Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2012, Blaðsíða 8
S
jómaður, sem stórskemmdi
bíl í eigu sveitarfélagsins
Norðurþings þegar hann
kastaði steyptu blómakeri
í hann í byrjun þessa mán-
aðar, vann mál í Hæstarétti Íslands,
sem hann höfðaði gegn íslenska rík-
inu til þess að fá skaðabætur vegna
ólöglegrar úthlutunar á byggða-
kvóta. Það var einmitt óánægja
sjómannsins vegna úthlutunar
byggðakvóta sem fékk hann til þess
að fremja skemmdarverkið á bíln-
um þegar honum var lagt fyrir utan
verslunina Búðina á Kópaskeri
snemma í þessum mánuði. Tveim-
ur dögum eftir skemmdarverkið
féll svo dómurinn í Hæstarétti Ís-
lands honum í vil. Hann hefur hins
vegar verið kærður til lögreglu fyr-
ir skemmdarverk og mun þurfa að
svara fyrir þær sakir fyrir dómi.
Löng barátta
Tilurð málsins er sú að Valgarður
Sigurðsson, sjómaður og bóndi á
bænum Sigurðarstöðum á Mel-
rakkasléttu, hefur háð langa baráttu
við kerfið vegna byggðakvóta sem
hann telur að sveitarfélagið Norður-
þing hafi úthlutað ólöglega. Þann-
ig hafi hann fengið minni hlutdeild
í kvótanum en honum hafi borið.
Hann á helmingshlut í útgerðar-
félaginu Helgu ÞH ehf. á móti Guð-
mundi Elvari syni sínum.
Félagið á bátinn Helgu Sæm sem
er gerður út frá Kópaskeri. Fisk-
veiðiárin 2004 til 2005 og 2005 til
2006 var aflaheimildum ráðstafað
til Öxafjarðarhrepps á grundvelli
þágildandi reglugerða um úthlutun
byggðakvóta. Sveitarstjórnin átti að
skipta kvótanum jafnt á milli um-
sækjenda.
Strax í apríl 2005 óskaði Valgarð-
ur eftir rökstuðningi fyrir því hvers
vegna báturinn Áfram EA-69 fékk
byggðakvóta úthlutað. Í bókun á
fundi sveitarstjórnar þann 13. apríl
2005 um málið segir: „Ákvörðun
sveitarstjórnar á úthlutun byggða-
kvóta til Áfram EA 69 byggist á því
að umsókn þessa báts féll undir þær
úthlutunarreglur sem settar voru og
auglýstar.“
Árið eftir fengu þeir feðgar 20
tonnum úthlutað af byggðakvóta í
samræmi við tillögur sveitarstjórnar.
Þeir stefndu ríkinu þar sem þeir
töldu úthlutun kvótans árin tvö hafa
verið ólöglega. Bæði árin hafi komið
minna í hlut þeirra en ef úthlutunin
hefði verið í samræmi við gildandi
reglugerðir. Fyrir vikið hafi þeir orð-
ið fyrir milljóna króna tjóni og fóru
fram á skaðabætur frá ríkinu.
Valgarður gaf skýrslu fyrir dómi
þar sem hann sagði að félagið hefði
afsalað sér úthlutuðum byggða-
kvóta fiskveiðiárið 2004/2005 í mót-
mælaskyni. Þeir hefðu lagt upp
með væntingar um byggðakvóta við
stofnun fyrirtækisins, en útgerðinni
hefði aðeins fallið í skaut einn átt-
undi hluti af kvótanum, þrátt fyrir
það að einungis ein önnur útgerð
hefði verið starfandi á Kópaskeri
Nú loks er málinu lokið með
dómi Hæstaréttar Íslands, 7 árum
eftir að það hófst, þar sem þeir feðg-
ar báru sigur úr býtum. Íslenska
ríkið var dæmt til að greiða þeim
skaðabætur og málskostnað.
