Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.2012, Page 26
Vala tekur þátt í mottumars
n Ætlar að safna mottu og rottu
H
in eina sanna Vala
Grand hefur ákveð-
ið að láta sitt ekki eftir
liggja í mottumars.
Mottumars er haldinn í mars
á hverju ári og felur í sér að
karlmenn safni skeggmottu
og áheitum til þess að vekja
athygli á krabbameini hjá
körlum.
Hún tilkynnti á Facebook-
síðu sinni að „Miss Vala
Grand“ ætlaði að styðja átak-
ið Karlmenn og krabbamein
með því að „safna mottu og
rottu“ þar sem hún þekk-
ir það að vera með kynfæri
karla en Vala fór í kynleiðrétt-
ingaraðgerð á síðasta ári líkt
og flestir vita.
Hvort Vala standi við þetta
eður ei er ekki vitað
en allavega sagðist
hún viss um að unn-
usti sinn yrði ekki
sáttur með stöðuupp-
færsluna. Vinir Völu
tóku vel í færsluna og
voru ánægðir með sína
konu.
Þeirra á meðal var
Ásgeir Þór Davíðsson
eða Geiri á Goldfinger
eins og hann er kall-
aður. „Þú ert léttgeggj-
uð, þess vegna elska þig
allir.“
Eyjólfur Svanur
Kristinsson, unnusti Völu,
var ekki alveg jafn sáttur við
unnustuna og sagði hana
hafa haft rétt fyrir sér, að lífi
hennar lyki klukkan fjögur
þegar hann kæmi heim úr
vinnunni, en að sjálfsögðu
var þetta allt sagt á gaman-
sömum nótum.
26 Fólk 5. mars 2012 Mánudagur
Marta María
í fasteignaleit
Fjölmiðlakonan Marta María
hugsar sér til hreyfings því
hún hefur sett raðhús sitt í
Ljósalandi í Fossvogi á sölu.
Marta María þykir mikil
smekkkona og ekki kölluð
Marta smarta að ástæðu-
lausu hefur gefið fasteigninni
yfirhalningu.
Í fasteignaauglýsingunni
kemur fram að húsið er ein-
staklega vel staðsett, næst-
neðst í dalnum, þar sem veð-
ursæld er sérstaklega mikil.
Húsið var byggt árið 1971 og
teiknað af Jóni Kaldal.
Von á barni
Stuðmaðurinn og miðborg-
arstjórinn Jakob Frímann
Magnússon á von á sínu
öðru barni með unnustu
sinni Birnu Rún Gísladótt-
ur. Þau eiga fyrir dótturina
Jarúnu Júlíu sem er fimm ára
en Jakob á einnig dótturina
Bryndísi með fyrri eiginkonu
sinni, Ragnhildi Gísladóttur.
Jakob er líka orðinn afi en
Bryndís á soninn Magnús
sem er nýorðinn eins árs.
Birna Rún er sett seinnipart-
inn í júlí og því von á sumar-
barni hjá þeim hjúum.
Stolt af sín-
um manni
Leikarinn Þorvaldur Davíð
Kristjánsson hefur hlotið
einróma lof gagnrýnenda
fyrir leik sinn í myndinni
Svartur á leik. Túlkun hans
á Stebba sækó þykir með
eindæmum góð. Unnusta
Þorvaldar Davíðs, Hrafn-
tinna Viktoría Karlsdóttir, er
sammála gagnrýnendum og
sagði á Facebook-síðu sinni
eftir frumsýningu myndar-
innar að hún væri orðlaus og
að rifna úr stolti yfir mann-
inum sínum og bætti svo við:
„Svartur á leik er rosaleg.“
Á
fimmtudaginn var
frumsýnt í Noregi
fyrsta myndband
rapparans Rex sem á
að vera ein af næstu
vonarstjörnum Noregs í tón-
listarlífinu. Það var íslenska
auglýsingastofan Pipar/TBWA
sem gerði myndbandið en það
var tekið upp í Ásbrú í Keflavík
og var öllu tjaldað til. „Teymið
í kringum Rex hefur verið að
undirbúa fyrstu alvöru út-
gáfuna frá honum í dálítinn
tíma og er að leggja mikið í
þetta. Þeir vildu byrja af krafti
og fengu Atle Pettersen til að
syngja með honum í laginu
en hann er heitasta stjarn-
an í Noregi í dag,“ segir Val-
geir Magnússon, betur
þekktur sem Valli sport,
framkvæmdastjóri aug-
lýsingastofunnar Pipar/
TBWA á Íslandi en hún
hafði betur í baráttu við
þrjá aðra aðila um að
gera myndbandið.
„Við höfum verið að
gera þetta annað slagið.
Þetta heldur manni
ferskum. Við gerðum
til dæmis þekkt mynd-
band fyrir Elektra hér
um árið sem ég leik-
stýrði,“ segir Valli en
Haffi Haff átti stóran
þátt í handriti þessa
nýja myndbands.
Valli og leikstjór-
inn fóru til Noregs til
að vera viðstaddir frumsýn-
inguna og segir Valli mynd-
bandinu hafa verið tekið vel.
„Því var tekið með öskrum
og látum. Við fengum algjöra
rokkstjörnumeðferð,“ segir
hann en það var frumsýnt í
sérpartíi fyrir blaðamenn og
fólk úr tónlistarbransanum.
En veisluhöldunum lauk ekki
þar. „Á föstudeginum var svo
útgáfupartíið og eftir það flug-
um við til Íslands og fórum í
annað partí á Austur á laugar-
daginn.“
Rex var viðstaddur partíið á
Austri en hvernig líkar honum
Ísland? „Hann er mjög hrifinn
af Íslandi. Það er ekk-
ert mjög leiðinlegt að
vera sætur tónlistar-
maður á Íslandi, ný-
búinn að gera tónlist-
armyndband og vera reglulega
í fjölmiðlum,“ segir Valli.
Mikið var lagt í myndband-
ið og fékk Pipar/TBWA tals-
vert meira fé til að gera það en
stofan hefur áður getað unnið
með. Valli lítur á þetta sem
tækifæri til að auglýsa mynd-
bandagerð stofunnar í Evrópu.
„Við vorum að hugsa þetta
þannig. Það er alltaf gaman að
gera stærri hluti og nú náðum
við að gera myndband sem er
á næsta þrepi miðað við
það sem við höfum áður gert.
Við gátum sýnt aðeins betur
hvað við getum gert ef við
fáum pening til þess. Okkur
finnst við standa fyllilega jafn-
fætis þessum mynböndum
sem eru gerð í Bandaríkjun-
um,“ segir Valli sport.
tomas@dv.is
Myndböndin halda
okkur ferskum
n Íslensk auglýsingastofa gerði myndband fyrir vonarstjörnu Norðmanna
Vonarstjarnan
Miklar væntingar eru
gerðar til Rex. Myndir OZZO
Glamúrgæi Haffi Haff átti stóran
þátt í handriti myndbandsins.
Mikið lagt í myndbandið Pipar/TBWA fékk meira fé en vana-
lega til að gera myndbönd og eru menn ánægðir með útkomuna.
Gellur Auglýst var eftir íslenskum
skvísum sem stóðu sig vel.
Að störfum Valli sport við vinnslu myndbandsins.
Styður karlmenn og krabbamein Vala stendur með karlmönnum og
safnar mottu fyrir málstaðinn.
Á góðri stund Vinirnir Vala og Geiri á
góðri stund. Geiri skrifaði á Facebook-síðu
Völu að hún væri léttgeggjuð og þess
vegna elskuðu hana allir.