Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2012, Blaðsíða 16
Sandkorn
Þ
ú færð strax það sem þig
vantaði til að líða vel. Fyrsti
skammturinn er gefins. Þú
getur fengið það hvar og hve-
nær sem er. Taktu bara upp
farsímann þinn.
Í dag eru smálánafyrirtækin á Ís-
landi orðin fimm. Þau lána aðallega til
ungs fólks, sem hefur takmörkuð fjár-
ráð og er líklegt til taka lán með 600%
ársvöxtum í gegnum farsímann sinn
til að geta gert eitthvað skemmtilegt.
„Lifðu núna“, er mottó eins farsímafyr-
irtækisins sem er í samstarfi við smá-
lánafyrirtækin, og „stærsti skemmti-
staður í heimi“, er mottó annars.
Fyrir unga manneskju getur eitt
smálán breytt öllu. Hin tæplega tví-
tuga Júlía Marie Crawford lýsti þessu í
viðtali við DV á mánudaginn.
„Þetta byrjaði mjög saklaust en ég
átti engan pening og fannst tilvalið
að taka bara eitt 10.000 króna lán. Ég
hugsaði með mér að ég gæti alveg
borgað 12.000 krónur um mánaða-
mótin. Þetta varð þó fljótlega að víta-
hring því ég komst að því að maður
tekur aldrei bara eitt lán. Þetta er svo
þægilegt og þú getur, hvenær sem er,
fengið peninga beint inn á reikning-
inn,“ útskýrir hún. Síðan byrjuðu þeir
að senda sms-skilaboð og bjóða smá-
lán í tíma og ótíma, eins og dópsalinn
sem heldur viðskiptavinum sínum við
efnið.
Smálán og dóp hafa sambærilega
virkni. Dópið gengur út á að fá sælu
strax. Fólk vill öðlast stóran skammt
af hamingju hratt, án þess að vinna
fyrir henni. Svo borgar það fyrir með
vanlíðan þegar áhrifin hverfa. Á end-
anum þarf meira dóp til að borga fyrir
vanlíðunina sem dópið veldur, bara til
að vera venjulegur. Smálán er líka tæki
til að öðlast skammt af vellíðan strax,
án þess að hafa unnið fyrir henni.
Þeir festast í vítahring og verða að
nota meira og meira. Helsta markaðs-
trikk dópsala er að bjóða óspjölluðum
ungmennum ókeypis dóp. Nú auglýsir
eitt smálánafyrirtæki að fyrsta lánið
sé vaxtalaust. Þegar fólk hefur fengið
smakk og er komið á bragðið byrja
vextirnir. Meira að segja handrukkarar
furða sig á 600% vöxtum. Þeir rukka
yfirleitt ekki meira en 100% vexti á ári.
Smálánafaraldurinn byrjaði í
Finnlandi árið 2005. Þaðan dreifðust
smálánin yfir Skandinavíu og síðar
til Íslands. Í upprunalandinu, Finn-
landi, eru nú þrjú hundruð þúsund
manns í vanskilum með slík lán. Það
er engin tilviljun að smálánin dreifast
svona hratt út. Þetta er gróðavænlegur
bransi. Eitt smálánafyrirtækið skilaði
rúmlega 14 milljóna króna hagn-
aði árið 2010, sem verður að teljast
gott hjá nýstofnuðu fyriræki. Síðan þá
hefur þeim fjölgað hratt hér á landi. Í
Finnlandi er hins vegar í undirbúningi
að setja lög til að vernda ungt fólk fyrir
lánunum.
Það er auðvelt að segja að það sé
heimskulegt að taka smálán og að
fólk geti kennt sjálfu sér um. Sama
má auðvitað segja um dóp, en það
er ólöglegt. Smálánafyrirtækin hafa
ekki hvatt til skynsamlegrar notkunar,
heldur þvert á móti. Þau segja að smá-
lán séu til dæmis ætluð til að kaupa
ferðatösku, þegar maður hefur ekki
efni á henni, svo maður komist í utan-
landsferðina. Þeir auglýsa auðvitað
ekki vöruna út frá líklegustu notkun-
inni á henni, að fólk taki smálán til að
geta farið út að skemmta sér, til að lifa
núna, og taka jafnvel enn annað smá-
lán á stærsta skemmtistað í heimi.
