Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2012, Qupperneq 14
70 ára ráðgáta
er loksins leyst
14 Erlent 14. maí 2012 Mánudagur
Sjötugur afreksmaður
n Bill Burke ætlar á topp Everest frá tveimur hliðum
Þ
egar Bandaríkjamaðurinn
Bill Burke var 67 ára ákvað
að hann að klífa Everestfjall,
hæsta fjall heims, í fyrsta
skipti. Burke fór alla leið upp á
topp og varð um leið elsti Banda-
ríkjamaðurinn til að klífa fjallið. Nú
er Burke, sem er búsettur í Costa
Mesa í Kaliforníu, að undirbúa tvær
býsna magnaðar ferðir á topp fjalls-
ins. Hann ætlar að klífa fjallið frá
báðum hliðum. Annars vegar ætl-
ar hann að fara upp norðurhliðina
sem liggur að Tíbet og hins vegar að
frá Nepal, en það er einmitt sama
leið og Sir Edmund Hillary og Tenz-
ing Norgay fóru árið 1953 þegar þeir
urðu fyrstir í sögunni til að komast
alla leið á toppinn.
„Þetta verður gríðarlega krefj-
andi ferð,“ segir Burke í samtali við
Reuters. Veðurskilyrði til að fara á
topp Everest eru alla jafn best í maí-
mánuði, en þó er afar sjaldgæft að
göngugarpar ákveði að fara upp báð-
ar hliðar með nokkurra daga milli-
bili.
Stór hópur göngugarpa er nú
við rætur Everestfjalls, sem er 8.850
metra hátt, og býr sig undir að ganga
á toppinn. Göngutímabilinu lýkur
í lok mánaðarins en í júní tekur við
rigningatímabilið. Samkvæmt frétt
Reuters hefur tæplega 3.700 göngu-
mönnum tekist að komast á topp
Everest frá því að þeim Edmund
Hillary og Tenzing Norgay tókst það
fyrst. Á þessum tæplega 60 árum sem
liðin eru hefur að minnsta kosti 231
týnt lífi við að reyna að komast á topp
fjallsins.
R
áðgátan um hvarf lítillar
Kittyhawk-flugvélar breska
flughersins sem hvarf í júní
árið 1942 virðist vera leyst.
Nýlega fannst flak vélarinnar
í eyðimörkinni í vesturhluta Egypta-
lands, aðeins einn var um borð í vél-
inni, breski herflugmaðurinn Denn-
is Copping. Copping var liðþjálfi í
breska flughernum og þjónaði landi
sínu í síðari heimsstyrjöldinni þeg-
ar hann hvarf fyrirvaralaust, að því
er virtist. Þó svo að flugvélin sé nú
fundin hafa líkamsleifar Coppings
ekki fundist. Það rennir stoðum und-
ir þá kenningu að hann hafi komist
lífs af frá slysinu og reynt að ganga til
byggða.
Brakið heillegt
„Vélin hefur setið þarna á sama stað
undanfarin 70 ár. Hún hefur ekki
horfið í sandinn heldur setið þarna
allan þennan tíma,“ segir Andy
Saund ers, breskur sagnfræðingur, í
samtali við The Daily Mail. Saunders,
sem hefur skoðað flak vélarinnar,
segist þess fullviss að Copping hafi
lifað slysið af. Flakið sé nokkuð heil-
legt og að svo virðist sem Copping
hafi nauðlent vélinni úti í miðjum
óbyggðum.
Það voru starfsmenn olíufyrirtæk-
is í Egyptalandi sem rákust á flak vél-
arinnar fyrir tilviljun fyrir skemmstu.
Að minnsta kosti 320 kílómetrar eru
til næstu byggðar og því átti Copping
litla von um að komast lífs af.
Hafi reynt að ganga til byggða
Copping þjónaði í breska flughern-
um í Egyptalandi í síðari heimsstyrj-
öldinni, en samkvæmt frétt The Daily
Mail um fundinn er talið að hann hafi
verið á leið að sækja varahluti þeg-
ar vélin missti afl. Flugvélin hvarf af
ratsjá í kjölfarið og sást ekki aftur. „Ef
hann hefði dáið þegar vélin brotlenti
hefðu líkamsleifar hans fundist,“ segir
Saunders og bætir við: „Hann hlýtur
að hafa gert sér grein fyrir því að eng-
inn myndi finna hann. Það bendir flest
til þess að hann hafi reynt að ganga
til byggða en látist á leiðinni,“ segir
Saunders.
