Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.2012, Blaðsíða 18
Víking Páskabock
er bestur
V
íking Páskabock hefur ver-
ið valinn besti bjórinn í ár-
legri páskabjórsmökkun
DV með einkunnina 4,25
af 5 mögulegum. Að þessu
sinni voru fimm íslenskar tegund-
ir af páskabjór smakkaðar. Tegund-
irnar eru, auk Páskabocks: Benedikt
klausturbjór nr. 9, Páskakaldi, Vík-
ing Páskabjór og Páska Gull. Páska
Gull varð í öðru sæti með 3,15 og
Páska Kaldi varð í þriðja sæti en
hann var sigurvegari síðustu tvö ár.
Allar þessar tegundir fást í Vínbúð-
um ÁTVR fyrir utan Páska Gull sem
hægt er að kaupa á veitingahúsum
og í Fríhöfninni.
Sex manna dómnefnd
Dómnefndina skipuðu Anna Svava
Knútsdóttir leikkona, Ragnar Freyr
Rúnarsson, læknir og formaður vefj-
arins bjorbok.net, Rakel Garðars-
dóttir, knattspyrnustjóri FC Ógnar og
framleiðandi hjá Vesturporti, Kjart-
an Ólafsson, veitingahúsarýnir hjá
Gestgjafanum, Henry Birgir Gunn-
arsson, íþróttafréttamaður og rithöf-
undur, og Anna Brynja Baldursdóttir
leikkona.
DV fékk góðfúslegt leyfir til að
halda könnunina á Den Danske
Kro. Könnunin fór fram með þeim
hætti að borinn var fram einn bjór í
einu og vissi dómnefnd ekki hvaða
bjór var borinn fram í hvert skipti.
Hún gaf einkunnir og ræddi svo um
kosti og galla hverrar tegundar fyr-
ir sig.
Stefnuleysi
Aðspurð hvaða væntingar þau hefðu
til páskabjórs sögðu þau að hann
þyrfti að skera sig úr frá venjuleg-
um bjór. Hann ætti að vera léttari og
ferskari en jólabjórinn og þyrfti að
hafa karakter. Einn dómara sagði að
hann ætti að minna á vorið og ann-
ar sagði að hann þyrfti að vera meira
appelsín en malt.
Að smökkuninni lokinni voru þau
flest sammála um að þau hefðu orð-
ið fyrir vonbrigðum með páskabjór-
inn í ár. Þeim fannst bjórinn almennt
vera of dökkur en páskabjór ætti að
vera ljós og minna á páska og hækk-
andi sól.
„Ég varð fyrir vonbrigðum. Það
vantar meiri skírskotun til vorsins.
Mig langar ekki að kaupa mér neinn
þessara bjóra og mundi frekar kaupa
mér venjulegan bjór,“ sagði Rakel.
Henry var á sama máli og sagði að
þetta hefði ekki verið nein flugelda-
sýning. „Það virðist ekki vera sami
metnaður í þessu og jólabjórnum
en það vantar kannski hefðina fyrir
páskabjórnum. Það virðist ekki vera
nein stefna og að menn eigi erfitt
með að staðsetja sig. Menn virðast
vera að þróa sig áfram en eiga svolít-
ið eftir í land, en þeir eru á réttri leið,“
sagði hann. Þetta gæti skýrst af því að
jólabjórinn hefði verið svo vel lukk-
aður og þau hefðu búist við meiru.
Þá væri einnig meiri stemning fyrir
jólabjórnum.
Ragnar var þó ekki sammála og
sagðist vera mjög ánægður með bjór-
inn á heildina litið. Hann benti einn-
ig á að páskabjórinn ætti að skera sig
úr frá öðrum bjór og það væri hægt
að fá ljósan bjór allt árið.
Gerir kröfur
Það voru mjög skiptar skoðanir á
Benedikt klausturbjórnum og aug-
ljóst að hann er ekki allra. Sumum
dómurunum fannst hann alls ekki
góður og gáfu honum lága einkunn
á meðan öðrum fannst hann virki-
lega góður og kraftmikill. Kjartan var
einn þeirra sem gáfu honum háa ein-
E
ld
sn
ey
ti Bensín Dísilolía
Algengt verð 254,7 kr. 260,7 kr.
