Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2012, Side 23
Afmæli 23Miðvikudagur 21. mars 2012
21. mars
40 ára
Sigurgeir Benjamínsson Eiðsvallagötu 11,
Akureyri
Hulda Pétursdóttir Ásbraut 21, Kópavogi
Sigurður Ingi Friðriksson Urðargili 8,
Akureyri
Sigurþóra Steinunn Bergsdóttir Nesvegi
123, Seltjarnarnesi
Brynja Böðvarsdóttir Keilugranda 8, Rvk.
Hróðný Njarðardóttir Keilugranda 2,
Reykjavík
50 ára
Seth Semando Surban Eskihlíð 12, Reykjavík
Friðrika Eygló Gunnarsdóttir Furugrund
31, Akranesi
Auður Þóra Árnadóttir Lækjarbergi 10,
Hafnarfirði
Eyþór Rafn Gissurarson Marklandi 8, Rvk.
Hannes Guðmundsson Laugarásvegi 9,
Reykjavík
Ingibjörg G. Haraldsdóttir Hörðukór 3,
Kópavogi
Sólveig Jónasdóttir Breiðuvík 24, Reykjavík
Árni Jökull Guðmundsson Hvammsdal
11, Vogum
60 ára
Benedikt Sveinbjörnsson Hraunprýði,
Hellissandi
Svava Jónsdóttir Baðsvöllum 7, Grindavík
Haukur Sævar Halldórsson Tröllakór 16,
Kópavogi
Magnús Þorgrímsson Gunnlaugsgötu 4,
Borgarnesi
Sigríður Björg Einarsdóttir Hörðukór 1,
Kópavogi
Árni Bragason Einigrund 8, Akranesi
Matthías Pálsson Vallarbraut 1, Akranesi
Jón Gestsson Helgamagrastræti 11, Akureyri
70 ára
Elín Guðmundsdóttir Sörlaskjóli 84,
Reykjavík
Sigríður M. Tómasdóttir Kleppsvegi 140,
Reykjavík
Guðmundur Steingrímsson Reynilundi 8,
Akureyri
Arnaldur Snorrason Melateigi 17, Akureyri
75 ára
Björn B Steffensen Hæðargarði 7c, Reykjavík
Eggert Guðmundsson Melabraut 5,
Blönduósi
80 ára
Guðrún Briem Klapparási 3, Reykjavík
Hafsteinn Sigurþórsson Eyktarsmára 8,
Kópavogi
Halla Guðmundsdóttir Skúlagötu 40a, Rvk.
Margrét Þórðardóttir Fífuseli 2, Reykjavík
90 ára
Guðlaug Magnúsdóttir Hamrahlíð 17,
Reykjavík
Ásgeir Pétursson Kópavogsbraut 1a,
Kópavogi
103 ára
Gissur Ólafur Erlingsson Hjallaseli 55,
Reykjavík
22. mars
30 ára
Sigurður Hrannar Hjaltason Gunnarsbraut
42, Reykjavík
Hlynur Ágústsson Gunnarsbraut 38,
Reykjavík
Guðmundur Kristján Gunnarsson Grenil-
undi 8, Garðabæ
Arngrímur Konráðsson Lautasmára 26,
Kópavogi
Sindri Bergmann Þórarinsson Háaleitis-
braut 41, Reykjavík
Einar Rafn Viðarsson Langholtsvegi 94, Rvk.