Heiðarleg nefnd
n Kosning Heiðars Más Guð-
jónssonar, fjárfestis og krónu-
gagnrýnanda, í efnahags- og
viðskiptanefnd Sjálfstæðis-
flokksins um síðustu helgi er
áhugaverð
fyrir margra
hluta sakir.
Heiðar Már
hefur talað
fyrir því að
Íslendingar
taki upp aðra
mynt, til dæmis Kanadadoll-
ar eða evru. Þessi skoðun fer
þvert gegn sýn valdamanna
í flokknum eins og Davíðs
Oddssonar en sýnir hugsan-
lega að Bjarni Benediktsson
er hallari undir gjaldmiðla-
breytingar en hann vill vera
láta. Í öðru lagi var Heiðar
Már til rannsóknar hjá Seðla-
bankanum út af brotum á
gjaldeyrishaftalögum og
sendi bankinn fjögur slík mál
til sérstaks saksóknara í fyrra.
Ekki er vitað hvort mál Heið-
ars var eitt þeirra en ljóst er
Seðlabankinn neitaði að selja
tryggingafélagið Sjóvá til
Heiðars Más vegna þessarar
rannsóknar.
Vík milli vina
n Ársæll Valfells, kennari í
viðskiptafræði og fjárfestir,
var einn þeirra sem ætlaði að
kaupa tryggingafélagið Sjóvá
með Heiðari Má Guðjónssyni í
lok árs 2010. Seðlabanki Ís-
lands var hins vegar ekki
hrifinn af því að selja trygg-
ingafélagið til
hóps tengd-
um Heiðari
vegna rann-
sóknar bank-
ans á meint-
um brotum
hans á gjald-
eyrishaftalögum. Heiðar Már
stefndi DV í kjölfarið vegna
frétta um stöðutöku hans
gegn krónunni á árunum
2006 og 2007 og ráðagerð
hans um stórfellda stöðu-
töku fyrirtækja Björgólfs Thors
Björgólfssonar gegn íslensku
viðskiptalífi. Nú hefur verið
greint frá því í fjölmiðlum að
Ársæll hafi komið gögnum til
DV um Guðlaug Þór Þórðar-
sonar, að undirlagi Gunnars
Andersen. Ljóst er þessi tíð-
indi hafa ekki farið vel í Heið-
ar Már sem á í málaferlum
við blaðið.
Hættu báðir
n Mál Gunnars Andersen er
eitt farsakenndasta mál sem
verið hefur í opinberri um-
ræðu á Íslandi lengi. Stöð-
ugt koma nýir vinklar fram í
málinu: Landsbankamaður
með áratuga starfsreynslu
kemur fram á sjónarsvið-
ið sem maðurinn sem sótti
gögnin um Guðlaug Þór og
kennari í viðskiptafræði, Ár-
sæll Valfells, tengist málinu
einnig. Það sem tengir þre-
meningana saman er að þeir
unnu allir í Landsbankanum
fyrir einkavæðingu. Gunnar
og Ársæll hættu báðir þegar
Björgólfsfeðgar keyptu hann,
að sögn vegna þess að þeim
leist ekki á kaupendurna. Þá
var Gunnar vitni í Hafskips-
málinu þar sem Björgólfur
eldri var dæmdur fyrir efna-
hagsbrot. Síðan hefur andað
köldu á milli þeirra.
