Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2012, Qupperneq 3
Fréttir 3Miðvikudagur 21. mars 2012
L
andsbankinn afskrifaði
nærri 1.500 milljónir króna
af skuldum rekstrarfélags
pítsukeðjunnar Domino's á
Íslandi í fyrra þegar það var
selt til fjárfestisins Birgis Bieltvedts.
Domino's var í eigu útgerðar-
mannsins og fjárfestisins Magnúsar
Kristinssonar fyrir hrunið 2008 og
námu skuldir félagsins rúmlega
1.820 milljónum í lok árs 2010.
Domino's lenti í fangi Landsbank-
ans eftir hrunið, þó svo að formleg
yfirtaka á því hafi ekki átt sér stað
fyrr en mars 2011, og var fyrirtækið
selt til Birgis í júlí sama ár.
Í tilkynningu frá bankanum
þegar fyrirtækið var selt kom fram
að tilboð Birgis Bieltvedts í fé-
lagið hefði verið hagstæðast en
það hljóðaði upp á hlutafé upp á
210 milljónir króna og yfirtöku á
vaxtaberandi skuldum upp á 350
milljónir króna. Skuldirnar í árs-
lok 2010 námu hins vegar rúm-
lega 1.820 milljónum króna eins
og áður segir. Salan á fyrirtækinu
til Birgis vakti talsverða athygli þar
sem hann stofnaði Domino's á Ís-
landi árið 1993 og kom að rekstri
þess þar til árið 2005. Birgir var því
að kaupa aftur félag sem hann setti
á laggirnar hér á landi fyrir að verða
20 árum.
Greint frá hugsanlegum
afskriftum
Í ársreikningi rekstrarfélags Dom-
ino's, Pizza Pizza, fyrir árið 2010,
sem skilað var til ársreikningaskrár
ríkisskattstjóra í nóvember í fyrra,
kemur fram að Landsbankinn hafi
unnið að fjárhagslegri endurskipu-
lagningu Domino's á Íslandi. Mark-
mið þessarar endurskipulagningar
var að tryggja rekstrarhæfi félags-
ins. Í ársreikningnum segir að
Landsbankinn kunni að beita af-
skriftum á skuldum móðurfélags
Domino's til að ná þessum mark-
miðum. „Náist slíkt samkomulag
kann það að leiða til þess að Lands-
bankinn afskrifi hluta af kröfum
sínum og/eða breyti þeim í hlutafé
í samræmi við reglur Landsbank-
ans.“
1/5 hluti skuldanna fylgdi
Þessi leið varð ofan á þegar Lands-
bankinn seldi félagið til Birgis síð-
astliðið sumar enda lítill áhugi á
því meðal fjárfesta að kaupa yfir-
skuldsett fyrirtæki af fjármálafyrir-
tækjum. Eftir stendur að einungis
um 1/5 hluti skulda Domino's í árs-
lok 2010 fylgdu rekstrarfélagi Dom-
ino's þegar það var selt.
Domino's á Íslandi tapaði nærri
17 milljónum árið 2010, samkvæmt
ársreikningnum. Rekstrartekjur
fyrirtækisins námu rúmlega 1.735
milljónum króna árið og EBIDTA
rúmlega 75 milljónum. Fjármagns-
gjöld vegna yfirskuldsetningar
félagsins settu hins vegar stórt strik
í reikninginn og því endaði rekstur-
inn í tapi. Eiginfjárhlutfall fyrirtæk-
isins var neikvætt um 169 prósent
í lok árs 2010, fyrir afskriftirnar á
stórum hluta skulda þess og söluna
til Birgis. EBIDTA Domino's sýnir að
um er að ræða fínt rekstrarfélag sem
leið fyrir of mikla skuldsetningu.
Að mestu gamlar skuldir
Athygli vekur að skuldirnar sem
Landsbankinn hefur nú afskrifað
að mestu eru skuldir sem hafa hvílt
á félaginu í mörg ár, frá þeim tíma
þegar Birgir Bieltvedt átti hlut í fé-
laginu. Líkt og áður segir kom Birg-
ir að rekstri Domino's til ársins 2005
og sat í stjórn þess lengur, að minnsta
kosti í mars árið 2006 þegar gengið
var frá ársreikningi félagsins fyrir árið
2005. Í þeim reikningi kom fram að
heildar skuldir félagsins hefðu auk-
ist um rúman milljarð króna á milli
áranna 2004 og 2005, farið úr rúm-
lega 200 milljónum og upp í rúmlega
1.200 milljónir. Þetta er skuldsetning
sem hvíldi á félaginu í gegnum miklar
eigendabreytingar næstu árin á eftir.
Úlfar Steindórsson, fyrrverandi
stjórnarformaður Pizza Pizza, sagði
til dæmis í viðtali við DV í lok árs 2010
að þær skuldir sem hvíldu á félaginu
væru ekki tilkomnar vegna þess að
Magnús Kristinsson hefði skuldsett
félagið meðan hann átti það einn,
frá árinu 2007. „Þetta er skuldsetn-
ing sem var á félaginu þegar Magnús
keypti það... Þetta var aldrei skuldsett
frekar af hálfu Magnúsar. Hann end-
urfjármagnaði bara gamlar skuldir.“
Staðreyndin er því sú að Lands-
bankinn hefur nú afskrifað skuldir
hjá Domino's, við söluna á fyrirtæk-
inu til Birgis Bieltvedts, sem hann
átti þátt í að stofna til á árunum fyrir
hrun þegar hann átti í fyrirtækinu og
stýrði því ásamt öðrum. Birgir fór því
frá félaginu þegar það var kengskuld-
sett en eignast það aftur eftir að búið
er að færa skuldirnar niður í svipað
horf og árið 2004, áður en félagið var
skuldsett gríðarlega árið 2005.
