Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2012, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2012, Qupperneq 4
4 Fréttir 14. maí 2012 Mánudagur Snælduvitlaust veður n Björgunarsveitir voru á ferð og flugi á sunnudag B jörgunarsveitir Slysavarna- félagsins Landsbjargar höfðu í nægu að snúast á sunnudag enda var veður víða með ein- dæmum slæmt á landinu. Dagurinn hófst á Hvammstanga en þar var ósk- að eftir aðstoð björgunarsveitarinnar klukkan hálf tíu þar sem trampólín og aðrir lausamunir voru farnir að fjúka. Kallaðar voru út björgunarsveit- ir á höfuðborgarsvæðinu til að- stoðar í Esjunni en þar hafði maður veikst á göngu og var hann borinn niður. Þyrla gæslunnar var einnig kölluð út en hún gat ekki athafnað sig vegna veðurs á svæðinu. Á Vest- fjörðum voru sveitir kallaðar út þar sem franskir ferðamenn óskuðu eftir aðstoð við að komast niður af Klett- hálsi. Þar var veður farið að versna, snjór yfir öllu og þeir ekki vanir að keyra við þessar aðstæður. Björgun- arsveitin á Hólmavík var kölluð út þar sem veður var orðið snælduvit- laust á Steingrímsfjarðarheiði. Þar höfðu bílar lent í talsverðum vand- ræðum en ekkert ferðaveður var á heiðinni langt fram eftir degi. Köll- uð var út björgunarsveitin á Vopna- firði þar sem hestamaður hafði ekki skilað sér heim en talið var að hann væri á Brekknaheiði. Fljótlega eft- ir að sveitin var farin til leitar skil- aði hann sér til byggða heill á húfi. Björgunarsveitin á Blönduósi var einnig kölluð út til að aðstoða bíl sem lenti í vandræðum á Þverárfjallsvegi. Björgunarsveitir á Austurlandi höfðu einnig í nógu að snúast og voru þær meðal annars kallaðar á Fjarðarheiði þar sem færð spilltist þegar líða tók á sunnudaginn. Veður þar var mjög slæmt. Samkvæmt spá Veðurstofu Íslands verður áfram nokkuð kalt í veðri, þó sérstaklega á Norðurlandi og Vestfjörðum, og ekki loku fyrir það skotið að þar muni snjóa. Lands- björg hvetur því alla sem verða á far- aldsfæti til að skoða veðurspár vel og fara ekki af stað nema á vel útbúnum bílum. L aun Kára Arnórs Kárason- ar, framkvæmdastjóra lífeyr- issjóðsins Stapa, hækkuðu um 15,6 prósent árið 2011 frá árinu 2010. Árslaun Kára árið 2010 voru rétt rúmar fjórtán milljón- ir króna, eða 1.170 þúsund krónur á mánuði. Árslaun hans fyrir árið 2011 voru hins vegar mun hærri, eða 16,6 milljónir króna. Sú upphæð samsvar- ar 1.388 þúsund krónum á mánuði. Þetta kemur fram í ársskýrslum Stapa fyrir árin 2010 og 2011 sem eru að- gengilegar á heimasíðu sjóðsins. Stapi lífeyrissjóður sér um rekstur Lífeyris- sjóðs starfsmanna Akureyrarbæjar. Tapaði 30 milljörðum Launahækkun Kára er athyglisverð ef skoðað er tap sjóðsins á árunum frá 2008 til 2010. Í skýrslu úttektarnefndar lífeyrissjóða sem gefin var út í febrúar síðastliðnum kemur fram að tapið hafi í heildina numið tæpum 28 milljörð- um króna. Stapi tapaði 11,6 milljörð- um króna hrunárið 2008, 15,4 millj- örðum árið 2009 en 709 milljónum króna árið 2010. Þrátt fyrir þetta rúm- lega 700 milljóna króna tap árið 2010 hækkuðu laun Kára á síðasta ári. Heildarfjárhæð launa hjá Stapa hækkaði einnig frá árinu 2010 til árs- loka 2011. Árið 2010 nam heildar- fjárhæð launa hjá sjóðnum 70,9 milljónum og launatengd gjöld 16,8 milljónum króna. Árið 2011 nam heildarfjárhæð launa hins vegar 74,9 milljónum króna og launatengd gjöld 18 milljónum króna. Tjáði sig ekki DV hafði samband við Kára Arnór á sunnudag til að fá útskýringar á launa- hækkuninni. Kári vildi ekki ræða við blaðamann og gaf honum ekki