„Enn verið að brjóta á okkur“
Athygli vekur að tveimur dögum
áður en dómurinn féll skyldi Val-
garður sýna reiði sína með jafn
áþreifanlegum hætti og raun ber
vitni. Sjónarvottar segja að hann
hafi hellt úr olíubrúsa á bryggj-
una þegar hann var búinn að kasta
blómakerinu í bílinn.
Sigurður Elvar segir að þetta
fari allt saman í einn graut. „Hann
var bara orðinn mjög pirraður við
sveitar stjórn Norðurþings því það
er enn verið að brjóta á okkur með
þessari sérreglu sem þeir sömdu ný-
verið sem hleypir skipinu Karólínu
inn í byggðapottinn hér á skerinu,“
segir Sigurður Elvar.
„Samkvæmt rökstuðningi þá væri
það bæði eðlilegt og sanngjarnt að
útgerðir í sveitarfélaginu gætu bara
skráð bátanna hvar sem er í sveitar-
félaginu til þess að fá byggðakvóta
hvar sem er. Ráðuneytið er búið að
neita þessu og þeir eru búnir að fá
það í hausinn.“
Hann segir dómsmálið hafa tek-
ið mikið á þá feðga. Um skemmdar-
verk föður síns, segir hann: „Það er
lögreglumál og í því farvatni núna.
Þetta fer bara sína leið.“
Reiði sjómaðuRinn
vann í HæstaRétti
8 Fréttir 21. mars 2012 Miðvikudagur
Rannsókn gámamáls að ljúka
n Ríkisendurskoðun komin með öll gögn í málinu
R
íkisendurskoðun er komin vel
á veg með athugun sína á tug-
milljóna tjónabótum sem ís-
lenska ríkið greiddi Skafta
Jónssyni og Kristínu Þorsteinsdóttur
á síðasta ári. DV hefur undanfarna
mánuði fjallað ítarlega um mál-
ið en það snýst um bætur sem ríkið
greiddi hjónunum vegna vatnstjóns
sem varð á hluta búslóðar þeirra við
flutninga á milli Íslands og Banda-
ríkjanna. Ástæða flutninganna var að
Skafti, sem er starfsmaður íslensku
utanríkisþjónustunnar, var gerður að
sendiráðunaut í íslenska sendiráðinu
í Wash ingtonborg.
Sveinn Arason ríkisendurskoðandi
sagði í samtali við DV á þriðjudag að
rannsókn málsins væri komin vel á
veg. „Ég get ekki sagt hvenær við ljúk-
um þeirri yfirferð,“ sagði hann og bætti
við að málið væri þó vel á veg komið.
„Í síðustu viku vorum við að ræða við
fjármálaráðuneytið. Málið er á hægri
siglingu.“ Sveinn segir hins vegar að
það séu nokkrar vikur þangað til rann-
sókn málsins ljúki, búið sé að afla allra
gagna og aðeins nokkur viðtöl eftir.
Fyrr á árinu sagði hann að ástæðan
fyrir því að embættið hóf að skoða
gámamálið væri umræðan sem skap-
aðist í kjölfar þess að fimmtíu milljóna
króna aukaframlag til utanríkisráðu-
neytisins var samþykkt í fjáraukalög-
um fyrir síðasta ár.
Greiðslum til Skafta og Kristínar
var skipt niður í þrjár mismunandi
greiðslur og var stærstur hluti tjóna-
bótanna greiddur út í Bandaríkjadöl-
um. Fyrsta greiðslan var greidd strax
6. júlí 2011 en þá voru fjórar milljónir
greiddar til hjónanna frá trygginga-
félaginu sem tryggði lítinn hluta gáms-
ins. Þann 16. ágúst sama ár fengu þau
svo greiddar fimmtán milljónir króna
frá ríkinu og svo 16. nóvember fengu
þau 59 milljónir króna til viðbótar frá
ríkinu.
Gámurinn Svona var um að litast í gámnum þegar hann kom til hafnar í Bandaríkjunum.
