Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2012, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2012, Blaðsíða 24
24 Sport 21. mars 2012 Miðvikudagur Kóngarnir í enska boltanum N ú þegar einungis níu umferðir eru eftir í enska boltanum er ekki úr vegi að líta um öxl og skoða töl­ fræðina í enska boltanum í vetur. Upplýsingarnar hér að neðan eru unnar upp úr gagnagrunni greiningarvefsíð­ unnar whoscored.com en þar má nálgast alla helstu tölfræð­ ina úr enska boltanum í vetur. Margt athyglisvert kemur í ljós. Þannig er Fulham eina liðið í vetur sem enn á eftir að fá rautt spjald, Manchester United væri í neðsta sæti deildarinnar ef einungis væru gefin stig fyr­ ir gul og rauð spjöld. Chelsea væri hins vegar á toppnum. Leon Britton, samherji Gylfa Þórs Sigurðssonar hjá Swan­ sea, er með flestar heppnaðar sendingar í deildinni í vetur. Stoke heldur boltanum verst allra liða en Arsenal er það lið sem heldur honum best. 1 Man. Utd 29 22 4 3 73:27 70 2 Man. City 28 21 3 4 69:20 66 3 Tottenham 28 16 5 7 52:34 53 4 Arsenal 28 16 4 8 57:39 52 5 Chelsea 28 14 7 7 48:32 49 6 Newcastle 29 13 8 8 41:41 47 7 Liverpool 28 11 9 8 33:26 42 8 Swansea 29 10 9 10 34:34 39 9 Sunderland 28 10 7 11 36:31 37 10 Everton 28 10 7 11 28:31 37 11 Fulham 29 9 9 11 37:40 36 12 WBA 29 10 6 13 35:38 36 13 Norwich 29 9 9 11 39:46 36 14 Stoke 28 10 6 12 27:39 36 15 Aston Villa 28 7 12 9 31:35 33 16 Blackburn 28 6 7 15 40:60 25 17 Bolton 28 7 2 19 31:57 23 18 QPR 28 5 7 16 29:48 22 19 Wigan 29 4 10 15 25:54 22 20 Wolves 29 5 7 17 30:63 22 Staðan í deildinni Einar Þór Sigurðsson einar@dv.is Fótbolti Leikjaföldi Mörk 1. Robin van Persie, Arsenal 27 (1) 26 2. Wayne Rooney, Manchester United 23(2) 20 3. Demba Ba, Newcastle 23(2) 16 4. Sergio Aguero, Manchester City 23(3) 16 5. Edin Dzeko, Manchester City 14(10) 13 6. Yakubu, Blackburn 19(1) 13 7. Clint Dempsey, Fulham 29 12 8. Emmanuel Adebayor, Tottenham 25 11 9. Mario Balotelli, Manchester City 10(8) 11 * Danny Graham, Frank Lampard, Grant Holt og Javier Hernandez eru í 10. – 14. sæti með 10 mörk hvor. Markahæstir Leikjaföldi Stoðs. 1. David Silva, Manchester City 24(3) 12 2. Emmanuel Adebayor, Tottenham 25 11 3. Antonio Valencia, Man. United 14(4) 11 4. Juan Mata, Chelsea 24 (2) 10 5. Nani, Manchester United 22(2) 8 6. Robin van Persie, Arsenal 27(1) 8 7. Ryan Giggs, Manchester United 10(9) 8 8. Theo Walcott, Arsenal 25(2) 8 * Alexandre Song, Ashley Young, Gareth Bale, Samir Nasri og Stephane Ses- segnon hafa lagt upp 7 mörk hvor. Flestar stoðsendingar Leikjaföldi Sendingar í % 1. Leon Britton, Swansea 27 93,2 2. Samir Nasri, Man.City 17(4) 92,2 3. John Obi Mikel, Chelsea 11(5) 91,6 4. John Terry, Chelsea 23 91,4 5. Jake Livermore, Tottenham 5(13) 91 6. Ledley King, Tottenham 18 90,9 7. Mikel Arteta, Arsenal 23 90,6 8. Yaya Toure, Man. City 23 90,6 9. Joe Allen, Swansea 22(5) 90,1 10. Michael Carrick, Man. United 18(3) 90,1 Flestar heppnaðar sendingar Leikjaföldi Tæklingar* 1. Alejandro Faurlin, QPR 20 4,5 2. Scott Parker, Tottenham 23 4,1 3. Yohan Cabaye, Newcastle 25 3,8 4. Lee Cattermole, Sunderland 18 3,6 5. Luke Yong, QPR 21 