Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2012, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2012, Side 12
„Ég vil fá sjálfs- virðinguna aftur“ 12 Fréttir 14. maí 2012 Mánudagur É g vil segja sögu mína öðrum til varnaðar, ég vil ekki að fleiri þurfi að þjást eins og ég gerði. Ég fæ ekki líf mitt til baka, en ég vil fá sjálfsvirðinguna aftur,“ segir Lára Kristín Brynjólfsdóttir, glæsileg, ung kona sem kemur til fundar við blaðamann á ritstjórnarskrifstofu DV. Lára er menntuð í sjúkraflutning- um og starfar við heimahjúkrun hjá Reykjavíkurborg. Hún er með réttindi til þess að starfa á sjúkrabíl. Áður starf- aði hún sem sjúkraliði á slysadeild Landspítalans. Hún fær ekki að starfa þar aftur þótt hún óski þess heitt. Ástæðan er sú að í fyrra var hún tekin þaðan með valdi þar sem hún var við vinnu á slysavarðstofunni og flutt með aðstoð lögreglu á geðdeild þar sem hún var vistuð í marga mánuði. Lára var talin með geðklofa og hættuleg sjálfri sér, sprautuð niður með svo sterkum geðlyfjum að auka- verkanirnar voru meðal annars þær að brjóst hennar fylltust af mjólk, hún missti alfarið stjórn á hreyfingum og skynjun og réð til dæmis ekki við munnvatnskirtla svo munnvatn rann hindrunarlaust úr munni hennar. Sárt að vera til Í dag vinnur hún hægt og rólega að því að byggja upp líf sitt aftur eftir erfiða reynslu. Hún er ekki talin með geðklofa lengur. Þeirri greiningu er af- létt. Það hefur komið í ljós að hún er með einhverfu og leitar sér nú stuðn- ings hjá fagaðilum þess vegna. „Ég hef fengið að vita að ég er á einhverfurófi en bíð nú eftir staðfestri greiningu. Því fyrr sem ég fæ hana, því fyrr get ég hafist handa við að fyrirgefa sjálfri mér og öðrum. Það hefur nefnilega verið svo afskaplega sárt að vera til.“ Á yfirborðinu virðist Lára vera sjálfsörugg, ákveðin kona. Þegar hún mætir til viðtals við blaðamann koma þó hamlanir hennar fljótt í ljós. Henni finnst erfitt að horfa beint á blaðamann. Ástæðan er sú að skyrtan sem blaðamaður er í þann daginn er skærrauð og það truflar hana mikið. „Þú ert í rauðri skyrtu og svo ertu með græn augu, það truflar mig,“ segir hún og reynir að ná augnsambandi við blaðamann. Eitthvað við þá tilraun er vélrænt. Ástæða þeirra truflana sem hún verður fyrir er sú að Lára Kristín er einhverf. Meðan hún segir blaða- manni sögu sína heyrir hún jafnmik- ið í blaðamanni og umferðinni úti við, masinu í blaðamönnum frammi, símhringingum og vindhviðum. Öll hljóð heyrir hún á sama styrk. Þannig skyntruflanir eru algengar meðal ein- hverfra. „Ætíð verið skrítin stelpa“ Frá barnæsku hefur Lára verið höml- uð. Móðir hennar fór með hana til læknis þegar hún var aðeins sex mán- aða en var sagt að hafa ekki frekari áhyggjur. Hún reyndi ítrekað að fá að- stoð en var sagt að hún væri einfald- lega erfið og það ætti eftir að þroskast af henni. Sú varð ekki raunin og hamlanir Láru reyndust henni erfiður þrösk- uldur í lífinu. „Ég var alltaf hrædd og ég grét stanslaust – ég átti enga vini og vildi bara vera með kennurunum í frí- mínútum því ég var hrædd við krakk- ana. Það varð alltaf að passa upp á breytingar í umhverfi mínu því ég varð svo hrædd. Mamma var ráða- laus, ég var með svo mikla þráhyggju. Enda fékk ég fljótt þá greiningu innan geðkerfisins að ég væri með kvíða og þráhyggju. Þekking á einhverfu var minni en í dag, hvað þá einhverfu stúlkna. Þegar ég ræði um barnæsku mína við fagaðila sem þekkja ein- kenni einhverfu er æska mín mörkuð af henni. Ég hef ætíð verið skrítin stelpa, upplifði mikla vanlíðan en áttaði mig þó ekki á því hvað var að. Mikil þrá- hyggja heltók mig þegar ég var korna- barn og birtist hún fyrst í því að ég stóð við ljósarofann og ýtti á takkann ítrekað þar til ég var stoppuð eða per- an sprakk. Ég átti enga vini, ég grét all- an daginn og skildi sjálfa mig illa.