Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2012, Page 26

Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2012, Page 26
26 Fólk 14. maí 2012 Mánudagur n Spennandi verkefni og gífurlegt tækifæri Semja fyrir A.J. úr Backstreet Boys B ackstreet Boys var ein vin- sælasta hljómsveit veraldar á sínum tíma. Þetta er því frábært tækifæri. Við erum mjög spenntir,“ segir tónlistar- og útvarpsmaðurinn Brynjar Már en hann og Vignir Snær Vigfússon eru nýkomnir heim frá Hamborg þar sem þeir unnu að tónlist með bandaríska tónlistarmanninum A.J. McLean, ein- um meðlima hljómsveitarinnar The Backstreet Boys. Brynjar Már og Vignir hafa lengi unnið saman að tónlist og eru nú farnir að semja fyrir aðra listamenn. „Þetta er bara byrjunin á stóru verk- efni sem við erum að hella okkur út í. Ég er með frábæran umboðsmann í London sem hefur verið að vinna með mörgum af þekktustu stjörnun- um. Það verður spennandi að sjá hvað gerist í framhaldinu.“ „A.J. kom mér á óvart. Við tókum í spaðann á honum og svo var bara eins og við hefðum þekkst í mörg ár. Hann var bara ótrúlega eðlilegur og skemmtilegur. Þetta samstarf hefði auðveldlega getað orðið yfirborðs- kennt en það var ekki til. Við rædd- um um allt milli himins og jarðar og meðal annars að hann var að koma úr meðferð. Svo erum við báðir með tattú. Þetta var mjög vinalegt. Það er svo gott að vinna með fólki þar sem enginn er yfir annan hafinn. Við vor- um bara eins og félagar og sömdum frábært lag allir saman. Að öllum líkindum munum við Vignir eiga tvö lög á plötunni hans,“ segir Brynjar en sólóplata A.J. kemur út í kringum næstu jól. „A.J. er að túra með Backstreet Boys og New Kids on the Block en þegar því lýkur hittumst við í Los Angeles og höldum áfram,“ segir Brynjar Már og bætir aðspurður við að vissulega hafi hann orðið glaður þegar hann fékk fréttirnar um sam- starfið við stjörnuna. „Ég varð alveg rosalega hissa og bara alveg í skýj- unum. Þessi plata verður mjög flott en hún verður í svona „Evrópustíl“ og þess vegna vildi hann fá okkur. Evrópa er mjög heit í Bandaríkjunum í dag,“ segir Brynjar Már sem viðurkennir að hafa aldrei verið sérstakur aðdáandi Backstreet Boys. „En auðvitað hef ég fylgst með þessu bandi í gegnum út- varpið. Þetta var svo rosalega vinsæl hljómsveit um tíma. Ég þekki fullt af lögum með þeim en myndi lík- lega aldrei kveikja á plötu með þeim heima í stofu. Samt eiga þeir mikið af fínum lögum enda hafa frábærir höf- undar verið að semja fyrir þá eins og hinn sænski Max Martin sem er einn sá stærsti í heimi. Það að við séum að blandast inn í þetta er svakalegt ævintýri sem á vonandi eftir að opna frekari dyr.“ Brynjar Már er einnig að vinna að eigin efni. „Ég vil ekkert frekar semja fyrir aðra en sjálfan mig en þegar maður er með þessa bakteríu er erfitt að vera ekki á bólakafi. Mörg stærstu nöfnin í bransanum í dag byrjuðu svona – með því að semja fyrir aðra og komust þannig inn í geirann. Það er svo erfitt að brjótast í gegn því það eru svo margir um hituna. Fyrst þarf að sanna sig í hinu og þessu og maður veit aldrei. Ég get ekki ímyndað mér betra starf en að ferðast um heiminn og semja tónlist. Mér finnst svo æðis- legt að hitta nýtt fólk – sama hvort það er frægt eða ekki – og mér líst mjög vel á A.J. sem tónlistarmann. Það kom mér á óvart. Ég var alls ekki viss um að hann gæti sungið en hann er hörku „talent“ og með mjög flotta upptök- urödd.“ indiana@dv.is n Brynjar Már segir stórstjörnuna vinalega n „Við erum mjög spenntir“ Gaman saman Brynjar Már, A.J. og Vignir Snær náðu vel saman.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.