Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2012, Side 18
18 Umræða 14. maí 2012 Mánudagur
Benedikt Traustason Hver
er munurinn á þér og öllum
hinum frambjóðendunum?
Hannes: Nú þekki ég ekki alla
frambjóðendurna svo þessu er
erfitt að svara. Stærsti munurinn
er kannski sá að ég er með
starfsreynslu frá mismunandi
starfsgreinum bæði frá Ísland
og Noregi. Hef unnið í iðnaði,
smíðum, landbúnaði, hóteli,
heildverslun, veitingastöðum,
bakaríi – allt á Íslandi. Í Noregi hef
ég unnið í stórum sveitarfélögum
og ríkisfyritækjum.
Aðalsteinn Kjartansson
Heldurðu að þú eigir
raunhæfa möguleika á því að
hljóta kosningu?
Hannes: Ég vona að ég eigi
hljómgrunn hjá hinum almenna
Íslendingi, þeim sem stundar sína
verkamannavinnu. En til þess verð
ég að sjálfsögðu að koma mér
betur á framfæri í fjölmiðlum :)
Atli Fanndal Hvernig
kemurðu sjálfum þér á
framfæri? Hvernig er
kosningabaráttunni háttað hjá þér?
Hannes: Hingað til hef ég mikið
verið úti á landi að tala við fólk
og safna undirskriftum. Einnig er
ég byrjaður að skrifa greinar í fjöl-
miðlum. Þannig að ég verð líklega
meira í sviðsljósinu á næstunni.
Fundarstjóri Hvað ertu
búinn að safna mörgum
undirskriftum?
Hannes: Er ekki búinn að telja
þetta saman, en það líður að því.
Það á að skila undirskriftum þann
15. maí í Vestur- og Norðurkjör-
dæmi.
Fundarstjóri Hvað áætlar þú
að kosningabaráttan kosti
þig mikið? Hvaðan kemur
fjármagnið?
Hannes: Kostnaðurinn við mitt
framboð er bara brot af þeirri tölu
sem hefur verið í umræðunni í
fjölmiðlum. Ég fjármagna þetta
sjálfur.
Hildur Lilliendahl
Viggósdóttir Sæll, Hannes.
Ertu femínisti? Skiptir máli
hvort forseti Íslands er femínisti eða
ekki?
Hannes: Ég er jafnréttismaður
og ef femínisti er jafnréttismann-
eskja þá er ég það. Ólst upp á
klassísku sveitaheimili og ég var
ekki gamall þegar ég fór að hjálpa
mömmu við jólamatinn á meðan
karlarnir hlustuðu á jólamessuna.
Helgi Eyjólfsson Sæll,
Hannes. Með hvaða liði
heldurðu í enska boltanum?
Hannes: Man. Utd…
Ásta Sigrún Magnúsdóttir
Hvers vegna vill einstaklingur
sem hefur búið í Noregi í
lengri tíma skyndilega verða forseti?
Hannes: Ekki skyndilega. Það er
nú einu sinni þannig að sá sem fer
í forsetaframboð er ekki einn á
ferð. Konan og börnin eru í þessu
líka. Þessi ákvörðun hefur því
mikil áhrif á alla og er ekki þannig
eðlis að maður vakni upp fagran
vormorgun og ákveði að fara í
forsetaframboð. Ég tel mig mun
meiri Íslending eftir dvöl í Noregi
og lít á Ísland sem land tækifæra
og kosta. Ég vil stuðla að fram-
gangi og uppbyggingu landsins og
þess vegna fer ég í framboð.
Ragnar Egilsson Hver ert þú
eiginlega? Við hvað vinnur
þú?
Hannes: Of langt mál að segja
mikið frá mér hér í dag… Bendi
ykkur á vefsíðuna jaforseti.is.
Þar er meira að finna um mig. En
svona örstutt, þá held ég að ég
sé dæmigerður Íslendingur sem
alltaf hefur þurft að vinna fyrir sér.
Ragnar Egilsson Með
hverjum heldur þú í norska
boltanum?