færi á að bera erindið upp á þeim forsend- um að það væri sunnudagur. „Heyrðu, ég var að segja þér að, hérna, viltu ekki leyfa mér að vera í friði í dag? Bara virða það,“ sagði Kári. DV vildi einn- ig ræða við Kára um þá stöðu sem komin er upp eftir að Hæstiréttur vís- aði í síðustu viku frá kröfu sjóðsins á hendur Straumi. Málið á rætur sínar að rekja til þess að lögmannsstofa líf- eyrissjóðsins á Akureyri lýsti of seint kröfu sjóðsins, um fimm milljörðum króna, í bú Straums. Með dómi sínum snéri Hæstiréttur við dómi héraðs- dóms og sýknaði Straum. Kári lét þó hafa eftir sér í fréttum RÚV í síðustu viku að verið væri að skoða hvort fara ætti í skaðabótamál gegn lögmanns- stofunni. Launaskrið hjá toppunum „Ég hef tekið saman rekstrarkostnað lífeyrissjóðanna einu sinni á ári og borið saman árin á undan. Mér sýnist forstjórarnir almennt vera á töluverðu launaskriði,“ segir Ragnar Þór Ingólfs- son, stjórnarmaður í VR. Ragnar hef- ur verið duglegur við að benda á það sem betur má fara í starfsemi lífeyris- sjóðanna og hann segir að launamálin séu eitt af því. Í samantekt sem hann gerði árið 2010 um rekstur sex stærstu lífeyrissjóðanna árið 2009 kemur fram að rekstrarkostnaðurinn nam rúm- lega 2,1 milljarði króna, þar af nam launakostnaður rúmlega 1,1 milljarði króna. „Það er allt að fara í sama farið. Það er það sem við erum að horfa á,“ seg- ir Ragnar. „Það er bara verið að gefa, bæði almenningi og sjóðsfélögum, puttann. Það er ekkert flóknara en það. Menn hafa séð það hingað til að þeir hafa komist upp með nánast hvað sem er. Svo eru forstjórarnir að kom- ast á sama launaskrið sem er ekkert í líkingu við það sem fólkið í landinu upplifir. Það er beinlínis verið að gefa almenningi puttann. Það er ekkert til- efni til að hækka laun þessara manna. Bara frammistaðan gefur tilefni til að þeir eigi hreinlega að víkja og allra síst hækka í launum. Þetta er algjörlega ólíðandi.“ Launahækkun þrátt fyrir milljarðatap n Launin hækkuðu um 200 þúsund á mánuði n Töpuðu 28 milljörðum Einar Þór Sigurðsson blaðamaður skrifar einar@dv.is Þórður Ingi Jónsson blaðamaður skrifar ritstjorn@dv.is „Það er allt að fara í sama farið. Það er það sem við erum að horfa á Launahækkun Árslaun Kára árið 2010 voru rúmar 14 milljónir króna. Árið 2011 voru árslaunin hins vegar 16,6 milljónir króna. Ólíðandi Ragnar Þór segir að svo virðist sem æðstu stjórnendur lífeyrissjóða séu á launaskriði. Hann segir að í raun sé verið að gefa almenningi puttann. Slæm færð Veður var víða slæmt á sunnudag og höfðu björgunarsveitir í nógu að snúast. Grafa risti í sundur klettabelti Náttúruspjöll á Úlfarsfelli Undanfarna daga hefur bel- tagrafa unnið mikil umhverfis- spjöll á Úlfarsfelli, einni helstu útivistararparadís höfuðborg- arinnar. Sár eru komin í efsta tind fjallsins. Grýttur vegarslóði sem liggur upp á hátind fjallsins hefur verið breikkaður. Þá hefur verið grafinn djúpur skurður í áður óspjallað land og meðal annars rist í sundur klettabelti. Sjá má för eftir beltagröfuna um fjallið þar sem áður var óspjall- að land.  Vikulega fara hundruð manna á Úlfarsfell sem er undir forræði Reykjavíkur og Mos- fellsbæjar. Fjallið þykir einkar hentugt til útvivistar en þessi náttúruperla er miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu. Um- gengnin og spjöllin á fjallinu hafa valdið undrun og reiði þeirra sem leið eiga um.   Á hátindi Úlfarsfells er endurvarpsstöð og virðist sem framkvæmdirnar nú tengist stöðinni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.