Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.2012, Síða 20
20 Lífsstíll 23. apríl 2012 Mánudagur
Hrekkjusvín
skammast sín
Hrottar og hrekkjusvín beita afli
sínu til að niðurlægja aðra og nota
til þess ýmsar aðferðir. Stöðug
gagnrýni, stríðni, baktal, hæðni
eða að hunsa viðkomandi al-
gjörlega eru meðal helstu aðferða
hrottanna fyrir utan það augljósa,
ofbeldi.
Því meira sem þeir ýta fórn-
arlambi sínu niður með andlegu
eða líkamlegu ofbeldi því meira
verður þeirra eigið sjálfsálit. Og
þeim tekst oft að ná yfirburðum á
vinnustað eða í skóla með aðferð-
um sínum.
En hrottar og hrekkjusvín eiga
leyndarmál sem þeir vilja fyrir alla
muni að enginn komist að. Þrátt
fyrir hátt sjálfsálit eru þeir upp-
fullir af skömm og kvíða sem þeir
bæla niður. Það virðist þversögn
en skömmin, kvíðinn og stoltið
er það sem rekur þá áfram í að
fremja illdæði gagnvart annarri
manneskju.
Þeir eru hræddir við að aðrir
sjái galla þeirra eða skort á hæfi-
leikum. Þeir þrá að vera virtir fyrir
eiginleika sem þeir oft búa ekki
yfir og það vekur með þeim kvíða
og skömm.
Fullir af kvíða og skömm Fólk sem
beitir annað fólk ofbeldi gerir það til að
fela eigin veikleika.
Þessi matur
fer vel saman
n Rétt matarsamsetning getur haft margvísleg góð heilsufarsleg áhrif
N
ú til dags getum við nálg-
ast nánast hvaða mat-
væli sem hugurinn girnist
í verslunum. Við getum til
dæmis blandað unnum
matvælum saman við framandi mat
og þannig verður eldamennskan
meira spennandi. Við þurfum hins
vegar að hugsa út í hvaða matvælum
við blöndum saman því samkvæmt
Donnu Gates meltingarsérfræð-
ingi geta sumar fæðusamsetningar
haft slæm áhrif á líkamann. Nefnir
hún sem dæmi að slíkt geti leitt til
minna uppsogs næringarefna, verra
ónæmiskerfis, hraðari öldrunar og
þyngdaraukningar. Slæmar fæðu-
samsetningar geti auk þess rústað
meltinguna. Fjallað er um þetta á
síðunni rodale.com og þar má finna
nokkrar góðar og hollar samsetning-
ar sem Gates mælir með:
Steik og rósmarín
Hollustuávinningur:
Dregur úr krabba-
meinsvaldandi
efnum sem myndast
þegar kjöt er eldað
yfir 163°C.
Hvernig virkar það?
Rósmarín er auðugt
af „rosmarinic“- og „carnosic“-sýru sem
stöðvar krabbameinsvaldandi efni í að
myndast við eldun. Fjallað hefur verið um
krabbameinsvaldandi efni sem myndast
við grillun matvæla en þessi samsetning
er dæmi um hvernig má auka hollustu
matarins.
Prófaðu þetta:
Rífðu nálarnar af einni grein af rósmarín og
saxaðu. Bættu ólífuolíu, salti og sítrónusafa
og notaðu sem marineríngu.
Næpulauf og kjúklingabaunir
Hollustuávinningur:
Þessi samsetning er
náttúrulegur gleðigjafi
Hvernig virkar það?
Magnesíum er
nauðsynlegt gegn
kvíða og stressi.
Næpulauf eru stútfull
af magnesíum og B6-
vítamín í kjúklingabaunum eykur upptöku á
magnesíum í blóði.
Prófaðu þetta:
Finndu næpulauf á grænmetismarkaði og
sjóddu þínar eigin baunir til að komast hjá
skaðlegum efnum í niðursoðnum mat.
Fiskur og spergilkál
Hollustuávinningur:
Gómsæt leið til að hamla krabbameins-
vexti.
Hvernig virkar það?
Feitur fiskur eins og
lax og makríll er
auðugur af efninu
seleníum sem ver
skjaldkirtilinn og
berst gegn krabba-
meinsvexti. Spergilkál
er auðugt af „sulforaphane“,
sem styrkir varnir líkamans. Feitur fiskur
og spergilkál er því samsetning sem er 13
sinnum líklegri til að hægja á krabbameins-
vexti en ef neytt er í sitthvoru lagi.
Prófaðu þetta:
Fáðu þér villtan lax til að komast hjá
sníkjudýrum og mengun.
Rauðvín og möndlur
Hollustuávinningur:
Náttúruleg samsetning sem heldur hjartanu
góðu.
Hvernig virkar það?
Rauðvín innheldur „resverat-
rol“ sem er náttúrulegt
efnasamband og
möndlur eru ríkar af
E-vítamíni. Þessi
samsetning vinnur
því saman að því að
bæta blóðið og allt
æðakerfið.
Prófaðu þetta:
Leitaðu eftir lífrænu rauðvíni þar sem
venjulegt rauðvín getur
innihaldið leifar af
skordýraeitri.
