Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2012, Qupperneq 13

Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2012, Qupperneq 13
„Ég vil fá sjálfs- virðinguna aftur“ Fréttir 13Mánudagur 14. maí 2012 Lára vildi að sjálfsögðu ekki láta vista sig á geðdeild og gekk út úr við- talinu. Hún fór þaðan í vinnu sína á slysavarðstofuna. „Móttökurnar sem ég fékk þar settu sár á sálina sem eiga aldrei eftir að gróa,“ segir Lára frá. „Tveir einkennisklæddir lögreglu- menn biðu eftir mér þegar ég gekk inn í matstofu okkar sem var full af starfs- fólki á vaktaskiptum, ég var tekin með valdi fyrir framan alla og leidd út í lög- reglubíl í spítalasamfestingnum mín- um. Ég var lögð inn á geðdeild og var greind með ofsóknargeðklofa.“ Eins og margir sem eru fluttir með nauðung á geðdeild varð hún reið. „Ég varð reið yfir því að hafa verið tekin svona úr vinnunni fyrir framan alla í stað þess að hafa með einhverj- um hætti fengið varnaðarorð í viðtali við geðlækni minn. Ástæða þess að ég var greind með ofsóknargeðklofa var sú að ég var í mínum eigin heimi, fjar- ræn og í furðulegum stellingum. Það er ekkert nýtt í mínu fari. Þannig hef ég verið síðan ég fæddist en misslæm.“ Brjóstin fylltust af mjólk Lýsingar Láru á þeirri meðferð sem hún var látin gangast undir með nauðung eru skelfilegar. Sérstaklega í ljósi þess að greiningu á geðklofa hefur verið aflétt. Stóran hluta þess tíma sem Lára var nauðungavistuð voru henni gefin sterk lyf við geðklofa. Lyfjameðferðin skilaði ekki þeim ár- angri sem vonast var til. Hún var um tíma á lyfinu risperdal en upplifði heiftarlegar aukaverkanir, meðal ann- ars fylltust brjóst hennar af mjólk svo þurfti að mjólka þau á hverjum degi. Rannsóknir gefa til kynna að það sé vandasamt að gefa einhverfum geðlyf, aukaverkanir vegna þeirra geta orðið töluverðar eins og varð í til- felli Láru. En erfiðast fannst henni að reyna að miðla til annarra sinni eigin upplif- un. Henni fannst enginn hlusta. Með- an hún reyndi að segja frá því að hún heyrði öll hljóð á jöfnum styrk eins og algengt er með einhverfa, var hún sögð í afneitun. Að hún heyrði radd- ir. Lára talaði fyrir daufum eyrum að eigin sögn. Hrædd inni á geðdeild „Ég var læst inni á stofnun og mér var talin trú um að ég væri alvarlega veik, ég var sprautuð með geðklofalyfjum vegna þess að starfsfólkið sagði mig vera í afneitun á mínum sjúkdómi. Ef það hefði hlustað eða sett frásagn- ir mínar í samhengi þá er skelfilega einfalt að sjá hver vandinn er. Ég var neydd til þess að verja sex mánuðum lífs míns á geðdeild. Ég var neydd inn á lokaða deild með hve veikustu sjúk- lingunum á Kleppi. Ég veit að ég var ekki í jafnvægi, ég var ofsalega hrædd og ég veit að ég er furðuleg. En ég var með fullu viti, ég var enginn geð- klofasjúklingur frekar en þegar ég var þriggja ára. Loks hættu læknarnir að sprauta mig með þessum geðklofalyfjum til að gefa mér tækifæri á að vera eðlileg. Ég var orðin svo veik af áfallastreitu að ég skalf og nötraði. Það er erfitt að lýsa því hversu hrædd ég var, ég kem því ekki í orð. En ég upplifði að ég ætti enga undankomuleið. Að líf mitt væri í hættu. Þess vegna fékk ég líkast til þá greiningu að ég væri með ofsóknar- geðklofa. Þeir sem eru haldnir þeim sjúkdómi hræðast um eigið líf eða annarra. Ég var pínd innan veggja stofnana árið 2011, loks í ágúst áttuðu læknarn- ir sig á þeim mistökum að hafa greint mig með ofsóknargeðklofa og leyfðu mér að fara heim.“ Bannað að ræða um meðferðina Láru hefur verið bannað að ræða um vist sína á geðdeild og má ekki ræða á opinskáan máta um meðferð sína. Lára sýndi blaðamanni meðferðar- samning sem henni er ætlað að und- irrita. Meðferðarsamningurinn er í 11 liðum og þar eru tilteknar ýmsar regl- ur er varða meðferðina. Til að mynda skipulag viðtala og reglur um samráð. Í sjötta lið samningsins stendur eftir- farandi: „Lára Kristín skuldbindur sig til að ræða beint við meðferðaraðila sína ef óánægja kemur upp hjá henni við meðferðina. Treysti hún sér ekki til að ræða þetta beint er henni velkom- ið að koma skriflegri kvörtun áleiðis í bréfi. Hún mun hins vegar ekki senda tölvupóst á framkvæmdastjóra geð- sviðs eða aðra aðila innan spítalans. Þá mun hún ekki ræða meðferðina í fjölmiðlum eða á samskiptasíðum á netinu.