Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2012, Síða 14
14 Erlent 21. mars 2012 Miðvikudagur
Ætlar að giftast kokki
n Susanne Eman ætlar að verða feitasta kona heims
H
ann getur hjálpað mér að ná
markmiði mínu,“ segir hin 33
ára Susanne Eman. Susanne,
sem er tveggja barna móðir og
vegur rúmlega 340 kíló, vinnur að því
að verða feitasta kona veraldar. Sus-
anne hefur nú fengið góðan hjálpar-
kokk, í orðsins fyllstu merkingu, við
að ná markmiði sínu því hún hefur
tekið saman við breska kokkinn Par-
ker Clack. Susanne lýsir því í sam-
tali við breska blaðið The Sun að þau
séu mjög hamingjusöm og passi vel
saman. „Við gætum ekki passað bet-
ur saman. Hann elskar að elda og ég
elska að borða,“ segir hún.
Parker er tveimur árum eldri en
Susanne en hún hefur sett sér það
markmið að verða yfir 700 kíló og þar
með langfeitasta kona heims. Þau trú-
lofuðu sig fyrir skemmstu og munu
ganga í hjónaband á næstu mánuð-
um ef allt gengur eftir. Susanne viður-
kennir að hæfileikar Clacks í eldhús-
inu hafi gert gæfumuninn. „Hvernig
get ég staðist mann með alla þessa
hæfileika í eldhúsinu,“ segir hún og
bætir við að gómsætur spaghetti-
réttur sem Clack eldar sé uppáhald-
ið hennar. „Ég get borðað hann allan
daginn,“ segir hún. Clack er fluttur inn
til Susanne og þau búa í Casa Grande
í Arizona í Bandaríkjunum.
Parker segist sjálfur styðja sína
heittelskuðu og segist ekki óttast um
heilsu hennar.
„Ég styð hana heilshugar og hún
gerir mig hamingjusaman. Ég kann
vel við íturvaxnar konur. Ég hef ekki
miklar áhyggjur af heilsufari henn-
ar. Hún verður glöð þegar hún fær að
borða.“
T
ólf strætisvagnabílstjórar í
Northamptonskíri á Eng-
landi eru 630 milljónum
króna ríkari hver eftir að
hafa unnið þann stóra í
EuroMillions-lottóinu síðastliðið
föstudagskvöld. Bílstjórarnir skiptu
með sér 38 milljónum punda, eða
tæplega 7,6 milljörðum króna. Bíl-
stjórarnir höfðu lagt saman í púkk
í hverri viku og keypt miða í lottó-
inu undanfarin þrjú ár. Einhverjir
voru farnir að velta því fyrir sér að
hætta þátttöku enda bæði dýrt að
taka þátt og möguleikarnir afar litl-
ir. Ellefu héldu þó áfram en sá tólfti
nagar sig líklega í handarbökin en
hann hætti þátttöku síðasta haust.
Vöktu alla nóttina
Dregið var út á föstudagskvöld og
áttu bílstjórarnir allir að mæta í
vinnu daginn eftir. Enginn þeirra
mætti hins vegar og er talið að
þeir muni allir segja upp störfum
á næstu dögum. Að minnsta kosti
einn er þegar hættur.
„Við hittumst þegar við áttuðum
okkur á þessu og spjölluðum saman
og drukkum te þar til Camelot var
opnað daginn eftir,“ segir John Noa-
kes, 49 ára, í samtali við The Daily
Mail, en Camelot er eins konar
skrifstofa EuroMillions-lott ósins í
Bretlandi. „Þannig að það var ekki
möguleiki að við myndum mæta í
vinnuna,“ segir hann. Þetta skap-
aði alls konar vandræði og þurftu
yfirmenn Stagecoach-strætis-
vagnafyrirtækisins, þar sem bíl-
stjórarnir starfa, að stökkva til og
aka vögnunum.
Noakes segir að afar litlar lík-
ur séu á að hann muni aftur keyra
strætisvagn en hann hefur verið
strætisvagnabílstjóri í sextán ár.
„Ég get bara talað fyrir sjálfan mig
en ég veit að ég mun ekki snúa aftur
til starfa. Aðrir eru í sömu hugleið-
ingum,“ segir hann og bætir við að
hann ætli að gefa eiginkonu sinni
fokdýra Aston Martin-bifreið í stað
gamallar Nissan Primera-bifreiðar
sem hún hefur ekið.
630 milljónir alveg nóg
Charles Connor, 40 ára, er einn-
ig í hópnum sem vann þann stóra.
Hann er ánægður með að félagar
hans hafi einnig unnið. „Það hefði
verið ógnvekjandi að vinna 7,6
milljarða. 630 milljónir er nógu
mikið,“ segir hann. Connor segir í
samtali við The Daily Mail að hann
hafi þurft að vinna fjórtán klukku-
stundir á sólarhring að meðaltali
til að ná endum saman. Því komi
vinningurinn sér afar vel. Hann
ætlar, líkt og Noakes, að kaupa sér
nýjan bíl en hann ætlar einnig að
fara í tungumálaskóla og sinna
áhugamáli sínu sem er golf. Annar
vinningshafi, Charles Gillion, sem
er 64 ára, ætlar að láta af störfum
síðar á árinu.
