Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2012, Síða 18
E
ld
sn
ey
ti Bensín Dísilolía
Algengt verð 262,5 kr. 263,4 kr.
Algengt verð 262,3 kr. 263,2 kr.
Höfuðb.sv. 262,2 kr. 263,1 kr.
Algengt verð 262,5 kr. 263,4 kr.
Algengt verð 264,7 kr. 263,4 kr.
Melabraut 262,3 kr. 263,2 kr.
18 Neytendur 21. mars 2012 Miðvikudagur
Gott sushi
n Lofið að þessu sinni fær sushi-
staðurinn Su Sushi í Kringlunni en
viðskiptavinur er ánægður
með staðinn. „Ég er mjög
hrifinn af sushi og fer iðu-
lega á Su Sushi. Ástæðan
fyrir því er sú að þar
fær maður mjög gott
sushi á sanngjörnu
verði,“ segir viðskipta-
vinurinn ánægði.
Allt of stuttur
skilafrestur
n Lastið fær Rúmfatalagerinn, en
fastur viðskiptavinur verslunarinn-
ar sendi eftirfarandi: „Ég kaupi tals-
vert af garni hjá Rúmfatalagernum
og hef fyrir vana að taka eina auka-
hespu í staðinn fyrir að vera með of
lítið garn og fá ekki sama litanúmer.
Allt í einu eru komin tímatakmörk á
skilafrest, einn mánuður. Ef verið er
að prjóna stóra flík eða bara gripið í
prjónana eins og svo margir gera er
þetta allt of stuttur tími.“
DV hafði samband
við Rúmfatalager-
inn og fékk þau svör
að þetta væri ekki
regla sem verslun-
in vinnur eftir. „Það
er búið að hafa samband
við alla verslunarstjóra
og þeir staðfestu að slíkar
reglur um skilafrest ættu
ekki við þar. Líklegast hefur verið
misskilningur hjá starfsmanni
sem viðskiptavinurinn ræddi við
en við tökum alltaf garn til baka, ef
eitthvað er að. Þá þarf viðkomandi
að vera með kassakvittun en það á
ekki að vera neinn ákveðinn tími
sem hann hefur til að skila. Versl-
unarstjórar ætla að ítreka þetta við
starfsfólkið og við vonum að við-
komandi komi og skipti garninu
hjá okkur. Okkur finnst afar leiðin-
legt að heyra þetta.“
SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS
Lof&Last
Finndu glufurnar
í skattframtalinu
n Þú gætir átt inni vaxtabætur n Gætir fengið ívilnun ef þú hefur ungling á framfæri þínu
1 Skuldir á
réttan stað
Helstu mistökin sem fólk
gerir eru líklega þau að
skrá skuldir í ranga reiti
og verða þannig af vaxta-
bótum. Borið hefur á því
að forskráðar upplýsingar um
lán vegna íbúðarkaupa séu settar í reit
5.5 þegar það á að skrá þær í 5.2. Reitur
5.5. gefur ekki rétt til vaxtabóta og því
mikilvægt að setja ekki íbúðarkaupalán
þar. Öll önnur lán fara hins vegar í þann
reit, einnig lán sem voru fengin með veði
í húsnæðinu.
Á síðunni skatt.is segir að stofnunin
hafi fengið nokkur framtöl á síðasta
ári þar sem framteljendur fengu ekki
vaxtabætur vegna mistaka í framtölum.
Þetta hafi gerst jafnvel í nokkur ár en þar
segir jafnframt að hægt sé að leiðrétta
slík mistök aftur í tímann. Það geti þó
verið erfitt að finna gögn sem þurfi til að
styðjast við, ef langt er um liðið.
2 Kaupleiga og
búseturéttur veita
rétt til vaxtabóta
Þeir sem keypt hafa búseturétt eða
eignarhlut í kaupleiguíbúð eiga rétt á
vaxtabótum vegna vaxtagjalda sem inn-
heimt eru með leigugjöldum, auk vaxta-
gjalda vegna lána sem tekin eru vegna
kaupa á búseturétti eða eignarhlut.