“ Eins og margir aðrir einstaklingar með einhverfu hefur hún alltaf haft skerta líkamsvitund. „Ég hafði ekki þyngdarafl í líkamanum og upplifði mig ekki part af veröld heldur ein- stæða manneskju og skildi ekki aðra. Ég var heltekin af kvíða og depurð og skildi ekki hvað var að.“ Talin með anorexíu Eitt af því sem kveikir á viðvörunar- bjöllum fagaðila hvað varðar ein- hverfu stúlkna í dag er þráhyggja gagnvart mat. Lára var lögð inn á geð- deild í fyrsta skipti sextán ára gömul. Hún var hætt að borða og taldi allan mat skaðlegan. Hún fékk þá greiningu að hún væri með anorexíu. Lára út- skýrir hins vegar að ástæðan fyrir því að hún hafi ekki viljað borða hafi ekki verið vegna útlitsins og ekki til þess að fá athygli. Hún var einfaldlega hrædd við að borða og fannst hún ekki geta það. Meltingarferlið hræddi hana, hún fann ekki fyrir því og skynjun hennar á því var mjög trufluð. „Ég hætti að borða vegna þrá- hyggju minnar um að matur væri skaðlegur. Ég var þá 47 kíló og 172 á hæð, ég borðaði ekki matarbita í marga mánuði heldur drakk bara kókómjólk, ég grét stanslaust og sagði læknunum að ég gæti ekki borðað, maturinn kæmist ekki niður í maga og ég skynjaði ekki vélindað mitt, kyng- ingu eða þá staðreynd að ég væri með háls. Þarna kom fyrsti stimpill geð- heilbrigðiskerfisins án þess að hlust- að væri á mig og hræðilega upplifun mína. Ég var talin vera með anorexíu og heltekin af líkamsímynd minni.“ Lára á enn erfitt með fæðu og það að velja sér mat að borða. „Ég borða oft bara karamellujógúrt. Ég kann að borða hana. Ég get ómögulega útskýrt hvers vegna, en ég er ófær um að velja mér að borða og borða á réttum tíma. Ég þyrfti eiginlega að hafa einhvern að elta, hvað það varðar. Ég myndi þá borða það sem væri í boði og á þeim tíma sem til er ætlast.“ Sjálfsmeiðingar og vanlíðan Vanlíðan Láru jókst eftir því sem árin liðu og skynjunartruflanir urðu viða- meiri og tóku meira á hana. Einhverf- ar stúlkur eru samkvæmt rannsóknum í mikilli áhættu hvað varðar sjálfs- meiðingar og sjálfsvígstilraunir. Lára er enn með ör eftir að hafa skorið sig í hendurnar, hún hefur látið húðflúra yfir örin, falleg blóm og hvatningar- orð. „Ég hætti að skynja umhverfi mitt, tímaskyn mitt var brenglað og ég fann mig ekki í líkama mínum, ég skildi ekki hendur mínar eða fætur né heilastarf- semi mína sem átti að stjórna þessu fyrirbæri sem hékk á mér og ég tók upp á því að skera mig í hendurnar, helst fast, bæði svo ég yrði vör við blóð sem þýddi að ég var manneskja og síðan sár sem þýddi að ég var raunveruleg en ekki skjávörpuð mynd á jörðinni.“ Fékk jaðarpersónu leika­ greiningu Lára fékk eftir sjálfsmeiðingarnar þá greiningu að hún væri með jaðar- persónuleikaröskun. Eftir að hafa skorið sig djúpum skurði var hún flutt á slysavarðstofu og segir lögreglu hafa handjárnað sig við rúmið. „Skurðurinn var heldur djúpur og það varð að sauma, lögreglan hand- járnaði mig við rúmið mitt þannig að ég lá með höfuðið ofan í kodda. Ég varð ofboðslega hrædd, eigin- lega sturluð af hræðslu. Það þurfti að sprauta mig niður með lyfjum og svæfa mig. Stuttu seinna var ég svo lögð inn á geðdeild.“ Greiningin varð þess valdandi að hún fékk ekki framar aðstoð bráða- móttöku geðdeildar ef eitthvað bját- aði á. Henni var snúið við í mót- tökunni. „Vegna þess að einstaklingar með „borderline“ eiga ekki heima innan veggja bráðageðdeildar, þessi sjúk- lingahópur er ekki talinn hafa góð not fyrir slíkar innlagnir.“ Ruslakistugreining Þessa greiningu hafði Lára í fjölmörg ár og reyndi að lifa með henni eft- ir bestu getu. Hún einangraði sig frá heiminum og fylltist skömm á sjálfri sér. „Ég dvaldi dögum saman inni í herbergi mínu og talaði ekki við nokkurn mann. Ég gerði það ekki vegna þess að ég skildi ekki fólk, ég var blind á huga annarra og óttaðist oftast að ég væri ekki til, með blóð eða líffæri. Ég skildi ekki vináttu eða þörf fólks fyrir vináttu. Ættingjum mínum og fjölskyldu fannst ég stór- furðuleg og forðuðust mig meira en að hjálpa. Ég var þessi erfiða, þú veist, þessi með jaðarpersónuleik- aröskunina sem vantar athygli. Það er svona ruslakistugreining í raun, og hefur verið rætt um það í fjölmiðlum að margir hverjir sem eru í þessari ruslakistu eigi kannski við hræðilega sjúkdóma eða heilkenni að stríða en er beint út úr kerfinu og látið líða illa með sjálfu sér vegna fordóma og rangra greininga. Ég var alveg búin, ég hafði náð að mennta mig í sjúkraliðanum, en ég lærði efnið sjálf heima og mætti sjald- an í skóla. Ég gat það ekki, en ég fékk samt fínar einkunnir.