Sagði upp strax
David Mead er einn þeirra sem
sagði upp störfum nánast um leið
og hann frétti að hann hefði unn-
ið. „David átti að mæta í vinnuna á
laugardag. Hann hringdi í yfirmann
sinn og sagðist ekki ætla að mæta og
að hann væri hættur,“ segir bróðir
hans, Graham. David er fráskilinn
fjögurra barna faðir og segir Gra-
ham að bróðir sinn ætli að hugsa
vel um fjölskyldu sína og kaupa sér
nýjan bíl. Vinningstölurnar í Euro-
Millions-lottóinu á föstudag voru:
3, 4, 12, 23 og 50. Ofurtölurnar (e.
The Lucky Stars) voru 4 og 7. Fyrsti
vinningurinn hefur farið til Bret-
lands undanfarin fimm skipti.
n Unnu 7,6 milljarða í lottó n Enginn mætti í vinnu daginn eftir
Tólf stálheppnir
strætóbílstjórar
„Ég get bara talað
fyrir sjálfan mig
en ég veit að ég mun ekki
snúa aftur til starfa.
Einar Þór Sigurðsson
blaðamaður skrifar einar@dv.is
Sagði strax upp David Mead er einn
hinna heppnu bílstjóra. Hér er hann með
systur sinni. Mead hringdi í yfirmann sinn og
sagði upp um leið og hann áttaði sig á að
hann hefði hreppt þann stóra.
Draumabíllinn
John Noakes er mikill
áhugamaður um bíla.
Hann ætlar að láta
drauminn rætast
og skipta út Nissan
Primera-bifreið fyrir
Aston Martin.
Hamingja Susanne segir að hún og Clack passi fullkomlega saman. Hann elski að elda og
hún elski að borða. Umfram allt elska þau þó hvort annað.
Vill ekki
leyfa sam-
kynhneigð
Ellen Johnson Sirleaf, forseti Líb-
eríu, er þeirrar skoðunar að hjóna-
band samkynhneigðra eigi áfram
að vera ólöglegt í landinu. Ellen,
sem þykir nokkuð umbótasinnuð,
hlaut friðarverðlaun Nóbels á
síðasta ári. „Við kunnum vel við
okkur á þeim stað sem við erum,“
sagði Ellen í samtali við blaða-
mann The Guardian en ummælin
lét hún falla eftir fund með Tony
Blair, fyrrverandi forsætisráðherra
Bretlands.
Málefni samkynhneigðra í Líb-
eríu eru ofarlega í umræðunni þar
í landi enda liggur frumvarp fyrir
þinginu sem gerir ráð fyrir að refs-
ing fyrir samkynhneigð verð hert.
Verði frumvarpið að lögum geta
samkynhneigðir í Líberíu átt von á
allt að tíu ára fangelsi.
Talinn hafa
myndað árásina
Byssumaðurinn sem hóf skot-
hríð við gyðingaskóla í borginni
Toulouse í Frakklandi á mánudag
er talinn hafa myndað árásina.
Þrjú börn og kennari létust í árás-
inni. Samkvæmt sjónarvottum
kom maðurinn akandi á vespu
að skólanum þar sem hann hóf
skothríð. Rannsókn málsins er í
fullum gangi. Lögregla telur að
ódæðismaðurinn sé einn þriggja
hermanna sem voru reknir úr
franska hernum en mennirnir áttu
það allir sameiginlegt að aðhyllast
nýnasisma. Lögregla rannsakar
einnig hvort árásarmaðurinn hafi
myndað atvikið en innanríkisráð-
herra Frakklands, Claude Gueant,
gaf í skyn á blaðamannafundi að
árásarmaðurinn hafi verið með
einhvers konar upptökubúnað
utan á sér þegar hann gerði árás-
ina.
Með sjónvarp
í buxunum
Yfirvöld í Minnesota í Bandaríkj-
unum hefur ákært 21 árs karl-
mann, Eric Lee King, fyrir að
stela sjónvarpi úr verslun í borg-
inni. Óhætt er að segja að aðferð
mannsins hafi verið frumleg því
hann stakk sjónvarpinu ofan í
buxurnar sínar áður en hann gekk
út. Maðurinn var gómaður þegar
öryggisvörður tók eftir einkenni-
legu göngulagi Erics fyrir utan
verslunina. Kom þá í ljós að í bux-
unum var 19 tommu flatskjár. Þá
hafði hann troðið í buxurnar fjar-
stýringu fyrir sjónvarpið og nauð-
synlegum snúrum. Dómur í mál-
inu verður kveðinn upp á næstu
vikum.