Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.2012, Blaðsíða 22
Leikhúsgestir í hjálparstarf
n Sérstök góðgerðasýning á Eldhafi til styrktar UN Women
Þ
ann 8. mars verður al-
þjóðlegur baráttu-
dagur kvenna haldinn
hátíðlegur um allan
heim eins og gert hefur verið
í yfir 100 ár. Af því tilefni efnir
Borgarleikhúsið til sérstakr-
ar styrktarsýningar á Eldhafi
þann 7. mars næstkomandi
þar sem allur ágóði rennur
til samtaka UN Women á Ís-
landi. Leikhúsgestir geta því
blandað sér í hjálparstarf auk
þess að fræðast um starf-
semi UN Women sem vinnur
þýðingarmikið starf. Sam-
tökin starfa á vegum Samein-
uðu þjóðanna í þágu kvenna
og jafnréttis og veita fjár-
hagslega og faglega aðstoð
til að bæta stöðu kvenna í
fátækustu löndum heims og
stríðsátakasvæðum og leggja
áherslu á samstöðu með
konum þvert á landamæri og
menningarheima.
Leikritið Eldhaf eftir líb-
anska höfundinn Wajdi Mo-
uawad hefur farið sigurför
um heiminn, verið þýtt á tutt-
ugu tungumál og sýnt í yfir
100 uppsetningum. Eldhaf
rekur sögu móður í stríðs-
hrjáðu landi, er harmleik-
ur um fortíðina sem skapar
nútímann og höfðar beint til
hjartans.
Verkið var frumsýnt á Nýja
sviði Borgarleikhússins 26.
janúar og hefur hlotið afar
góðar viðtökur áhorfenda og
gagnrýnenda. Leikstjórn er
í höndum Jóns Páls Eyjólfs-
sonar og í burðarhlutverkum
eru þau Unnur Ösp Stefáns-
dóttir, Birgitta Birgisdóttir,
Guðjón Davíð Karlsson og
Lára Jóhanna Jónsdóttir.
Sýningin hefst klukkan
19 og að henni lokinni gefst
áhorfendum færi á að taka
þátt í umræðum með að-
standendum verksins og
fulltrúum UN Women.
22 Menning 5. mars 2012 Mánudagur
Um stríðshrjáða móður
Leikritið Eldhaf fjallar um
stríðshrjáða móður. Unnur
Ösp Stefánsdóttir fer með
hlutverk hennar.
Menningar-
verðlaun DV
Menningarverðlaun DV
verða afhent í 33. skipti í
Iðnó, miðvikudaginn 7.
mars. Verðlaunin eru veitt í
níu flokkum. Flokkarnir eru
bókmenntir, fræði, bygg-
ingarlist, danslist, hönnun,
kvikmyndir, leiklist, myndlist
og tónlist. Veitt eru verðlaun
fyrir framúrskarandi árangur
á listasviðinu á síðastliðnu
ári. Einnig eru veitt verð-
launin í flokknum Val les-
enda þar sem valið er úr til-
nefningunum 45 á DV.is. Þá
mun forseti Íslands afhenda
árleg heiðursverðlaun.
K
vikmyndin Svartur á
leik markar ákveðin
tímamót í íslenskri
kvikmyndagerð. Hér
er um að ræða fyrstu
sannfærandi kvikmyndina um
undirheima Íslands. Hand-
rit myndarinnar er unnið upp
úr bók Stefáns Mána, Svartur
á leik. Rithöfundurinn kynnti
sér undirheimana við skrif
bókarinnar. Fékk sorann og
stemninguna í æð. Það gerðu
leikarar myndarinnar einnig
fyrir tökur. Öll þessi aukavinna
og metnaður skilar sér í grjót-
harðri og sannfærandi kvik-
mynd sem mætti segja að gefi
raunsæja mynd af undirheim-
um Íslands árið 1999 og ís-
lenskir bíógestir fá það sama.
Sorann beint í æð.
Eins og naut á sterum
Þorvaldur Davíð Kristjánsson
fer með aðalhlutverkið, leikur
ungan Ólafsvíking, Stebba
sækó, sem á erfitt með að fóta
sig í borginni og ratar auð-
veldlega á refilstigu. Jóhannes
Haukur Jóhannesson leikur
gamlan æskufélaga hans, Tóta,
úr Ólafsvík sem hefur náð
völdum í undirheimunum með
því að byggja upp skipulagðan
innflutning á fíkniefnum. Það
er ljóst að Tóti á sér íslenska
fyrirmynd. Fleiri í sögu Stefáns
Mána eiga sér fyrirmyndir í ís-
lenskum veruleika. Jóhannes
Haukur er svo magnaður í hlut-
verki sínu að áhorfendur taka
andköf. Aldrei áður hefur hann
sést sýna svo magnaðan leik.
Hann er eins og naut á sterum.
