Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.2012, Blaðsíða 19
Víking Páskabock
er bestur
Neytendur 19Mánudagur 5. mars 2012
Ekki gleyma að láta skoða bílinn:
Dýrkeypt
vanræksla
Það getur verið dýrt að trassa að
fara með bílinn í skoðun en á síð-
asti ári námu greidd vanrækslu-
gjöld 360 milljónum króna. Þá
voru um 37.500 aðilar rukkaðir
um gjaldið og enn eiga margir
þeirra eftir að greiða en óinnheimt
vanrækslugjöld frá árinu 2009
nema um 250 milljónum króna.
Þetta kemur fram á heimasíðu
Neytendasamtakanna en þar er
fólk hvatt til að láta skoða bílinn á
tilskildum tíma.
Áður fyrr voru númer klippt
af þeim bílum sem voru óskoð-
aðir en fyrir nokkrum árum var
tekið upp svokallað vanrækslu-
gjald. Neytendasamtökin benda á
að þrátt fyrir það hafi gjaldið ekki
þjónað þeim tilgangi sínum að
þrýsta á eigendur bifreiða um að
koma með þær í skoðun á réttum
tíma þar sem ekki verður séð að
dregið hafi úr fjölda óskoðaðra
bíla. Það sé þó mikilvægt fyrir um-
ferðaröryggi vegfarenda að allir
bílar sé skoðaðir og með tilskil-
inn öryggisbúnað í lagi. Allir ættu
að leita allra leiða til að tryggja
það öryggi með því að láta skoða
bílana sína.
Samkvæmt Neytendasamtök-
unum kostar skoðun á bíl á bilinu
7.945 til 9.460 kr. Endurskoðun, sé
hún nauðsynleg, kosti líka sitt en
séu ekki til peningar til að mæta
þeim kostnaði megi bíleigendur
reikna með að vanrækslugjald
upp á 15.000 krónur bætist við.
Sé brugðist við innan mánaðar er
gjaldið 7.500 krónur. Kostnaður-
inn getur því orðið umtalsverður.
Á syslumenn.is má finna allar
upplýsingar um álagningu og inn-
heimtu vanrækslugjalda auk upp-
lýsinga um skoðunarstöðvar á
landinu.
gunnhildur@dv.is
Dómnefnd Fagmennskan og ástríðan leyndi sér ekki þegar dómnefndin var að störfum.
2 Páska Gull
Styrkleiki: 5,2%
Lýsing: Koparbrúnn á lit, þykk og eilítið
brúnleit froða. Karamellukennd mal-
tsæta sem tónar vel við nokkuð snarpa
beiskju. Eftirbragð langt og mjúkt og
beiskjan situr lengi eftir án þess að vera of
ágeng. Frískleg lykt með sítruskenndum
humlakeim í bland við milda lykt af
ristuðu korni.
Umsagnir
Anna Svava: „Ég hélt að þessi yrði ljósari
á bragðið. Svolítið rammur og mikið
eftirbragð. Ekki eitthvað sem ég mundi
drekka.“
Ragnar Freyr: „Tær, fallegur, grösugur í
nef. Í munni: fín fylling, þægilegir humlar.
Þægilegur bjór.“
Rakel: „Villandi liturinn á honum. Maður
býst við léttari stemningu. Erfitt eftir-
bragð, of yfirþyrmandi. Flatur, freyðir ekki
vel. Svolítið eins og kryddað, litað vatn.“
Kjartan: „Ekki mikil lykt. Miðlungs í sætu
og ljós á litinn. Enginn sérstakur karakter en
ágætur bjór. Páskalitur.“
Henry: „Fallegur páskalegur litur. Ágæt fylling. Svolítið sætur. Fínt eftirbragð.
Ágætur með matnum. Fínasti páskabjór.“
Anna Brynja: „Eftirbragð sterkt, ágætis karakter, fallegur litur, vantar smá
ballans við rammleikann.“
Víking
Páskabock
Verð: 429 krónur. Styrkleiki: 6,7%
Lýsing: Rafbrúnn. Mjúk fylling, sætuvottur,
ferskur, miðlungs beiskja. Mjúkristað korn,
rjómakaramella, hey.
Umsagnir
Anna Svava: „Nammi. Mjög líkur malt bara með
áfengi. Ég hélt að hann myndi bragðast hræði-
lega sökum þess hve dökkur hann er. En hann er
bara mjög góður.“
Ragnar Freyr: „Flottur, koparlitaður og fallegur.
Mikið malt og þægileg sæta í nefi. Flottur á
tungu, fín fylling, þægileg sæta frá maltinu og
humlar látlausir í bakgrunni. Notalegt og langt
eftirbragð.“
Rakel: „Þessi er mjög dökkur. Of dökkur á lit til að
framkalla vorgleðina en bragðið kemur á óvart.
Mildur og fínn og góð froða í honum. Minnir mikið
á maltöl, kannski bragðaðist malt svona í gamla
daga. Sætur og fínn hátíðarbjór. En það er bara
hægt að drekka takmarkað magn af honum.“
Kjartan: „Sá dekksti hingað til. Freyðir mjög vel. Frekar sætur en með gott jafnvægi.