Hannes: Ætli það verði ekki að
vera Molde.
Hildur Lilliendahl
Viggósdóttir Ég endurtek:
Skiptir það máli hvort forseti
Íslands er femínisti eða ekki?
Hannes: Ekki ef forsetinn er
heiðarleg manneskja sem vill
vinna að jöfnuði meðal allra.
Femínisti er bara orð sem er
merkingarlaust án gjörða. Ég vil
jafnrétti fyrir alla óháð kyni. Og ef
hallar á konur þá á að sjálfsögðu
að breyta í þeim málum og eyða
órétti.
Aðalsteinn Kjartansson Þú
ert augljóslega ekki ánægður
með störf Ólafs Ragnars,
hvað telurðu að hann hafi gert
öðruvísi en þú hefðir gert í sömu
sporum?
Hannes: Er ekki endilega ósáttur
við Ólaf. Það sem mér hins vegar
finnst miður er að maður ætli
sér í forsetastólinn en biður um
skilning ef hann hættir eftir tvö
ár. Í mínum huga er sá maður ekki
helgaður starfinu. Og það verður
maður að vera í slíku embætti.
Hildur Lilliendahl
Viggósdóttir Ok, takk fyrir
svarið. En finnst þér halla á
konur?
Hannes: Það má sjálfsagt færa
rök fyrir því, já. Til að mynda er
nýlega komin út könnun á launa-
mismun hjá ríkinu þar sem konur
koma tölvert verr út en menn.
Vera Knúts Hvers vegna
ákvaðst þú að bjóða þig fram
til forseta?
Hannes: Hef alltaf haft mikinn
áhuga á þjóðfélagsmálum og
hef fylgst vel með gangi mála á
Íslandi frá Noregi. Eins og ég sagði
sé ég mikla kosti og möguleika á
Íslandi en það sjónarmið virðist
hverfandi í þjóðfélagsumræðunni
í dag. Þetta finnst mér miður og vil
bjóða mína þjónustu til að vinna
að heill landsins.
Fundarstjóri Hvert verður
þitt fyrsta verk sem forseti
Íslands?
Hannes: Það er margt sem mig
langar til að vinna að. Þó er það
tvennt sem ég hef séð á ferð minni
um landið og sem veldur mér
miklum áhyggjum og það er aukin
fjarlægð á milli landsbyggðar og
höfuðborgarsvæðisins annars
vegar og svo siðferði hins vegar.
Þetta eru verkefni sem mundu
vera ofarlega í mínum huga.
Erna Magnúsdóttir Þú segir
„ef hallar á konur“, getur verið
að þú efist um það af því að
þú ert úr takti við íslenskt þjóðlíf?
Hannes: Þrátt fyrir útlegð mína í
Noregi þá tel ég mig í þokkalegum
tengslum við íslenskt þjóðlíf.
Og eftir að hafa verið á ferð
um landið og talað við fólk þá
stend ég við það. Þú ert hins
vegar inni á áhugaverðri braut og
það er hvernig einstaklingar sjá
hlutina frá sínu sjónarmiði. Og
sjónarmiðin eru mörg. Þar vil ég
benda á sjónarmið hjá fyrrverandi
forseta þar sem henni finnst jafn-
réttisbaráttan hafa gengið heldur
langt. Sjálfur er ég ekki sammála
því. En sjónarmiðin eru mörg
og margvísleg og klókur maður
kynnir sér sem flest sjónarmið og
tekur afstöðu út frá því.
Helgi Eyjólfsson Nú hefur
verið sagt að Þóra sé svona
Vigdísar-forseti, Ari Trausti sé
Kristján Eldjárn og svo að sjálfsögðu
Ólafur Ragnar hann sjálfur. Í hvaða
forsetum, lifandi eða látnum, sérð þú
þig sjálfan?
Hannes: Ég bar mikla virðingu
bæði fyrir Kristjáni og Vigdísi.
Hins vegar mun nýr forseti setja
sín fingraför á embættið bæði
gegnum eigin skoðanir og gjörðir.
