Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.2012, Síða 27
É
g kann ekkert annað, svo
vonandi get ég unnið
við þetta í önnur 25 ár.
Það er kannski töluverð
bjartsýni en þetta er það sem
ég geri og finnst skemmtileg-
ast að gera svo ég vona það,“
segir fjölmiðlamaðurinn Logi
Bergmann Eiðsson sem held-
ur þessa dagana upp á 25 ára
starfsafmæli sitt innan fjöl-
miðlageirans.
Logi Bergmann hóf feril-
inn sem íþróttafréttamaður
á Þjóðviljanum. „Pabbi var
framkvæmdastjóri Þjóðviljans
og ég var alinn þar upp. Ég var
ungur farinn að svara í síma
og vinna sem sendill og ætlaði
mér alltaf að verða blaðamað-
ur. Það var alltaf planið,“ segir
Logi aðspurður um sín fyrstu
skref í bransanum. „Svo þurfti
Víðir Sigurðsson, sem núna
starfar á Morgunblaðinu, að
fara í ársleyfi og þá var ég
ráðinn til að leysa hann af í
íþróttadeild. Á þeim tíma var
ég að reyna að verða stúdent
en þar sem það voru enda-
laus kennaraverkföll hætti ég
að nenna því. Mér líkaði þetta
strax vel og eitt leiddi af öðru,“
segir Logi sem hóf starf sem
blaðamaður þann 1. mars
1987.
Aðspurður segist Logi lík-
lega vera búinn að prófa flest
innan fjölmiðlageirans. „Ég er
búinn að vera á litlu dagblaði,
stóru dagblaði, í útvarpi, í
sjónvarpi með spjallþætti,
fréttaþættir og skemmtiþætti.
Ég hef aldrei verið með mat-
reiðsluþátt. Sem er kannski
skiljanlegt. Það væri ekki
sterkasta ráðningin að hleypa
mér þangað,“ segir hann hlæj-
andi.
Loga, sem gegndi stöðu
spyrils í Gettu betur um ára-
bil, dettur ekkert í hug þegar
hann er spurður hvort hann
eigi sér leynda drauma um
nýja þætti enda alsáttur með
Spurningabombuna sem sýnd
er á Stöð 2. „Mig langar að
gera Bombuna í tíu ár í viðbót.
Þetta er svo rosalega skemmi-
legt – það skemmtilegasta
sem ég hef gert. Ég hef rosa-
lega gaman af spurningaþátt-
um en mér hefur oft fundist
þeir mega vera skemmtilegri.
Þetta er það sem mig langar
mest að vera gera núna.“
indiana@dv.is
Fólk 27Mánudagur 5. mars 2012
25 ár í bransanum
n Logi Bergmann ætlaði alltaf að verða blaðamaður
Sáttur í Spurningabombunni
Logi væri til í að vinna við þáttinn í
tíu ár í viðbót.
Smáauglýsingar
smaar@dv.is
sími 512 7004
Opið virka daga kl. 10.00–18.00 og laugardaga kl. 11.30–15.00
BÍLALIND.is - Funahöfða 1 - 110 Reykjavík - S: 580-8900
MAZDA 323 S/D GLX
Árgerð 2000, ekinn 188 Þ.km, 5 gíra,
einn eigandi, 100% þjónusta. Verð
670.000. Raðnr. 284143 á www.
bilalind.is - Bíllinn er á staðnum!
HYUNDAI SANTA FE CRDI
06/2008, ekinn 93 Þ.km, dísel, sjálf-
skiptur, ný tímareim, ný dekk. Verð
3.990.000. Raðnr. 283842 á www.
bilalind.is - Jeppinn er á staðnum!
TOYOTA LAND CRUISER 120 VX
33“ 8 MANNA 05/2007, ekinn 107
Þ.km, dísel, sjálfskiptur, leður ofl. Verð
6.250.000. Raðnr.321994 á www.
bilalind.is - Jeppinn er á staðnum!
KIA PICANTO LX
11/2006, ekinn 46 Þ.km, 5 gíra. Verð
1.150.000. Raðnr. 270805 á www.
hofdahollin.is - Sá sparneytni er á
staðnum!
NISSAN NAVARA 4WD
DOUBLE CAB AT LE. 01/2008, ekinn
142 Þ.KM, dísel, sjálfskiptur. Tilboðs-
verð 2.690.000. Raðnr.118183 á www.
hofdahollin.is - Pikkinn er á staðnum!