Ingibjörg Sveinsdóttir Sandbakka 1, Höfn
í Hornafirði
Guðrún Tinna Ingibergsdóttir Hörðukór
8, Kópavogi
Svanhildur Ósk Ketilsdóttir Meltröð 2,
Akureyri
Magnea Jóna Pálmadóttir Skriðulandi,
Blönduósi
Birgir Agnar Sigurðsson Ljósuvík 52a,
Reykjavík
María Thorlacius Yngvinsdóttir Kristni-
braut 51, Reykjavík
Auðun Gunnarsson Kvisthaga 16, Reykjavík
Rakel Björg Ragnarsdóttir Flatahrauni 1,
Hafnarfirði
Steinunn Gerður Kristjánsdóttir Lindasm-
ára 27, Kópavogi
Ómar Freyr Sigurbjörnsson Naustabryggju
2, Reykjavík
Andri Fannar Ottósson Laugarnesvegi 92,
Reykjavík
Dýri Bjarnar Hreiðarsson Sunnutröð 9,
Akureyri
Þórður Grétar Árnason Háuhlíð 13, Sauðár-
króki
Gerður Björg Jónasdóttir Laut 14, Grindavík
40 ára
Beata Renata Marczak Vesturgötu 71,
Reykjavík
Ingrida Ziciute Lindarbraut 16, Seltjarnarnesi
Þorgerður Hafdís Þorgilsdóttir Austur-
byggð 5, Akureyri
Ólafur Freyr Sæmundsson Garðarsbraut
69, Húsavík
Friðþjófur Helgi Karlsson Úthlíð 15,
Hafnarfirði
Margrét Þorsteinsdóttir Skipasundi 2,
Reykjavík
Friðrik Smári Eiríksson Asparholti 9,
Álftanesi
Pétur Auðbergur Kristjánsson Gnoðarvogi
62, Reykjavík
50 ára
Sigríður Jónsdóttir Garðarsbraut 2, Húsavík
Vigdís Pétursdóttir Borgartanga 4, Mos-
fellsbæ
Leah Mendiola Quimada Yrsufelli 15,
Reykjavík
Steinþór Guðjónsson Brautarholti 12,
Selfossi
Eymundur Sigurðsson Reykjavegi 78, Mos-
fellsbæ
Auður Guðmundsdóttir Löngulínu 9,
Garðabæ
Unnur Þorláksdóttir Tjarnabraut 20,
Reykjanesbæ
Einar Sigþórsson Hásteinsvegi 27, Vest-
mannaeyjum
Guðrún Björg Sverrisdóttir Lindasmára
33, Kópavogi
Súsanna Poulsen Urðarbraut 9, Garði
Haukur Magnússon Viðarrima 53, Reykjavík
Sigurður Ben Guðmundsson Þrastarási 37,
Hafnarfirði
Ragnar Hauksson Heimahaga 1, Selfossi
60 ára
Lóa Sigrún Leósdóttir Fagrahvammi 11,
Hafnarfirði
Carole Ann Sch. Thorsteinsson Rjúpna-
sölum 12, Kópavogi
Guðbrandur Þ Þorvaldsson Hólmasundi
10, Reykjavík
Erlingur Pétursson Vesturvegi 10a, Vest-
mannaeyjum
Kristín Auður Sophusdóttir Brúnalandi
21, Reykjavík
Þórunn Jensdóttir Miðvangi 41, Hafnarfirði
Jónína Sigurbjörg Magnúsdóttir Áshamri
34, Vestmannaeyjum
70 ára
Eggert Thorberg Gíslason Iðufelli 6, Rvk.
Sigríður Matthíasdóttir Blómvangi 2, Egils-
stöðum
Ásgeir Jónsson Þelamörk 57, Hveragerði
Guðbjörn Jósepsson Sundstræti 27, Ísafirði
Þórunn Árnadóttir Hlíðargerði 1, Reykjavík
Móses Geirmundsson Smiðjustíg 10,
Grundarfirði
Ásgerður Snorradóttir Lerkilundi 10, Akur-
eyri
75 ára
Gréta Sína Jónsdóttir Klettahlíð 5, Hvera-
gerði
Hörður Sigurðsson Engihjalla 19, Kópavogi
Edvarð Júlíus Sólnes Smyrilsvegi 31, Rvk.
Eva Jónsdóttir Vesturbraut 1, Hafnarfirði
Birgir Olsen Holtsgötu 2, Reykjanesbæ
Ásgerður Svandís Skúladóttir Kringlumýri
7, Akureyri
Jóhann Árnason Vatnsvv. Hraunteigi, Rvk.
Oddný Vilhjálmsdóttir Dúfnahólum 2, Rvk.
80 ára
Sigríður Bjarnadóttir Skipalóni 24, Hafnar-
firði
Eygerður Bjarnadóttir Hringbraut 2a,
Hafnarfirði
Jóhanna Andrésdóttir Hæðargarði 33,
Reykjavík
85 ára
Kjartan Friðriksson Faxatúni 14, Garðabæ
Sigurður P. Þorleifsson
Egilsgötu 12, Reykjavík
Þórunn Theódórsdóttir
Vogatungu 107, Kópavogi
Afmælisbörn
Til hamingju!