254,5 kr. 260,2 kr.
Höfuðb.sv. 254,5 kr. 260,1 kr.
Algengt verð 254,7 kr. 260,5 kr.
Algengt verð 256,7 kr. 260,8 kr.
Melabraut 254,5 kr. 260,2 kr.
18 Neytendur 5. mars 2012 Mánudagur
Gafst
ekki upp
n Lofið að þessu sinni fær starfs-
fólk N1 í Stóragerði. „Ég vil koma á
framfæri lofi til bensínafgreiðslu-
fólksins á bensínstöðinni í Stóra-
gerði. Ég fór þangað til að taka
bensín en bensínlokið var fast
hjá mér. Bensínafgreiðslu-
maðurinn gafst ekki upp
og reyndi nokkrar aðferð-
ir þangað til honum
tókst að opna það.
Ávallt frábær og
vinalega þjónusta hjá
þeim,“ segir ánægður
viðskiptavinur.
Loðinn
tómatur
n Lastið fær 10-11 og veitinga-
staðurinn Ginger en viðskiptavinur
sendi eftirfarandi: „Ég fór í 10-11 í
Austurstræti í hádeginu um dag-
inn og keypti
mér baunabur-
rito frá Ginger
sem er selt þar.
Þegar ég kom
aftur í vinnu og
ætlaði að gæða
mér á því blasti
við mér gamall
og loðinn tóm-
atur. Ég hafði samband við Ginger
og þau báðust afsökunar á þess og
buðu mér fría máltíð í staðinn. Ég
er eiginlega búin að missa alla lyst
á þessu og veit því ekki hvort ég nýti
mér það. Annars finnst
mér að starfsfólk 10-
11 eigi að fylgjast með
vörum í búðinni og
þessi vara hlýtur að
hafa verið töluvert
gömul þar sem tómat-
urinn var orðinn loðinn.“
SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS
Lof&Last
n Dómnefndin varð fyrir vonbrigðum í árlegri páskabjórsmökkun DV
„Dómnefndin
var þó sammála
um að Páskabock væri
líklegastur til að höfða
til flestra og var ánægð
með hann.
Dómnefndin Kjartan, Henry, Anna Brynja,
Ragnar Freyr, Rakel og Anna Svava. Bestur í fyrra
DV hefur staðið fyrir sams konar páskabjórsmökkun síðastliðin ár en í
fyrra var það Kaldi páskabjór sem fékk hæstu einkunn dómnefndar,
annað árið í röð. Hann fékk 8,2 að meðaltali af 10 mögulegum en
fjórum af þremur meðlimum dómnefndar þótti hann bestur. Þá
voru fjórar tegundir smakkaðar en þær voru: Kaldi páskabjór, Lilja
páskabjór, Víking páskabjór og Víking Páskabock. Lilja og Víking
Páskabock voru saman í öðru sæti með 7,2 auk þess sem Lilja var
valin sem fallegasta flaskan.
Í dómnefnd þá sátu Dominique Plédel Jónsson, vínsmakkari á
Gestgjafanum, Henry Birgir Gunnarsson, íþróttafréttamaður og
rithöfundur, Kjartan Ólafsson, lausapenni og veitingahúsarýnir hjá
Gestgjafanum, Alba E.H. Hough, yfirvínþjónn á Hilton Reykjavík
Nordica, og Sólmundur Hólm Sólmundsson, skemmtikraftur og rit-
höfundur. Þá fór könnunin fram á Rauða ljóninu á Eiðistorgi.
Gunnhildur Steinarsdóttir
blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is
Bæjarlind 6, Kópavogi, sími 517 6067. Opið mán. - fös. 10 -18, laug. 11-16.
Útsalan stendur aðeins frá 2.-10. mars
KOMDU OG GERÐU GÓÐ KAUPHandlaugarWC
Innréttingar
Á HREINLÆTISTÆKJUM AÐ
BÆJARLIND 6 Í KÓPAVOGIÚTSALA