Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.2012, Page 15
Ríkustu lönd í heimi
Erlent 15Mánudagur 5. mars 2012
n Listi yfir 15 ríkustu lönd í heimi n Noregur ríkast Norðurlandanna n Fjölmörg smáríki á listanum
„Í Katar
er til
dæmis mjög
ójöfn skipting.
Margir íbúar
þar eru raunar
mjög fátækir
Efnahagur ríkustu
landa heims*
11,1
Katar
10,2
Lúxemborg
7,2
Singapúr
6,6
Noregur
6,1
Brúnei
6,0
Sam.
arabísku
fursta-
dæmin
5,9
Bandaríkin
5,8
Hong
Kong
5,3
Sviss
5,2
Holland
5,0
Ástralía
5,0
Austurríki
4,9
Írland
4,9
Kanada
4,9
Kúveit
*Verg landsframleiðsla, leiðrétt fyrir kaupmáttarjafnvægi
9 Sviss
VLF, leiðrétt fyrir kaupmáttarjafnvægi:
5,3 milljónir kr.
Íbúafjöldi: 7,8 milljónir
Lífslíkur: 80 ár
Staðreyndir: Svisslendingar hafa meðal
annars getið sér gott orð fyrir tækniiðnað
sinn og eru einn helsti framleiðandi lúxusúra
í heiminum. Efnahagur landsins hefur verið
ótrúlega stöðugur á undanförnum árum og
er gjaldmiðillinn, svissneski frankinn, einn
sá sterkasti í heimi. Verðbólga þekkist varla
í Sviss og var hún að meðaltali lægst þar –
af öllum ríkjum heims – á 20. öldinni.
10 Holland
VLF, leiðrétt fyrir kaupmáttarjafnvægi:
5,2 milljónir kr.
Íbúafjöldi: 16,3 milljónir
Lífslíkur: 78 ár
Staðreyndir: Hollendingar eru mikil
landbúnaðarþjóð og aðeins Frakkar og
Bandaríkjamenn flytja út meira af landbún-
aðarafurðum. Holland stendur mjög lágt og
er stór hluti neðan sjávarmáls. Hollendingar
eru mikil hjólreiðaþjóð og er talið að þar sé
að finna allt að sextán milljónir reiðhjóla.
11 Ástralía
VLF, leiðrétt fyrir kaupmáttarjafnvægi:
5,0 milljónir kr.
Íbúafjöldi: 20,3 milljónir
Lífslíkur: 80 ár
Staðreyndir: Ástralir flytja út mikið af
landbúnaðarafurðum, til dæmis hveiti,
ull, járn, gull, kol og jarðgas. Þá framleiða
Ástralir einnig mikið af víni sem þeir flytja
út. Ástralía er gríðarstór, eða 7,6 milljónir
ferkílómetra. Ástralía er eitt strjálbýlasta
land heims, með aðeins tvo íbúa á hvern
ferkílómetra.
12 Austurríki
VLF, leiðrétt fyrir kaupmáttarjafnvægi:
5,0 milljónir kr.
Íbúafjöldi: 8,2 milljónir
Lífslíkur: 79 ár
Staðreyndir: Stöðugt efnahagsástand
hefur einkennt Austurríki á undanförnum
árum. Austurríkismenn flytja meðal annars
út timbur, korn og vín. Þá reiðir Austurríki
sig á straum ferðamanna sem flykkjast til
landsins á hverju ári.
13 Írland
VLF, leiðrétt fyrir kaupmáttarjafnvægi:
4,9 milljónir kr.
Íbúafjöldi: 4,1 milljón
Lífslíkur: 77 ár
Staðreyndir: Írland er þriðja stærsta eyja
Evrópu á eftir Bretlandi og Íslandi. Írar hafa
farið illa út úr efnahagskreppunni og hefur
húsnæðisverð hrunið frá árinu 2008. Þrátt
fyrir það skipa Írar þrettánda sætið á lista
Forbes.
14 Kanada
VLF, leiðrétt fyrir kaupmáttarjafnvægi:
4,9 milljónir kr.
Íbúafjöldi: 32,2 milljónir
Lífslíkur: 79 ár
Staðreyndir: Kanada er næststærsta land
heims að flatarmáli á eftir Rússlandi. Efna-
hagur Kanada er sterkur og er landið ríkt af
náttúruauðlindum, til að mynda jarðefna-
eldsneyti. Kanadamenn framleiða og vinna
sink og úraníum í miklu magni og flytja
meðal annars út gull, nikkel og ál.
15 Kúveit
VLF, leiðrétt fyrir kaupmáttarjafnvægi:
4,9 milljónir kr.