BMW 645CI
Árgerð 2004, ekinn aðeins 45 Þ.km,
sjálfskiptur, leður ofl. Verð 7.990.000.
Raðnr. 135387 á www.hofdahollin.is -
Kagginn er í salnum!
TOYOTA YARIS TERRA
Árgerð 2006, ekinn 116 Þ.km, 5 gíra.
Verð 1.150.000. Raðnr. 270360 á www.
hofdahollin.is - Bíllinn er á staðnum!
SUBARU Impreza WRX STI
Árgerð 2006, ekinn 119 Þ.km, 6 gíra,
roofspoiler ofl. Verð 3.990.000.
Raðnr. 270573 á www.hofdahollin.is -
Sportarinn er í salnum!
PORSCHE 911 TURBO
Árgerð 2001, ekinn 80 Þ.km, sjálf-
skiptur, 416 hö. nýjar álfelgur og dekk,
carbon toppur og - spoiler. Eins og nýr!
Verð 10.290.000. Raðnr. 280791 á www.
hofdahollin.is - Sá netti er í salnum!
SUBARU FORESTER CS
06/2007, ekinn aðeins 36 Þ.km,
sjálfskiptur. Verð 2.590.000. Raðnr.
284057 á www.bilalind.is - Bíllinn er
á staðnum.
MMC PAJERO DID
38“ breyttur 11/2003, ekinn 170 Þ.km,
dísel, sjálfskiptur. Verð 4.390.000.
Raðnr. 283104 á www.bilalind.is -
Jeppinn er á staðnum!
TOYOTA LAND CRUISER 100 VX
35“ BREYTTUR 09/2000, ekinn
270 Þ.km, dísel, sjálfskiptur. Verð
3.270.000. Raðnr. 321700 á www.
bilalind.is - Jeppinn er á staðnum!
www.bioparadis.is
hverfisgötu 54 / 101 reykjavík
FARÐU
AFTUR
Í BÍÓ
Í FYRSTA
SINN
Tangabryggja 14-16, 110 Rvk.
S. 567 4840 www.hofdahollin.is
RÝMINGARSALA!
Tangabryggja 14-16, 110 Rvk.
S. 567 4840 www.hofdahollin.is
RÝMINGARSALA!
Íbúð óskast
Íbúð óskast fyrir háskólanema, helst á
105 svæðinu eða nálægt. Vinsamlegast
hafið samband í 6617338 eða 7760179 .
Harmonikka til sölu
Antik harmonikka til sölu 120 bassa
ítölsk 3.kóra. Nú yfirfarin Upplýsingar í
síma 5670437 eða 8671837
Tek að mér
Hreinsa þakrennur og tek að mér ýmiss
smærri verkefni. Upplýsingar í síma 847-
8704 eða á manninn@hotmail.com
Geir og Inga Jóna
geisluðu af gleði
L
jósmyndarar DV voru á ferð-
inni um helgina og litu inn á
frumsýningu á stærsta verki
Þjóðleikhússins þetta leik-
árið: Vesalingunum. Meðal frum-
sýningargesta voru hjónin Geir H.
Haarde og eiginkona hans Inga
Jóna Þórðardóttir sem allir voru
sammála um að geisluðu af gleði
þrátt fyrir landsdómsmálið sem
vofir yfir í næstu viku. Meðal ann-
arra gesta má telja Hlín Einars-
dóttur og Björn Inga Hrafnsson,
blaðamanninn Val Grettisson,
Tobbu Marinós, Björk Eiðsdóttur
og Andreu Gylfadóttur söngkonu
sem var í glæsilegum ljósbláum
kjól.
n Vesalingarnir voru frumsýndir í Þjóðleikhúsinu
Geisluðu Hjónin Geir
H. Haarde og Inga Jóna
Þórðardóttir glöddust á
frumsýningu á Vesaling-
unum. Mynd PreSSPhotoS.Biz
Góðir gestir Hlín Einarsdóttir, Karl Ágúst Úlfsson og Jakob Bjarnar Grétarsson gengu greitt til sætis.
Glæsileg í bláum kjól Andrea Gylfadóttir vakti athygli í fal-
legum kjól. Blaðamaður og litla systir Valur Grettisson hjá Vísi og systir hans.
Mæðgin Nilli með móður sinni.
Glatt á hjalla Jóhanna Sigurðardóttir
forsætisráðherra lét sig ekki vanta á Vesa-
lingana, um hinn minnsta bróður. Það gerð
i
ekki heldur Vilhjálmur Egilsson.