Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2012, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2012, Page 10
10 Fréttir 14. maí 2012 Mánudagur „Þarf ekki að sanna ásetning til fjártjóns“ Á kærðu brutu vissulega gegn verklagsreglum sparisjóðs- ins, en það eitt leiðir ekki til þess að ályktað verði að ásetningur þeirra hafi stað- ið til þess að misnota aðstöðu sína og stefna fé sparisjóðsins í stórfellda hættu eins og þeir eru ákærðir fyrir.“ Þetta eru orðin í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í Exeter Holdings-mál- inu  sem Hæstiréttur Íslands þarf að taka afstöðu til hvort séu rétt. Í þess- um orðum endurspeglast skilningur héraðsdómarans Arngríms Ísberg, og meðdómara hans, Einars Ingi- mundarsonar, á þeirri grein hegn- ingarlaganna þar sem fjallað er um umboðssvik. Tveir sakborninganna í málinu, Jón Þorsteinn Jónsson og Ragnar Z. Guðjónsson, sæta ákæru fyrir umboðssvik. Munnlegur málflutningur var í Hæstarétti á föstudaginn þar sem saksóknarinn Björn Þorvaldsson hélt því fram að ofangreindur skiln- ingur Héraðsdóms á 249. grein al- mennra hegningarlaga væri rangur. „Þessi villa meirihlutans leiðir síð- an til þeirrar niðurstöðu sem raun ber vitni.“ Björn krafðist fjögurra og hálfs árs fangelsis yfir Jóni Þorsteini og Ragnari Z. í lok málflutningsræðu sinnar í Hæstarétti. Saksóknarinn krafðist auk þess að Styrmir Braga- son, fyrrverandi forstjóri MP Banka, yrði dæmdur fyrir hlutdeild í um- boðssvikabroti þeirra en einnig fyrir peningaþvætti. Exeter-snúningurinn Ragnar Z. Guðjónsson, Jón Þor- steinn Jónsson og Styrmir Bragason voru í fyrrasumar sýknaðir af ákæru um umboðssvik í Exeter-málinu í Héraðsdómi Reykjavíkur. Einn dóm- ari af þremur skilaði séráliti og vildi sakfella Ragnar Z. og Jón Þorstein en tók undir sýknudóm meirihlutans yfir Styrmi. Málið snýst um tvær lán- veitingar sem Byr veitti félaginu Ex- eter Holdings í október og desember 2008, upp á samtals 1.000 milljónir króna, til að kaupa stofnfjárbréf í Byr af helstu stjórnendum sparisjóðsins, meðal annars ákærðu, Jóni Þorsteini og Ragnari Z. MP Banki hafði upphaflega fjár- magnað stofnfjárkaup þeirra og krafði þá Jón Þorstein og Ragnar Z., og nokkra samstarfsmenn þeirra, um endurgreiðslu á láninu vegna lækkandi verðs á bréfunum í Byr. Einhverjir af þeim aðilum sem áttu stofnfjárbréfin sem keypt voru, með- al annars Jón Þorsteinn, voru í pers- ónulegum ábyrgðum fyrir lánunum frá MP Banka. Lendingin varð sú að þeir Jón Þorsteinn og Ragnar Z. létu Byr fjármagna endurgreiðsluna á lánunum eftir að hafa ráðfært sig um málið við Styrmi Bragason. Hagsmunir sakborninganna Björn Þorvaldsson hamraði á því í Hæstarétti á föstudaginn að allir sak- borningarnir hefðu haft hagsmuni af þessari lausn í málinu. „Þessi lausn hentaði öllum ákærðu vel þó aðra sögu hafi verið að segja um Byr.“ Útskýring hans á hagsmunum MP Banka og Styrmis var á þá leið að komið hefði verið í veg fyrir fjárhags- legt „tjón“ bankans og hann hefði fengið lausafé á „erfiðum tímum“ eftir bankahrunið 2008. Saksókn- ari benti á að Byr hefði borið skarð- an hlut frá borði í viðskiptunum þar sem sparisjóðurinn hefði verið not- aður til að fjármagna uppgreiðslu lánanna við MP Banka. Niðurstaða Björns er sú að sak- borningarnir hafi framið brotin sjálf- um sér til hagsbóta og að þeir eigi sér engar málsbætur. Þarf ekki ásetning til fjártjóns Dágóður hluti af málflutningsræðu Björns fór í að gagnrýna niðurstöðu Héraðsdóms en inntakið í þeirri gagnrýni er að ekki þurfi að sanna ásetning til fjártjóns til að menn séu dæmdir fyrir