Íbúafjöldi: 2,6 milljónir
Lífslíkur: 78 ár
Staðreyndir: Kúveit er lítið og flatt land
sem býr yfir miklum olíuauðlindum. Írakar
réðust inn í landið árið 1991 en Bandaríkja-
menn hröktu þá á brott. Yfir 200 fyrirtæki
eru skráð í kauphöllinni í Kúveit og er hún
næststærsta kauphöllin í arabalöndunum.
Nánast enginn landbúnaður er stundaður í
Kúvæt og reiða íbúar sig á innflutt matvæli
að langstærstum hluta, að sjávarafurðum
undanskildum.
Ofurþriðjudagur:
Stóra stund-
in rennur upp
Stóra stundin í forkosningum
repúblikana í Bandaríkjunum, um
hver verður forsetaefni flokksins,
rennur upp á þriðjudaginn, svo-
kallaðan ofurþriðjudag (e. Super
Tuesday), þegar kosið verður í alls
tíu ríkjum Bandaríkjanna. Kosið
verður í Alaska, Georgíu, Idaho,
Massachusetts, Norður-Dakóta,
Ohio, Oklahoma, Tennessee, Ver-
mont og Virginíu.
Mitt Romney hefur þótt sigur-
stranglegastur í forkosningunum
og hefur á undanförnum mánuð-
um unnið nokkra mikilvæga sigra.
Einn af öðrum hafa keppinautar
hans um tilnefningu helst úr lest-
inni. Má þar nefna Rick Perry, rík-
isstjóra Texas, sem klúðraði sinni
baráttu með því að geta ekki talið
upp opinberar stofnanir í kapp-
ræðum frambjóðenda, auk þess
sem hann sendi frá sér hörmu-
lega misheppnaða auglýsingu þar
sem hann gagnrýndi aukin réttindi
samkynhneigðra. Auglýsingin varð
eins og bjúgverpill í höndunum á
honum og hefur ekkert myndband
fengið fleiri „dislike“ á YouTube.
Þá datt Herman Cain úr leik eftir
undarlega kosningabaráttu.
Eftir standa Newt Gingrich,
fyrrverandi forseti Bandaríkja-
þings, frjálshyggjumaðurinn Ron
Paul, sem hefur margsinnis boðið
sig fram áður, og svo frambjóðand-
inn sem hefur vakið mesta athygli
að undanförnu: Rick Santorum.
Fáir höfðu búist við því að San-
torum myndi ná að skáka Romney
verulega, en annað hefur komið á
daginn. Í kosningunum er keppt
um kjörmenn og sá frambjóðandi
sem nær flestum kjörmönnum
sigrar. Keppninni er lokið ef einn
frambjóðandi nær 1.245 kjör-
mönnum. Mitt Romney er lang-
fremstur í kapphlaupinu. Hann er
búinn að tryggja sér 168 kjörmenn
og stóri dagurinn er ekki runn-
inn upp. Santorum er kominn í
annað sætið með 86 kjörmenn.
Newt Gingrich er síðan með 32
og Ron Paul rekur lestina með 19
kjörmenn. Þrátt fyrir að Romney
sé með afgerandi forystu núna er
langt í frá að kosningunni sé lokið.
Hann og Santorum eru hnífjafnir
í skoðanakönnunum og má búast
við harðri baráttu á þriðjudag.
n Á stöplaritinu má sjá verga landsframleiðslu ríkjanna
í milljónum króna á hvern íbúa. Katar er langríkasta land
heims.
Fékk bætur
í fangelsi
Yfirvöld í Bandaríkjunum segja
sakfelldan morðingja hafa fengið
atvinnuleysisbætur á meðan
hann sat í fangelsi. Maðurinn
komst í fréttirnar þegar greint var
frá því að hann hefði látið húð-
flúra vettvang morðs á bringuna
sína. Húðflúrið varð til þess að
maðurinn var dæmdur.
Bandaríska fréttastofan Fox
News greinir frá þessu máli en
þar kemur fram að Anthony
Garcia, sem ber viðurnefnið
Chopper, hafi fengið 30 þúsund
dollara, sem nemur um 3,7 millj-
ónum króna, í atvinnuleysisbætur
á meðan hann sat í fangelsi í Los
Angeles á árunum 2008 til 2010.
Lögreglustjórnn Mike Parker
greindi frá því að faðir Garcia og
tvær vinkonur hans hefðu fengið
atvinnuleysisbæturnar greiddar
og lagt þær inn á reikninga Garcia
og manna sem mynda með hon-
um glæpagengi.