Um 1.500 milljóna afskrift Þegar Birgir Bieltvedt hætti að koma að rekstri Domino's á Íslandi árið 2005 var fyrirtækið kengskuldsett.
Hann eignaðist fyrirtækið aftur í fyrra eftir að stærstur hluti þessara skulda hafði verið afskrifaður.
n Birgir Bieltvedt átti hlutdeild í skuldunum n Eignaðist félagið í fyrra
Afskrifuðu um
1.500 milljónir
hjá Domino's
„Náist slíkt sam-
komulag kann
það að leiða til þess að
Landsbankinn afskrifi
hluta af kröfum sínum.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Ný framboð í
næstu kosningum
Dögun
samtök um
réttlæti,
sanngirni og
lýðræði
n Framboð
Hreyfingarinnar,
Borgarahreyfingar og Frjálslynda
flokksins auk nokkurra stjórnlaga-
ráðsfulltrúa
n Formleg stofnun var 18. mars
n Flokkarnir hafa allir átt fulltrúa
á þingi
Samstaða
flokkur
lýðræðis og
velferðar
n Tilkynnt um
flokkinn árið 2011
n Stofnfundur 7. febrúar
n Þingmaður meðal forystumanna
Bjartsýnisflokkurinn
n Segjast jákvæð,
hóflega þjóðernis-
sinnuð og andlega
þenkjandi
n Fyrst fjallað um
flokkinn 13. mars
n Þrír aðilar standa
að flokknum
n Flokkurinn hefur aldrei boðið fram
Ísland fyrst
n Telja fjölmenn-
ingarstefnu
helstu ógnina við
íslenskt samfélag
n Fundar í heima-
húsum, fyrst fjallað um
flokkinn 29. ágúst 2011
n Flokkurinn hefur aldrei boðið fram
Hægri grænir
n Flokkurinn var
stofnaður árið
2010
n Flokkurinn
hefur aldrei boðið
fram
Björt framtíð
n Tilkynnt um
stofnun flokksins
8. desember 2011
með nafnasam-
keppni
n Tilkynnt um
nafnið Björt framtíð í janúar
n Þingmaður meðal forystumanna
Lýðfrelsis-
flokkurinn
n Tilkynnt um
flokkinn árið 2011
n Flokkurinn
hefur aldrei boðið
fram
Tap Domino's í pítsum talið:
1,5 milljónir þriðjudagstilboða
Forvitnilegt er að setja 1.500 milljóna króna afskrift Dom-
ino’s í samhengi við þær vörur sem fyrirtækið selur.
Þannig þyrfti hver einasti Íslendingur sem náð hefur
18 ára aldri að kaupa þriðjudagstilboð Domino’s
meira en sex sinnum, til að upphæðin myndi jafnast
á við afskriftina. Þriðjudagstilboðið, sem Domino’s
auglýsir um þessar mundir, er þannig að miðl-
ungsstærð af pítsu með þremur áleggstegundum
kostar 1.000 krónur. Athugið að nú er hægt að velja
um þrjár tegundir af botnum.
Nærri lætur að allir fjárráða Íslendingar þyrftu
að kaupa af þeim pítsu á hverjum degi í heila viku til
að söluandvirðið næði þeirri upphæð sem afskrifuð
var hjá bankanum. Domino’s þyrfti að selja 1,5 millj-
ónir þriðjudagstilboða til að selja fyrir upphæðina sem
afskrifuð var.
stöðu eða eru óákveðnir. Fjórtán
prósent þeirra sem spurðir voru
tóku ekki þátt í könnuninni og geta
því ekki talist til lausafylgis.
Málaflokkar
Ef til vill gefur könnun MMR,
frá desember, á hug kjósenda til
stjórnmálaflokka, miðað við mála-
flokka sterkustu vísbendinguna
um raunverulegt lausafylgi. Al-
mennt nýtur Sjálfstæðisflokkurinn
mests trausts nema þegar kemur
að umhverfismálum og uppgjöri á
tildrögum bankahrunsins þar sem
flestir treysta VG. Þetta er viðsnún-
ingur frá því sem var í apríl 2009,
þegar VG naut almennt mikils eða
mests trausts. Sú könnun var gerð
stuttu eftir búsáhaldabyltinguna
en jafnvel þá nutu ný eða önnur
framboð ekki mikils trausts.
Ný framboð komast sjald-
an upp fyrir 15 prósent í nokkr-
um málaflokki og aðeins einu
sinni telja yfir tuttugu prósent að-
spurða að nýr eða annar flokk-
ur en flokkarnir fimm á þingi séu
traustastir til úrlausnar. Það er
í flokknum rannsókn á tildrög-
um bankahrunsins, en þar bera
22 prósent mest traust til nýrri
flokka. Sé trausti Hreyfingarinnar
deilt með nýjum framboðum hef-
ur það þó ekki mikil áhrif og ýtir í
engu tilviki traustinu yfir tuttugu
prósent, þar sem það var lægra
fyrir. n