umboðssvik, líkt og haldið var fram í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur. „Það þarf ekki að sanna ásetning til fjártjóns, einungis vitn- eskju um að fjártjónsáhætta hafi ver- ið fyrir hendi,“ sagði Björn. Vísaði hann þar til þess að stjórnendum Byrs hefði mátt vera fullljóst að fjármunirnir sem lánað- ir voru út úr Byr, með veði í stjórn- fjárbréfunum sem keypt voru, hefðu verið tapaðir þegar lánveit- ingarnar áttu sér stað í ljósi banka- hrunsins og þess 15 til 20 milljarða króna taps sem sparisjóðurinn stóð frammi fyrir á þeim tíma sem lán- in voru veitt. Lögmenn sakborning- anna héldu því hins vegar fram fyrir dómi að sanna þyrfti að fjártjóns- hættan hefði verið til staðar þeg- ar lánin voru veitt til að hægt yrði að sanna umboðssvikin sem tveir hinna ákærðu eru vændir um til að hægt yrði að sakfella þá. Til þessa ágreiningsefnis þarf Hæstiréttur Íslands nú að taka af- stöðu. Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is Í Hæstarétti Reynir Karlsson sést hér fyrir framan umbjóðanda sinn, Jón Þorstein Jónsson, í Hæstarétti Íslands eftir málflutninginn á föstudaginn. Bak við þá sést Ragnar Hall ásamt umbjóðanda sínum, Styrmi Bragasyni. n Hæstiréttur tekur afstöðu til Exeter-málsins n Ákært fyrir umboðssvik „Þessi lausn hent- aði öllum ákærðu vel þó aðra sögu hafi ver- ið að segja um Byr. Lilja Mósesdóttir: Niðurgreiðum lífeyrissjóðina „Íbúðalánasjóður lánar til al- mennings á kjörum sem tryggja að lífeyrissjóðirnir fá viðunandi raunávöxtun að þeirra mati.“ Þetta segir Lilja Mósesdóttir þingmað- ur á bloggsíðu sinni. Lilja gerir Íbúða lánasjóð og lífeyrissjóða- kerfið að umtalsefni í pistli sínum og minnir á að hlutverk Íbúða- lánasjóðs sé meðal annars að tryggja lánsframboð til tekjulágra einstaklinga og þeirra sem búa á jaðarsvæðum. Ávöxtunarkrafa sjóðsins taki lítið tillit til mark- aðsaðstæðna í niðursveiflu og almenns forsendubrests eins og ríkir í samfélaginu í dag. Þegar bankar bjóða hagstæð- ari kjör en lífeyrissjóðirnir eru tilbúnir að sætta sig við á skulda- bréfum Íbúðalánasjóðs flýr fólk sjóðinn. Ríkið eykur eigið fjár- framlag sitt þegar uppgreiðslur eru meiri en útlán hjá sjóðnum og þegar lántakendur geta ekki lengur staðið undir greiðslu- og skuldabyrðinni vegna forsendu- brests. Þannig ver ríkissjóður líf- eyrissjóðina gegn skyndilegri uppgreiðslu og útlánatapi Íbúða- lánasjóðs,“ segir Lilja og bætir við að Íbúðalánasjóður sé því enn eitt tækið sem ríkissjóður notar til að tryggja viðunandi afkomu líf- eyrissjóðanna á kostnað almanna- tryggingakerfisins. „Hin stuðningstækin eru verð- trygging og skattur á útgreiðslur en ekki inngreiðslur í sjóðina. Verðtryggingin tryggir sjóðnum örugga ávöxtun í sveiflukenndu hagkerfi sem gerir allar spár um verðbólguþróun háða mikilli óvissu. Óskattaðar inngreiðslur í sjóðina auka umsvif þeirra um 40%. Sjóðirnir fá peninga skatt- greiðenda til ávöxtunar án þess að krafa sé gerð um að þeir endur- greiði höfustólinn þegar hann tap- ast eða rýrnar.“ Lilja tekur fram að á fyrstu fjórum mánuðum þessa árs hafi meira verið greitt upp af lánum Íbúðalánasjóðs en sjóðnum hafi tekist að lána út. Mismunurinn sé um 1,3 milljarðar króna. Hópur fólks hafi flúið sjóðinn til að nýta sér lægri vexti á óverðtryggðum lánum viðskiptabankanna. „Upp- greiðsla lána hjá Íbúðalánasjóði ógnar enn á ný rekstrargrundvelli sjóðsins. Ástæðan er sú að Íbúða- lánasjóður getur ekki greitt upp skuldabréf sjóðsins sem lífeyris- sjóðirnir hafa keypt með ákvæð- um sem banna uppgreiðslu.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.