Þetta er ekkert
öðruvísi hér
Ég var ekki með
nein leiðindi
Björn Bragi Arnarsson tók yfirmenn 365 fyrir á árshátíð fyrirtækisins. – DV
Smálán eru dóp
Á
hyggjur hafa vaknað um það
meðal stjórnmálaskýrenda í
Tyrklandi að landið stefni í átt
til einræðis. Talið er líklegt að
forsætisráðherra landsins, Recep Er-
dogan, muni reyna að verða forseti
landsins árið 2014 og reyni í kjölfarið
að breyta eðli tyrkneska ríkisins með
því að láta forsetaembættið verða það
valdamesta í landinu.
Sökum þessa, meðal annars, er
byrjað að bera Erdogan saman við
Vladimir Pútín, forsætisráðherra
Rússlands, sem lét Dmitri Medvedev
taka við af sem sér sem forseti lands-
ins og gegndi sjálfur embætti forsætis-
ráðherra á meðan. Erdogan gæti, ef af
þessu verður, gegnt forsetaembættinu
til ársins 2024. Hugsanlegt er að nú-
verandi forseti, Abdullah Gul, taki þá
við af honum sem forsætisráðherra á
meðan. Fjallað var um þessa mögu-
leika í bandaríska blaðinu The New
Yorker í síðustu viku.
Tyrkland hefur stært sig af því í
sögu sinni sem þjóðríkis að vera ver-
aldlegt ríki, allt frá því Mustafa Kemal
Ataturk bjó Tyrkland nútímans til á
þriðja áratug síðustu aldar eftir fall
Ottó manaveldisins í fyrri heims-
styrjöldinni. Ataturk gerði fjölmarg-
ar róttækar breytingar á samfélags-
háttum Tyrklands: lagði meðal annars
arabíska stafrófið niður og tók upp
það latneska, veitti konum kosninga-
rétt og bannaði trúarlegan klæðaburð
kvenna eins og slæður og innleiddi
lög og reglur sem miðuðu að því að
minnka vægi trúarbragða í samfé-
laginu. Ataturk lagði sömuleiðis mikið
upp úr því að auka læsi meðal íbúa
Tyrklands. Þessar breytingar voru
byggðar á hugmyndum frönsku upp-
lýsingarinnar sem Ataturk kynnti
sér sem ungur maður, meðal annars
Montesquieu og Voltaire. Ataturk var
í fáum orðum sagt mjög vestrænn í
hugsun og vildi steypa tyrkneskt sam-
félag í það mót.
Þetta veraldlega eðli tyrkneska
þjóðríkisins er nefnt eftir Ataturk og er
talað um kemalisma í því sambandi.
Tyrkneski herinn er sú stofnun ríkis-
ins sem sögulega séð er sú sterkasta í
landinu og hefur hún staðið vörð um
þetta veraldlega eðli ríkisins sem nefnt
er eftir Ataturk. Herinn hefur því, allt
frá dögum Ataturks – hann lést á fjórða
áratugi síðstu aldar – getað ráðið póli-
tískum niðurlögum stjórnmálaleiðtoga
ef þeir hafa brotið gegn kemalism-
anum. Tyrkneski herinn hefur þannig
steypt þremur forsætisráðherrum
landsins af stóli síðastliðna áratugi.
Bakgrunnur Erdogans er annar en
kemalískur þar sem forsætisráðherr-
ann er mjög trúaður múslími. Erdog-
an, sem þá var borgarstjóri Istanbúl,
var til að mynda varpað í fangelsi árið
1998 fyrir að fara með ljóð opinber-
lega sem talið var hafa trúarlegt inn-
tak. Flutningur Erdogans á ljóðinu var
talinn brjóta gegn stjórnarskrá Tyrk-
lands og veraldlegu eðli ríkisins. Þess
vegna hefur verið talsverð togstreita á
milli Erdogans og hersins frá því hann
tók við völdum árið 2002.
