Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.2012, Side 26

Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.2012, Side 26
26 Fólk 23. apríl 2012 Mánudagur Lét flúra á sig lax n Bubbi Morthens með nýtt húðflúr L axveiði er mín stóra ástríða þannig að það er óþarfi að flækja það,“ seg- ir Bubbi Morthens um nýja húðflúrið sitt – myndar- legan lax sem hann fékk sér á höndina. „Þetta líkist nú mörg- um af þeim löxum sem ég hef veitt,“ segir Bubbi í gaman- sömum tón aðspurður hvort hann hafi haft einhvern sér- stakan lax sem fyrirmynd. Bubbi er veiðimaður af lífi og sál og lá því kannski beinast við að hann fengi sér lax sem fylgir honum í gegnum lífið. Líkami Bubba er vel skreytt- ur húðflúri og því ekki um hans fyrsta flúr að ræða. „Ég er allur í tattúum,“ segir hann en húð- flúrarinn var enginn annar en Jón Páll sem er einn vinsælasti húðflúrari landsins og margra mánaða bið eftir að komast að hjá honum. Það tók heil- an dag að gera húðflúrið og Bubbi segir það ekki hafa ver- ið sársaukalaust. „Það tók heil- an dag að gera þetta. Eftir fjóra klukkutíma ertu farinn að bíta á jaxlinn en þá fær maður sér bara verkjatöflur,“ segir hann ánægður með laxinn sem mun fylgja honum ævilangt. viktoria@dv.is H ún er búin að vera hérna að skoða töku- staði fyrir stóra ævin- týramynd sem hún er að fara að gera og mun verða tekin að stórum hluta upp á Íslandi,“ segir Mar- grét Hrafnsdóttir í samtali við DV en kvikmyndaframleið- andinn Darylle Mak var stödd hér á landi á hennar vegum. Darylle þessi er meðframleið- andi Margrétar að myndinni Terra Infirma sem tekin verður upp í sumar. Mak er einnig að fara að framleiða aðra mynd sem verður tekin upp á næsta ári og er það ævintýramynd- in sem hún skoðar tökustaði fyrir en hugsanlega verður stór hluti myndarinnar kvik- myndaður hér á landi. Líst vel á landið Margrét segir Mak lítast vel á landið og er nokkuð viss um að hún muni velja Ísland sem tökustað fyrir ævintýra- myndina. „Henni líst mjög vel á landið og ég held það verði niðurstaðan. Ég er ekki í vafa um það.“ Margrét hefur verið búsett í kvikmyndaborginni Los Ange- les undanfarin ár ásamt eigin- manni sínum, Jóni Óttari Ragn- arssyni. Þau hafa nýlega snúið sér að framleiðslu kvikmynda en eiga að baki farsælan fer- il hjá Herbalife. Terra Infirma er önnur kvikmyndin sem þau koma að. Fyrri myndin er Kill The Poet sem er eftir Jón Ótt- ar sjálfan en Margrét var með- framleiðandi þeirrar myndar. Terra Infirma er stórmynd og skartar meðal annars óskars- verðlaunahafa. „Terra Infirma er stórmynd sem kostar um 30 milljónir dollara í framleiðslu. Hún er með stórleikurum eins og ósk- arsverðlaunahafanum William Hurt og Terence Stamp. Ævin- týramyndin sem hún er að fara að gera er svipuð að stærð.“ Skoðar íslenska leikara Terra Infirma er fyrsta kvik- myndin sem Mak framleið- ir en hingað til hefur hennar starfsvettvangur aðallega verið í leikhúsunum. „Hennar bak- grunnur er úr leikhúsi og þetta er hennar fyrsta stóra mynd. Hún hefur verið viðloðandi kvikmyndir áður en ekki fram- leitt sjálf.“ Myndin verður tekin upp í sumar og að mestu leyti vestan- hafs. „Hún er tekin að mestu í Santa Fe, Kína og Hawaii,“ segir Margrét en tökutíminn er áætl- aður tveir og hálfur mánuður. Margrét hefur líka kynnt Mak fyrir íslenskum leikurum með það að markmiði að koma þeim á framfæri. Mak sá í þeim tilgangi meðal annars Vestur- portssýninguna Rómeó og Júl- íu um helgina en hún hefur út frá reynslu sinni í leikhúsum mikinn áhuga á þeim geira og leist vel á sýninguna – sem og leikarana. „Ég hef verið að segja henni frá íslenskum leik- urum og ég yrði ekkert hissa ef íslenskir leikarar yrðu í Terra Infirma og þessari nýju ævin- týramynd,“ segir hún. En get- ur hún nefnt einhver nöfn, eru einhverjir sérstakir sem hún hefur í huga? „Við fórum á Vest- urportssýninguna, við getum allavega einangrað okkur við það í augnablikinu,“ segir Mar- grét leyndardómsfull að lokum. Skoðaði tökustaði og íslenska leikara n Bandarískur framleiðandi á Íslandi n Stór ævintýramynd í bígerð Margrét og Darylle Mak Margrét Hrafnsdóttir fram- leiðir myndina Terra Infirma með Darylle Mak. Darylle skoðaði tökustaði fyrir stóra ævintýramynd sem verður tekin upp hér á landi. MynD eyþór árnaSon Fóru á sýningu hjá Vesturporti Leikaravalið einangrast við það í augnablikinu. ekki sársaukalaust Bubbi segir það ekki hafa verið sársauka- laust að láta flúra á sig laxinn. Laxinn góði Þessi lax mun fylgja Bubba ævilangt. Komin til Búlgaríu Ísdrottningin sjálf, Ásdís Rán, er komin aftur til Búlg- aríu eftir páskafrí á Íslandi. Ásdís naut lífsins á Íslandi og hitti ættingja og vini og gekk frá lausum endum en hún og Garðar Gunnlaugs- son tilkynntu nýlega um skilnað sinn. Með Ásdísi úti er dóttir hennar, Victoria Rán, en synir hennar Hektor og Róbert eru á Íslandi en Ásdís hefur ekki tekið neinar ákvarðanir um hvort hún hyggist búa lengi í Búlgaríu eða snúi aftur heim. Guðjón sem forseta Innan við tvær vikur eru þar til Pepsi-deildin í fótbolta fer af stað og eru sparkmiðlarnir byrjaðir að hita upp. Í hinum vinsæla lið Álitið á spark- vefsíðunni fotbolti.net voru tólf álitsgjafar fyrst spurðir hver væri mesta forsetaefnið í deildinni. Allflestir sögðu Guðjón Þórðarson, þjálfari Grindavíkur og fyrrverandi landsliðsþjálfari, en stór- söngvarinn Geir Ólafsson var hvað harðastur á því að Guðjón ætti heima á Bessa- stöðum. „Hann ætti bara að vera forseti núna. Þetta er maður sem lætur verkin tala. Ég myndi kjósa hann. Guð- jón er besti þjálfari Íslands frá upphafi,“ sagði Geir um Guðjón. Hera tók dansinn Fyrsti þátturinn af Alla leið var frumsýndur á RÚV um helgina en þar hefur söng- konan Hera Björk tekið við stjórnartaumunum af Páli Óskari og kynnir fyrir þjóð- inni Eurovision-lögin í ár ásamt fríðu föruneyti. Hera þótti fara á kostum í þætt- inum og voru netheimar já- kvæðir í garð söngkonunnar og hversu gamansöm hún var. Þótti mörgum einstak- lega skemmtilegt þegar hún hermdi eftir nútímadansi en það uppskar mikil hlátra- sköll í salnum. eiginmaður Jón Óttar Ragnarsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.