Bjór fyrir flesta. Lyktarlítill en það kemur ekki að sök. Fínt öl.“
Henry: „Sá dekksti hingað til. Freyðir flott. Mikið malt. Furðulega lítil lykt. Vil drekka
þennan með páskaegginu mínu. Frábær.“
Anna Brynja: „Mjög mjúkur og góður, ekki of þungur, sætur ilmur, karamellukeimur.“
4,25
af 5 mögulegum
3,15
af 5 mögulegum
4 Víking Páskabjór
Verð: 339 krónur. Styrkleiki: 4,8%
Lýsing: Rafbrúnn. Meðalfylling, þurr, fersk sýra, beiskur.
Ristað malt, karamella, kaffi.
Umsagnir
Anna Svava: „Já, bestur hingað til. Líkastur venjulegum bjór sem
er uppáhaldið mitt.“
Ragnar Freyr: „Látlaus, veikir humlar. Sæta í nefi. Mildur á tungu,
þægilegt gos. Frekar léttur, meðal fylling. Einfalt verkefni.“
Rakel: „Dekkri en bragðið gefur til kynna, það er að segja mildara
bragð. Rennur ljúft niður. Svona hátíðarbjór. Einn með páskaegginu
en ekkert meira en það.“
Kjartan: „Sami litur og í númer 2 (Páska Kaldi). Dökkur, lítil lykt.
Miðlungs sætur. Frekar rammur en þægilegur í bragði.“
Henry: „Sami litur og á númer 2 (Páska Kaldi). Lítil lykt sem eru von-
brigði. Einfaldur, fínt jafnvægi en engin flugeldasýning. Flýtur meðalveginn alla leið.“
Anna Brynja: „Lyktarlítill, frekar bragðlítill, léttur, auðdrekkanlegur en frekar
óspennandi.“
5 Benedikt
Verð: 499 krónur. Styrkleiki: 7,0%
Lýsing: Ljósrafbrúnn. Mjúk, þétt fylling, sætuvottur, beiskur. Ristað
malt, karamella.
Umsagnir
Anna Svava: „Kannski finnst mér bara „öðruvísi“ bjór vondur! Ég vil
ekki vera fúl á móti en mér brá þegar ég smakkaði þennan. Ilmvatns-
bragð. Hefði viljað fá léttari og ljósari páskabjór. Vorið er að koma.“
Ragnar Freyr: „Ljós og fallegur, dálítið grugg sem er ljómandi.
Heilmikil sæta, ger en humlar nokkuð áberandi í nefi. Fín fylling, gos
en humlar í munni. Nokkuð áberandi en þó þægilegur. Flott og ljúft
eftirbragð. Belgískir tónar.“
Rakel: „Rauður á lit. Þeir hafa misst ilmvatn ofan í tunnurnar í fram-
leiðslunni. Get ekki hugsað mér annan sopa.“
Kjartan: „Rauðbrúnn á lit. Ilmríkur í meira lagi. Gerir kröfur til þín og
er ekki allra. Mjög góður bjór.“
Henry: „Rauðleitur, ekki heillandi. Lyktin úldin og fráhrindandi. Sætan yfirþyrmandi.
Ekki fyrir mig. Sker sig alveg úr. Má vera úti mín vegna.“
Anna Brynja: „Humlaríkur en þó ekki yfirdrifið. Ljúft eftirbragð, flottur litur. Hátíð
fyrir bragðlaukana. Sker sig úr af þessum fimm bjórum á góðan hátt.“
3 Páskakaldi
Verð: 369 krónur. Styrkleiki: 5,2%
Lýsing:RRafbrúnn, létt fylling, ósætur, lítil beiskja, karamella,
þurrkaðir ávextir, mildur.
Umsagnir
Anna Svava: „Sambland af sterku áfengi og bjór. Svona eins og
einhver hafi blandað vitlaust í partíi. Jafnvel ilmvatnsbragð.“
Ragnar Freyr: „Koparlitaður og tær. Í nefi: töluverð sæta og ger.
Í munni: notaleg áferð, ávextir og ger. Daðrar dálítið við að vera í
Bock-stílnum.“
Rakel: „Það er of mikill sápukeimur af þessum sem ég tel ekki
vera gott. Það vottar af sápukúlum í froðunni. Liturinn er of
dökkur og minnir ekki á vorið eða páskana. Eftirbragð loðir við
tunguna.“
Kjartan: „Fremur dökkur og í sætari kantinum. Freyðir í glasinu og
ilmar vel. Góður bjór með karakter.“
Henry: „Fallegur litur, kannski fulldökkur fyrir páskabjór. Ávaxtalykt. Sætur eins og
páskaungi. Of sætur fyrir minn smekk en held hann virki vel fyrir marga. Sérstaklega
konur.“
Anna Brynja: „Góð fylling, hunangsmjúkur, ávextir, banani, ekki fyrirdrifin sæta,
nammi!“
2,95
af 5 mögulegum
2,85
af 5 mögulegum
3,05
af 5 mögulegum
1
kunn. „Hann gerir kröfur til manns.
Hann sker sig algjörlega úr og er stór-
fínn,“ sagði hann. Anna Brynja og
Ragnar voru sammála honum með
það. Dómnefndin var þó sammála
um að Páskabock væri líklegastur til
að höfða til flestra og var ánægð með
hann.
Þegar kom að því að velja flottustu
umbúðirnar voru þau sammála um
að Páska Gull hefði vinninginn þar.
Hann væri páskalegur og flottur. Þess
má geta að Páska Gull er ekki seldur
í verslunum ÁTVR þar sem umbúð-
irnar voru taldar höfða of mikið til
barna. n
www.bioparadis.is
hverfisgötu 54 / 101 reykjavík
FARÐU
AFTUR
Í BÍÓ
Í FYRSTA
SINN