3,5 6. Mohamed Diamé, Wigan 18(5) 3,5 7. Kyle Naughton, Norwich 25(1) 3,3 8. David Vaughan, Sunderland 13(3) 3,3 9. Marouane Fellaini, Everton 23(1) 3,3 10. Michael Carric, Man. United 18(3) 3,2 * að meðaltali í leik Flestar tæklingar % með bolta* 1. Arsenal 58,1 2. Man. City 57,6 3. Chelsea 56,9 4. Swansea 56,6 5. Man. United 56,2 6. Tottenham 55,3 7. Liverpool 55,2 8. Wigan 50 9. Fulham 49,8 10. Wolves 48,8 11. Newcastle 47,4 12. QPR 46,9 13. Everton 46,6 14. Bolton 45,5 15. Norwich 45 16. WBA 44,9 17. Aston Villa 44,7 18. Sunderland 44 19. Blackburn 42,2 20. Stoke 39,4 * í leik að meðaltali Halda boltan- um best Bestur Það mótmælir því væntan- lega enginn að Robin van Persie hafi verið besti leikmaður ensku úrvals- deildarinnar í vetur. Hollendingurinn hefur skorað 26 mörk og lagt upp 8 fyrir samherja sína. Mynd ReuTeRS n Chelsea fengið flest gul spjöld n Leon Britton er sendingakóngur Messi er tekjuhæstur Lionel Messi, leikmaður Barcelona, er ekki bara besti knattspyrnumaður heims því hann er einnig sá tekjuhæsti. Áætlaðar heildartekjur Messi á þessu ári eru 27,4 milljónir punda, jafnvirði 5,5 milljarða króna. Inni í þessari tölu eru laun, bónusar og tekjur frá styrktaraðilum á borð við Pepsi og Adidas. David Beckham er næst­ tekjuhæsti knattspyrnumaður heims. Áætlaðar tekjur hans á þessu ári nema 26 milljónum punda, eða 5,2 milljörðum króna. Portúgalinn Cristiano Ronaldo, leikmaður Real Mad­ rid, er í þriðja sæti á listanum og stendur Messi og Beck­ ham nokkuð að baki. Samuel Eto’o, leikmaður Anzhi í Rúss­ landi, er í fjórða sæti og Wayne Rooney, Man chester United, er í fimmta sæti. Tekjuhæsti knattspyrnustjóri heims er Jose Mourinho en þar á eftir koma Carlo Ancelotti og Josep Guar­ diola. Það er franska tímaritið France Football sem tók töl­ urnar saman. Muamba hressist Fabrice Muamba, leikmaður Bolton, er á hægum en örugg­ um batavegi eftir að hafa fengið hjartaáfall í leik liðsins gegn Tottenham á laugardag. Muamba var farinn að geta tjáð sig á mánudag en hann var þó enn á gjörgæsludeild Chest­sjúkrahússins í London aðfaranótt þriðjudags. Margir bjuggust við því versta þegar Muamba hneig niður rétt fyrir lok fyrri hálfleiks. Lífgunar­ tilraunir báru árangur eftir nokkra stund og var hann fluttur rakleiðis á sjúkrahús í kjölfarið. Búist er við að Muamba verði þar í einhverja daga undir eftirliti lækna. Chelsea vill Hulk Forráðamenn Chelsea hafa átt viðræður við portúgalska meistaraliðið Porto um kaup á sóknarmanninum Hulk. Portúgalskir fjölmiðlar greina frá því að Porto sé reiðu­ búið að endurskoða ákvæði í samningi leikmannsins sem kveður á um að hann megi fara komi tilboð upp á 85 milljónir punda, eða 17 milljarða króna. Forráða­ menn Porto hafa sagt að leik­ maðurinn fari ekki fyrir lægri upphæð. Nú er annað hljóð komið í strokkinn og herma heimildir portúgalskra fjöl­ miðla að Hulk verði hugsan­ lega seldur fyrir rúmlega 30 milljónir punda í sumar, eða sex milljarða króna. Talið er að Chelsea leiði kapphlaupið um þennan ógnarsterka leik­ mann og hafi þegar átt við­ ræður við Porto um kaup á honum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.