þess vegna vildi ég sjá fleiri af
okkur frambjóðendum kynna sín
eigin sjónarmið í margslungnum
málum. Því miður virðast
sumir fara svolítið eins og köttur
í kringum heitan graut stundum
þegar spurt er. Maður á að koma
til dyranna eins og maður er
klæddur, það snýst um gegnsæi í
mínum huga.
Fundarstjóri Ok, viltu nefna
dæmi um hvaða frambjóð-
andi hefur farið „eins og
köttur í kringum heitan graut“ og af
hvaða tilefni?
Hannes: Ætli Ástþór sé ekki
sá eini sem hefur svarað öllum
spurningum skilmerkilega án þess
að hugsa um að nú fæli hann frá
sér kjósendur.
Hjörtur Hjartarson Hver er
skoðun þín á frumvarpi að
nýrri stjórnarskrá?
Hannes: Mér líst ágætlega á
frumvarpið. Margt gott þar.
Þó vildi ég fá að sjá „náttúru-
auðlindir“ betur skilgreint.
Fundarstjóri Hér koma tvær
spurningar sem eru svipaðar:
Ólafur Sindri Skv.
jaforseti.is hefurðu
verið „þátttakandi í
atvinnulífinu, á sumrin og eins
samhliða skólagöngu“. Þýðir það að
þú hafir aldrei verið í fullri vinnu? Ætti
það ekki að hringja viðvörunar-
bjöllum?
Hildur Lilliendahl
Viggósdóttir Skv. jaforseti.is
er ekki að sjá að þú hafir
beinlínis verið í fastri og fullri launaðri
vinnu á lífsleiðinni. Getur þetta
staðist? Verður forsetaembættið
fyrsta alvörudjobbið þitt?
Hannes: Hef verið í fastri launaðri
vinnu í mörg ár. Fannst bara ekki
rétt að leggja út ferilskrána :þ)
Seinasta fulla starfið sem ég var
í á Íslandi var 100% staða sem
vaktstjóri á næturvöktum BSÍ,
samhliða fullu námi í HÍ.
Sveinn Þórhallsson Hvernig
finnst þér að sambandi ríkis
og kirkju ætti að vera háttað?
Hannes: Þjóðkirkjan stendur fyrir
miklu menningarstarfi um allt
land og ekki bara trúarbrögðum.
Mér finnst að núverandi ákvæði
um þjóðtrú í stjórnarskránni ætti
að standa áfram.
Sigurður Sigurðsson Hefur
þú kynnt þér tillögur
stjórnlagaráðs að nýrri
stjórnarskrá? Telur þú að þær feli í sér
breytingar á forsetaembættinu og
hverjar þá helst? Myndir þú styðja
þessar tillögur í þjóðaratkvæða-
greiðslu?
Hannes: Eins og ég sagði áðan
þá finnst mér tillögurnar eins og
þær eru núna ekki myndu hafa í
för með sér róttækar breytingar á
embættinu. Og já, ég styð tillögur
um þjóðaratkvæðagreiðslu. Huga
ber samt vel að kröfum um fjölda
undirskrifta til að knýja á um
atkvæðagreiðslu.
Sveinn Þórhallsson Þú talar
um að siðferði yrði þér
ofarlega í huga sem forseti.
Hvað meinarðu með því og hvernig
myndirðu bæta úr því sem þér finnst
þurfa að laga þar?
Hannes: Tek dæmi: Maður sem
rekur bensínstöð úti á landi tapar
um 600.000 kr. á hverju sumri
því fólk stingur af án þess að
borga. Kona sem er að byggja er
í vandræðum með að ráða fólk
í vinnu á meðan það er nokkuð
mikið atvinnuleysi. Einelti er úti
um allt, ekki bara í skólum. Og
ekki minnst allt það sem er að
koma upp á yfirborðið um hvernig
menn höguðu sér fyrir hrunið.
Það þarf að efla siðferði á öllum
stigum í þjóðfélaginu. Þar vil ég
sýna góða fyrirmynd en það er
ekki nóg. Þetta er hlutur sem einn
forseti getur bætt einn og sér. En
umræðan verður að vera sýnileg.
