra 365 og fyrrverandi fjármálastjóra Baugs, gegn félaginu Vegvísi ehf. var frestað fyrir Héraðs
dómi Reykjavíkur á mánudag vegna veikinda lögmanns þrotabúsins.
Þrotabúið krefst þess að fá til sín fasteignina Laufásveg 68, en um er að ræða heimili Stefáns og konu hans, sjónvarpskokksins Friðriku Hjördísar Geirsdóttur, eða Rikku eins og hún er jafnan kölluð.
Stefán seldi Vegvísi Laufásveg 68 þann 18. september árið 2008 og var kaupverðið 150 milljónir króna. Fé
lagið átti að taka við greiðslu áhvíl
andi veðskulda upp á tæplega 85 milljónir króna og greiða Stefáni lokagreiðslu upp á rúmlega 65 millj
ónir króna þann 18. september árið 2009, að því er kemur fram í stefn
unni sem birtist í Lögbirtingablaðinu síðastliðið haust.
Þann 22. mars 2011 lýsti stjórn
armaður Vegvísis því hins vegar yfir að lokagreiðslan hefði verið innt af hendi með gerð lánssamnings 2. febrúar árið 2009. Samningurinn lýtur að því að Vegvísir greiði Stefáni 60 milljónir króna í einni greiðslu eft
ir 25 ár og er því um svokallað kúlu
lán að ræða.
Í stefnunni er fullyrt að láns
samningurinn sé til málamynda á milli nátengdra aðila, en Stefán var framkvæmdastjóri Vegvísis og móðir hans var, á þeim tíma sem kaupsamningurinn var gerður, bæði stjórnarmaður félagsins og eigandi þess, og er enn.
Þrotabúið fer fram á að kaup
samningnum verði rift, sem og láns
samningnum fyrir eftirstöðum kaup
verðsins. „Markmið dómsmálsins er
að endurheimta fasteignina þannig að hún standi til fullnustu fyrir kröfu
hafa þrotabúsins,“ segir í stefnunni.
solrun@dv.is
A
ldraðir sem búa í þjón
ustuíbúðum á vegum
Reykjavíkurborgar borga
260 krónum meira fyrir há
degismat, en starfsmenn
Reykjavíkurborgar. Starfsmenn
Reykjavíkurborgar sem borða í
mötuneyti Ráðhússins borga 400
krónur fyrir máltíðina, en innifalið
í henni er súpa, heit máltíð og kaffi.
Hins vegar þarf heimilisfólk sem býr
í þjónustuíbúðum aldraðra að borga
660 krónur fyrir hverja máltíð ef hún
er keypt í lausasölu, en ef einstak
lingur er í föstu fæði eða borgar með
matarmiðum kostar máltíðin 610
krónur. Vilji fólk fá mjólkurglas með
máltíðinni kostar það 150 krónur
aukalega fyrir hvert glas. Þess má
geta að einn lítri af léttmjólk kostar
109 krónur samkvæmt upplýsingum
frá Bónus.
Kaffibolli og te kostar 150 krónur
fyrir gamla fólkið, en er eins og áður
segir frítt ef þú vinnur hjá borginni.
„Ótrúlegt okur“
Aðstandandi aldraðrar konu sem flutti nýlega inn í þjónustuíbúð á vegum Reykjavíkurborgar segir að gömlu konunni hafa blöskrað þeg
ar hún var rukkuð um 150 krón
ur þegar hún bað um mjólkurglas með hádegismatnum. „Hún er ný
lega flutt þangað og er í hádegis
mat á hverjum degi. Hún borgar eitthvað á milli sex og sjö hundruð krónur fyrir máltíðina og getur sjálf
sagt fengið vatn með máltíðinni, en gamalt fólk er nú margt vant því að drekka mjólk með matnum.“
Aðstandandinn segir konuna hugsa um hverja krónu og finn
ist miður að þurfa að borga þessa upphæð fyrir mjólkina. „Það er lítil búð þarna og hún getur keypt heil
an lítra fyrir 130 krónur sem henni finnst líka dýrt því hún veit alveg hvað mjólkin kostar í Bónus. En það er vissulega þægilegt að hafa
aðgang að lítilli búð þarna og geta keypt sér mjólk og allt í lagi kannski að borga 130 krónur fyrir mjólkina þar, en 150 krónur fyrir mjólkurglas er náttúrulega alveg ótrúlegt okur.“
Spurning hvað sé dýrt
Elfa Björk Ellertsdóttir, upplýsinga
fulltrúi Velferðarsviðs hjá Reykja
víkurborg, segir að rukkað sé eftir gjaldskrá eftir settum reglum. „Það er farið eftir reglum og gjaldskrám
sem settar eru. Hjá flestum mötu
neytum er svo boðið upp á vatn með mat og kaffibolla. Ef annað er valið greiðir maður sérstaklega fyrir það.“
Samkvæmt upplýsingum frá
félagsbústöðum kostar um 60 þús
und krónur að leigja 35 fermetra
einstaklingsþjónustuíbúð hjá
Reykjavíkurborg, en það er þó eitt
hvað misjafnt eftir þjónustukjörn
um. Tveggja herbergja íbúð kostar
um 90 þúsund. Ofan á það bætast
þjónustugjald, hússjóður, rafmagn og hiti. Sem dæmi má taka er þjón
ustugjaldið á Dalbraut 19.800 fyrir einstaklingsíbúð en inni í því gjaldi
felst sólarhringsvakt starfsmanns,
stjórnunar og skrifstofuhald, ræst
ingar á sameign og aðstaða í setu
stofu. Á Dalbraut er einnig lækna
samningur inni í þjónustugjaldinu
og það því aðeins hærra en í öðrum
þjónustukjörnum. Grunnlífeyrir
aldraðra er um 150 þúsund krón
ur og munar því um hvert mjólkur
glas.