“ Fann fyrir fordómum vinnufélaganna Áhugi Láru á bráðaþjónustu var ákaf- lega mikill. Hún ætlaði sér að verða sjúkraflutningamaður og var á góðri leið. Hún fékk vinnu sem sjúkraliði á slysavarðstofu Landspítalans og fannst hún vera að láta drauma sína rætast. Meðan vel gekk fann hún hjá sér þörf fyrir að ræða um veikindin og fór í viðtal í Vikunni og Íslandi í dag. Þar ræddi hún um veikindin og for- dómana sem henni fannst hún finna fyrir í geðheilbrigðiskerfinu. Eftir viðtalið fann hún fyrir mikl- um fordómum vinnufélaga sinna og á sama tíma fann hún hvernig álagið var að buga hana. Skyntruflanir henn- ar urðu óviðráðanlegar og að viðbætt- um kvíða og ofsahræðslu missti hún tökin á tilverunni. „Skynjunarerfiðleikar mínir hafa alltaf verið einhverjir, venjulega trufla þeir mig ekki. Ég næ að laga þá að líf- inu. En á þessum tíma voru öll ljós of björt og stundum sá ég allt svart- hvítt, ég varð að klípa mig til þess að finna sjálfa mig í rúminu og gekk með hendur uppi eins og standandi mús til þess að sjá þær. Ég var orðin hræðilega veik, ég starfaði á draumastarfssviði mínu á slysavarðstofunni, ég mætti á hverja vakt og var aldrei veik, og ef ég varð veik þá var ég sú síðasta sem skildi það. Ég kann ekki að vera veik vegna þess að ég upplifi mig ekki rétt, hve- nær er ég til dæmis nógu veik til að vinna ekki? Ég var dugleg á við her í vinnunni, kurteis og klár, en mjög lokuð. Lifði í annarri veröld en þó ekki hættuleg neinum og ábyrg í vinnu enda toppn- emandi. Ég hafði komið fram í Íslandi í dag og Vikunni og ég fékk að finna fyrir því frá starfsfólki að það væri ekki við- eigandi. Enginn talaði við mig, ég var þessi ósýnilega sem er ótrúlega skrít- in en samt dugleg og vinaleg. Sögurn- ar komust auðvitað á kreik, að þarna hefði ég einu sinni komið með sár á púlsi og verið sprautuð niður, það var litið niður á mig og ég upplifði mig verða fyrir meira einelti en í skóla, ég minni á að þetta var í hópi fagfólks sem lét verr en óþroskaðir skólakrakkar. Ég grét alltaf eftir vinnu vegna þess að ég kunni ekki að vera eins og hinir, og skildi ekki hvernig ég var frábrugð- in. Ég bað lækni minn að taka mynd af heilanum til að sýna honum að það væri eitthvað að en ekkert sást. Ég skildi ekki veröldina en mætti þó alltaf í vinnu. Ég veit vel að ég var furðuleg á þeim tíma. Ég var til dæmis í tíma og ótíma að skoða á mér hendurnar. Ég var svo hrædd, en enginn gat hjálpað mér. Ég fann stelpur sem voru með borderline og engin upplifði neitt af þessu, ég var svo frábrugðin og ég var svo vansæl.“ Tekin með valdi af vinnustaðnum Svo fór að ástand Láru var metið það slæmt að læknir vildi láta leggja hana inn á geðdeild. „Þeir voru bara að upp- lifa einhverfuna og misskildu hana sem geðklofa. Þessi læknir þekkti mig ekki. Ef hann hefði þekkt mig úr barn- æsku, hefði þetta aldrei gerst.“ n Lára Kristín Brynjólfsdóttir var nauðungarvistuð í marga mánuði n Einhverf en talin með geðklofa „Enginn talaði við mig, ég var þessi ósýnilega sem er ótrúlega skrítin en samt dugleg og vinaleg Sárt að vera til „Ég hef fengið að vita að ég er á einhverfurófi en bíð nú eftir stað- festri greiningu. Því fyrr sem ég fæ hana, því fyrr get ég hafist handa við að fyrirgefa sjálfri mér og öðrum. Það hefur nefnilega verið svo afskaplega sárt að vera til.“ Kristjana Guðbrandsdóttir blaðamaður skrifar kristjana@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.