Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2012, Síða 20
20 Lífsstíll 21 mars 2012 Miðvikudagur
Losaðu þig við stressið!
n Nokkur lítil og stresslosandi ráð
Stutt geðfrí
Taktu þér nokkurra mínútna
frí á annasömum vinnudegi
fyrir geðheilsuna. Lokaðu aug-
unum og ímyndaðu þér að
þú sért á rólegum stað eins
og strönd eða uppi á fjalli.
Hugsaðu vel út í smáatriðin á
staðnum og reyndu að gleyma
annríki vinnunnar í smá-
stund. Ef þetta virkar kemur
þú endur nýjaður til starfa á ný
eftir stutta fríið!
Ekki borða við skrifborðið
Þótt það sé mikið að gera
skaltu samt gefa þér tíma til
þess að borða. 10 mínútna
pása í öðru umhverfi getur
gert gæfumuninn fyrir daginn.
Ræddu málin
Ef eitthvað er að pirra þig,
talaðu þá um það. Að koma
vandamálunum í orð getur oft
losað um þau. Ef þau eru þess
eðlis að þú getir ekki talað um
þau, þá skaltu skrifa lista. Oft
eru vandamálin minni þegar
maður nær utan um þau á
þennan hátt.
Vertu ánægð/ur með það
sem þú átt
Hjá mörgum fer alltof mikil
orka í að velta fyrir sér hvað
maður gæti haft það miklu
betra. Hættu að hugsa um allt
sem þig langar í og hugsaðu
um allt það góða sem þú átt
nú þegar.
Andaðu djúpt
Klassískasta ráðið í bókinni og
kannski það besta? Eins auð-
velt og það er þá virðist það
alltaf virka að draga djúpt and-
ann og hugsa í smástund. Ekki
láta stressið ná yfirhöndinni.
Önnur
persóna
á pillunni?
Margar hormónastýrðar
getnaðarvarnir hafa auka-
verkanir sem geta haft tölu-
verð áhrif á líðan stúlkna og
kvenna. Vert er að hafa þess-
ar aukaverkanir í huga og ef
þær verða ólíðandi þá er ráð
að skipta um vörn.
Hér eru lausnir fyrir þær
allra algengustu:
Höfuðverkur og
brjóstaeymsli
Lausn: Þolinmæði.
„Þessar aukaverkanir dvína
þegar líkaminn hefur vanist töku
getnaðarvarnarlyfjanna,“ segir
Hilda Hutcherson, kvensjúkdóma-
læknir við Columbia-háskólann í
New York.
n Ef þessar aukaverkanir hverfa
ekki þá þarf að skipta um vörn.
Ógleði
Lausn: Þolinmæði
og rétt mataræði.
Reyndu að halda
blóðsykrinum
jöfnum og ef
getnaðarvörnin er
í pilluformi er ráð að
borða mat áður en hún er tekin inn.
n Ef ógleðin fylgir notkun hringsins
eða getnaðarvarnarplástra er ráð
að skipta um vörn.
Milliblæðingar
Lausn: Samtal við kvensjúk-
dómalækni. Íbúprófen eða auka
estrógeninntaka.
„Milliblæðingar eru sú aukaverkun
sem konum þykir hvimleiðust,“
segir dr. Hilda.
„Milliblæð-
ingar verða
einkum
vegna
töku á
mini-pillunni
og prógestín-
getnaðarvarna.
Þær henda vegna þess að
slímhúðin þynnist sem er jákvætt
að einhverju leyti vegna þess að
stundum stöðvast þær alveg sem
mörgum konum þykir ágætt.“
Minnkuð kynhvöt:
Lausn: Skiptu strax um
getnaðarvörn.
Til hvers að halda í getnaðarvörn
sem minnkar
kynhvöt
það mikið
að hennar
gerist
ekki þörf.
Kvenlæknar
mæla með því
að skipta um getnaðarvörn
og fá þá tegund sem inniheldur
andrógen.
Skapsveiflur
Lausn: Ef getnaðarvörninni
er um að kenna þarf að skoða
getnaðarvarnir án hormóna. Svo
sem koparlykkjuna.
„Ef konur tengja
þunglyndi,
depurð og
skapsveiflur
við getnaðar-
varnir dugar
ekki að skipta
um tegund. Þá
þarf að finna leið til að koma í veg
fyrir barneignir án aðstoðar horm-
óna,“ segir dr. Hilda Huthcherson.
A
ugun eru stundum
kölluð spegill sál-
arinnar en hvern
hefði grunað að
það hvert við bein-
um augum okkar gefi skýr
merki um tilfinningar okkar?
Getur augnatillitið eitt gefið
merki um það hvort kona er
hrifin af karlmanni?
Í nýlegri rannsókn var at-
hugað hvernig og hvert kon-
ur horfa þegar þær eru hrifn-
ar af karlmanni við fyrstu
kynni. Rannsóknin gefur
til kynna að á þeim 45 sek-
úndum sem líða frá fyrstu
kynnum séu greinileg merki
um hrifningu mjög svipuð á
milli kvenna. Helstu merkin
felast í augnaráðinu.
Ef hún hrífst af þér
Konur sem horfa til hliðar
eða niður á við í nánd við
karlmenn eru oft álitnar
áhugalausar. Það er alrangt,
það er reyndar sterkasta
merki um hrifningu.
Höfundurinn Ali Camp-
bell gerir grein fyrir þessu í
nýrri bók sinni, More than
Just Sex, og lýsir augna-
ráðinu. Ef kona hrífst af karl-
manni lítur hún niður og til
hliðar áður en hún myndar
augnsamband við þig.
Þessi hreyfing augna
merkir að innra með sér
tengist hún tilfinningum sín-
um. Í stuttu máli sagt, henni
líkar vel við þig en hugsar
með sér hversu mikið.
Þetta er það sem allir
karlmenn ættu að vilja sjá
séu þeir hrifnir af tiltekinni
konu, segir Campbell.
Ef hún hrífst ekki af þér
Áhugaleysi kvenna er merkj-
anlegt með því að þær líta
venjulega ekki niður á við
eða til hliðar áður en þær
horfa beint í augu karl-
manna. Horfi konur yfir höf-
uð karlmanna eða til vinstri
við höfuð þeirra er það til
marks um að hún hafi þegar
tekið ákvörðun um að við-
komandi sé ekki þess virði
að hugsa meira um.
Ef hún horfir snöggt beint
í augu karlmanns og lít-
ur svo annað er það slæmt
merki.
n Kona horfir beint í augu þeirra karlmanna sem hrífa hana ekki
Slakaðu á! Taktu þér
smátíma í dagsins önn til
að slaka á og ná áttum.
Ástin er í
augunum