Mjólkurglas kostar
aldraða 150 krónurn Okrað á öldruðum n Borga meira fyrir matinn en borgarstarfsmenn„Hún borgar eitt-
hvað á milli sex og
sjö hundruð krónur fyrir
máltíðina og getur sjálf-
sagt fengið vatn með mál-
tíðinni, en gamalt fólk er nú
margt vant því að drekka
mjólk með matnum.
Hanna Ólafsdóttir
blaðamaður skrifar hanna@dv.is
Dýr sopinn Það getur verið
dýrt fyrir aldraða sem búa í þjón-
ustuíbúðum ef þeir vilja helst
drekka mjólk með matnum.
Riftun Þrotabúið fer fram á
að kaupsamningnum sem og
lánasamningnum verði rift.
Ósáttur sjóðsfélagi:
„Harmið þið
heimsku ykkar í
fjárfestingum“
„Þar harmið þið heimsku ykkar í
fjárfestingum og lofið bót og betr
un,“ skrifar Ísfirðingurinn Henry
Bæringsson í svarbréfi til stjórnar
Lífeyrissjóðs Vestfirðinga sem hafði
sent sjóðsfélögum bréf þar sem
stjórnin sagðist harma að hafa tap
að 10,4 milljörðum króna.
Í svarbréfi Henrys til stjórnar
innar bendir hann á að þessi upp
hæð dygði nærri því fyrir jarðgöng
um frá Dýrafirði yfir í Arnarfjörð
sem og uppbyggðum vegi um
Dynjandisheiði.
Svarbréfið birtist á ísfirska vef
fréttamiðlinum Skutli en þar segir
Henry meðal annars: „Teljið þið
að það sé nóg að senda okkur bréf
og lofa bót og betrun? Á ykkar vakt
tapaðist það fé sem verkafólk trúði
ykkur fyrir, og þó arfa heimskulegt
kerfi leyfi atvinnurekendum að
koma að ráðstöfun eigna lífeyris
sjóðsins, er þyngra en tárum taki
að sjá þar efstan á blaði stjórnarfor
mann í fyrirtæki sem fengið hefur
milljarða afskriftir. Sú ráðstöfun að
inni í stjórnum sjóðanna skuli vera
fulltrúar atvinnurekenda heyrir
vonandi brátt sögunni til. Því þetta
hrun lífeyrissjóðakerfisins hefur
sýnt okkur að í gegnum stjórnirnar
hafa atvinnurekendur gengið frek
lega á okkar eign, sjálfum sér til
ágóða. Keypt í bönkum sem svo
lánuðu til fyrirtækja, sem svo fengu
þessa sömu peninga afskrifaða.
Hafa nýtt sér ítök sín í sjóðunum til
að færa sjálfum sér peningana aftur
í gegnum bankana. Eða haldið þið
að það sé hafið yfir vafa að á ár
unum fyrir hrun hafi kaup lífeyris
sjóðs á hlutafé í banka ekki liðkað
fyrir lánafyrirgreiðslu til fyrirtækis í
eigu stjórnarmanns í lífeyrissjóði?
Verkalýðurinn tapaði sínum lífeyri,
en gróðapungarnir fengu afskrift
ir,“ skrifar Henry sem segir sjóðinn
sem betur fer ekki vera sinn aðal
sjóð.
„En ef svo væri færi ég í kross
ferð til þess að þeir stjórnarmenn
sem sátu í gömlu stjórninni víki
sæti strax og við tæki stjórn undir
forsæti fulltrúa verkafólks sem
berðist fyrir brottrekstri fulltrúa
atvinnurekenda úr stjórninni. Að
hafa atvinnurekendur þarna inni er
eins og að leyfa þeim að hafa pró
kúru á launareikninginn okkar, því
lífeyrissjóðurinn er okkar framtíðar
launasjóður,“ skrifar Henry í bréf
inu lesa má í heild sinni á skutull.is.