Erdogan ákvað til dæmis að senda
dætur sínar tvær í skóla til Bretlands
og Bandaríkjanna þar sem kvenfólk í
Tyrklandi mátti ekki hylja hár sitt með
slæðum, að múslímskum sið, opin-
berlega vegna þess að slíkt var talið
stríða gegn þeim veraldlegu gildum
sem einkenna kemalismann. „Ég er
faðir sem þjáist,“ sagði Erdogan um
bannið í viðtali við franska sjónvarps-
stöð fyrir átta árum. Síðan þetta gerð-
ist hefur Erdogan afnumið slæðu-
bannið í Tyrklandi.
Togstreitan á milli Erdogans og
tyrkneska hersins hefur meðal annars
birst í því að nú standa yfir réttarhöld
í Tyrklandi þar sem 150 yfirmenn í
hernum og undirmenn þeirra hafa
verið ákærðir fyrir að ætla að steypa
Erdogan af stóli í aðgerð sem kölluð
var Ergenekon. Einhverjir af þeim
yfirmönnum hersins sem ákærðir eru
eru taldir hafa komið að því að hand-
taka og rétta yfir Erdogan árið 1998.
Með þessum aðgerðum gegn hernum
getur Erdogan veikt tyrkneska herinn
og gert hann tortryggilegan, grafið
undan honum og trú almennings í
landinu á hann þannig að hann hætti
að verða öflugasta stofnun ríkisins,
líkt og hann hefur verið í áratugi.
Talið er að þetta sé liður í þeirri
viðleitni Erdogans að auka völd sín í
Tyrklandi enn meira því ef grafið hef-
ur verið undan hernum er enginn að-
ili sem gæti komið forsætisráðherran-
um frá völdum og hann getur einbeitt
sér að því að styrkja valdagrunn sinn
betur. Ef Erdogan tekst þetta og nær
að verða forseti landsins árið 2014, og
í kjölfarið auka völd þess embættis,
gæti hann reynt að breyta hinu ver-
aldlega eðli tyrkneska ríkisins sem er
bundið í stjórnarskrá þess. Viðleitni
Erdogans í kjölfarið gæti verið að
auka vægi trúarinnar í samfélaginu, á
kostnað veraldlegra þátta, með form-
legum hætti. Slíkt væri róttæk breyt-
ing á stjórnskipun tyrkneska ríkisins.
Í átt til einræðis
Útgáfufélag: DV ehf. Stjórnarformaður: Lilja Skaftadóttir Ritstjórar: Jón Trausti Reynisson (jontrausti@dv.is) og Reynir Traustason (rt@dv.is) Fréttastjóri: Ingi Freyr Vilhjálmsson (ingi@dv.is)
Umsjón helgarblaðs: Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir (ingibjorg@dv.is) Umsjón innblaðs: Kristjana Guðbrandsdóttir (kristjana@dv.is) Framkvæmdastjóri: Stefán T. Sigurðsson (sts@dv.is)
Sölu- og markaðsstjóri: Heiða B. Heiðarsdóttir (heida@dv.is) Hönnunarstjóri: Jón Ingi Stefánsson (joningi@dv.is) Umbrot: DV Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur DV á netinu: DV.is
F R J Á L S T, Ó H Á Ð D A G B L A Ð
Heimilisfang
Tryggvagötu 11
Hafnarhvoli, 2. hæð
101 Reykjavík
FRéTTASkoT
512 70 70 DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
512 7000
512 7010
512 7080
512 7050
AÐALnúmeR
RiTSTJÓRn
ÁSkRiFTARSími
AuGLýSinGAR
16 21. mars 2012 Miðvikudagur
Gunnar Sigurjónsson kannast ekki við óánægu meðal foreldra fermingarbarna. – DV
Leiðari
Jón Trausti Reynisson
jontrausti@dv.is
„Meira að segja
handrukkarar furða
sig á 600% vöxtum.
Kjallari
Ingi Freyr
Vilhjálmsson
Erdogan gæti orðið forseti Recep Erdogan sést hér annar frá hægri. Abdullah Gul forseti er fyrstur frá vinstri á myndinni. Mikil togstreita er milli
Erdogans og hersins í landinu. Talið er líklegt að Erdogan reyni að verða forseti landsins árið 2014.