3 Unglingurinn
frádráttarbær
Hægt er að sækja um ívilnun hafi fram-
teljandi ungmenni á framfæri sem er
við nám eða hefur af öðrum ástæðum
það lágar tekjur að þær duga ekki til
framfærslu. Hér er fyrst og fremst átt
við ungmenni á aldrinum 16 til 21 árs og
sé ungmennið í skóla þarf að tilgreina í
hvaða skóla. Ekki er hægt að sækja um
ívilnun ef námið veitir rétt rétt til náms-
lána. Miðað er við að ungmennið hafi
ekki haft nægjanlegt ráðstöfunarfé á
árinu og miðast því lækkun á tekjustofni
framfæranda við tekjur þess. Mest
lækkun er 317.000 krónur miðað við að
ungmennið hafi engar tekjur haft. Frá
þessari upphæð dregst þriðjungur af
tekjum ungmennisins þannig að þegar
tekjur þess eru orðnar 915.000 krónur
fellur réttur til ívilnunar niður.
Hún skiptist jafnt á milli framfærenda
og ef foreldrar hafa slitið samvistir geta
báðir aðilar sótt um ívilnun sem skiptist
þá jafnt á milli þeirra.
4 Haka við
slysatryggingu
Sértu ekki slysatryggður hjá tryggingar-
félagi er ráðlegt að haka við þetta á
forsíðu framtalsins. Með því tryggir þú
þér rétt til slysabóta almannatrygginga
vegna slysa við heimilisstörf. Það er sami
réttur og vegna vinnuslysa. Slysabæt-
urnar eru; slysadagpeningar, greiðsla
sjúkrakostnaðar eftir ákveðnum reglum,
örorkubætur ef slysið leiðir til örorku og
dánarbætur ef slysið veldur dauða innan
tveggja ára. Iðgjaldið vegna þessa er
innheimt ásamt opinberum gjöldum og
er það 450 krónur fyrir 2012. Tryggingin
gildir aðeins ef framtalinu er skilað á
réttum tíma.
Það er öllum heimilt að haka í þennan
reit, burtséð frá því hvers konar trygg-
ingar er um að ræða.
5 Ökutækjastyrkur
Færir þú inn ökutækjastyrk er frádráttur
á móti settur í reit 2.6. Frádrátt á móti
ökutækjastyrk má færa ef
bifreið launþega hefur
verið notuð vegna akst-
urs í þágu vinnuveitanda.
Sé akstur launagreiðanda
ekki umfram 3.000
kílómetra á ári er nóg að
launamaður fylli út eyðublaðið RSK
3.04 að hluta. Skilyrði er að hann haldi
akstursdagbók eða skýrslu eða hafi gert
skriflegan samning við launagreiðanda.
Hafi verið greitt fyrir meira en 3.000
kílómetra þarf að fylla út lið 3, 4 og 5. Sé
það ekki gert takmarkast frádráttur við
kílómetragjald fyrir 3.000 kílómetra.
6 Dagpeningar
Færir þú inn dagpeninga er frádráttur á
móti settur í 2.6.
Á móti fengnum dagpeningum er
heimilt að færa til frádráttar ferða- og
dvalarkostnað sem launþegi hefur greitt
vegna ferða á vegum launagreiðanda.
Frádrátturinn getur ekki orðið hærri en
þær fjárhæðir sem eru í skattmati. Upp-
lýsingar um fjárhæðir má sjá í bæklingi
um skattframtal 2010 á rsk.is.
7 Leigutekjur
á réttan stað
Það þarf að passa að setja ekki leigu-
tekjur í sama reit og aðrar tekjur. Heimilt
er að draga frá leigugjöld af húsnæði og
á sama tíma leigugjöld vegna íbúðarhús-
næðis til eigin nota er heimilt að draga
leigugjöldin frá leigutekjum. Leyfist
eingöngu á móti leigutekjum af íbúðar-
húsnæði sem ætlað er til eigin nota. Á
framtali sem leigutekjur færist jákvæður
mismunur í reit 510, þ.e.
leigutekjur þegar frá þeim
hefur verið dregin greidd
leiga. Neikvæður mismunur
færist ekki inn í framtal.
8 Samsköttun
getur borgað sig
Hjón eru samsköttuð en einstaklingar í
óvígðri sambúð eiga rétt á að telja fram
og vera skattlagðir sem hjón. Skilyrði fyrir
samsköttun eru að þau eigi barn saman
eða eigi von á barni eða að sambúðin hafi
varað í samfellt eitt ár hið skemmsta.
Oftast nær borgar það sig að sam-
skatta og sér í lagi ef annar aðilinn er
með mun lægri tekjur en hinn. Þá getur sá
tekjuhærri nýtt persónuafsláttinn.