Helgi Eyjólfsson Ef það yrði
gerð Hollywood-mynd um þig
og þitt lífshlaup, Hannes,
hver myndi leika þig?
Hannes: Jason Bourne…
Sigþrúður Þorfinnsdóttir
Muntu nota málskotsréttinn?
Hannes: Ef sú aðstaða kæmi
upp og ég teldi það vera í þágu
þjóðarinnar þá mundi ég gera
það. Vil samt taka undir gagnrýni
sem margir hafa sett fram, um að
forseti geti beitt málskotsrétt-
inum að eigin geðþótta, því það
er alveg rétt. Einmitt þess vegna
er forsetaembættið svo snúið og
krefst þess eiginleika að geta séð
mál og málefni frá öllum hliðum.
Fundarstjóri Svar
frambjóðandans um Jason
Bourne vekur mikil viðbrögð.
Næstu tvær spurningar tengjast því.
Helgi Eyjólfsson Jason
Bourne er tilbúin persóna frá
9. áratugnum í bókum
Roberts Ludlum sem síðar voru
kvikmyndaðar. Sá sem lék hann heitir
Matt Damon. Varstu að meina Matt
Damon, eða?
Ragnar Egilsson Hvað finnst
þér um sögusagnir um að
Jason Bourne hafi gerst sekur
um föðurlandssvik?
Hannes: Matt Damon eða
Bourne, ef hann væri leikari :)
Logi Guðmundsson Er A-ha
það besta sem komið hefur
frá Noregi?
Hannes: Konan mín er ótvírætt
það langbesta sem hefur komið
frá Noregi :)
Sif Traustadóttir Hvernig
telur þú að menntun þín og
starfsreynsla muni nýtast þér
í starfi sem forseti Íslands?
Hannes: Tel það afar mikilvægt að
hafa unnið í mismunandi starfs-
greinum til þess að öðlast skilning
á lífsbaráttu fólks í landinu. Til
dæmis verður maður að upplifa
það sjálfur að vinna í verksmiðju
til þess að skilja hvernig það getur
myndast eigið samfélag þar. Þá tel
ég það nauðsynlegt að hafa unnið
í pólitísku umhverfi og þekkja til
hvernig þeir ferlar virka. Þá er það
ekki ónýtt fyrir mig að hafa staðið
í fararbroddi verkalýðshreyfingar
í Noregi. Hvað menntun varðar þá
er landafræði almennt nám sem
nýtist vel og stjórnunarnám sem ég
hef numið mun nýtast vel.
Svala Jonsdottir Hefur þú
starfað með einhverjum
stjórnmálaflokki eða
pólitískum samtökum, á Íslandi eða í
Noregi, á þínum fullorðinsárum? Ef
svo er, þá hverjum?
Hannes: Fæddur og uppalinn í
mikilli Samvinnu- og framsóknar-
fjölskyldu í Skagafirði. Á meðan
Steingríms Hermannssonar naut
við var ég framsóknarmaður, þó
ekki flokksbundinn minnir mig.
Leiðir skildu svo þegar auðgildið
varð manngildinu ofar.
Vera Knúts Hefur þú hug á
að flytja til Íslands þó að þú
náir ekki kjöri?
Hannes: Hef verið á leiðinni
síðustu 13 ár… Þannig er því
farið að ég kynntist norskri konu og
eignuðumst við saman 2 börn. Síðar
slitnaði upp úr því sambandi. Það er
það sem hefur haldið mér í Noregi.
Helgi Eyjólfsson Nú getur
forseti lýðveldisins náðað fólk
skv. stjórnarskránni. Er það
heimild sem þú gætir hugsað að þér að
nota, og stimpla þig þannig rækilega inn
sem forseti alþýðunnar? Í því samhengi
vil ég sérstaklega nefna 95. gr.
hegningarlaga sem snúa að smánun
erlends ríkis eða þjóðar.