S
teinunn er fædd og
uppalin austur á fjörð-
um. Sleit barnsskón-
um á Stöðvarfirði. Síð-
an fékk Eskifjörður að
fóstra hana þar til komið var að
framhaldsskólanámi. Þá flutt-
ist fjölskyldan suður.
„Ég tók framhaldsskóla
hérna fyrir sunnan og há-
skólann svo í framhaldi af því
og er nú grunnskólakennari í
Smáraskóla sem er alveg frá-
bært starf.“
Ein magnaðasta minn-
ing hennar er frá því að hún
var þriggja ára gömul. „Ég var
þriggja og hálfs þegar ég eign-
aðist litla systur, ég var alveg
heilluð og ákvað þá að verða
mamma. Ég vildi ekki fara frá
henni en pabbi kom mér út í
bíl en ég vildi vera áfram og
stökk út úr bílnum, eitthvað
lenti ég illa því að ég hreins-
aði úr mér framtennurnar en
þeim var alveg fórnandi til að
sjá þessa fallegu stelpu aftur.“
Auðvitað stóð Steinunn við
barnsheitið og á nú tvö börn og
eitt á leiðinni. En besta afmæl-
isgjöf sem hún hefur fengið var
þegar hún varð fjórtán ára og
fékk lítinn bróður í afmælis-
gjöf. „Það getur enginn fengið
betri afmælisgjöf en ég fékk,“
segir hún með bjart brosið á
ljómandi andlitinu sínu.
„Ég hlakka til að verða þrí-
tug, ég hef alltaf verið mjög
ung í anda og líður oftast eins
og ég sé átján ára. Ég hef svo
gaman af lífinu og því sem það
færir mér, það er örugglega
þess vegna sem ég er svona
ung í mér.“
Afmælishaldið verðu veg-
legt enda munu þau systkinin
bæði halda upp á sinn dag og
gefa sér í það viku eða meira.
„Það verður eitthvað kósí hjá
okkur á morgun en á helginni
verð ég með opið hús fyrir
alla vini mína og ættingja. Við
erum mikil partífjölskylda og
höfum þau ætíð þannig að öll-
um finnst gaman, jafnt börn-
um sem fullorðnum. Svo verð-
ur eitthvað skemmtilegt líka
eftir helgina. Heitt súkkulaði
og heillandi kökur með fjörug-
um leikjum er partí sem ekkert
toppar,“ segir hún full tilhlökk-
unar að mæta nýjum áratug.
Þ
egar ég var lítill var
ég ákveðinn í því að
ég ætlaði að verða
vélstjóri á rafstöð-
inni á Flateyri eins og
pabbi. Klár á því að ég ætlaði
aldrei á sjó,“ segir Matthías
sem er fæddur og uppalinn á
Flateyri.
„Þetta hélt mátulega hjá
mér, ætli ég hafi ekki verið
ellefu ára fyrsta sumarið mitt
á skaki með Ýsu-Manga, ein-
stökum skipstjóra og gæða-
manni. Allar götur síðan hef
ég verið tengdur sjónum.“
Matthías flutti ungur að
heiman og settist að á Akra-
nesi 18 ára gamall og stofn-
aði þar heimili og hefur búið
þar síðan. „Við fórum nokkr-
ir félagar á bjöllunni minni á
ball á Patreksfirði og þar hitti
ég hana Mundu mína, hún er
héðan frá Akranesi og ég var
ekkert að draga það neitt að
flytja hingað til hennar.“
Á Akranesi hefur hann
lengst af átt bát og stund-
að sjóinn ýmist með annarri
vinnu eða sem aðalatvinnu.