Martraðarkennd
hópkynlífssena
Þorvaldur Davíð sýnir fágaðan
og fallegan leik og það er ljóst
að hann er efni í leikara sem
getur gert það gott á heims-
vísu. Hann er sannfærandi sem
umkomulaus ræfill sem flækist
inn í undirheimana og sogast
inn í þá af fullum krafti. Hann
sýnir vel óttann og sorgina
sem fylgir því að týna sjálfum
sér og ráða ekki við atburðarás
eigin lífs. Eitt áhrifamesta atriði
myndarinnar er einmitt það
atriði sem viðkomandi hafði
búið sig undir að yrði klisju-
kennt. Umtalað hópkynlífsat-
riði með Maríu Birtu. Þorvald-
ur Davíð og María Birta eiga
þar ógleymanlegan samleik
sem afhjúpar á einu augnabliki
þann martraðarkennda heim
sem fíkillinn kýs að búa í. Heim
án ástar. Heim miskunnarlauss
ofbeldis og hnignunar.
Náttúrutalent
María Birta Bjarnadóttir er
náttúrutalent. Leikur hennar
er áreynslulaus. Hún er kyn-
þokkafullt partíljón á einni
stundu, umkomulaus fíkill á
annarri stundu. Öllum stund-
um er hún kona sem hefur
gefist upp og fer einbeitt inn í
undirheimana. Líklega til að
deyja. María Birta er verulega
efnileg leikkona sem vert er að
fylgjast með.
Vignir Þór Valþórsson leikur
langt leiddan fíkil og gerir það
vel. Öllum er það ljóst að hann
stefnir í opinn dauðann.
En það er Damon Younger
sem stendur upp úr hvað varð-
ar frammistöðu leikara mynd-
arinnar. Hann leikur illmennið
Brúnó sem er siðlaust og til
alls líklegt. Illskan sem Damon
veitir farveg í Brúnó nær til
áhorfenda svo þeir fá tak fyrir
hjartað. Hann er illskan holdi
klædd.
Minnir á Trainspotting
Klipping og taka myndarinn-
ar minnir oft á Trainspott-
ing. Leikstjórinn sjálfur hefur
gengist við því að vera undir
áhrifum þeirrar myndar. Á
köflum er þetta groddaralegt
en þjónar vel hraðri atburða-
rás myndarinnar. Nokkur at-
riði eru einstaklega falleg þótt
sú fegurð sé í hrópandi and-
stæðu við umfjöllunarefnið.
Atriði í Hvalfirði þar sem sett
eru á svið tryggingarsvik er
sérlega fallega unnið. Þá má
nefna að búningar og gervi
eru framúrskarandi vel unnin.
Træbaltattú, hermannabuxur,
aflitað hár og sólbrúnka vekja
kátínu en gefa myndinni sann-
færandi svip.
Vel valin tónlist
Frank Hall sér um tónlist
myndarinnar og það er til-
efni til þess að fjalla sérstak-
lega um hana. Nokkur atriði
myndarinnar öðlast meiri
kraft en ella vegna vals á
tónlist. Val á dægurlagaperl-
unni Þú og ég við martraðar-
kennda hópkynlífssenu færir
atriðinu dýpt. Þá er vel til
fundið að hafa tónlistina trúa
tímabilinu og að miklu leyti
íslenska. Ensími og Múm
minna á gamla tíma. Tón-
listin fléttast vel við þennan
myrka heim.
Nýir tímar
Undir lok myndarinnar sést
glitta í nýja tíma. Stebbi sækó
er á flugvellinum á leiðinni
heim og þá má sjá tollverði
glíma við meðlimi Hells
Angels. Það er vitað mál að
glæpasamtök hafa hert tök
sín á íslensku samfélagi í dag.
Undirheimar Íslands í dag var
barnaleikur árið 1999 miðað
við árið 2012 og það verður
forvitnilegt að sjá hvort ein-
hver treysti sér í að vinna
mynd eins og þessa um okkar
eigin samtíma. Það verður
að minnsta kosti djöflaleg-
ur sori og ljóst að Óskari Þór
Axelssyni er vel treystandi til
verksins.
Kristjana
Guðbrandsdóttir
kristjana@dv.is
Bíómynd
Svartur á leik
Leikstjóri: Óskar Þór Axelsson
Handrit: Óskar Þór Axelsson
Leikarar: Þorvaldur Davíð Kristjáns-
son, María Birta Bjarnadóttir, Jóhannes
Haukur Jóhannesson, Damon Younger
Sorinn beint í æð
Frábær og sannfærandi
Svartur á leik er fyrsta
sannfærandi kvikmyndin um
undirheima Íslands.
Stjarnan Þorvaldur Davíð Kristjánsson leikur aðalhlutverkið.
Egill „Gillz“ Einarsson Leikur
kókaínfíkil í Svartur á leik.