Vilja láta
kjósa 30. júní
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd
Alþingis samþykkti á þriðjudags-
morgun að leggja það til að kosið
verði um tillögur stjórnlagaráðs
að nýrri stjórnarskrá samhliða
forsetakosningunum sem fara
fram þann 30. júní næstkomandi.
Um er að ræða ráðgefandi þjóðar-
atkvæðagreiðslu. Þjóðin verður
spurð um fimm atriði:
n Hvort náttúruauðlindir verði
lýstar þjóðareign.
n Hvort ákvæði um þjóðkirkju
skuli standa óbreytt.
n Hvort ákveðinn hluti þjóðar-
innar geti krafist þjóðaratkvæða-
greiðslu, þá 10 prósent, 15 prósent
eða 20 prósent þjóðarinnar.
n Spurt verður um vægi at-
kvæða kjósenda á landsvísu.
n Hvort innleiða eigi persónu-
kjör í meira mæli.
Að líkindum verður rætt um til-
lögurnar á Alþingi á miðvikudag.
Íslandsbanki
græðir
Hagnaður Íslandsbanka á árinu
2011 af reglulegri starfsemi, eftir
skatta, var 13,9 milljarðar, saman-
borið við 17,8 milljarða árið 2010.
Hagnaður ársins eftir skatta að
teknu tilliti til einskiptisliða, svo
sem væntra áhrifa gengislánadóms-
ins og niðurfærslu á viðskiptavild,
nam 1,9 milljörðum króna, saman-
borið við 29,4 milljarða 2010.
Þetta kemur fram í tilkynningu
frá bankanum, en þar segir Birna
Einarsdóttir bankastjóri að hagn-
aður af reglulegum rekstri á árinu
2011 hafi verið viðunandi. Áhrif
vegna gengislánadóms Hæstaréttar
í síðasta mánuði eru metin á 12,1
milljarð króna. Arion banki mat
áhrifin á 13,8 milljarða og Lands-
bankinn 38 milljarða króna. Sam-
tals nema áhrifin í uppgjöri stóru
bankanna þriggja því 63,9 millj-
örðum króna. Birna segir í tilkynn-
ingunni: „Þá hefur einnig verið
færð varúðarfærsla vegna nýfallins
gengislánadóms Hæstaréttar, en
ljóst er að hann hefur veruleg áhrif
á afkomu bankans. Afar mikilvægt
er að þeirri óvissu sem enn ríkir um
gengislánamálin verði eytt sem allra
fyrst.“
Misheppnaðir
sprengjumenn
Mennirnir sem límdu sprengju
á verslunina GÞ skartgripi og
úr í Bankastræti í Reykjavík á
þriðjudagsmorgun höfðu ekk-
ert upp úr krafsinu. Þrátt fyrir
mikinn hvell og öfluga sprengju
komust þjófarnir ekki inn í
verslunina. Þeir ollu þó nokkr-
um skemmdum engu að síður.
Mynd af mönnunum er til á
upptökum úr eftirlitsmyndavél-
um, en lögregla hefur ekki haft
hendur í hári þeirra. Sprengjan
sprakk um klukkan fimm að
morgni og heyrðist hvellurinn
víða. Mun vaktmaður í Stjórn-
arráðinu hafa látið lögregluna
vita, sem var snögg að bregð-
ast við, enda skammt síðan
sprengja sprakk við Hverfisgötu.
Reiður vegna byggðakvóta Sjómaðurinn skemmdi bíl Norðurþings út af deilum um
kvóta. Tveimur dögum síðar vann hann mál gegn íslenska ríkinu.
n Fékk dæmdar skaðabætur n Skemmdi bíl út af deilum um kvóta
„Hann var bara orð-
inn mjög pirraður
við sveitarstjórn Norður-
þings því það er enn verið
að brjóta á okkur.
Valgeir Örn Ragnarsson
blaðamaður skrifar valgeir@dv.is
7. mars 2012