„Ég byrjaði hérna á sjónum
og var í mörg ár. Meðal ann-
ars keypti ég með þremur fé-
lögum mínum 70 tonna ver-
tíðarbát sem við gerðum út
um tíma. Um tuttugu ára
skeið átti ég handfærabát og
er núna enn og aftur búinn að
fá mér strandveiðibát með fé-
laga mínum.“
Matthías er viss um að
einn af merkari dögum lífs-
ins hafi verið þegar hann
eignaðist skellinöðru og varð
einn aðaltöffarinn á Flateyri á
þessum fák. „Það var stór dag-
ur þegar við Steingrímur vin-
ur minn fengum skellinöðr-
urnar, þær komu ósamsettar
í trékössum frá Frakklandi.
Ég var á Ísafirði þegar kass-
arnir komu og ófært yfir
Breiðadalsheiðina þannig að
ég varð að klofa snjóinn og
ganga yfir á Flateyri svo við
gætum farið að raða þeim
saman. Eftir ótal aðfinnslur
hreppstjórans vegna aksturs-
lagsins og þegar aldurinn var
kominn fórum við á nöðrun-
um á Ísafjörð og tókum próf á
þær. Þegar við vorum komn-
ir svona langt var ákveðið að
nota nýja prófið og sýna sig
í Bolungarvík. Á leið frá Ísa-
firði var hægfara bíll á undan
okkur og ég renndi mér öfugt
fram úr honum. Hann hætti
að vera hægfara, kom æð-
andi fram fyrir mig og út kom
reiður prófdómarinn sem var
nýbúinn að stimpla skírteinin
okkar. Hann gaf mér lesningu
sem hefur orðið til þess að
síðan hef ég ekki farið öfug-
um megin fram úr bíl á þess-
ari leið.“
Ekki verður um nein
veisluhöld að ræða hjá Matth-
íasi í tilefni afmælisins. „Ég
verð að heiman í dag. Held að
það sé best að verða gamall í
kyrrþey. Félagarnir hafa verið
að rukka um veislu en ég hef
sagt þeim að hér verði eng-
inn heima. Þeir hóta að til-
kynna mig týndan ef ég verði
ekki heima þegar þeir koma.
Og láta lögguna leita að mér
í framhaldinu,“ segir Matt-
hías og hefur gaman af sprelli
og uppátækjum félaga sinna
sem hann segir hafa varðveitt
í sér æskupúkann öll þessi ár.
Steinunn Gerður Kristjánsdóttir kennari 30 ára 22. marsAfmælisbarnið
„Það getur enginn fengið
betri afmælisgjöf en ég“
Fjölskylda
Matthíasar
n Foreldrar: Páll Ásgeirsson
vélstjóri f. 1918 – d. 1989
Þorgerður Jensdóttir húsmóðir f.
1921 – d. 2007
n Eiginkona:
Guðmundína Hallgrímsdóttir
félagsliði f. 1952
n Barn: Páll Þorgeir Matthías
son verkstjóri f. 1971
n Hans kona: Gunnvör Braga
Jónsdóttir háskólanemi f. 1974
n Þeirra börn: Hafþór Ingi Páls
son framhaldsskólanemi f. 1993
Björn Hreiðar Pálsson grunn
skólanemi f. 1996
Matthías Þorbergur Pálsson
grunnskólanemi f. 1999
Oliver Helgi Pálsson grunn
skólanemi f. 2002
n Barn: Kári Þór Matthíasson
útgerðarmaður í Færeyjum f.
1976
n Hans kona: Majbritt Hansen
f. 1975
n Þeirra börn: Guðný Hallgerð
Káradóttir nemi f. 1996
Ronja Þóra Káradóttir nemi f.
1998
Rebekka Dís Káradóttir leik
skólanemi f. 2005
Jóna Líf Káradóttir leikskólanemi
f. 2009
n Barn: Matthías Freyr Matt
híasson háskólanemi f. 1980
n Hans kona: Elísabet Thorodd
sen kvikmyndaklippari f. 1981
n Þeirra dóttir: Gúa Dögg
Matthíasdóttir leikskólanemi f.
2007
Stórafmæli
Best að verða
gamall í kyrrþey
Matthías Pálsson strandveiðiskipstjóri 60 ára 21. mars
„Klár á því að ég ætlaði aldrei á sjó,“ segir Matthías sem er fæddur
og uppalinn á Flateyri.
Afmælishaldið verður veglegt Systkinin halda bæði upp á sinn dag og
gefa sér viku í veisluhöldin.