“ „Ég á von“ Lára ætlar ekki að sætta sig við að mega ekki tjá sig og finnst afar mikil- vægt að fá að ræða um þá valdbeit- ingu sem hún hefur orðið fyrir. „Ég fæ ekki líf mitt aftur. Kannski hefði líf mitt orðið öðruvísi hefði ég fengið hjálp eins og aðrir einhverfir einstaklingar. En ég á von. Mér finnst að einhverju leyti ekki of seint fyrir mig að finna mig í veröldinni með réttri aðstoð. Ég veit í dag að í mínu tilfelli voru það fylgikvillar og afleiðingar sem voru meðhöndlaðar en ekki það sem raun- verulega var að. Ég harma auðvitað hversu skrítin ég er en ég hef ákveð- ið að gera mitt besta. Bæði fyrir mig og aðra. Þess vegna verð ég að segja sögu mína. Ég vil ekki að aðrir þurfi að ganga í gegnum sömu reynslu. Ég menntaði mig sem sjúkraflutninga- maður nýverið. Það er draumastarfið mitt. En ég fæ líklega aldrei tækifæri til að sinna því starfi. Því ég er ónýt eftir meðferð mína innan veggja spít- alans og virkilega reið og buguð yfir hvernig starfsfólk má haga sér, vald- beitingin er ógeðsleg og enginn virð- ist fylgjast með að farið sé eftir lögum. Ég bað ítrekað um nýjan lækni en var neitað. Það var ekki fyrr en ég talaði við Pál Matthíasson, yfirmann geðsviðs, að ég fékk beiðnum mínum svarað. Ég fékk nýjan lækni sem fékk grun um ástæðu þess að ég var svona skrítin, í raun hafði kviknað á þess- ari ástæðu stuttu áður en ekki svona sterkt. Ég hef farið í taugasálfræðileg möt og einhverfupróf á Landspítala sem leiddu í ljós einhverfu og voru send með forgangi á Greiningarmið- stöð. Ég vona að ég þurfi ekki að bíða lengi, því ég vil fá sjálfsvirðinguna aftur.“ Vill líka hrósa Lára Kristín vill að það komi fram að reynsla hennar af geðheilbrigðiskerf- inu er ekki alslæm. Hún hrósar til að mynda Helgu Jörgensdóttur, deildar- stjóra deildar 33C, fyrir að gera deild- ina fallega og hlýja fyrir skjólstæðinga, einnig fyrir mikinn metnað sem hún sýnir við störf og hversu góð hún er við sjúklinga deildarinnar. Hún hrósar hjúkrunarfræðingn- um Jón Ólafi og Jóhönnu Trausta- dóttur, sjúkraliða á sömu deild, fyrir kærleika og fagleg vinnubrögð, Auði félagsliða fyrir vináttu og stuðning, Angelu deildarlækni sem gaf sér tíma og yfirlækninum Halldóru Ólafs- dóttur sem henni fannst sýna fagleg vinnubrögð. Síðast en ekki síst hrós- ar hún Páli Matthíassyni fyrir að vilja breyta og bæta það sem miður fór. Hrópaði á hjálp en var sprautuð niður Lára Kristín telur skýrt að um mann- réttindabrot sé að ræða og hún seg- ist aldrei munu jafna sig á þeirri vald- níðslu sem hún varð fyrir. „Þetta var algjör skelfing og ótrúlegt að svona skuli geta gerst árið 2012. Ég var svo hrædd og hrópaði oft á hjálp. Einu sinni var mér haldið niðri af sex manns og ég sprautuð niður meðan ég kallaði á hjálp. Ég var nauðungar- vistuð í andstöðu við fjölskylduna, það var félagsþjónustan sem úrskurð- aði um vistunina og mamma grátbað um að það yrði hlustað á okkur. Hún af öllum vissi vel að svona hef ég verið alla ævi. Sannleikurinn er sá að ég var pyntuð innan veggja geðdeildar og kerfið ver sjálft sig. Þeir munu líkleg- ast aldrei viðurkenna nein mistök. Ég hef liðið kvalir og afleiðingarnar eru óbætanlegar. Áður en þetta gerðist bjó ég til dæmis með syni mínum. Hann er greindur með einhverfu í dag og ég fæ lítið að sjá hann í dag en hann ólst upp með mér fyrstu fjögur æviár sín. Ég fékk ekki einu sinni að leggja nokk- uð til þegar hann var greindur og það þótt ég sé móðir hans og hafi annast hann mest. Ég vil réttlæti. Ég vil að þetta sé gert upp og ég vil fá sjálfsvirð- inguna aftur. Ég hefði getað dáið. Það er á hreinu, pyntingarnar og vanlíð- anin vegna þeirra var slík.“ n n Lára Kristín Brynjólfsdóttir var nauðungarvistuð í marga mánuði n Einhverf en talin með geðklofa Einhverf en talin með geðklofa Lára skoraði mjög hátt á einhverfuprófi og hefur verið send áfram í einhverfumat. „Ég vona að ég þurfi ekki að bíða lengi, því ég vil fá sjálfsvirðinguna aftur.“ Mynd sigtryggur ari saga Láru er ekki einsdæmi Mamiko Dís Ragnarsdóttir sagði sögu sína 22.apríl sl.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.