Flutt á safn
Flak vélarinnar verður að öllum lík-
indum flutt á Konunglega breska flug-
herminjasafnið í Lundúnum og er
undirbúningur á flutningi vélarinnar
þegar hafinn. Paul Collins, sendiráðs-
ritari Breta í Egyptalandi, segir að reynt
verði að finna líkamsleifar Saunders í
eyðimörkinni. Hann viðurkennir þó
að afar ólíklegt sé að sú leit beri árang-
ur. „Þetta er þekkt smyglleið frá Súdan
til Líbíu,“ segir Collins um svæðið sem
vélin liggur á. „Við þurfum að fá aðstoð
frá egypska hernum því þetta er mjög
hættulegt svæði.“
n Flak flugvélar sem hvarf 1942 er fundið n Reyndi að ganga til byggða„Ef hann hefði
dáið þegar vélin
brotlenti hefðu líkams-
leifar hans fundist.
Einar Þór Sigurðsson
blaðamaður skrifar einar@dv.is
Verður flutt á safn Undirbúningur fyrir flutning vélarinnar á safn í Bretlandi er þegar hafinn.
Mynd SkjáSkot aF VEF daily Mail
Mjög heilleg Eins og sést
á meðfylgjandi mynd er flak
vélarinnar mjög heillegt.
Mount Everest Burke ætlar að freista þess að komast á topp fjallsins frá báðum hliðum.
Burke er sjötugur.
Skoðanakönnun Bloomberg:
Fjárfestar
vilja Obama
Barack Obama, forseti Banda-
ríkjanna, er betur til þess fallinn
að leiða efnahag Bandaríkjanna á
rétta braut en Mitt Romney, líklegt
forsetaefni Repúblikanaflokksins.
Þetta leiðir skoðanakönnun, sem
viðskiptavefur Bloomberg fram-
kvæmdi meðal fjárfesta, greinenda
og verðbréfamiðlara um allan heim.
Alls tóku 1.253 einstaklingar þátt í
könnuninni og sögðu 49 prósent að
Obama væri líklegri til að rétta efna-
hag Bandaríkjanna af en 38 prósent
nefndu Romney. Sama könnun var
gerð í janúar og þá voru Obama og
Romney nánast hnífjafnir.
„Obama hefur tekist að leysa vel
úr mörgum vandamálum sem rekja
má til fyrri ríkisstjórnar,“ segir Mario
Di Marcantario, yfirmaður Eurizon
Capital í Mílanó á Ítalíu, í samtali
við fréttavef Bloom berg. Þátttak-
endur í könnuninni virðast einnig
telja að Obama hafi betri yfirsýn yfir
efnahagsmálin og vandamálin þeim
tengd en Romney.
Nokkur munur virðist á afstöðu
þátttakenda eftir því hvar í heimin-
um þeir búa. Fjárfestar, greinendur
og verðbréfamiðlarar í Bandaríkj-
unum virðast hafa meiri trú á Mitt
Romney en utan Bandaríkjanna
er þessu þveröfugt farið: Þar hefur
Obama vinninginn.
Þá virðast flestir telja að Obama
nái endurkjöri í forsetakosningun-
um sem fara fram síðar á árinu. 74
prósent segja að hann muni „alveg
örugglega“ eða „líklega“ ná endur-
kjöri, en það er svipuð tala og birtist
í niðurstöðum könnunarinnar í
janúar.
Samstarfs-
maður Konys
handtekinn
Úgandski herinn handtók um
helgina Caesar Achellam, sem er
háttsettur innan skæruliðasamtak-
anna Andspyrnuhers drottins. Ac-
hellam hefur undanfarin ár verið
hægri hönd Josephs Kony, leiðtoga
samtakanna.
Achellam var handtekinn í Mið-
Afríkulýðveldinu á laugardag og er
vonast til þess að handtaka hans
verði til þess að Kony verði hand-
tekinn innan skamms.
Mikið var fjallað um Joseph
Kony, sem er eftirlýstur af Alþjóða-
stríðsglæpastólnum, í mars eftir að
samtökin Save the Children birtu
myndband þar sem voðaverkum
hans og fylgismanna hans var lýst.
Hann og meðlimir samtaka hans
eru taldir ábyrgir fyrir nauðgunum,
morðum og limlestingum auk þess
sem talið er að samtök hans hafi
rænt hátt í 70 þúsund börnum á
undanförnum 25 árum; dreng-
irnir voru þvingaðir til að gerast
hermenn og taka þátt í skæruhern-
aði en stúlkurnar þvingaðar til að
verða kynlífsþrælar. Markmið Ko-
nys var upphaflega að ná völdum
í Úganda og gera landið að eins
konar klerkaríki.