Grænt te og
sítrónur
Hollustuávinn-
ingur:
Ljúffeng leið til berjast
gegn krabbameini og getur einnig leitt til
þyngdartaps.
Hvernig virkar það?
Sítrónur innihalda C-vítamín en það eykur
upptöku andoxunarefnisins „catechins“
sem fæst úr grænu tei.
Prófaðu þetta:
Ef þú drekkur mikið af tei hugleiddu að
kaupa lífræn telauf og stálfrían, margnota
tepoka til að minnka úrgang.
Túrmerik og svartur pipar
Hollustuávinningur:
Þessi samsetning dregur
úr bólgum og getur
mögulega verið vörn
gegn Alzheimers
og krabbameini.
Hjálpar til við að
halda kólesteról-
magni niðri og
styrkja lifrarstarfsemi.
Hvernig virkar það?
Túrmerik er krydd sem allir ættu að nota og
þá helst með svörtum pipar sem hjálpar til
við upptöku virka efnisins í túrmerik.
Prófaðu þetta:
Það er auðvelt að finna fjölmargar ljúffengar
uppskriftir sem innihalda túrmerik.
Svínakjöt og hrásalat
Hollustuávinningur:
Sterkjulaust grænmeti og dýraprótein
stuðla að heilbrigðum meltingar-
vegi.
Hvernig virkar það?
Sterkjulaust grænmeti,
sem borðað er með
kjöti, hjálpar til við að
brjóta niður dýrapró-
teinin. Við það eykst
frásog þarmanna sem
minnkar uppþembu, brjóst-
sviða, og vindverki. Hrátt grænt grænmeti
eflir meltinguna og styrkir ónæmiskerfið.
Prófaðu þetta:
Dýraprótein fara best með grænmeti eins
og grænum belgbaunum, spergilkáli, spín-
ati, og grænkáli.
Egg og ostur
Hollustuávinn-
ingur:
Skýrari hugsun,
minni fyrir-
tíðarspenna og
þyngdartap.
Hvernig virkar það?
D vítamín í eggjunum aðstoðar við upptöku
kalsíum úr ostinum sem er gott fyrir hjarta
og bein. Nægilegt kalkmagn í líkamanum
eflir taugaboð og koma jafnvægi á hormón
sem minnka fyrirtíðarspennu og þyngdar-
aukningu.
Prófaðu þetta:
Kauptu vistvæn egg og ost.
Tortillakökur og grænmeti
Hollustuávinningur:
Minni magi vegna minni uppþembu.
Hvernig virkar það?
Með því að blanda grænmeti með trefjum
og fræjum eins og „quinoa“ og sleppa
kjötinu kemur þú í veg fyrir uppþembu, að
sögn Gates. Grænmeti eins og þistilhjörtu,
baunir, kartöflur, maís, spergilkál og grænar
baunir halda meltingunni í lagi. „Tortilla
með steiktu grænmeti, svo sem
lauk, papriku, kúrbít,
spergilkáli, krydduð
með Tex Mex-kryddi
er ljúffeng. Auk þess
er mun auðveldara
að melta þetta en
tortillu með nauta-
kjöti eða kjúklingi,“
segir Gates.
Próf- aðu þetta:
Settu tvær skeiðar af súrsuðu grænmeti
ofan á tortillakökuna til að fá sem besta
meltingu og til að koma í veg fyrir sykurþörf
seinna um daginn.
Súrsað grænmeti
Hollustuávinningur:
Sykurþörfin hverfur eins og dögg fyrir sólu.
Hvernig virkar það?
„Ég get ekki undirstrikað
það nægilega mikið
hve gott það er að
nota þetta með
hvaða mat sem
er,“ segir Gates.
Þessi matvæli eru
uppfull af gerlum
sem bæta meltinguna
og hjálpa til við að halda
sykurþörfinni í skefjum.
Prófaðu þetta:
Það er heilmikið af upplýsingum og upp-
skriftum á netinu þar sem kennt er að búa til
slík matvæli sjálfur.
Hollur matur Við þurfum
aðeins að hugleiða hvaða mat-
vælum við blöndum saman.
Mynd: PHotos.coM
Harpa hannar
fyrir Sautján
Fatahönnuðurinn Harpa Einars-
dóttir er komin í samstarf við versl-
unina Gallerí Sautján. Hún hefur
nú hannað fatalínu fyrir verslunina
sem ber nafnið Moss by Harpa
Einars. Línan var tekin til sölu í
verslununum á miðvikudaginn.
Mikið er af kjólum í línunni og kög-
ur er áberandi sem og fínflauel og
siffon. Línan er í anda Hörpu sem
hefur getið sér gott orð fyrir hönn-
un sína undir nafninu Ziska.
Falleg dokka
fyrir spjaldtölvu
Það er liðin tíð að tækninni á
heimilinu fylgi snúrur og stór
suðandi box. Kyrrð og fínleg-
heit einkenna tækni nútímans
og kannski þessi fallega dokka
fyrir spjaldtölvur undirstriki
það. Skoða má fleiri myndir
af þessari kvenlegu dokku á
coolhunter.co.uk.