Stálu fartölvu
úr leikskóla
Óprúttnir aðilar brutust inn
í leikskólann Krógaból við
Bugðusíðu á Akureyri aðfara
nótt þriðjudags. Þar var meðal
annars stolið Dellfartölvu,
hljómborði, skanna og nokkr
um stafrænum myndavélum
af gerðinni Canon. Einnig var
brotist inn í húsnæði Brim
borgar við Tryggvabraut. Þar
var stolið lítilræði af pening
um og síðan fór þjófurinn eða
þjófarnir á brott á Ford Mon
deofólksbifreið árgerð 2011.
Bifreiðin er brún að lit með
skráningarnúmerinu OOM86.
Þeir sem kunna að hafa orðið
bifreiðarinnar varir og eða vita
hvar hún er niðurkomin eru
vinsamlegast beðnir að hafa
samband við lögregluna á
Akur eyri í síma 4647705.
8 Fréttir
29. febrúar 2012 Miðvikudagur
Borgin breytir gjaldskrá
Aldraðir sem búa í þjónustuíbúð-
um á vegum Reykjavíkurborgar
geta nú fengið mjólkurglasið
frítt með hádegismatnum.
Mjólkurglas Reykjavíkurborg hefur bakkað
með okurgjöld á mjólk fyrir eldri borgara.
Hanna Ólafsdóttir
blaðamaður skrifar hanna@dv.is
29. febrúar 2012
Drungalegt Eyþór Árnason ljósmyndari DV var verðlaunaður fyrir þessa landslagsmynd
sem tekin var eftir eldgosið í Grímsvötnum á síðasta ári.
Dagbók lögreglunnar:
Vopnað
rán í 10-11
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
hafði í nógu að snúast aðfaranótt
laugardags. Útkallsástæður voru
ansi misjafnar, allt frá allsberum
manni í stigagangi í blokk í Breið-
holti til vopnaðs ráns í 10-11. Hér
má lesa um hvað lögreglan var að
gera á laugardagskvöld.
04:31 var tilkynnt um líkams-
árás við veitingastað við Bæjar-
lind. Þar var maður handtekinn
vegna líkamsárásar, ölvunar og
fyrir að fara ekki að fyrirmælum
lögreglu. Ekki er á þessu stigi vitað
um meiðsl.
05:05 var tilkynnt um að
maður væri að berja bifreiðar sem
óku um Lækjargötu. Þegar að var
gáð var maðurinn farinn og
enginn sem gaf sig fram við
lögreglu.
05:08 var tilkynnt um nakinn
mann í stigagangi í fjölbýlishúsi í
Breiðholti. Þar var maður að reyna
að komast inn til sinnar fyrrver-
andi en sú hafði engan áhuga. Úr
varð að viðkomandi gisti í fanga-
klefa, enda húsnæðislaus.
05:18 var tilkynnt um rúðu-
brot í húsi við Laugaveg. Þar hafði
maður brotið ytra byrði og hlaupið
að því búnu niður Laugaveginn.
05:24 var maður handtekinn
á Lækjartorgi fyrir að hafa ítrekað
veist að fólki. Honum voru og
ítrekað gefin fyrirmæli af lögreglu
um að láta af þessari hegðan en
án árangurs. Hann var að lokum
handtekinn og gisti fangageymslu.
05:24 var tilkynnt til lögreglu
að maður hefði brotið hliðarspegil
á bifreið og farið af staðnum í ann-
arri bifreið. Tjónþoli hyggst leggja
fram kæru vegna þessa en ekki
náðist í tjónvald.
05:31 var tilkynnt um vopnað
rán í 10-11 verslun í Grímsbæ. Þar
hafði maður vopnaður hnífi kom-
ið inn í verslunina, ógnað starfs-
fólki og komist á brott með ein-
hverja fjármuni.
06:09 óskaði leigubifreiðar-
stjóri á Laugavegi eftir aðstoð lög-
reglu. Þar hafði óánægður við-
skiptavinur slegið utan í bifreiðina
með skóflu þegar honum var
meinuð innganga í bifreiðina með
skófluna. Viðkomandi var hand-
tekinn og vegna ástands vistaður í
fangageymslu.
10:54 var maður handtekinn
á Rauðarárstíg en hann er sterk-
lega grunaður um ránið í 10-11 í
Grímsbæ. Hann var þar á gangi en
athugull lögreglumaður sá að þar
var maðurinn kominn samanber
lýsingu á ræningjanum. Færður á
lögreglustöð og vistaður í fanga-
geymslu, var undir áhrifum vímu-
efna.