Hannes: Ef það liggja nægjanleg
rök fyrir náðun þá sé ég ekkert því
til fyrirstöðu. Reikna með því að
forsetinn fái nú samt mikla hjálp
og tillögur um hverja ætti að náða.
Vinsæl
ummæli
við fréttir DV.is í vikunni
„Það er ekki gott
þegar fólk sér fjand-
ann í hverju horni.
Veit ekki hvort eitthvað er til
við svona ofsóknaræði eins og
herjar á aumingjans karlinn.
Hins vegar er frekar lágsiglt
að fara í Svavar en ekki fram-
bjóðandann, það er jú hún
sem er að fella Ólaf í þessari
kjánalegu uppákomu hans að
láta þjóðina klappa sig upp.
Það hafa margar kann-
anir verið gerðar og útilokað
að Svavar hafi stjórnað þeim
öllum. Ólafur verður að sætta
sig við að fólk vil breytingar og
hann getur örugglega fengið
starf hjá LÍÚ þar sem hann
getur haldið áfram að vara við
breytingum á kvótakerfinu.“
Guðmundur Sigurðsson í
athugasemd við frétt DV.is um
gagnrýni Ólafs Ragnars Gríms-
sonar, forseta Íslands, á Svavar Hall-
dórsson, eiginmann Þóru Arnórsdóttur
forsetaframbjóðanda, og Ríkisútvarpið.
„Jæja, er þá forsetinn
byrjaður að henda
skít í allar áttir.
Smekklegt Óli, smekklegt.“
Hallveig Rúnarsdóttir um gagn-
rýni Ólafs Ragnars á Svavar og RÚV.
„Þetta er frábært
dæmi um „borg-
aralega óhlýðni“.
Þetta fólk er raunverulegar
hetjur, tilbúið að fara gegn
ósanngjörnum lögum og taka
afleiðingunum.“
Jón Ragnarsson í athugasemd
við frétt um lesbíska konu sem
var handtekin í Norður-Karólínu í
Bandaríkjunum um helgina. Konan reyndi
án afláts að fá sig skráða í hjónaband
með konu. Á miðvikudag samþykktu
kjósendur í ríkinu að koma á banni
gegn hjónaböndum samkynhneigðra í
stjórnarskrá Norður-Karólínu.
„Gangi þér vel Greta
Salóme. Þú ert frábær
tónlistarmaður og
verður sómi okkar í Baku.“
Þórkatla Sæmundsdóttir í
athugasemd við viðtal við Gretu
sem birtist í helgarblaði DV um
helgina. Brot úr viðtalinu var einnig birt
á DV.is. Greta býr sig nú undir Eurovision-
söngvakeppnina sem fer fram í Aserbaíd-
sjan síðar í mánuðinum.
„Það hefði kannski
verið sniðugra að
stinga harða diskinn
...Idiot.“
Hjalti P. Finnsson í athugasemd
við frétt um mann sem var hand-
tekinn vegna gruns um vörslu
barnakláms í Bandaríkjunum. Þegar
lögregla réðist til inngöngu á heimili hans
stakk hann móðurborð tölvu sinnar með
samúræja-sverði. Þrátt fyrir það lagði
lögregla hald á talsvert magn af grófu efni
– enda geymir harði diskurinn allar skrár
tölvunnar, ekki móðurborðið.
„Maður fær velgju
fyrir hönd þessarar
þjóðar. Útgerðar-
maðurinn notaði öll trixin í
bókinni til að villa um, talaði
um göngin, börnin sín, og
ógnina af atvinnumissi.“
Hermann Bjarnason í at-
hugasemd við leiðara Jóns Trausta
Reynissonar, ritstjóra DV, sem
birtur var á DV.is um helgina. Yfirskrift
leiðarans var Við, útgerðarmenn.
33
31
18
11
8
11
Hannes Bjarnason er í framboði til forseta Íslands. Hann sat fyrir svörum á Beinni línu á föstudag.
Miklir möguleikar fyrir Ísland
Nafn: Hannes Bjarnason
Aldur: 41 árs
Starf: Nemi við Handels-
høgskolen BI í Osló.
Menntun: Landfræðingur